Akranes - 01.10.1951, Blaðsíða 28

Akranes - 01.10.1951, Blaðsíða 28
79. Hábær 2. — Bræðratunga. Árið 1884 byggir Eyjólfur Sigurðsson bæ, rétt fyrir sunnan Hábæ, er sá bær líka nefndur Hábær, en löngu seinna Bræðratmiga. Eyjólfur var sonur Sigurðar Bjarnason- ar snikkara i Reykjavík, og Guðríðar Eyjólfsdóttur, fæddrn- í Melshúsum á Sel- tjamamesi 10. marz 1850. Móðir Guð- ríðar var Sigríður Ásmundsdóttir frá Elánarhöfða. Albróðir Guðríðar var Jón Eyjólfssön, faðir Hjartar Jónssonar á Reynimel, föður Jóns Hjartarsonar kaup- manns í Reykjavik og þeirra systkina. Guðríður, móðir Eyjólfs, var bráðgreind kona, stilfær og hagmælt. Eyjólfur fluttist hingað að Heynesi með móður sinni, þegar á 1. ári. Þar og í Bráðræði ólst hann síðan upp til 16 ára aldurs. Þá fór hann til Guðmundar Jömndssonar í Dægru og var þar i næstu 4 ár. Þaðan fór hann sem vinnumaður til Helga á Sýruparti og var þar í tvö ár. Kona Eyjólfs var María Auðunsdóttir, Nikulássonar, en Auðunn þessi var bróðir Guðríðar, móður Nikulásar i Brekkukoti. Auðunn mun hafa átt heima hér á Nesinu. — María þessi mun að meiru eða minna leyti hafa alist upp hjá frú Þórunni Stephensen á Heynesi. Eyjólfur og María bjuggu fyrst í Lykkju og síðar í Tjöm. Þau áttu 4 böm, þrjú þeirra misstu þau mjög ung. Tvö þeirra dóu ásamt móðurinni, úr mislingum, í sömu vikunni 1882. Hún dó 27. júní, og var þá aðeins 30 ára gömul.' Aðeins eitt bamanna — Jón — komst til fullorðins ára, og andaðist á Bjargi — úr berklum —‘ 25 ára gamall. Árið 1889 tekur Eyjólfur fyrir ráðskonu Hallberu Magnúsdóttur frá Hrepp. Bjuggu þau síðan saman og áttu 11 böm. Hallbera var fædd i Efri-Hrepp 1. sunnudag í Góu 1866. Eyjólfur stundaði aðallega sjó framan af, en hafði jafnan eitthvað af skepnum og nokkra kálgarðarækt eins og fleiri á Skaga. Árið 1907 eða átta mun hann hafa fengið sér hestvagn og tekist á hendur vegaverkstjóm og varð fljótlega vegaverk- stjóri hér d nágrenninu. Árið 1906 reif hann torfbæinn og byggði snoturt timbur- hús með kjallara undir. Eftir það mun það hafa gengið undir nafninu Bræðra- tunga. Eyjólfur var einn af þeim, sem í upp- vextinum varð að gera sér gott af því að skrifa í snjóinn. Hann var allvel greindur og hafði mikla löngun til að lesa og las mikið þegar hann gat komið því við. Eyjólfur var hagmæltur en fór mjög dult með það. Hallbera var dugleg kona. Þessi voru börn þeirra Eyjólfs og Hallbem, er til aldurs komust: 1. Valdimar. Fyrri kona hans, Rannveig Þórðardóttir frá Leirá. Þeirra böm: Þórður, Ársæll og Jóna. Síðari kona Anna Jónsdóttir frá Hákoti. Þeirra synir, Geir og Jón. 2. Felix, kvæntist Magnhildi Jónsdóttur Auðunssonar. Þau eignuðust 1 son Ragnar. Felix andaðist 22. des. 1948. 3. Leó, kvæntur Málfríði Bjarnadóttur, ættuð úr V. Skaptafellssýslu. Þeirra börn: a. Ragnar, b. Bjarnfríður, c. Hallbera, d. Jón Leós. 4. Arthúr, kvæntur Guðrúnu Jónsdóttur, — hún var systir Jóns kaupmans i Ásbyrgi. —Þeirra börn: Maríus, Eyjólf- ur, Jóna, Þorgerðm' og Fanney. 5. Eyvör, gift Þorsteini Vilhjálmssyni frá Tungufelli. Þeirra synir Vilhjálm- ur og Jóhann. 6. Helgi, (alinn upp hjá Guðnýju á Litla- bakka) kvæntur Ragnheiði Jóhanns- dóttur. Þeirra synir: Stefán Jóhann og Hilmar Þorgnýr. 7. Jón, kvæntur Júlíönu Jónsdóttur verk- stjóra Rögnvaldssonar. Þeirra kjörbarn Hrafnhildur. Áður en Jón kvæntist átti hann fjóra syni. Jón og Helgi, synir Eyjólfs eru búsettir í Reykjavík, en hér eru búsett, Eyvör, Valdimar, Leó og Arthúr. Eyjólfur andaðist 6. ágúst 1922. Var Felix lengi eftir það hjá móður sinni, og i raun og veru fyrir búinu. Hallbera and- aðist 17. ágúst 1935. Áríð 1930 kaupir Þorgeir Jónsson frá Búrfelli Bræðratungu og býr þar lengi með móður sinni Valgerði, hjá þeim voru og fleiri börn Valgerðar. Valgerður í Bræðratungu var Guð- mundsdóttir, Sigurðssonar, Bjarnasonar frá Auðsstöðum í Hálsasveit. Sigurður var bróðir Eiríks á Þursstöðum. Móðir Val- gerðar var Steinunn Þosteinsdóttir frá Hurðarbaki, (systir Þórðar á Leirá og þeirra systkina). Valgerður var fædd á Auðsstöðum 23. okt. 1868, giftist Jóni Þórðarsyni frá Máfahlíð. (Þórður þessi Þórðarson, var bróðir Jóns í Norðtungu). Þau Valgerður bjuggu á Búrfelli í Hálsa- sveit í 25 ár. Jón var mesti gagnsmaður. Mann sinn misti Valgerður 1925 og flutti það sama ár hingað á Akranes og átti hér heima siðan. Hún andaðist 30. okt. 1948. Valgerður var kjarkmikil kona, ákaf- lega dugleg og svo vinnusöm, að sjaldan mim henni hafa fallið verk úr hendi. Böm Jóns og Valgerðar vom þessi: 1. Sigurður, bóndi á Refsstöðum í Hálsa- sveit, kvæntur Guðbjörgu Guðmimds- dóttur. 2. Margrét, hér á Akranesi, ógift. 3. Guðmundur, kvæntur Hildi Jónsdótt- ur, ættaðri frá Seyðisfirði. Þau eru búsett á Akranesi. Guðmundur er út- lærður garðyrkjumaður frá Danmörku og vinnur hér á vegum bæjarins. 4. Ásmundur, kvæntur Fjólu Borgfjörð. Þau eru búsett í Reykjavik og eiga eina dóttur, Valgerði. 5. Guðmunda gift Ragnari Benediktssyni, þau em búsett i Vestmannaeyjum. Þeirra börn: Valgerður, Benedikt Grét- ar og stúlka óskirð. 6. Þorgeir, netagerðamaður fyrmefndur, búsettur hér á Akranesi. 7. Þorbergur, skipstjóri, líka búsettur hér, á Heiðarbraut 18, kvæntur Jónu Jóns- dóttur, ættaðri úr Reykjavík. Þeirra börn: örn, Jón og Valgerður. Epnfremur misstu þau Jón og Valgerður þrjú börn. Árið 1945 mun Bræðrtunga hafa farið 1 eyði, en það sama ár byggir Þorgeir nýtt steinhús norðar í Bræðratungu-lóðinni, þar sem þau Valgerður og Margrét bjuggu sáðan meðan Valgerður lifði. Árið 1947 seldi Þorgeir svo hið gamla Bræðratungu- hús Kjartani Kristjánssyni frá Flankastöð- um á Miðnesi, en hann færði húsið upp fyrir Garða, þar sem það stendur nú. Bræðratunga var nr. 11 við Akurgerði. 80. Austurvellir 1. Það hús er líklega byggt seinni partinn á árinu 1884, því virðing á þvi fer fram 9. febr. 1885. En sá sem byggði, Magnús smiður Vigfússon, hefur líklega ekki flutt í það fyrr en um vorið 1885. Þar bjó Magn- ús ekki lengi í bili, því eftir að hann missti fyrri konu sína, Halldóm Sigurðardóltir, 10-7. 1888 losnaði um hann. Fór hann þá að fást við smiðar upp um sveitir, m. a. á Gmnd í Skorradal. Um eins árs skeið var Magnús ráðsmaður hjá Eiinu Vigfúsdóttur, sem þá bjó í Amþórsholti og var orðin ekkja og giftist henni 1891. Þau hætta búskap í Amþórsholti 1895, voru á Hvitár- völlum og Grímsstöðum í Anaakíl næstu 3 árin en flytja þaðan hingað að Austur- völlum. Þaðan flytja þau að Jörfa í nýtt hús er þau byggðu 1907. Hús það sem Magnús byggði upphaflega á Austurvöllum 1884 var 9x7 álnir, port- byggt, með miklu risi, og lágum kjallara undir. En þegar Magnús kemur ofan að aftur, byggir hann viðbótarbyggingu á Austurvöllum. Um Magnús og Elínu konu hans má lesa nánar í 11 -12. tbl. 1944, og sáðar verður þeirra getið á Jörfa. Það er alvanalegt að nöfn breytist nokk- uð frá upphaflegri gerð, stundum oftar en einu sinni. Þannig var það um Austur- velli og Suðurvelli, að um tíma eru þessir bæir i manntalinu nefndir: Austurvöllur og Suðurvöllur. Framhald. 136 AKRANES

x

Akranes

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.