Akranes - 01.10.1951, Page 8

Akranes - 01.10.1951, Page 8
dómurinn, vizkan, krafturinn, heiðurinn, dýrðin og lofgjörðin.“ 1 kristinni táknfræði er ýmist fylgt upptalningu Jesaja eða Opinberunarbókarinnar, en upphafsstafir heitanna á latínu, sem dregnir eru í hverj- um stjörnuarmi segja til um, hvað átt sé við. Þá er einnig til tíu arma stjarna, tákn hinna tíu postula, sem ekki sviku frels- arann eða afneituðu honum, — og tólf arma stjaman, tákn hinna tólf postula. Páll postuli segir, að stjama beri af stjörnu í ljóma. Svo er einnig um stjöm- urnar sem kristin tákn. Þær bera hver af annarri með því að tákna undursam- lega leyndardóma og helga hluti og at- burði, og hvert stjörnutáknið felur í sér sinn sérstæða leyndardóm. Þrenningartáknin. I fornkirkjunni var ekki svo mikið um tákn heilagrar þrenningar, sem maður gæti látið sér detta í hug, svo mikið atriði sem þrenningarlærdómurinn hefur orðið í kirkjunni siðar. Kristur hafði sjálfur rætt um hinar þrjár persónur, föðurinn, soninn og heilagan anda, en heitið „þrenn- ing“ (trinitas) um hinar þrjár persónur er fyrst notað af Tertullian i byrjun þriðju aldar. Eitt af elztu táknum heilagrar þrenn- ingar í kristninni er að finna í klefa þeim í katokompunum, sem kenndur er við heilaga Priskillu. Þetta tákn, sem siðan hefur verið notað allt til þessa dags, er „jafnhliða þríhyrningurinn.“ Eitt hom hans er látið snúa upp. Eins og heitið „jafnhliða" ber með sér eru allar hliðamar þrjár jafnlangar, og öll homin em þá einnig jöfn. En hinar þrjár hliðar og eins hin þrjú hom mynda eina heild. Hver hlið eða hvert hom táknar eina persónu guðdómsins, en heildin er þó óskipt og ein, guðdómurinn sjálfur. Síðar varð það venja að tengja hring-formið og þríhym- inginn saman á einhvem hátt. Hringur- inn er tákn eilífðarinnar. Ástæðan til þess, að hringurinn er tákn eilífðarinnar, er vafalaust sú, að hann er án upphafs og enda eins og eilífðin. — Að tengja hringinn og þríhyminghm saman var gert til þess að tákna að þrenningin væri eilíf. Smárinn er einnig tákn þrenningarinn- Sú saga er sögð, að heilagur Patrekur, vemdardýrlingur Iranna hafi eitt sinn notað smárann sem tákn heilagrar þrenn- ingar. — Heiðingjamir kröfðust þess í reiði, að hann sannaði fyrir þeim, hvemig það gæti átt sér stað, að faðir, sonur og heilagur andi, þessar þrjár persónur, gætu verið eitt. I fyrstu varð trúboðanum erfitt um svar. En þá kom hann auga á smára, sem óx þar skammt frá. Hann tók upp einn smárann og hað mótstöðumenn sína að segja sér, hvort hann héldi á einu blaði eða þremur. Ef blaðið væri eitt, bað hann þá að skýra hversvegna blöðk- urnar væm þá þrjár og jafnstórar. Ef blöð- in væru þrjú, skyldu þeir skýra, hvernig á því stæði, að þau mynduðu eina heild. — Andstæðingar hans urðu að viðurkenna, að það gætu þeir ekki skýrt. „Ef þið skiljið ékki svo eifaldan hlut sem smárinn er, hvemig getið þið þá búist við að skilja leyndardóm helagrar þrenningar? spurði Patrekur. Tákn föðursins, fyrstu persón- unnar í heilagri þrenningu. Fyrir þúsund árum hafði engin tilraun verið gerð til þess að mála eða meitla mynd föðursins, fyrstu persónurnar í heil- agri þrenningu. Hinir fyrstu kristnu menn trúðu því, að orðin í II. Mós. 33.20: Þú getur eigi séð auglit mitt, því að enginn maður fær séð mig og lífi haldið; — og einnig orðin í Jóh. 1.18: Enginn hefur nókkru sinni séð Guð, — ættu jafnt við um myndir af Guði — sem um vem hans sjálfs. Fyrir átta eða níu öldum var hið al- menna tákn föðurins hönd, sem rétt var fram úr skinandi og björtu skýi. Táknið var nefnt „manus dei“, eða guðs-höndin. Stundum var hendin útrétt og stóðu geisl- ar af hverjum fingri. Hugmyndin um hönd Guðs átti við óteljandi ritningarstaði að styðjast, svo sem t. d. sálm. 98.1: Hægri hönd hans hjálpaði honum og hans heil- agi armleggur. — Til eru mismunandi form af tákni þessu. Tvö eru algengust, hið latneska og hið gríska. I latneska tákninu em þumalfingur, vísi'fingur og langatöng útrétt, en baug- fingur og litli fingur krepptir. Útréttu fingumir þrír skyldu benda til þrenning- arinnar, en hinir tveir krepptu, til tvenns konar eðlis sonarins, guðlegs og mannlegs. — Venja var einnig að höndin væri um- lukt af geislabaug og í honum þrír geislar. Geislabaugur táknar heilagleik, og geisl- arnir þrír guðdóminn. — Hönd með þrem útréttum fingmm, þumalfingri, vísifingri og löngutöng er einnig algengt tákn bless- unar og þannig héldu prestar áður hend- inni er þeir blessuðu yfir söfnuðinn. Gríska táknið manus dei, er talsvert frábrugðið. Vísifingurinn er útréttur. — Hann skal tákna bókstafinn jóta á grísku, sem er hinn sami og J. Langatöng er kreppt, þannig að hún myndar c. Þumal- fingur er lagður yfir baugfingur þannig, að bókstafur sá myndast, sem á grísku heitir khi (k) en lýtur út sem x. En litli fingur er krepptur svo hann myndar c. JC stafir vísifingurs og löngutangar em í fomgrísku tákn fyrir nafnið Jesús, en XC, tákn heitisins Kristus. — Gríska tákn- ið manus dei var tákn blessunarinnar svo sem latneska táknið gat einnig verið, og var hugmyndin, sem að baki lá, sú, að Guð hefði blessað heiminn með þvi að gefa honum son sinn, Jesú Krist. Tákn guðssonarins, Jesú Krists. Tákn frelsarans eru mjög mörg. Mörg þeirra eru runnin frá „katakompunum11 svonefndu. Það eru jarðgöng, sem fundist hafa í nánd við Róm, Neapel, Mílanó, Syrakúsu og Alexandríu. Jarðgöng þessi voru grjótnámur, en urðu síðar grafhvelf- ingar og leifum framliðinna var komið þar fyrir í smáklefum, en þessum klefum var síðan lokað með steinplötum, og á þeim er að fínna elztu minjar kristinnar myndlistar. Sumir eru grafklefar þessir frá því um 72 e. Kr., en þá eru söfnuðir Páls postula enn starfandi, en hinir síð- ustu frá því 410. Mörg þekktustu kristnu táknin eru til okkar komin frá katakomp- unum, og eru þau ýmist hoggin í stein eða máluð á hann. Eitt af algengustu táknunum og fyrir margra hluta sakir hið sérkennilegasta er pelikaninn, sem fómar sjálfum sér. Hann er tákn friðþægingarinnar og eitt af vin- sælustu Krists-táknunum til forna. Fugl- inn opnar brjóst sitt með beittu nefi og fæðir unga sína á blóði sjálfs sin. Ýmsar skýringar eru til viðvíkjandi þessu tákni og hver sé ástæðan til þess, að það hafi orðið Krists tákn. Ein er á þá leið, að þegar hungur sverfi að pelikanfuglunum, fórni kvenfuglinn sjálfum sér ungum sín- um til lífs. Svo hafi og Kristur dáið til þess, að vér mættum lifa. önnur skýring er þessi: Óvinur pelikananna er höggorm- urinn. Hann hefur bitið ungana og orðið bani þeirra. Móðirin harmar dauða þeirra, og í ofurharmi sínum særir hún sjálfa sig, en blóð hennar rennur yfir ungana og vekur þá til lífsins aftur. Þannig svarar þetta tákn til friðþægingarinnar, lausnar- innar frá dauða og djöfli, eins og hún hefur einnig verið nefnd og skýrir orð postulans, „að vér erum eigi leystir með íforgengilegum hlutum, silfri né gulli, frá fánýtrí hegðun, heldur með dýrmætu blóði Krists.“ Bjargið, (kletturinn) er einnig Krists tákn. Það byggist á orðunum í I. Kor. 10.4: Því að þeir drukku af hinum andlega kletti, sem fylgdi þeim, en kletturinn var Kristur. — Tákn þetta er með ýmsu móti. Stundum er það stórt bjarg, sem stendur eitt sér, og skal þá benda til hugmyndar- innar i sálmi 18.2: Drottinn, bjarg mitt og vígi, athvarf mitt. — Venjan er þó sú, að ofan á bjarginu stendur krosstákn. — Kristur og kenning hans er mönnunum andleg svalalind. Hornum má líkja við klett þann er Móse sló vatn af í eyðimörk- inni. Þá samlíkingu þekkjum vér frá Pass- 116 AKRANES

x

Akranes

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.