Akranes - 01.04.1954, Side 6

Akranes - 01.04.1954, Side 6
1927, var samþ. svofelld tillaga frá Jóni E. Bergs veinssyni: „Fundurinn telur mjög æskilegt, að stofnað verði sem fyrst Björgunarfélag íslands, sem helzt nái yfir allt landið eða hafi deildir í öllum landsfjórðung- um, og telur rétt, að erindreka Fiskifélags- ins í björgunarmálum verði falið að vinna að félagsstofnuninni og koma henni á fót.“ Þessi tillaga beindi málinu nú inn á nýja braut. Frá rikisstofnun til almennra félagssamtaka alls lands‘fólksins. Mun Jón E. Bergsveinsson hafa átt allan, eða manna mestan þátt í því, að horfið skyldi að þessu ráði, sem orðið hefur svo gagngert, á- hrifaríkt og farsælt fram á þennan dag. Á þessum grundvelli hóf Jón nú undirbún- ing að stofnun björgunarfélags. Ákvað hann að efna til almenns fundar um mál- ið, og fékk forseta Fiskifélagsins og for- mann skipstjórafélgsins Aldan að gang- ast fyrir fundinum. VII. Björninn unninn, — félagið stofnað. 1 desember byrjun 1927, var boðað til umrædds fundar til þess að ræða björg- unarfélagsmálið, en til hans hafði verið boðað með sérstöku boðskorti, auk þess sem hann var auglýstur í dagblöðunum. Fimdarstjóri var kosinn Kristján Bergsson, forseti Fiskifélagsins og ritari Geir Sig- urðsson, skipstjóri, sem einnig var í stjóm Fiskifélagsins. Málshefjandi var Jón E. Bergsveinsson, sem gerði grein fyrir öllu undirbúningsstarfi, og sagði frá hliðstæðu starfi i öðrum löndum. Fleiri tóku til máls, sem allir studdu áframhald og frek- ari aðgerðir, en að lokum var samþ. til- laga Guðmimdar landlæknis um að kjósa 5 manna nefnd, til að gangast fyrir stofn- un björgunarfélags, er næði til alls lands- ins og semja lög fyrir hið væntanlega fé- lag. 1 nefndina voru kosnir: Jón E. Berg- sveinisson, Guðmundur Bjömsson, Geir Sigurðsson, Þorsteirin Þorsteinsson, Þórs- hamri og Sigurjón A. Ólafsson. Nefndin hélt marga fundi og starfaði vel, en boðaði svo til stofnfundar Slysa- varnafélags Islands, er var settur og hald- inn i Bámbúð í Reykjavík, hinn 29. jan- úar 1928, kl. 3 e. h. Setti Guðmundur Björnsson, formaður nefndarinnar fund- inn og gerði grein fyrir störfum nefndar- innar, m. a. frumvarpi til félagslaga, er lagt var fram á ‘fundinum, og samþ. i einu hljóði. Því næst var kosin stjóm fyr- ir félagið. Lagði Benedikt Sveinsson til að hina fyrstu stjórn skipuðu þeir, sem verið hefðu í undirbúningsnefndinni. Und- an því baðst Jón E. Bergsveinsson, sem ekki taldi rétt að kjósa sig til þessa starfs, Þorsteinn Þorsteinsson, var forseti S.V.F.l. 1932—1938. .____________________________________________________________________________________________________________________________________________________________2 þar sem hann væri erindreki í þessum málmn. 1 hans stað var svo stungið upp á Magnúsi Sigurðssyni bankastjóra. Voru þessir menn því kjömir í einu hljóði í stjóm: Guðmundur Björnsson, landlæknir, for- seti, Þorsteinn Þorsteinsson, skipstjóri, Magnús Sigurðsson bankastjóri, Sigurjón A. Ólafsson og Geir Sigurðsson, skipstjóri. Áður en fundi lauk höfðu 128 gerzt fé- lagar, 114 karlar og 14 konur, þar af 25 ævifélagar. VIII. Fyrstu störf, — brýnustu verkefnin. Eftir stríð og langan aðdraganda var nú stofnað 'félag á íslandi til þess að vinna að slysavörnum, en aðal slysahættan var þá talin vera i sambandi við sjósókn og siglingar, sérstaklega skipsströnd við hina víðáttumiklu strönd landsins, svo og á leiðum og lendingum hinna smærri skipa, í sambandi við fiskiróðra. Jón E. Bergsveinsson var þegar ráðinn erindreki félagsins og gegndi þvi starfi til 1949- Eitt af fyrstu og aðal verkefnum félags- stjórnarinnar var að útvega hentug og haldgóð björgunartæki, eftir því sem fjár- hagur félagsins leyfði. Skömmu eftir stofmm félagsins, varð á- takanlegt sjóslys, er botnvörpungurinn Jón forseti strandaði á Stafnestöngum. Þar fór- ust 15 menn, en 10 varð bjargað. Þetta stórkostlega slys ýtti undir öflun hinna beztu björgunartækja, sem völ væri á, sér- staklega brimróðra-björgunarbáts. Var Jóni Bergsveinssyni þegar falið að at- huga um slíkan hentugan bát og staðsetn- ingu hans. Þá var annað, sem stjómin lagði hug og hönd á að koma í framkvæmd, að stofna sveitir út um land og útvega sér umboðs- menn sem víðast. Bjöm Hallgrímsson í Sandgerði stofn- aði þar fyrstu slysavamadeildina, sem stofnuð var í júnímánuði 1928, með 77 félögum, en hún hlaut nafnið Sigurvon. önnur sveit var stofnuð um haustið i Flat- ey á Breiðafirði, af Bergsveini Ólafssyni, nú augnlækni í Reykjavik, með 34 fé- lögum. Samþykkti stjómin að gera nú það, sem hægt væri, til þess að stofna deildir víðar i kaupstöðum og sjávarþorp- um í nágrenni Reykjavíkur. Gekk þetta mjög vel, því að ekki skorti áhuga og elju stjómar og erindreka félagsins, og þessari málaleitan vel tekið af öllum, sem til var leitað. Félagið hóf nú strax útgáfu Árbókar, með fréttum frá starfinu, hvatningu og leiðbeiningúm um slysavamir, og kemur árbókin út enn. Þegar á fyrsta starfsári félagsins kom- AKRANES 42

x

Akranes

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.