Akranes - 01.04.1954, Síða 7

Akranes - 01.04.1954, Síða 7
ust tvö áhugamál félagsins heil í höfn, er það festi kaup á fyrstu fluglínustöð- inni, með línubyssu,1 björgunarstól, ásamt öðrum tilheyrandi tækjum, og var ákveðið að setja hana upp á Stafnesi. Hitt var kaup á björgunarbát, sem staðsettur skyldi vera í Sandgerði, sjálfsagt allt miðað við hina tíðu strandstaði, frá Reykjanesi til Garðskaga. Sama dag og björgunarbátur- inn kom til landsins, bárust félaginu hin- ar fyrstu stórgjafir, er þau hjón, frú Guð- rún Brynjólfsdóttir og Þeirsteinn Þor- steinsson, skipstjóri í Þórshamri, gáfu fé- laginu þennan fyrsta björgunarbát með öllum tilheyrandi útbúnaði. Einnig gaf Marius Níelsen skipamiðlari í Kaup- mannahöfn ’félaginu 5000 danskar kr. Á fyrsta aðalfundi félagsins, sem hald- inn var 10. marz 1929, er forseti félags- ins, Guðmundur Bjömsson ekkert hik- andi, er hann talar um verkefni félags- ins og framtíðarstarf. Auk aðalstarfs og skyldu félagsins telur hann ennfremur þetta, sem félagið verði að styðja og hafa vakandi gætur á: „Allskonar lendinga- hætm-, vita (þar á meðal radióvita), sjó- merki, hafnarmerki, veðurspár, eftirlit með fiskiskipum, hentugasta lag og gerð hreyfilbáta og fiskibáta yfirleitt. Þá mun og félagið gera sitt til að efla sundkuxm- áttu sem mest má verða og kenna út frá sér beztu aðferðir við lífgun drukknaðra". Af því sem hér er sagt, má sjá, að félagið hefur þegar verið stórhuga, og ekkert talið sér vera óviðkomandi, sem bjarga mátti mönnum og bægja frá hvers konar slys- um. Hið mikla hátíðaár Islands 1930, varð einnig happaár í sögu Slysavarnafélagsins. Það ár eignaðist félagið annan björgunar- bát, „Herjólf", sem staðsettur var við Eyðið i Vestmannaeyjmn. Hitt var það, og engu minna happ, að einmitt þetta sama ár tóku íslenzkar konur að hefja sjálfstætt skipulagt starf innan félagsins, en það er kunnara en frá þurfi að segja, hve það hefm- allt til þessa dags verið unnið af mikilli fómfýsi, kærleika og með miklum árangri. I tilefni af 5 ára afmæli félagsins í janúarlok 1933 hóf það nýjan þátt í út- breiðslustarfinu, með því að fá útvarpið til þess að helga starfi félagsins eina kvöld- vöku i útvarpinu. Töluðu þar ýmsir karlar og konur á vegum félagsins, og var þess- tun hætti lengi haldið eftir það. IX. Félagið færir út kvíarnar. Árið 1931 varð fyrsta stóra björgunar- ar félagsins, er slysavamadeildin „Þor- bjöm“ í Grindavík bjargaði 38 mönnum af franska togaranum „Cap Fagnet“, er strandaði nálægt Grindavík í stórviðri og brimi. Þá sýndi það sig tvennt í senn: Að akranes björgunartæki félagsins voru gagnleg og mikils virði, og að hinir hraustu, hug- djörfu menn í sveitum félagsins vom verki sínu vaxnir, og spöruðu ekki líf eða limu til þess að bjarga, er voða bar að höndum. Það er heldur ekki að efa, að þessi giftu- samlega björgun vakti athygli utanlands og innan, og hefm átt verulegan þátt í vinsældum félagsins, útbreiðslu og auknu starfi. 1 árslok 1936, eftir tæplega 9 ára giftu- drjúgt starf, voru félagsmenn orðnir 8376, í 42 karlmannadeildum með 5083 fél. 16 kvennadeildum með 2634 — 5 unglingadeildum með 659 — Þá voru eignir félagsins metnar á rúm- lega 250 þús. kr., en árlegar tekjur fé- lagsins vom þá 40—50 þús kr. Þá átti félagið 36 björgunarstöðvar, auk björg- unartækja á 30 bryggjum. Starf félags- ins var mikið og giftudrjúgt, má í þvi sambandi nefna, auk þess sem áður er getið, að á árinu 1936, tókst að bjarga 118 manns 'frá drukknun, m. a. fyrir aðgerðir Slysavarnafélagsins. Á stjómarfundi 12. okt. 1936 var á- kveðið að færa enn út kviamar, með því að hefja slysvamir á landi, en Jón Odd- geir Jónsson, skátaforingi, hafði óskað þess að mega mæta á fundinum, til þess að ræða við stjómina um stofnun sérstakr- Frú GuSrún Brynjólfsdóttir ar slysavarnasveitar. Var þegar samþ. á þessum fundi, að fela Jóni Oddgeir rann- sóknir og undirbúning að slíkum slysa- vömum. Er öllum kunnugt það mikla og gifturíka starf, sem á þessu sérstaka sviði, hefur verið unnið síðan. Árið 1938 markar enn stórt spox i starf- semi félagsins, er björgunarskipið „Sæ- björg“ kemur til landsins og hefur gæzlu- og björgunarstarf. Hér var aðeins minnzt á starf kvenn- anna á vegum félagsins. Starf þeirra hef- ur verið ótrúlegt, sivakandi og vinnandi að hinum ýmsu verkefnum. Þær hlusta — eins og bezti læknir — eftir nýjum verkefnum, nýjum vandamálum, sem greiða þurfi úr og leysa. Þeim var sama hvort um stórt eða smátt var að ræða, en þær tóku aðeins meira á, eftir þvi sem vandinn var stærri og vandleystari. I þeirra hópi þekkir enginn úrtölur eða undanbrögð, heldur sigurglaða sékn að hinu hæsta marki, sem þær efast ekki um að leysa megi, með Guðs hjálp og góðra manna, sem hafa hjartað á réttum stað. Þær hófu baráttuna fyrir skipbrotsmanna- skýlimum, og hafa sjálfar komið þeim upp viðsvegar um landið. Þær hafa gefið stórfé til björgunarskipa, björgunarflug- véla, auk þess, sem þær hafa gefið beint i félagssjóð Slysavamafélagsins. Qnmlir sjómenn heiðrnðir Sjómannadagsráð hefur tekið upp þann ágæta sið að sæma aldraða sjómenn heiðursmerki, — silfurstjömu, — fyrir langt og vel unnið starf. Á sjómannasunnudaginn urðu tveir heiðursmenn hér á Akranesi aðnjótandi þessa heiðurs, Benedikt Tómásson skipstjóri, sem nú er búinn að fást við sjó á öllum tegundum skipa, og með hvers konar veiðarfærum í samtals 64 ár, en hann fer enn á sjó hverju sinni er gefur. Einnig Ölaf Gunn- laugsson vélstjóra, sem búinn er að vera vélstjóri samfleytt í um 40 ár. 43

x

Akranes

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.