Akranes - 01.04.1954, Page 9

Akranes - 01.04.1954, Page 9
SVERRIR HARALDSSON : — f hnust/ þegnr bríðin feddi — lítur á lífið með hliðsjón af þessu verður aumkvunarverður gestur á dularfullri jörð“, Voltaire: „Flugurnar eiga að vera fæða köngulönna og maðurinn sorga og sársauka". Sóren Kirkegaard: „öll jarð- nesk tilvera er ein tegund sjúkleika“. Þannig mætti lengi íelja. öllum öðr- um fremur hefur Buddha hugsað svart- sýnina niður í kjölinn og rökstutt tilveru hennar. En þrátt fyrir það þótt allir þess- ir vitru menn hafi gert sér ljóst að lífið sé ekki þess virði að því sé lifað, og við sem smærri erum þekkjum augnablik þeg- ar uppistaða og ívaf er grátt, finnum við af ásköpuðu hyggjuviti, að algerlega rangt hlýtur að vera að hæða lífið á þann hátt, sem þessir menn hafa gert. Persónulega finnst mér það alltaf hera vott um and- lega fátækt eða diembni þegar fólk kvart- ar um gagnsleysi lífsins. Sannarlega er mikil sorg, sársauki og eymd í lífinu, bæði sú sem enginn getur að gert, og sú, sem menn valda sjálfir, lifið heldur sjaldan það sem það lofar og eftir miklar lífsnautnir kemur alltaf tóm- leiki og vonbrigði. Þeir, sem skynja gleggst fegurð og hamingju lífsins eru líka við- kvæmastir gagnvart fátækt þess, neyð og slysum. Og samt verðum við að halda fast við það, að okkur ber skylda til að gleðj- ast yifir lífinu svo biturleiki og vonleysi fái ekki síðasta orðið. Meðal æskunnar og hjá einstaka eldra manni finnum við eðli- lega og sanna lifsgleði. „Dejligst af alle glæder er glæden ved slet ingen ting, ikke for noget der kan eller vil, glæden for intet, glæden for alt, glæden, fordi du er til. Þegar á allt er litið eru lífsgleðilindira- ar margar og óþrjótandi, hversu lengi má ekki bergja gleðiveiga úr klassiskum bók- menntum, göfugri tónlist og myndum. En við þurfum ekki að fara lengra en til náttúrunnar og sjá hið fagra i hinu smáa, i fuglshreiðri, blómi, pílutré eða lítilli tjörn, já jafnvel í hægum hreyfingum ána- maðksins er fegurð náttúrunnar fólgin. Margir sækja líka dýpstu gleði og and- leg hressingarlyf í skaut náttúrunnar. Hverjum manni, sem ekki vill biða ó- þörf skipbrot í lífinu er nauðsynlegt að þroska með sér hæfileikann til þess að sjá humor í því sem gerist. Margar sorg- ir manna eru heimatilbúnar, stafa af hé- gómagimd manna, heimsku og ótakmark- aðri eigingirni. Menn ættu að rifja upp fyrir sér öðru hvoru þau eilífu sannindi, að eftir nokkur ár eru þeir aðeins til sem minning i hugum nokkurra fárra manna og ef til vill ekki þægileg minning hvað þá meira. Rétt er að gleðjast yfir því smáa. Hyggjum að leikjum bamanna og hinni cðlilegu og einlægu gleði, sem hirtist í þeim. Hugsum okkur að við séum böra arranes / haust, þegar hríðin œddi og hamingjan grét í brjósti hins máttvana manns, en nákaldur vindur nœddi og nísti til bana gróður lands, er söngfuglinn suður var flúinn og sölnuðu blómi á jörðu vafði hinn kaldi vetur viðjar úr frosti hörðu. Þá sá ég þig, blessaða barnið, méð brennandi tár, fjörlaust með föla kinn, en frostið og feigðarhjarnið fjötruðu saklausan huga þinn. Þú elskaðir bláloftið bjarta og beiðst eftir sól og vori, er kæmi rneð ódáinsangan og ilmjurt í hverju spori. Þó eldri ég vœri að árum og oft hefði kuldinn heltekið hjarta og lund, mér birtist í titrandi tárum tregandi harmur á þessari stund. Er sé ég hjá saklausu barni söknuð og harma slíka, veit ég að við, erum bræður, vinur, því grœt ég líka. •:---------■——----------------—— að leikjum á hinum mikla leikvangi, sem við köllum jörð. Við skrdum ekki láta gera okkur að leik- hnetti ytri afla, sem við ekki ráðum við. Alls konar óþægileg öfl vilja ná valdi á okkur, en við skulum varðveita innri ró og frið og láta öflin sigla sinn eigin sjó eftir því sem við verður komið. Sá sem vill öðlast innri frið og ró verð- ur að þjálfa sig í sjálfsstjóm. Hann má ekki láta eftir öllum hvötum sínum. Margt sem hugurinn girnist er lítils virði t. d áfengið, sem aðeins veitir augnahliks sælu, en síðan sorgir. Löngun manna til mál- þófs og jafnvel rifrildis er skaðleg engu síður en þrá margra til þess að tala illa mn aðra. Hvort tveggja er lítilmótlegt og jafnframt heimskulegt því að þeir lifa lengst sem með orðum eru vegnir. Loks má líta á lífið eins og skóla og það er ekki lélegasta lífsskoðunin. — Scola / vor, þegar vonir fengu vœngina aftur, sem kuldinn kramdi og braut, en brosandi blómin nutu hins bjarta dags eftir liðna þraut, og þiðnuðu fannir úr fjöllum, svo fjörugir lœkir sungu. En gróður á grœnum völlum gréri á sumri ungu. Þá barst til min, blessaði drengur, á blíðsumardegi, hlátur þinn, hreinn og skær, þvi húmið hrelldi ei lengur og himinsins blámi var fagurtær. Þú lékst þér með leggi og skeljar i Ijómandi sólarskini. Eignast hafðirðu blómin öll fyrir beztu vini. Ég hreyfst af hamingju þinni og hlœjandi kœti. Ungur í annað sinn. Atvik frá æskudögum öðluðust líf við hlátur þinn. Er lít ég hjá litlu barni leiki og gléði slíka, veit ég að viS erum brœður, vinur, þvi hlœ ég líka. animaram — skóli sálarinnar eins og spekingurinn Plotin komst að orði. I þeim skóla er aðalatriðið að gera skyldu sína, læra leksiuna sína vel, vitandi vits að líf- ið er ekki leikur heldur sjálfsstjóm og að- lögun að því sem koma skal, þótt það séu hörð lög. Geti menn ekki lært þessa leksiu komast þeir ekki upp í næsta bekk en verða að sitja eftir. 1 hinum harða skóla lífsins hafa löðrungar ekki verið numdir úr lög- um. Mér finnst lífið ekki hafa orðið til- gangsleysi heldur strangur skóli. En gegn- um baráttuna eygi ég samhljóm sení stíg- ur upp frá djúpinu til efstu stjama. „Og derfor elsker jeg verden trods al dets nöd og strid, for mig er verden skön endnu, som í skabelsens ungdomstid“. Ö. G. þýddi. L 45

x

Akranes

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.