Akranes - 01.04.1954, Blaðsíða 3

Akranes - 01.04.1954, Blaðsíða 3
T þjóniistu lífsins - Þýðing þjóðnytjastarfs í 2 5 ár - i. Hinn mikli skattur. I HINU harðbýla landi og ofviðra- sömu vetrum hafa menn oft orðið úti á öllum öldmn. Þeir hafa farizt í fjall- göngmn, ám og vötnum. Fram til síð- ustu ára, ha'fa þó slysin orðið tíðust við sjávarsíðuna, þar sem ótrauðir merm ýttu ur vör til fiskfanga á smáfleytum, oft- ast við örðuga og áhættusama lendingu, en fá eða engin úrræði þekkt til að verj- ast slysmn. I hlutfalli við höfðatölu þjóðarinnar, stunduðu ótrúlega margir sjó meira og uiinna á ýmsum árstíðum. Það voru ekki aðeins menn, sem húsettir voru við sjó- mn, heldur viðsvegar úr sveitum lands- ms. Mannskaðamir hjuggu því stór skörð 1 úrvalslið sveitanna eigi síðm- en þeirra, sem bjuggu í bæjum og þorpum. Slysin eru tið, og stórkostlegust vegna þess, að í hvert sinn hnígur úrvalalið °ft svo, að heilar sveitir eru særðar hol- undarsári. Árið 1628 drukknuðu 11 menn á Akra- uesi. 1685 var stórkostlegur mannskaði a Suðm-nesjum, „mundu menn ei þá slík- an orðið (hafa). Fórust á Stafnesi 7 skip: 3 teinæringar, 4 áttæringar, var þar á hið valdasta verfólk úr Norðurlandi, 60 menn að tölu, af hverjum einir 2 kom- ust lífs. Rak þá upp 47 lik nóttina eftir, ÁKRANES sum í Garði, sum á Miðnesi. Voru þeir allir jarðsettir við Utskálakirkju á einum degi, og vom gerðar að þeim þrjár graf- ir og vom lagðir 42, hver við annars síðu, en formennimir í hinar tvær. — — FYRRI GREIN — Ölafs B. Björnssonar. Voru þeir allir, sem þar létust, kóngs for- menn, nema Ólafur Þorsteinsson lesta- maður frá Hólum. Forgengu og sama dag 3 skip i Garði, eitt í Hafnarfirði, 4 tein- æringar i Vestmannaeyjmn. Fómst af þeim skipum 50 manna, og á Eyrarbakka teinæringm-“ (Mælifellsannáll). Stórkostlegir mannskaðar urðu oft, svo sem árin: 1700, 1752, 1854, 1867 og 1884, svo aðeins örfá ár séu nefnd. 1 25 ára minningarriti Slysavamafé- lagsins em drukknanir taldar sem hér segir: 1881—1890 drukkna 762 1891—1900 670 1901—1910 664 1911—1920 661 1921—1930 685 Á þessum fimm áratugum hafa þvi drukknað hér 3442 menn, eða að meðal- AKRANES XIII. árg. april—júní 1954. — 4.—6. tbl. Útgefandi, ritstjóri og ábyrgSarmaSur: ÓLAFUR B. BJÖRNSSON AfgreiSsla: MiÖteig 2, Akranesi, PRENTAÐ 1 PRENTVERKI AKRANESS H.F tali 69 menn á ári. Áramunur er mik- ill. 1887 drukknuðu 124, 1897 125. 1906 124 og 1922 111. Sum ár eru tölurnar miklu lægri. Árið 1892 dmkknuðu 35, 1902 25, 1909 40 og 1929 36, en þetta munu beztu árin. Hér hafa aðeins verið taldir þeir, sem hafa dmkknað á þessu timabili, en af slysförum yfirleitt fómst 4200 manns. Nema drukknanir því rúmlega % af öllum slysfömm. Sé gerður samanburð- ur á fjölda slysa við önnur lönd, kemur i ljós, að þau eru um það bil þrefalt tið- ari hér en viða annars staðar. II. Einstaka raddir. Ef til vill hafa einstakir formenn, eða aðrir framsýnir menn heima í héruðun- mn hvatt menn í orði til að búa vel skip sín og brynja gegn hættum á sjónum. Þó svo hafi verið, hefur þar vart verið um að ræða nein tæki. Það, sem hins vegar sést fyrst á prenti um þetta efni, er í ritum Lærdómslista- félagsins árið 1789, og eftir hinn nafn- fræga eldprest Jón Steingrimsson, og nefnist: „Um að ýta og lenda í brimsjó fyrir söndum, með því sem þar til þén- ar“. Sira Jón var sjálfur mikill sjósóknari og því vel kunnugur hinni hættusömu brimóttu suðurströnd landsins. Hann tal- aði þvi af reynslu, og hefur eins og hans var von og visa, viljað láta aðra lands- menn njóta sinna leiðbeininga, svo sem þörfin hefur verið rik um slysavamir þá, ekki síðrn- en nú. Um hálfri öld síðar birtist svo önnur ritgerð um slysavamir. 1 Búnaðarriti Suð- uramtsins húss- og bústjómarfélags 1839. Hún er eftir Þórð Jónsson hreppstjóra og dannebrogsmann á Bakka á Seltjam- amesi og víðar, föður Einars prentsmiðju- stjóra í Reykjavik. Ritgerðin nefnist: „Fá- einar formannareglur áhrærandi sigling- ar, fiskveiðar og fleira þar að lútandi, handa ungum formönnum** 1. Ritgerð þessari fylgdu viðaukar og at- hugasemdir eftir nokkra merka menn, 39

x

Akranes

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.