Akranes - 01.10.1953, Qupperneq 24
sem gekk. Eins og þið sjáið hér að framan
heitir einn drengur Agnars Braga, Hannes
Hafstein. Um það leyti sem drengurinn
var skírður, var mikill hiti í stjómmálun-
om, en Hannes Hafstein þá nýlega orðinn
undir í baráttunni fyrir mótherja sínum
Birni Jónssyni. Agnari Braga hefur ekki
þótt hlýða að fylla flokk meirihlutans,
eða snúa baki við foringja sinum, og til
þess að sýna hug sinn í þessu efni, lét
hann drenginn auðvitað heita Hannes Haf-
stein. Segir Bragi að þá hafi ýmsir við-
staddir rekið upp stór augu.
Bragi var mikill hestamaður og átti á
stundum margt hrossa og góðhesta.
Þá voru fá ár á Klöpp, Jón Þorláksson
frá Arkarlæk og kona hans Guðrún Sig-
urðardóttir frá Litla-Sandi. Þaðan flutt-
nst þau svo að Bfstabæ, en önduðust á
spítala í Reykjaviík, Jón 1. sept. 1945, en
Guðrún hinn 10. sama mánaðar sama ár.
Þeirra hjóna verður nánar getið í sam-
bandi við Arkarlæk.
Næst kemur að Klöpp Ásgrimur Jóns-
son, f. í Hlíðarhúsxnn í Reykjavík 16. júní
1882, sonur Jóns Grímssonar, sem ættaður
var úr Reykholtsdal. Jón þessi Grímsson
var bróðir Jódísar, konu Þorvaldar á Norð-
ur-Reykjum og Ólafar, síðast á Barði í
Reykholtsdal. Móður sina missti Ásgrím-
ur úr mislingum þegar hann var viku gam-
all. Þá var honum komið fyrir á Hlíðar-
fæti, til Helga Sveinbjamarsonar og var
þar til 8 ára aldurs. Eitt ár var hann hjá
syni Helga og annað ár hjá Ingibjörgu
dótur hans, það var hér á Suðurvöllum.
Eftir það fór Ásgrímur upp í Andakíil,
Reykholtsdal og Hálsasveit, og var þar á
ýmsum stöðum. Hann hefur alltaf feng-
ist við sveitavinnu en lítt stundað sjóinn.
Kona Ásgríms var Kristín Daviðsdóttir
f. 20. maí 1878 í örnólfsdal í Þverárhlíð,
var faðir hennar bróðir Ólafs á Hvitár-
völlum og þeirra bræðra. Ásgrímur og
Kristín komu hingað til Akraness 1923
og hafa verið hér síðan á ýmsum stöðum,
lengst í Presthúsum, Hliði, Skarðsbúð og
á Klöpp. Konu siína misst Ásgrimur 2.
ágúst 1952. Börn þeirra:
1. Sigurður, bóndi í Selhaga í Þverárhlið,
kvæntur Ágústu Jónsdóttur frá Gunn-
laugsstöðum, þeirra böm: Kjartan,
Steingrímur, Magnús Guðvarður,
Hulda og önnur stúlka óskírð. Ágústa
var gift áður, og átti eitt bam með
þeim manni.
2. Helga, gixft Halldóri Magnússyni,
Svanahlíð og verður þar minnzt.
3. Guðrún, býr með Einari Ó. Júlíussyni,
f. á Seyðisfirði, þau búa hér á Vestur-
götu 123 og eiga einn dreng, Júlíus að
nafni.
Ásgrímur kann vel að hirða skepnur,
og hefur yndi af þVi, og fer það vel úr
hendi. Kindumar hans em fallegar, enda
stríðaldar. Ásgrímur var lengi skepnuhirð-
ir hjá síra Þorsteini Briem, meðan hann
hafði bú í Presthúsum. Hann er vandaður
maður til orðs og æðis.
Nú er í gamla húsinu, Guðfinna Þor-
kelsdóttir, f. 30. júní 1882 í Dalbæ í Gaul-
verjabæjarhreppi. Maður hennar var
Bjarni Guðmundsson, frá Múlastöðum í
Flókadal, en þeirra verður nánar getið i
sambandi við Hreiður.
I nýja húsinu bjó samhliða Valgerði
Helgi Þorláksson kennari við Gagnfræða-
skólann hér. Það var veturinn 1944/5.
Helgi er f. í Múlakoti á Síðu, sonur Þor-
láks bónda þar Vigfússonar og konu hans
Helgu Bjarnadóttur, en þau voru bæði
Skaftfellingar.
Kona Helga er Gunnþóra Sigurbjörg
Kristmundsdóttir, 'frá Vattarnesi við Reyð-
arfjörð. Síðari veturinn, sem þau vom hér,
áttu þau heima á Mánabraut 11. Þau eiga
5 drengi: Þorkell, Þorsteinn, Þorlákur
Helgi, Þorvaldur og einn óskírður í nóv.
s. 1. Helgi er nú kennari við Gagnfræða-
skóla Austurbæjar í Reykjavík og kennir
þar eingöngu íslenzku og söng. Hann er
vel að sér i báðum þessum greinum og
hefur yndi af að kenna þær, enda er hann
t. d. mjög músikalskur og spilar ágætlega
vel á harmóniium. Helgi er og bindindis-
maður.
Þar bjó einnig rnn tima Ari Jónsson,
Arasonar Jónssonar frá Guðrúnarkoti.
Kona Ara Jónssonar er Þórdis Magnús-
dóttir, ættuð frá ísafirði. Systir hennar er
Sigríður, kona Guðmundar á Gelti í Súg-
andafirði.
Böm Ara og Þórdísar em aðeins tvö,
tveir drengir. Þórður, sem um mörg ár var
veitingamaður hér í Bártmni og Jón,
kvæntur Jórunni Eyjólfsdóttur frá Bræðra-
borg. Allt þetta fólk á nú heima í Reykja-
vik.
Kona Jóns Arasonar, sem nú var ný-
nefndur, hét Guðbjörg Jónsdóttir og var
frá Isafirði. Þeirra börn:
1. Ari, sem nú var frá sagt.
2. Kristmundur, fórst af togara.
3. Sigríður, giift Bjama Bjamasyni úr
Amarfirði.
4. Salóme, ekkja eftir Jón Magnússon
smið frá Súgandafirði.
5. Matthildur, gift Guðmundi Jósefssyni,
á Georgshúsi, umsjónarmanns gagn-
fræðaskólahússins hér.
Þar bjuggu einnig eitthvað Ólafur Guð-
mundsson, áður í Miðvogi, og kona hans
Kristín Jónsdóttir frá Ausu, þeirra verð-
ur nánar getið í sambandi við Sólvelli.
Þar vom einnig eitthvað Magnús E.
Sigurðsson, f. 1890 að Hóli í Bolungar-
vík, og kona hans Þórunn Bjömsdóttir, f.
20. ágúst 1885, að Skíðastöðum ytri í
Laxárdal. Þeirra verður síðar getið í sam-
bandi við Blómsturvelli.
Þá voru þar lítinn tíma Steinar Sigur-
jónsson, skipstjóra Kristjánssonar og kona
hans Jóna Símonardóttir úr Keflavík. Börn
þeirra: Sigríður og Elisabet Harpa. Þau
hafa skilið samvistir.
Enn bjó þar Sigurður Guðni Jónsson
skipstjóri, f. 21. okt. 1918, í Lokinhömr-
um í Auðkúluhreppi í Arnarfirði. Kona
hans er Sigríður Ólöf Sigurðardóttir, f.
24. spet. 1915 að Hróarsstöðum á Vind-
hælishreppi. Þau munu hafa komið í
Skagann 1948, en áður verið eitthvað í
Innsta-Vogi og í Görðum. Sigurður var
dugnaðarmaður og bezti drengur. Hann
fórst með m/b Val í ofsaveðri hinn 5.
janúar 1952, ásamt 4 skipverjum sínum.
Þeirra böm: Valgerður Sólveig, Jón Sig-
þór, Guðrún Helga og Sigurður Guðni.
Sigríður býr nú með þessum bömum
þeirra í Melbæ, og verður þar síðar getið.
Nú búa á Klöpp, Elinborg Sigurðardótt-
ir, f. 6. júli 1889 á Miklholtshreppi. Fyrri
maður hennar var Vorm Frímann Láms-
son. Þau eignuðust 4 börn, þrjú þeirra eru
á lífi, tvær stúlkur, og drengur sem heitir
Lárus Beck. Síðari maður Elinborgar var
Jón Kristjánsson. Þeirra böm: Trausti,
sem á heitma hjá móður sinni, og Þuríður,
kona Sigurðar Ámasonar frá Melshúsum.
Á Klöpp er einnig fyrmefndur Lárus
Beck Vormsson, ásamt unnustu sinni Guð-
laugu Meyvantsdóttur frá Siglufirði.
91. Uppkot, Suðurgata 92.
Árið 1889 byggir þetta býli Halldór
Jónsson frá Skálpastöðum í Lundareykja-
dal og flytur þangað það ár. Halldór var
sonur Jóns á Skálpastöðum, Bjamasonar
frá Vatnsorni, Hermannssonar, en móðir
Halldórs og kona Jóns var Guðrún Jó-
hannsdóttir frá Þingnesi.
Kona Halldórs i Uppkoti var Kristín
f. 8/2.—1851, Magnúsdóttir á Hrafna-
björgum, Einarssonar bónda í Kalmans-
tungu, Þórólfssonar. Fyrri kona Magnús-
ar og móðir Kristínar var Þuríður Árna-
dóttir frá Bjamastöðum i Hvítársíðu Guð-
mundssonar.
Þau Halldór og Kristín byrjuðu búskap
á Kistufelli í Lundareykjadal líkl. 1883 eða
’84.
Halldór byggði hér þegar bæ, er hann
nefndi Uppkot, er honum þannig lýst í
virðingargerð 5. des. 1890. „Eitt hús V2
stafir, 10 al. 6. timburgafl í báðum endum,
þiljað hátt og lágt, málað innan, eitt skil-
rúm, lítil eldamaskána, tréskúr við inn-
ganginn, húsið er þrifalegt og bjart.
Skemma á sömu lengd og húsið al.
br. ársgamalt, virt kr. 350,00. Ábúandi
Halldór Jónsson.“
Árið 1902 rífur Halldór hinn tiltölu-
lega nýja bæ og byggir timburhús í Upp-
koti ásamt Jóni syni sínum. I virðingar-
gerð frá 9. des. 1902 er því þannig lýst:
„Húsið er að stærð 8X9 al., vegghæð 5 al.
132
AKRANES