Akranes - 01.05.1949, Page 21

Akranes - 01.05.1949, Page 21
AKPANESS Gjafir og greiðslur til blaðsins, sem það þakkar innilega. Þorsteinn Ámason smiður Keflavik, 50 kr. Guðjón Rögnvaldsson bóndi Tjöm i Biskupstung- um, 200 kr. f. 1948 og 1949. Stefán Ámason yfirlögregluþjónn Vestmannaeyjum 100 kr. Páll Eyjólfsson Vestmannaeyjum, go kr. Gísli Sigur- geirsson verkstjóri Hafnarfirði, go kr. Þorgrimur Sigurðsson skipstjóri Rvk., 100 kr.. Halldór Fjall- dal Keflavík, go kr„ Flotvarpan. hefur verið reynd af bátuin héðan af Akranesi. Mun mega segja að hún hafi virzt gefa fremur góða raun, en vera of veik til að halda nokkru magni. Verður tilraunum haldið áfram, og nú með nylon-vörpu, sem verið er að útbúa. Gatnagerð. Nú hafa vetið gerðir nýir satnningar um að halda götunum í bænum vel hefluðum að stað- aldri. Má jtegar sjá þess nokkur bata merki og verður svo vonandi éfram. Þá mun enn i sumar verða haldið áfram frekari gangstéttagerð, en l>að er það sem leggja verður höfuðáherzlu á. Ekkert er eins nauðsynlegt fyrir gangandi fólk, um leið og það santhliða hefur gagngerð áhrif til fegurðarauka og þrifnað í bænum. Er þörfin t. d. mjög rik á að leggja gangstétt með Hafnarbraut, vestur á Ránargötu og upp að Bíóhöll. Einnig ofanverða Vesturgötu frá bamaskólanum. Þá verða gerðar ýmsar breytingar til batnaðar á Vegamótatorgi. Hafnargerðin. Því verki verður fram haldið í suntar og er þegar hafið. Einnig standa nú yfir samningar uin karakaup á ný. Ilafa þeir samningar tekizt og mun fljótlega verða lagt af stað með það heim. Síldin í sumar. Héðan munu bátar enn leggja til sildveiða fyrir norðurlandi. Vonandi verður árangurinn meiri en undanfarin ár. Stórbruni. Hinn 16. maí s. 1. varð hér mikill bruni, er eldur kom upp i íshúsi Haraldar Böðvarssonar & Co. Brann til kaldra kola vestasti hluti hússins, þar sem í var vinnusalur og frystiklefar. Áfast húsi þessu var og matvörubúð fyri'rtækisins, sem líka brann. Var þetta mikið og tilfinnanlegt tjón fyrir oigendur og bæjarfélagið í heild. Þegar eftir brunann var hafizt handa um nýja byggingu, og er unnið að endurbyggingu með atorku. Vélar hússins skemmdust litið og er þvi hægt að halda við frosti i þeim hluta hússins, sem ekki brann. Sjálfs er höndin hollust. Nokkrir dugnaðarmenn hafa nýlega keypt hingað tvo báta, er þeir fyrst og fremst ætla að stunda á fiskveiðar sjálfir. Þegar valinn maður er i hverju rúmi og þeir eru samhentir, geta hlutimir ekki gengið nema vel, nema eitthvað meira en minna sé beinlinis bogið við þjóðfélags- reksturinn í heild. Fyrri báturinn heitir GlaSur og eru eigendur hans: Gunnar Ásgeirsson, Jóhannes Jónsson og Jón Þ. Sigurðsson. Hinn heitir Leifur, og eigendur hans: Sigurjón Kristjánsson skipstjóri og Hjalti Benónýsson vél- stjóri. Dánardægur. Sigriður Lárusdóttir Ottesen á Vindhæli and- aðist hinn 9. maí s. 1.. Þórður Erlendsson, lengi i Galtarholti, andaðist hinn g. maí s. I. Hallfriður Ólafsdóttir í Efstabæ, andaðist þar 1. júní. Hún var fædd á Brekku i Skagafirði 18g7. Oddur Gislason á Hliði andaðist hinn 12. júni. Hann var fæddur og upp alinn á Hliði, og dvaldi á Akranesi allan aldur sinn. Hann stundaði sjó á opnum skipum. Oddur var mjög hæggerður maður, stilltur og prúðmenni hið mesta. Hátíðahöld 17. júní. Hér var þessa dags minnst og fór það vel fram. Sóknarpresturinn sr. Jón M. Guðjónsson messaði i kirkjunni. Fjölmenn skrúðganga gekk um bæinn og staðnæmdist við bamaskólann. Þar fluttu ræður Magnús Jónsson skólastjóri og Pétur Ottesen al- þingismaður. Ragnar Jóhannesson skólastjóri las upp og kynnti einnig atriði. Ungar stúlkur sungu og léku undir á guitara. Friðrik Hjartar skólastjóri stjómaði fjölda-söng. Karlakórinn Svanir söng nokkur lög undir stjórn Geirlaugs Árnasonar. Sá söngur var miklum mun betri en ég bjóst við. Hann sýndi ótrirætt að félagið verður að halda áfram og koma fram opinberlega með fullkomna söngskrá. Kraftamir eru sýnilega til og samræmi er hægt að fá svo að frambærilegt sé. Ungir menn og miðaldra geta á engan hátt betur varið fri- tima sinum en að þroska sinn innri mann — og annara — með þvi að láta tónaregn þessarar göfugu listar flæða að staðaldri yfir vorar harðsviruðu sálir. Að hætta við svo búið, er synd gagnvart þeim sjálfum og þeim, er þennan bæ byggja. Þó syndga bæjarbúar enn meira, ef þeir meta að engu við- leitni þeirra sem miklu orka í sambandi við þessa fögru list. Útsvör á Akranesi lækka sem næst um 350 þús. kr. í ár. Álögð útsvör verða nú 1.9 milljón krónur í stað, um 214 milljón kr. í fyrra. Þvi miður er það enginn leikur orðinn fyrir bæinn, að sníða sér stakk eftir vexti, þar sem stór hluti útgjaldauna er bundinn með löggjöf frá Alþingi. Skulu hér nefndir nokkrir liðir, sem eru óhreyf- anlegir: 1. Framfærslumál .............. kr. 140.000.00 2. Lýðhjálp og tryggingar ....... — 360.000.00 3. Menntamál .................... — 223.000.00 4. Löggæzlumál ................ — 101.000.00 Þá koma nokkrir liðir, sem meira og minna eru lögboðnir eða ekki hægt að komast hjá i vaxandi þéttbýli, svo sem: Þrifnaðar- og öryggismál ............ kr. 240.000.00 Heilbrigðis- og skipulagsmál .... — 2g.000.00 Svo er sá liðurinn sem öll afkoma bæjarins, velferð og vonir bj-ggist á, sem er: Framlag til hafnarbóta ............ kr. 300.000.00 og þarf sjálfsagt að vera það um mörg ár enn, ef vel á að vera. Eins og þessir fáu liðir bera með sér eru árleg útgjöld bæjarins þannig komin í um 1.4 milljón, i svo að segja óhagganlegum skorðum frá ári til árs. Fyrsti innfæddi kvenstúdent á Akranesi. Ungfrú Sigriður Árnadóttir, á Vesturgötu 61, varð stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri á þessu vori. Hiin var i máladeild og hlaut aðal- einkunina I. 6,93 stig. Hún var hin 6. í röðinni af 37, sem próf tóku við þá deild skólans. Ungfrú Halldóra Briem er hins vegar fyrsta stúlkan frá Akranesi, sem tekið hefur stúdents- próf. Hún lærði siðan arkitektúr, er gift kona í Sviþjóð, en er nú stödd hér á landi með 4 börn sín. Um leið og blaðið óskar Sigriði Árnadóttur til hamingju með þetta ágæta próf, bíður það frú Halldóru velkomna heim, og óskar þeim báðum og aðstandendendum þeirra allra heilla. Á Grænlands-miðum. Leiðangrar hafa nú verið gerðir út til fiskveiða við Grænland i sumar á stærri og smærri skipum. Af Akranesi fóru aðeins tveir tryllubátar áhang- andi Súðinni. Á öðrum bátnum voru eigendurnir Halldór Sigui-ðsson frá Sigurstöðum og Guðjón Friðbjarnason frá Skarðsbúð, og með þeim Sveinn Guðbjarnason og lsak Eilifsson. Á hinum bátnum var Kristinn Gislason i Geirmundarbæ, eigandi bátsins og með.honum Ársæll Eilifsson héðan, og Guðmundur Karlsson úr Reykjavik. Vonandi farnast þeim vel í þessum leiðangri, en sagt er, að þeir sem á undan fóru vestur, hafi þegar orðið varir við mikinn fisk. Háskóli íslands. Það eru meira en 100 ár siðan Jón Sigurðsson flutti á Alþingi tillögu um þjóðskóla, „er veitti svo mikla mennlun sérhverri stétt, sem nægir þörfum þjóðarinnar." 1 þessu sem öðru voru orð hans og tillögur gjörhugsaðar, þá eins og fyrr og síðar i samræmi við þarfir þjóðarinnar og það sem koma skyldi. Framkvæmd þessarar til- lögu dróst þó æði lengi, þvi Háskóli fslands var ekki stofnaður fyrr en á aldarafmæli forsetans, < - "in' 1911. Þess er því skammt að biða að „þjóðskóli" Jóns Sigurðssonar verði 40 ára gamall. Ýmsir hafa haldið, að svo lítil þjóð sem íslend- ingar eru, gæti hvorki fjárhagslega né menntunar- lega haldið uppi háskóla með viðunanlegum á- rangri. 1 norrænum fræðum ætti enginn háskóli að þurfa að taka Háskóla Islands fram. Ef svo er ekki, auglýsir hann fyrst vanmátt sinn. Um önnur fræði, ætti fremur að orka tvímælis, eða mega deila, þótt eigi sé ástæða enn til að vera hnugginn út af þeirri hættu. Vér stofnum eigi heldur eða rekum háskóla til að fyrirbyggja að islenzkir námsmenn sæki einhverja háskólamennt- un til annara landa eða viðbótarþekkingu við það, sem þeir hafa öðlast hér heima. Það er — í hófi — sjálfsögð nuuðsyn, sem ekki má niður falla. Hitt er svo annað, — og sem vakað verður yfir, —- að þessi æðsta menntastofnun fámennrar, fá- tækrar þjóðar, beri hátt, hreint og djarflega merki menntunar og manndyggða, þvi án hinna dýru ávaxta vizkunnar, er menntumn næsta litils virði. Forsiðumynd af háskólanum gerði Sigurður Guðmundsson ljósmyndari, en myndin af safnhús- inu er tekin úr Minningarriti Landsbókasafnsins. Fljótlega mun nokkuð nánar vikið að Landsbóka- safninu hér i blaðinu. A K R A N E S 69

x

Akranes

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.