Akranes - 01.10.1951, Síða 21

Akranes - 01.10.1951, Síða 21
mitt læri. Drógu svo poka með annarri hendi, en tíndu i hann mola með liinni. Ef eftir stórum mola var að slægjast, var oft vaðið upp d mitti. Þegar svo var komið mátti segja, að drengirnir væru votir frá hvirfli til ylja. Hér var til mikils að vinna og ekki af sér dregið. Lífið í Reykjavík um þetta leyti. Á Þessum árum var Reykjavík ekkert annað en dálitið fiskiþorp. Bæjarmenn voru yfirleitt mjög fátækir og úrræði fá. Landvinnan var lítil og sjómennskan eina athvarf uppvaxandi æskumanna. Þá var það og enn til siðs að fara í kaupavinnu til bænda í ýmsum sveitum landsins. Þar fékk fólk gott búsílag, því að kaupið vat venjulegast greitt með kindum, smjöri og öðrum afurðum bóndans, sem ekki sdzt við sjóinn kom að góðu haldi. Allmargar verzlanir voru í bænum og nokkrir iðnaðarmenn. Allvíða að var þá leitað til Reykjavikur um viðskipti. Stærstu verzlanirnar voru enn í eigu útlendinga svo sem eftirfarandi nöfn benda til: Brydes verzlun, Fischers-verzlun, Zimsens-verzl- un, Knutzons-verzlun, Smiths-verzlun, Thomsens-verzlun. Nú eru allar þessar verzlanir, lendur þeirra og lóðir, orðnar eign innlendra manna. Frá Lækjarósi (Kalkofnsvegi) var sam- felld malar- og sandfjara vestur fyrir Grófina, en fyrir austan þetta svæði og vestan var stórgrýtisurð og klappir í sjó fram. 1 Grófinni var útróðra- og uppsáturs- staður fyrir skip og báta þeirra sjómanna. sem áttu heima í Grjótaþorpinu og þar í grend. Sjómenn og verkamenn lifðu þá mjög fátæklegu og fábreyttu lífi. Nokkrir áttu lítinn bæ og ofurlitla lóð í kringum hann, var þessari lóð oft skipt í kálgarð og fiski- reit. Þeir fengu lán hjá kaupmanninum og lögðu inn fiskinn hjá honum, en þurrk- uðu hann sjálfir með skylduliði sínu. Miðbærinn (Kvosin) var þá varnarlaus fyrir sjávargangi, bakkinn var svo lágur, að ef stórstreymt var og hvasst með brimi, flæddi sjórinn á land upp og bar þá á land þara, þöngla og sjávarmöl, jafnvel upp rmdir Austurvöll. Þegar langvarandi rigningar gengu, kom fyrir, að Tjörnin og lækurinn flóðu yfir alla bakka, svo að illfært var milli austur- og vesttu-bæjar. Af þessari tvöföldu flóðahættu varð oft mikið tjón og erfiðleikar, því að kjallarar fylltust oft meira og minna, og í stór streymi féll raunverulega út og að í þeim. Götur voru engar í bænum um þessar mundir í þeirri mynd, sem nú er. Þegar miklar rigningar gengu eða snjóbleyta var, urðu menn að vaða forina og elginn, ef fara þurfti milh húsa. Helztu vegabæt- urnar voru þær, að þurfamenn voru látnh' bera á handbörum möl og sand úr fjörunni til þess að láta í verstu vilpurnar. Rennu- steinar voru við nokkrar götur, og var alls konar sorpi og rusli frá húsunum hent í þá. Við og við voru svo uppgjafa- karlar látnir moka óþverranum úr þeim i hjólbörur og flytja hann niður í fjöruna. Þessir menn voru kallaðir rennumokarar og þótti óvirðulegur titill. Til götulýsingar voru notuð steinolíu- ljósker, sem fest voru á stólpa eða húshorn hér og þar i bænum. Höfðu næturverðir þann starfa á hendi að fylla á ljóskerin, hreinsa lampa- og ljóskerjaglösin. Brunnar eða vatnspóstar voru á ýmsum stöðum í bænum, og höfðu bæði karlar og konur atvinnu við að bera vatn i fötum heim í húsin. Við vatnsbólin var því ofc margt um manninn, hávaði og jafnvel rifrildi. Margt aíf vatnsbercmum var harla sérkennilegt fólk, bæði að búnaði, og i ýmsum háttum, og flest liafði það eittlivert auknefni, svo sem: Sæfinnur með sextán skó, Gunna grallari, Kristján krummi, Álfrún i Sundi, Gvendur vísir, Jón smali, Jón boli ofl.. Nú var Ágúst farinn að vinna. I>egar Ágúst var kominn á 10. ár, þóttist hann stór og stæltur og hraustur, þrátt fyrir lélegt fæði og klæði. Hann langaði þvi til að vinna að einhverju leyti fyrir mat sinum. Sumarið 1883 varð liann fyrst vikadrengur á „Hótel Alexandra“ í Hafn- arstræti (nú nr. 16). Veitingamaðurinn var danskur og hét Jespersen. Þarna líkaði honum vel að vera. Þegar hann kom á morgnana, fékk hann kaffi og brauð og stundum miðdegisverð, en annað var kaup- ið ekki. Næsta vor var hann um tíma hjá Schier- beck landlækni, aðallega til þess að sækja vatn til heimilisþarfa í Prentsmiðjupóst- inn. Fyrir það fékk hann morgunmat. Þetta sumar fékk hann oft vinnu við fisk- breiðshi og ýmsa snúninga fyrir kaup- menn. Ágúst fannst, að hann þyrfti að vinna, til þess að bæta kjör þeirra og hús- næði, komast áfram sem það var kallað. ÖIl námsárin. Á þessum árum var engin skólaskylda í Reykjavík, og heldur ekki ókeypis skóla- kennsla. Foreldrarnir rrrðu sjálf að sjá um að börnin lærðu, ef þeim var það keppi- kefli. Ágúst var komið fyrir að stafa og notaði kennarinn Nýjatestamentið sem kennslubók. Hann langaði mikið til að lærá að lesa og stundaði námið því vel, og var gamla konan ánægð með árangur inn. Bókakostur var þá áf skornum skammti, þó komst Ágúst yfir nokkuð af sögu- og ljóðabókum og rímur. Hann hafði einnig mikinn hug á að læra að skrifa, og útvegaði mamma hans honum fagurlega skrifað stafróf, en einnig voru á því blaði spakmæli og mannanöfn. Þessi undirbúningur kom Ágúst að góðu haldi, er hann á 11. ári komst í barnaskól- ann.Hann settist í fyrsta bekk, lærði lestur. skrift, reikning, spurningakver og bibliu- sögur, leikfimi og söng. Honum þótti gam- an að vera í skólanum og var alltaf með efstu börnunum við raðanir. Ekki var Ágúst nema einn vetur i skól- anum og lauk þvi menntabrautinni í Þess- um fyrsta bekk. Því að þótt hann langaði mjög mikið til að verða aðnjótandi frek- ari menntunar, voru þau sund lokuð vegna efnaleysis. Þótt skólagjaldið fyrir þennan eina vetur væri ekki hátt, einar 20 kr., var það þeim alveg ofvaxið að greiða það. Það greiddi hann næsta vor á þann hátt, að bæjarfógetinn tók það af kaupi, sem hann átti að greiða Ágúst fyrir vinnu við að losa saltfisk úr frönsku fiskiskipi, sem rak á land, en skipið og farmurinn var selt af bæjarfógetanum sem strandgóss. Vegna löngunar til lærdóms, reyndi Ágúst á allar lundir að halda áfram sjálfs- námi, og veitti móðir hans honum tilsögn og leiðbeiningar. Ágúst varð í þessum efn- um sem öðrum að treysta algerlega á sjálf- an sig. Þetta jók viljafestu hans og þá skap- gerð að komast áfram, og láta ekki meira en góðu hófi gegndi í minni pokann fyrir einum eða neinurn, sérstaklega, ef þeiv létu skína i það, að þeir væru honum meiri menn. Á eyrinni. Tólf ára gamall fór hann að ganga til allra verka á eyrinni, en þá stunduðu þessa vinnu ungir sem gamlir, piltar og stúlkur. Vinnutiminn var 10 stundir og oft lengri, og mat og kaffi varð að gleypa í sig á sem stytztum tíma. Timakaup drengja og stúlkna var 10-15 aurar eftir aldri, örlitið hærra í salt- og kolavinnu. Vinnulaunin voru greidd með vörum í viðkomandi verzlun, en peningar fengust ekki nema til kaupa á bráðnauðsynlegustu lyfjum. Það gefur auga leið, að oft var þetta erfið vinna og of löng fyrir óharðnaða unglinga,ten aldrei heyrði Ágúst vorkunn- ai'orð i garð þeirra, þótt þeir væru að því komnir að hníga niður örmagna af þreytu. Þetta var ríkjandi hugsunarliáttur í þá daga. Þá var enginn með heilabrot um heilsuvernd eða neitt slíkt, sem að koma í veg fyrir ofþjökun unglinga. íþróttir og leikir. Ekki var um iþróttir að ræða í líkingu við það sem nú tíðkast. Eitthvað mun leikfimi þó hafa verið kennd við skólana. Þar á móti voru iðkaðir ýmsir leikir, og gönguferðir drengja var mikið um. A K R A N E S 129

x

Akranes

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.