Akranes - 01.04.1954, Blaðsíða 15

Akranes - 01.04.1954, Blaðsíða 15
hafa öllum mönnum í sinu góðlífi". En eftir lát Þorláks biskups komust á kreik miklar kraftaverkasögur. Helgi hans varð mikil, eigi aðeins hér, heldur og nokkur um nálæg lönd. Tveir messudagar voru honum helgaðii', svo sem kunnugt er. Enn kemur merkur maður til stóls í Skálholti, Páll hiskup Jónsson, af ætt Odd- verja. Hann fór utan til náms, og naut þar mikillar virðingar. Þegar hann kemur frá námi, „var hann fyrir öllum mönnum öðrum að kurteisi lærdóms síns, versagerð og bóklist“ .... „Raddmaður var hann svo mikill og söngmaður, að skara þótti fram úr öllum honum samtíða hér á landi“. Á þessum tíma eru góðir skólar á báð- um biskupsseti-unum, og auk þess til nokk- ur önnur fræg menntasetur. Þrátt fyrir hina ágætu menntunarmöguleika innan lands, fara vigðir menn og óvígðir til lær- dómsiðkana í öðrum löndum. Sýnir það betur en flest annað, hve rík áherzla er lögð á fullkomna menntun. Hver nauð- syn það er talið fyrir líf og menningu þjóðarinnar. Gegnir furðu, hve þetta er almennt, og hefur vitanlega haft megin þýðingu fyrir list og mennt og andlega reisn þjóðarinnar í heild. Til þess má og vafalaust rekja hin bókmenntalegu af- rek þjóðarinnar, sem auðvitað er hennar aðall fyrr og síðar. Þessi dýrmæti menntafengur, sóttur á hin dýpstu mið, — ef svo má orða það, — varð þjóðinni þvi dýrmætari og varanlegri eign, sem þessi dýrmæti fengur erlendrar hámenningar, var svo sem verða mátti samræmdur kjarna íslenzkrar menningar. Þau sjónarmið hinna vitru manna, mættu ráðamenn vorrar samtíðar yfirleitt taka meira tillit til en nú á sér stað. Um allt þetta er kirkja landsins í fararbroddi. Verður sú forysta henni seint fullþökkuð. né metin að verðleikum. Það varð þjóðinni á margan hátt ör- lagarikt, að hún gekk Noregskonungi á hönd, og innanlands hófst hin illræmda Sturlungaöld. Á því fékk einnig hin þjóð- lega íslenzka kirkja að kenna, m. a. með þvi, að hætt var að virða hina þjóðlegu kosningu biskupanna, sem þvert á móti lögum og landsvenjum voru skipaðir af erlendu valdi og erlendum mönnum, en sumir þeirra a. m. k. voru ekki af betri endanum. Hin íslenzka forysta hafði tekizt með agætum. Hér varð til merkileg sósiöl sam- hjálp í almennri tryggingarstarfsemi, bein- línis hliðstæð því, sem í ýmsum efnum gerist á vorri öld. Hina staðgóðu menntun og gildi henn- ar fyrir þjóðina, má bezt marka af af- rekum þeim í sagnaritun, skáldskap og listum, sem varð til í klaustrunum, og nteira að segja á einkaheimilum. Bókmenn- lng, sem þjóðmenning vor hefur hvílt á, ÁKRANES allt til þessa dags, og sem er hið eina, sem haldið hefur uppi hróðri vorum, að vér yrðum viðurkennd sem sérstök þjóð. Þjóð, sem eigi aðeins varðveitti sína eigin sögu, heldur fræddi samhliða aðrar þjóðir um sína fortíð, sögu og menningu, — sem hvergi annars staðar var að fá eða finna, — og sumum þeirra hefur beinlínis orð- ið að lífslind til að ausa af, til sjálfstæðis og menningar. öðrum þræði sátu á stóli í Skálholti, búhöldar miklir og veraldarhyggjumenn, útvegsbændur og skipsstjórnarmenn, má þar til nefna ögmund biskup Pálsson. Einnig hann hafði sótt menntun sína til Englands og Hollands. Skálholt eftir siðaskipti. Enn vex vegur Skálholts með lífi og starfi Odds Gottskálkssonar, er fyrstur manna þýddi Nýja testamenntið á ís- lenzku. Með þvi vann hann eigi aðeins kristni landsins ómetanlegt gagn, heldur einnig hinni dýrmætu tungu vorri, bók- menntum og leturgerð. Eins og kunnugt er, fór kommgur ráns- hendi um eignir stóls og kirkju við siða- skiptin. Allt það rot og allar þær breyting- ar, sem þessi timamot 1 sögu þjóðarinnar orsökuðu, gátu auðvitað ekki farið fram hjá Skálholti, eða átakalaust orðið að óvilja þess manns, sem þá fór þar með kirkju vald, en það var þá vinur Odds Gottskálks- sonar, Gizur biskup Einarsson. Hingað til munu viðskipti ögmundar biskups og Gizurar hafa skyggt á þann síðarnefnda á spjöldum sögunnar. Vafa- samt er þó, að þar séu öll kurl komin til grafar, og að hann sitji þar i því ljósi, sem honum ber, þegar aðstæður allar eru at- hugaðar i réttu ljósi, eins og málum var komið. Dr. Páll Eggert Ólason, sem einna rækilegast hefur rannsakað þetta efni, seg- ir m. a. svo í Menn og menntir, II. b. bls. 433: „Það má vafalaust þakka það Gizuri biskupi, hve vandræðalaust siðaskiptin komust á í Skálholtsbiskupsdæmi; forsjálni hans, viturleiki og festa, hafa afstýrt hér blóðsúthellingum og grimmdaræði, sem orðið hefðu, ef hann hefði ekki haldið um taumana. Það var ættjarðarást Giz- urar, sem hamlaði þvi, að konungur leit- aði hér frekari hefnda fyrir víg manna sinna, Diðriks af Mynden og förunauta hans“. Fjárplógsmenn i sporum Gizurar, hefðu auðveldlega getað auðgað sjálfa sig stór- kostlega með góðu samþykki konungs, ef sá hinn sami hefði tekið að sér að reka duglega erindi konungs í sambandi við hið stórfellda eignamám jarðeigna. Sem svar við þessu líkum hugsunum segir dr. Páll á næstu síðu: „En þvi fór víðs fjarri um Giz- ur; óeigingimi hans er svo mikil, að hann ber af öllum löndum sinum á þessum umbrotatimum sem gull af eiri; hann lætur jafnvel fé frá sér sjálfum og Skál- holtskirkju, til þess að afstýra ránum kon- ungsmanna. Gizur er því af þessu full- Skálholtsstaður áriS 1772. — Mynd frá leiSangri Josephs Banks. 51

x

Akranes

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.