Akranes - 01.10.1951, Side 24

Akranes - 01.10.1951, Side 24
og eigenda Isafoldarprentsmiðju, vildu þeir enga samninga gera fyrr en sá ágrein- ingur hefði verið jafnaður. Eftir nokkurt þref varð það að samkomulagi milli Sveins Björnssonar Jónssonar, að umboðsmaður frá danska prentaraíélaginu færi með þeim til að kynna sér málavexti. Þessi danski prentari hét Viggó Christensen Hann varð síðar mjög þekktur maður á stjórnmála- og fjármálasviði Danmerkur, eftir að hafa breytt eftimafni sínu og kallað sig Bramsnes. Hann varð þingmað- ur fjármálaráðherra og loks aðalbanka- stjóri þjóðbankans í tvp áratugi eða meir. Það ýtti mjög á eftir Ágúst að taka þessu tilboði um vinnu, að fá frítt far heim fyrir fjölskylduna, og svo hitt, að yfir vöfði herskyldan, sem ómögulegt var að komast imdan. Ágúst segir hreinskiln- islega, að það hafi því ekki verið heim- þrá, heldur þetta, sem réð úrslitum i mál- inu . Samningarnir milli Prentarfélagsins og Björns Jónssonar enduðu þann veg, fyrir milligöngu V. Christensens, að þessir heim- komnu prentarar hefðu heunild til að vinna í Isafoldarprentsmiðju átölulaust, jafnframt þvi sem þeir yrðu samþykktir fullgildir félagar í Hinu íslenzka prentara félagi. Tók þetta samningsþóf nokkra daga. Heima á ný. Ágúst langaði ekkert heim, og var nú eiginlega ekkert viss um að hann kynni vel við sig. Honum fannst allt vera sem næst í sama farinu, að vísu hafði bærinn eitthvað stækkað og fólkinu fjölgað. Hon- rnn þótti bæjarlífið fábrotið, fólkið þung- lamalegt í tali og framkomu. — Honum fannst það vanta fjör og glaðværð. Félagar og kunningjar voru dauðir, giftir eða fluttir burt, og þótt tíminn væri ekki nema 1 o ár, sem hann hafði verið i burtu, fannst honum hann vera orðinn hálfgerð- ur útlendingur. Honum hefur fundizt hann vera orðinn hálfgerður heimsborg- ari, hvað að ýmsu leyti má til sanns vegar færa. Á Hafnarárxmum mótaðist Ágúst mjög af jafnaðarstefnunni, sem þá var mjög að ryðja sér til rúms. ÞÓU hann kæmi heim, breytti hann ekkert um skoðun, heldur studdi þá hér heima, sem höfðu svipaðar skoðanir og hugðare'fni í félags- og kaup- gjaldsmálum. Gerðist hann því þegar á- kVeðinn starfs- og stuðningsmaður þessara mála, bæði í prentarafélaginu og verka mannafélaginu Dagsbrún, sem stofnað var árið eftir að Ágúst kom heim. Átti hann meira að segja mikinn þátt í stofnun þess og vann þar mikið langa tíð, enda kosinn af þessum féiögum til margvís- iegs starfs og trúnaðar. Ágúst barðist á þessum vettvangi af heilum hug, sem m. a. má marka af því, 132 að hann stofnsetti ásamt Pétri G. Guð- mundssyni fyrsta málgagn verkamanna hér á landi, Alþýðublaðið gamla, árið 1906. Þetta frumkvæði þeirra i blaðamál- inu þótti þeim þó ekki mæta nægum skilningi þeirra, sem unnið var fyrir, þvi að vegna fjárskorts og skilningsleysis urðu þeir að hætta við útgáfuna eftir ár eða svo. Sitt hvað frá spönsku veikinni. Árið 1918 var Ágúst Jósefsson skipaðui heilbrigðisfulltrúi í Reykjavík. Til þess tíma var þetta embætti ekki til, enda honum fengið i hendur sérstakt erindis- bréf. Áður höfðu þó tveir menn haft á hendi þetta starf að nokkru leyti, þeir Júlíus Halldórsson, læknir, og Árni Ein- arsson, kaupmaður. Ágúst fékk því eldskírnina í þessu em- bætti, að eiga á fyrsta starfsári sinu í hinum nýja verkahring, að vera ráðs- maður þeirra ráðstafana, sem gera þurfti i hinum stóra bæ, er sú pest gekk yfir, sem skæðust hefur verið um marga tugi ára, eða jafnvel aldir. Sóttin fór svo geist yfir, að á fyrstu vikum nóvembermánaðar 1918 mátti segja, að mikill meirihluti bæjarbúa væri rúmfastir, eða þá, ef bezt var, sárlasið fólk á róli innan dyra. Sárfáar hræður sáust á ferli á götunum, flest gamalt fólk, og sumt lasburða að sjá. Talið var, að um 10 þúsund manns hafi verið búið að taka veikina um miðjan mánuðinn. Þegar í upphafi var séð, að hér var um ógurlegan vágest að ræða. Skipaði stjórn- arráðið þvi þegar, hinn 9. nóv., nefnd manna lil að annast og koma skipulagi á þá hjálp, sem við yrði komið að veita. Formaður nefndarinnar var skipaður Lár- us H. Bjarnason hæstaréttardómari, en hinir voru: Ólafur Lárusson próf., settur borgarstjóri og Gísli Jsleifsson skrifstofu- stjóri í stjórnarráðinu. Allir spitalar voru sífellt fullir af sjúkl- ingum. Einstaklingar og einstæðingar, svo og skipshafnir af aðkornuskipum, voru Frá sjúkrastofum Barnaskólans. — Kvennadeild. illa settir. Einnig varð fjöldi heimila í hinum mestu vandræðum vegna fólkseklu og hjúkrunarskorts. Nefndin skipti bænum í hverfi og skip- aði hverfisstjóra tíl eftirlits. Skyldu þeir fylgjast nákvæmlega með líðan fólks i sinu hverfi og veita ósjálfbjarga fólki óum- flýjanlega bráðabirgðahjálp eftir föngum. Læknar bæjapins voru og beðnir að til- kynna nefndinni, hvar brýnnar hjálpar væri þörf. Það kom sér vel, að því er snerti þetta starf Ágústs, að hann veiktist með þeim fyrstu og var aðeins lítillega lasinn i nokkra daga. Þegar Ágúst kom til starfs á skrifstofu nefndarinnar hittíst einmitt svo á, að þar komu eftirlitsmennirnir, hver eftir annan og sögðu hinar hörmulegustu féttir af ástandinu, bæði hvað snerti þján- ingar fólks, skort á allri aðhlynningu og og nauðsynjum. Hinu sama báru skýrslur læknanna vitni. Af öllu þessu var snemma ráðið að taka Miðbæjarbamaskólann og gera hann að sjúkrahúsi fyrir fólk, sem ekki komst að á spitölum bæjarins og ekki gat fengið nauðsynlegustu hjúkrun í heimahúsum. Var Ágúst Jósefsson skipaður ráðsmaður þessa nýja spítala allan tímann, sem hann starfaði. Nefndin hafði því nóg að gera á þess- um hörmungatímum. Þeir sem á ferli voru gengu milli vina og kunningja til aðstoðar, og margir gáfu sig fram við nefndina ti' hjálpar, þar sem þörfin væri mest. Var þannig reynt að bæta úr neyð fólks eftir beztu getu, með þvi að senda heimilunum mjólk og matvæli, kol og olíu o. fl. Fyrst i stað átti nefndin örougast með hjúkrun vegna manneklu á heimilunum. Meðan sóttin var í algleymingi var ástandið beinlínis geigvænlegt. Fáir lækn- ar uppistandandi, og nær allar brauða- og mjólkursölubúðir lokaðar. Sjúkrahúsin yfirfull, læknar og hjúkrunarfólk örþreytt af erli og næturvökum. Gamalt fólk, og margt af því sárveikt, stóð timunum sam- an í lyfjabúðunum og fyrir utan þær og AKRANES

x

Akranes

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.