Akranes - 01.04.1954, Síða 16

Akranes - 01.04.1954, Síða 16
komlega vammlaus og meira en það; !hann má með tiltæki sínu teljast hafa forðað landsmönniun frá ránsferðum konungs- manna um landið". Ýmsir ágætir menn voru um stund biskupar í Skálholti, svo sem Gísli bisk- up Jónsson, sem gerðist eftirgangssamur við presta sína og almenning, um að vanda kenningu sina og liferni. Honum var einn- ig annt um menntun almennings. Fyrst og fremst af þvi tilefni lagði hann fyrir presta að húsvitja, en húsvitjanir hafa haft verulega þýðingu fyrir safnaðar- og kirkjulíf í landinu, svo og aðhald rnn menntun. Þær hafa og vakið skilning og aukið traustari tengsl milli presta og safn- aða. Oddur biskup Einarsson var og mikill kirkjuhöfðingi, en um hann segir Jón biskup Helgason svo i Kristnisögu Islands, II. b. bls. 128: „verður því ekki mótmælt, að hann (þ.e. Oddur biskup, hafi verið einn af mikilhæfustu stjórnendum Skál- holtsbiskupsdæmis eftir siðaskiptin". Þá kemur þar á stól um 36 ára skeið, einn menntaðasti og aðsópsmesti kirkju- höfðingi landsins, fyrr og síðar, Brynj- ólfur biskup Sveinsson. Hann var hálærð- ur maður og eftirsóttur utanlands til að vinna þar sitt ævistarf á vegum frægra menntasetra, en hjá honum fóru saman gáfur, menntun og stjórnvizka í óvenju- lega ríkum mæli. Hann bar skólahaldið Meistari Jón Vídalín. mjög fyrir brjósti, var hinn mesti rausn- armaður og óspar á að hjálpa fátækum efnismönnum til námsframa. Hann var og örlátur við fátæka menn og nauðlíð- andi, og mikil hjálparhella þeirra, er til hans leituðu. Þá má og minnast Brynjólfs biskups í sambandi við söfnun handrita og fombók- mennta, sem vafalaust væri nú minna um — á vissum stað, — ef 'hans hefði ekki við notið. Það kemur ekki við þeirri deilu, sem nú stendur milli þjóðar hans og fyrr- verandi sambandsþjóðar. En þess réttar hefði nú ekki þurft að reka, ef ekkert af þeim hefði varðveitzt. Þegar minnzt er á Brynjóií biskup, má heldur ekki gleyma þeim undursamlegu atvikirm, sem leiða saman meistarann, og hinn mikla skáldjöfur og velgerðarmann íslenzkrar kristni, Hallgrím Pétursson, hinn dýrðlega djúpvitra speking, sem svo sterklega hefur stuðlað heilræði sín og himinborinn vísdóm, að lesinn hefur ver- ið og sunginn rneð þjóðinni allri um hart- nær þriggja alda skeið. Færri munu þau böm, sem ekki hafa að einhverju leyti nrunið þennan vísdóm harmkvælamanns- ins þegar við móðurkné, en það verið hon- um æ síðan nokkur styrkm: á erfiðri göngu lífsins. Ekki verður öryggið meira fyrir tímanlegri eða andlegri velferð þeirra ein- staklinga eða kynslóða, sem vanrækja að nema slík sígild spekimál við móðurkné. Og þegar hætt verður að syngja við -hinnsta beð látins vinar: „Ég lifi í Jesú nafni“, .... hefur þjóð vor áreiðanlega misst úr höndum sér nokkra kjölfestu. Eftirmaður Brynjólfs biskups, Þórður Þorláksson, var ekki slíkur skörungur í embætti sem fyrirrennari hans. Það, sem lengst mun halda minningu hans á lofti, er áhugi hans og framkvæmdir í bókagerð, en hanri lét flytja í Skálholt prentsmiðj- una á Hólum, og lét þar prenta hlutfalls- lega meira en prentað var á Hólum. Ekki lækkar vegur Skálholts við komu meistara Jóns á stólinn, mesta prédikara íslenzkrar kristni, fyrr og síðar. Um hann segir Jón biskup Helgason svo: „Hjá Jóni Vidalín sem prédikara, má segja að fari saman þrennt, sem á öllum tímum hefur verið talið megineinkenni kristins kenni- mannaskörungs: Eldur og kraftur sann- færingarinnar, skarpleiki og dýpt hugs- unarinnar, logandi mælska og andans fjör og flug“. Um meistara Jón segir Ein- ar Benediktsson, m. a. svo i meistaralegu kvæði um Jón Vídalín: „Höfðingi almúgans óx við hans kjör, ástfólginn lýðnum frá grunni. öreigi réðst hann í róðrarvör með rómversku stefin á munni, högum þess smáa hann unni. Af andagift rikar hér aldrei var kennt né auðugri hjartans brunni. Meistari fólksins, jafnt fyrrum sem nú förumanns herra og bróðir. — hann signir hér ennþá byggðir og bú; þar brenna þær fomhelgu glóðir. Við bæina dvelja bændur og hjú, — þótt bekkir verði nú hljóðir. Á hillunni er bók. Hún boðar trú, sem blessar og reisir þjóðir". Eftir meistara Jón kemur annar Jón til stólsins, Árnaso.n, ekki ómerkur maður, sem i ýmsum efnum má skipa þar á fremri bekkja röð, um skólahald og al- menna fræðslu. Hann var og fyrstur allra manna hérlendis, til að sjá hve þjóðinni Q. Rithönd Jóns Vídalín. Nafn hans og „H ver eyru hefur aö heyra hann heyri“. 52 AKRANES

x

Akranes

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.