Akranes - 01.04.1954, Page 8

Akranes - 01.04.1954, Page 8
EDVARD HARELDSEN, yfirkennari: - LÍFjSSKOÐUN - HAMINGJULEITIN er eilíf, en eng- inn höndlar hamingjuna í þeirri mynd, sem hann leitar herrnar. Ástæð- an til þess er sú, að maðurinn er aldrei algerlega ánægður, í sál hans er kvala- stunga eftir sverð sársaukans. Þeim mun hrifnæmari, maðurinn er gagnvart fegurð lífsins, þeim mun meira finnur hann til ósamræmis og sársauka, sem einnig fylgja lífinu. Aðeins með tilstyrk ástarinnar get- ur maðurinn veitt innsta eðli sínu útrás, en þeim mun meira sem maðurinn elsk- ar, þeim mun meira þjáist hann, því ástin er bæði nautn og þjáning í senn, þján- ingin er fylgifiskur einmanaleikans og hugsunarinnar um dauðann. Þeim mun meiri þekkingar sem maðurinn aflar sér, þeim mun óvissari verður leyndardómur sannleikans. Á þekkingarbrautinni verð- um við fyrir því sama og ef við göngum eftir regnboganum, sem við sjáum úti við sjóndeildarhringinn, hann hörfar stöð- ugt. Aðeins hjargföst trú á einhvem guð- dómlegan tilgang bak við gátur og gjörðir lífsins getur brúað djúpið milli þrár og vonbrigða. Án trúar verður endir alls ör- vænting. Engin siðmenning hefur til þessa haldið velli hafi hún hætt að trúa á guði sína. Þetta kemur til af því, að sé trúrmi að fullu hafnað, hafna menn um leið hugsjónum, sem skópu menninguna og virða að vettugi innblásturinn í listinni, sem trúnni er tengd með ósýnilegum bönd- mn. Allir þessir máttarstólpar menning- ariimar þola ekki árásir kaldrar gagnrýni og höfmm vantrúar. Slík gagnrýni og vantrú er nú á góðum vegi með að grafa undan menningu vorri, að svo miklu leyti, sem hún byggðist á kristnum hugsjónum. Þessar hugsjónir hafa að visu oft verið lítilsvirtar, aldrei hafa þær orðið að al- gerum veruleika, enda væru þær þá ekki hugsjónir lengur, oft hafa menn gerzt svik- arar við þær, en þrátt fyrir allt þetta hafa þær sett svip sinn á löggjöf okkar, listina, hugsanir okkar, mat okkar á góðu og illu, tilfinningar okkar og hegðun. Vísindin eiga ekki sök á þessu, því að sannleikur- inn er hluti af guðdómnum, heldur hin falska túlkun vísindanna. Vaxandi van- trú og efnishyggja hafa í geði margra skapað algera afneitun á trú þeirri og sið- gæði, sem menning vor byggist á og hef- ur vaxið upp af. Eftir því sem þekking á eðlisfræðinni eykst og vald mannanna yfir náttúrunni gerir tækniþróunina eins hrað- tíga og raun ber vitni, missa margir trúna á andlegum verðmætum og hugsjónum, sem þau skapa. Eins og áður er sagt eiga vísindamennirnir ekki sök á þessu, þvert á móti, margir vísindamenn viðurkenna, að öll þekking þeirra leiðir aðeins til nýrra leyndardóma og birtir nýjar gátur og sennilega verði aldrei hægt að skilja eðli og tilgang tilverunnar. — SEINNI GREIN — Heimurinn yrði heldur ekkert skemmti- legur þegar búið væri að skýra alla leynd- ardóma og um leið fjarlægja alla þá feg- urð, sem þeim fylgir. Alla tið munu verða uppi menn, sem eru miklu gáfaðri en allur fjöldinn og vilja því ekki lúta þeim siða- og félagslögmálum, sem aðrir hafa myndað. Þessir menn verða svo greind- ir og óbundnir venjum, að þeir skapa riýja siðmenningu, er líkjast mun þeirri, sem Huxley lætur sig dreyma um í „Fögr- um og nýjum heimi“, en sem okkur finnst nú ómannleg. Siðalögmál bjóða fólki að sýna fómar- lund og ást til náungans, þau krefja menn um það, sem er óþægilegt og kvalafullt. Þau eru í andstöðu við holdið, sem aðeins sækist eftir þægindum. Þau heimta að eigingiminni sé visað á bug. Gleðin, sem þau skapa vegur upp á móti fómunum sem þau heimta. Sú tilfinning að hafa gert skyldu sína, fylgir með djúpri ánægju, sem skapar frið í sálinni. Siðpniður mað- ur, skapar þægilegt andrúmsloft í kring- um sig og eykur góðvildina. Sjaldan verða slíkir menn á vegi okkar, en það er slik fullkomnun, sem stefna ber að. Ef vitið eitt ætti að ráða myndu mannleg skap- gerðareinkenni, sem við metum mikils og köllum skyldurækni, tilfinningu gagn- vart frelsinu, og fegurðin, sem birtist í góðverkunum hverfa smátt og smátt og gleymast unz menningin hryndi að grunni. Hafni menn trúnni á guðdómlegt vald og tilgang handan við allt sem er sýni- legt ennfremur trúnni á líf eftir dauðan, verður aðalatriðið að krækja sér i eins mikinn auð þessa heims og kostur er á. Sé kenningin um gott og illt aðeins eitt- hvað, sem menn hafa fundið upp og þess7 vegna hlýtur að hafa takmarkað gildi, því þá að láta slæma samvizku hafa áhrif á sig. Sé frjáls vilji ekki til og heldur eng- ín ábyrgð, því þá að láta sektarmeðvit7 und fara illa með sig. Án guðs verða æðstu verðmæti mannanna eins og frelsi, réttlæti, sannleikur og miskunnsemi ekki meira virði en ávisim, sem engin innstæða er fyrir. Við þurfum ekki á nýrri trú að halda heldur endurnýjun og auknum styrk hinna eilífu og óumbreytanlegu hug- sjóna. Miskunnsemi breytist aldrei. Eðli sannleikans breytist ekki þótt sjóndeild- arhringur hans stækki. Hefur kristindóm- urinn tapað vegna þess að menn viður- kenna nú, að jörðin sé hnöttótt og him- inhvolfið óendanlegt? Fegurðin breytist ekki þótt dýpt hennar aukist, eftir þvi sem sálin þroskast og á hægara með að veita viðtöku verðmætum, sem eru hluti af guði sjálfum. Mannkynið hefur átt i baráttu og hefur stigið vixlspor, það hefur átt í átökum, farið villt vegar og beðið ó- sigra, en meðan á öllu þessu hefur staðið hafa áðurnefndar hugsjónir verið leiðar- stjörnur, þær hafa verið glóð í geði göfugra manna og í hjörtum hins nafnlausa fjölda. „De ædles æt dör aldrig ud“, segir Grundt- vig. Aðeins fyrir atbeina slíkrar trúar og hugsjóna, sem risið hafa úr öskustónni og komizt í kynni við vísindin, sem nú ráða heiminum getum við litið til framtíðar- innar óttalitið. Vísindin ein út af fyrir sig eru tvieggjað sverð, sem nota má bæði til góðs og ills og öfl þau, sem vísinda- mennirnir hafa leyst úr læðingi eru nú orðin svo ægileg að gervöllu mannkyn- inu stendur stuggur af þeim. Þessar stað- reyndir gera humanismann að lífsnauð- syn. Hvaða gildi hefur þá lífið. Þetta stutta líf, sem hverfur eins og skuggi, þessi leik- sýning, sem við verðum að leika hlut- verk í, stórt eða lítið eftir atvikum en án þess að vera spurð til ráða sjálf. Við spyrj- um nokkra hinna vitrustu og renydustu manna, sem uppi hafa verið um hugsan- ir þeirra, reynslu og niðurstöður. Hvort lí'fið hafi fært þeim kæti, gleði, ánægju og hamingju eða kvalir, þjáningar og von- brigði, siðan getið þér reynt að bera reynslu yðar og lífsblæ saman við þeirra, þótt mælistokkurinn verði eitthvað minni sak- ar það ekki svo mjög. Prédikunarbókin, sem er ein hin svartsýnasta, sem skrifuð hefur verið endar á þessum orðum: „Hin- ir dauðu eru hamingjusamari en þeir, sem lifa, en hamingjusamastir allra eru þeir, sem aldrei fæddust“. Sókrates, sem ann- ars var mjög lifsglaður maður segir: „Djúp- ur og draumlaus svefn er eftirsóknarverð- ari en hinn mesti hamingjudagur". Sofo- kles: „Bezt af öllu er að hafa ekki fæðst, næstbezt að deyja ungur“. Holberg: „Mest- an hluta ævinnar hef ég lifað í sambýli við sjúkdóma og áhyggjur og haft við- bjóð á því sem heimurinn annars metur mest. Eina huggunin er sú að lífið er stutt og vonin um betra lí'f bærist í hrjóst- um manna“. Goethe: „Dauðinn opnar hlið- ið, sem liggur til annars lífs. Sá sem ekki AKRANES 44

x

Akranes

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.