Akranes - 01.10.1951, Qupperneq 15

Akranes - 01.10.1951, Qupperneq 15
þar las hann feiknin öll af bókum. Eftir tveggja ára fangelsisvist fékk hann botn- langabólgu, og þótt hann vildi yfirleitt hvorki heyra né sjá evrópiska lækna lét hann þó til leiðast að leyfa liflækni vara- konungsins að skera sig. Þessa breytni skýrði hann þannig, að ef hann hefði ekki látið að vilja læknanna hefði hann ef til vill andast í fangelsinu, Indverjar kennt Englendingum um dauða hans og það hefði vel getað leitt til ófriðar. Skömmu seinna var hann náðaður. Fösturnar. Meðan Gandhi bjó á Tolstoybænum í Suður-Afríku hafði einn nemendanna brotið alvarlega af sér, en óklei'ft reyndist að hafa upp á sökudólgnum. Gandhi fann þá upp á því að svelta sjálfan sig, þangað til syndaselurinn kom og játaði brot sitt. Síðar svelti Gandhi oft og mörgum sinn- um bæði til þess að hreinsa sjálfan sig og bæta fyrir sínar eigin misgerðir, en þó einkum til þess að bæta fyrir afbrot ann- arra. Árið 1924 brauzt gamla hatrið milli Múhameðstrúarmanna og Hindúa út i ljósum loga og margir voru drepnir. Til þess að binda enda á þessi vandræði svelti Gandhi sig í 21 dag, neytti aðeins vatns og samt var sálarstyrkur hans svo mikill að hann gat spunnið i tvær klukkustundir á hverjum degi. Gagnið sem sveltingin gerir skýrir Gandhi þannig, að þar eð guð er einn andi, sem er í öllu og af anda hans er hver mannssál einn agnarlitill hluti, hlýtur sú þjáning, sem ég legg á mig annars vegna af angri og kærleika, að hafa áhrif á þær sálir, því allar sálir búa í heimssálinni. Pariar. Þeir aumustu og fátækustu á Indlandi voru pariar, sem ekki voru í neinni stétt, þeir voru litilsvirtir af öllum. I Indlandi voru þá 60 milljónir paria. Þeir máttu ekki koma inn í musterin, ekki ganga i skóla, ekki verða verzlunarmenn, þeir máttu ekki einu sinni sækja vatn í brunna, sem stéttirnar notuðu. Gandhi hafði mikla samúð með þessum vesalingum, hann sagði að þetta ástand væri skömm og bölvun Indlands og hann gerði allt, sem í hans valdi stóð til þess að tryggja þeim mannréttindi. Sjálfur 1ók hann litla stúlku af pariaættum í fóstur. Nú er þessi hat ramma stéttaskipting afnumin og pariar njóta sömu réttinda og annað fólk, og í nýju ríkisstjórninni eru nokkrir ráðherrar pariar. Konan. Indverska konan hafði verið undirokuð og fyrirlitin. Stúlkur voru oft giftar þegar Helgi S. Jónsson: Jólaprédikun, sem ekki var flutt I dag er jólunum sungið lof og dýrð um gjörvalla veröld. Frá austri til vesturs hljómar lofsöngur jólanna — undir lauf- krónum pálmatrjánna, við jökla norðurs- ins, á öldum úthafsins, þar eru haldin jól —— Ef hugur fylgir máli, þá er hugsunin ein — dýrð sé honum, sem skóp vort alda og áratal. Engin saga er fegurri og friðsælli en fyrsta jólasagan — saga um sveininn umkomulausa, sem fæðist á ferðalagi, fjærri sinni heimabyggð. Sveinninn er vafinn reifum og lagður i jötu, svo orð spádómsins mættu rætast, að Betlehem væri ekki minnst meðal höfðingja Júda. því þaðan mundi sá koma, er vera skyldi hirðir Israel. — Þá nótt voru fjárhirðar úti að gæta hjarða sinna. Þeir voru mátulega fábrotnir og djrggir i starfi sínu til að meðtaka hinn stærsta boðskap, til að vera vitni og boð- berar þess, er koma átti. Kringum þá Ijóm- þær voru tólf ára gamlar einatt gömlum mönnum. Þegar maðurinn dó máttu þær ekki giftast aftur en urðu að lifa i fátækt og neyð, stundum gerðust þær vændis- konur til þess að geta dregið fram lífið. Síðan Indland varð sjálfstætt njóta kon- urnar sömu réttinda og kynsystur þeirra í Evrópu. I rikisstjórninni eiga konur sæti og sendiherrann í Moskvu er kona, systir Pandit Nehru. Réttindi konunnar er annað dæmi um mannréttindabaráttu Gandhi. Trú og lífsskoðun. Okkur undrar, að maður, sem öllum öðrum fremur hefur lifað eftir og barist fyrir kenningum Jesú skuli ekki hafa viljað kalla sig kristinn. Hann hafði lært meira af kristindómnum en hann kærði sig um að viðurkenna og beztu vinir hans voru kristnir trúboðar. Um skoðanir sínar á trú sagði Gandhi: „Einhver leyndardómsfullur máttur er til sem streymir gegnum allt og ber allt uppi, þennan mátt getum við ekki skýrt, hann er meiri en skilningur okkar ræður við. Allt í kringum mig sé ég að allt breytist og deyr, en mig grunar, að bak við allar breytingarnar, fæðingu, vöxt og dauða, búi Mfskraftur, sem er óumbreytanlegur. Þennan lifgjafakraft kalla ég guð. Er hann góður eða illur, eða hvorugt? Ég segi að hann sé góður, því mitt í dauðanum birtist lífið, mitt í lyginni sannleikurinn, mitt i myrkrinu ljósið. Af þessu dreg ég að guð sé lífið, sannleikurinn og ljósið. Hann er aði dýrð og englar frá himnum sungu þeim boðskap jólanna: „Yður er í dag frelsari fæddur. — Yður öllum, sem vakið við skyldustörf yðar,“ — ekki einungis þeim, sem vaka yfir sauðum og fiski, — heldur þeim, sem vaka yfir kærleika og mannúð — jafnframt störfunum við dag legt brauð. Hirðarnir ifóru rakleitt til Betlehem og fundu barnið, vafið reifum og liggjandi í jötu--------- Þetta er undur fögur og fábrotin saga um fátækan svein, sem átti engin jarð- nesk gæði, en þó var koma hans boðuð með teiknum á himni og jörð og sögð fyrir i spádómum sjáendanna, og blessuð af öllum ókomnum öldum. Það hriktir í sögu- spjöldunum við komu þessa drengs. Eng- inn hefur valdið meira umróti, enginn hefur valdið meiri kvöl, enginn meiri and- legri fullnægingu og friði en þessi um komulausi sveinn, sem fæddist í fjárhús- inu fyrir 1950 árum. kærleikur, en til þess að sálin geti komist í samband við guð verður hún að hreinsast og losna við alla eigingirni. Takmark lífs- ins er að sálin verði hreinsuð og frelsuð svo hún að lokum sjái sannleikann og sameinist guðdómnum eins og fljót, sem rennur til sjávar og sameinast hafinu. Þetta kalla heilögu bækurnar Nirvana. Gandhi varð þeirrar gleði aðnjótandi, að sjá það sem hann hafði barist fyrir alla ævi heppnast. 15. ágúst 1947 lýsti enski forsætisráðherrann Atlee þvi yfir að Ind- land væri sjálfstætt riki. Þá gerðist það dásamlega, sem var áður óþekkt í mann- kynssögunni, tvær þjóðir sem höfðu hat- ast i 200 ár skildu í bróðerni. það var í anda Gandhi. Ári siðar var hann myrtur, morðinginn var ofstækismaður, sem fannst Gandhi vera orðinn of hægfara eftir því sem árin liðu. Þegar Gandhi dó var haldin minning- arathöfn í Westminster Abbey. Við það tækifæri var eftirfarandi bæn beðin: Við þökkum þér guð fyrir Mahatma Gandhis vitnisburð um sannleikann í fjallræðunni, fyrir það sem hann lagði í sölumar fyrir þá fátæku og útskúfuðu, fyrir hversu ó- þreytandi hann var sem sáttasemjari, fyrir vilja hans til að þjást, án þess að baka öðrum þjáningar, fyrir viðbjóð hans á valdi og fyrir að hann sannaði persónu- lega læknandi mátt hins fómfúsa kær- leika, fyrir að hann allt til dauðans var sannleikanum trúr eins og sannleikurinn kom honum fyrir sjónir. AKRANES 123

x

Akranes

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.