Akranes - 01.04.1954, Qupperneq 11

Akranes - 01.04.1954, Qupperneq 11
eða með fyllri rökum en rektor Háskól- ans — sem áður hafði getið sér nær frá- bæran orðstír í þessu máli. Og hann har jafnframt fram þá tillögu um lausn máls- in.s, er vel ætti það skilið að verða hróp- uð af húsþökunum til allra þjóða heims, nú þegar þær standa vígbúnar hver gegn annari, til þess að þær mættu af henni læra. Munu þess sorglega fá dæmi að slíkt veglyndi komi fram þar sem tvær þjóðir deila; það var sama eðlis og það er Bretar sýndu er Búar lágu gersigraðir fyrir fót- um þeim 1902. En ávöxtinn af því veg- lyndi ,sinu vitum við að Bretar uppskáru þegar þeir voru sjálfir illa staddir tólf ár- um síðar. Eftir er nú að vita hvort þjóðin telur sér efnalega fært að samþykkja hina stórbrotnu tillögu Alexanders Jóhannes- sonar, en skemmtilegt væri það, og höfð- mgsskap á hún að sýna þegar Danir skila handritum okkar, hvenær sem það verður '— þann höfðingskap, er eftirminnilegur niegi verða. Danir vita það nú, að aldrei að eilífu falla Islendingar frá þeirri kröfu sixmi, að handritunum verði skilað. Og hver Is- lendingur verður að gera sér það ljóst, ef hann hafði ekki áður gert það, að fáist ekki þessu réttlætismáli framgengt i hans tíð, þá ber honum að fela niðjum sínum, kynslóð fram af kynslóð, að berjast fyrir málinu unz fullur sigur er unninn. Við skulum forðast allt óðagot og írafár. Það er ekki aðalatriðið að þú og ég sjáum hand- ritin koma heim, heldur hitt, að ekki sé hvikað í málinu og að við hvorki segjum né gerum neitt það, er ekki sé drengjum sæmandi. Feður okkar og afar urðu að berjast fyrir verzlunarfrelsi og stjórn- frelsi þjóðarinnar. Hví skyldu ekki böm okkar og bamabörn berjast fyrir endur- heimt handritanna — ef á þarf að halda? Til þessa höfum við verið aðgerðalitlir, sökum þess, að alltof margir höfðu þá trú, að lítilla aðgerða mundi þörf. Danir skipuðu nefnd í málið og hún vann merki- legt starf, en þó að vonum gallað sökum þess að það var of einhliða og ekki öll málsatriði tekin til greina. Þegar hún hafði birt skýrslu sína, bar okkur, eins og Alex- ander Jóhannesson benti á, að skipa ís- lenzka nefnd, er umbætti verk hinnar. Þetta á enn að gerast og verður nú vænt- anlega gert. Margt er það annað sem gera þarf, og einkum verðum við að sjá til þess, að danska þjóðin almennt fái að vita rök málsins. Með engu móti megum við saka dönsku þjóðarheildina um það, að réttur okkar er hingað til fyrir borð borinn; það væri ómaklegt og sem betur fer mun engin hætta á að þetta verði gert. Fólkið í Danmörku veit í rauninni ekkert um málið, og sé það frætt um eðli þess og gang, er lítill efi á þvi, á hvorn veg- inn almenningsálitið í landinu muni snú- ast, því að almennt eru Danir öfgalausir akranes menn og sanngjamir. Handritin em þeim enginn helgidómur og geta vitaskuld aldr- ei orðið, en efalaust að Islendingar mundu af fúsum hug taka á sig þau útgjöld, að láta ljósmynda þau af handritunum, sem Danir teldu sér mega að gagni verða. Danskir háskólakennarar og bókaverðir stagast á lagarétti Dana til handritanna. Fyrir ólöglærðan mann er það naumast að skera úr um það atriði. En sé þessi réttur þeirra til, þá skilst leikmanni að með engu móti geti hann verið annað en hreinn bókstafsréttur. Á siðferðisrétti get- ur hann með engu móti verið grundvall- aður, og þá blasir sú spurning við, hvort bókstafsréttur án nokkurrar stoðar sið- mæts grundvallar, geti verið þess verður að halda honum fram nú á dögum. Skiln- ingur á lagaréttinum hefir tekið talsverðri breytingu og miklum þroska á síðastliðn- um aldarhelmingi. Nýlega er komin út ensk bók um þetta efni, sem vakið hefir mikla athygli. Einn af frægustu dómur- um Englendinga, Lord Justice Denning, flutti um hana útvarpserindi í febrúar í vetur. Bókin nefnist English Law and the Moral Law, en höfundur hennar er dr. A. L. Goodhart, rektor í Oxford, „without doubt one of the greatest academic law- •yers of our time“ (eflaust einn hinn mesti lögfræðingur, sem nú er uppi). Er rétt að geta hér þessarar bókar (Stevens, 12S. 6d.), ef einhver kynni að vilja sjá hvern- ig þar er litið á siðferðisréttinn og bók- stafsréttinn. Ekki væri neitt á móti því. Við skulum vera við því búnir að verða að fara með handritamálið yfir alþjóðleg- an vettvang og eigum ekki að hika við að gera svo ef á þarf að halda. En þó að við játum það, að á grundvelli fákænsku sinnar sé danska stjórnin víta- laus af tilboði sínu, þá fer því órafjarri að okkar eigin landar í Kaupmannahöfn hafi sloppið vítalaust við málið. Er þó raunalegt að verða að segja slíkt, og mjög er nú um skipt frá þvi sem fyrr var um landa við Eyrarsund. Ég á þar ekki við þann grun, sem svo mikið hefir látið á sér bæra hér heima, enda þótt blöðin hafi varast að auka á hann, að sameignar- hugmyndin, og þar með hugmyndin um danskan varðmann i Beykjavík og islenzk- an í Kaupmannahöfn, kunni að einhverju leyti að vera af íslenzkum toga spunnin og þó að sjálfsögðu til orðin í Danmörku. Sú hugmynd er svo óskapleg, að eins og móðurmorð var ekki til í rómverskum lög- um, svo ætti einnig slík hugmynd að vera óhugsandi á meðal Islendinga. Hér er átt við hitt, að íslenzkir menntamenn í Kaup- mannahöfn gengu svo langt, að gera fund- arsamþykkt, sem vítti okkur fyrir að gera það ekki að álitamáli, að selja íslenzkan frumburðarrétt. „Enginn bað þig orð til hneigja, illur þræll, þú máttir þegja“, kvað skáldið. Ef menn þessir voru svona ræktarlitlir við ættjörð sína (enda þótt flestir muni þeir bita hennar brauð, jafn- vel úti í Kaupmannahöfn) að þeir vildu taka það til álita að selja helgidóminn (eða voru máske ráðnir í þvi), þá áttu þeir þó að gæta þess velsæmis að þegja um hugrenningar sínar. En þeir kusu nú hitt, og það á ekki að gleymast. Þetta mætti verða okkur bending um að hollast sé að kippa nú algerlega að sér hendiimi um alla námsstyrki til Danmerkur meðan handritamálið er óleyst. Það er okkur til óþurftar að vera að ala þar menn til þess að vega aftan að okkur. Æskumenn okk- ar geta alveg eins vel aflað sér menntun- Framhald á síSu 66. 47

x

Akranes

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.