Akranes - 01.04.1954, Side 19
Öl. B. Björnsson:
III. KAFLI — Framhald
ma BveeeAR snni skarbsheibar
1. Innri-Hólmur.
Innri-Hólmur er vafalaust annað af
tveim fyrstu býlunum, sem byggð voru í
landnámi Akraness, og hefur þar því ver-
ið byggð í meira en 1050 ár. Það má full-
yrða, að á þessu langa tímabili hefur aldr-
ei fallið þar niður byggð, þótt vitanlega
sé óhugsandi að gera samfellda ábúenda-
skrá yfir þetta ianga tímabil.
Fyrsti eigandi Innra-Hólms og ábúandi
þar er auðvitað Þormóður Bresason, sem
hér nam fyrstur land ásamt Katli Bresa-
syni bróður sínum. Af Þormóði fara litl-
ar sagnir. Þeir bræður komu hingað frá
írlandi, og hafa líklega haft einhver kynni
af kristinni trú. Þó hafa þeir verið norræn-
ir menn eins og að hefur verið vikið áður.
Af heimildum má ráða, að Þormóður hafi
átt a. m. k. 4 dætur, sem allar giftust mik-
ilsmetnum mönnum. Varð hann mjög kyn-
sæll, svo að þeir, sem gerst vita um ættar-
tölur Islendinga, telja að frá þeim Bresa-
sonum og sérstaklega Þormóði sé mikill
fjöldi landsmanna kominn. Um þetta efni,
ættir Akumesinga — frá landnámsmönn-
um — vona ég að geta gefið ykkur nánari
upplýsingar síðar í þessum þætti, með að-
stoð þess manns, sem á þvi efni kann
manna bezt skil.
Enda þótt ef til vill megi deila um,
hvort Ásólfur alskik frændi þeirra bræðra.
hafi búið eða verið á vist á Innra- eða
Ytra-Hólmi, mælir ýmislegt i sögum og
örnefnum með því, að hann hafi átt heima
á Innra-Hólmi. Af honrun er all merki-
leg saga í Landnámu, sem bæði er helgi-
og þjóðsagnakennd. I fleiri heimildum er
Ásólfs getið, þótt þær sagnir eigi rót sína
að rekja til Landnámu, en séu þó ekki
samhljóða. Þessi saga Ásólfs verður ekki
rakin hér nánar, svo kunnug sem hún er,
og þeir sem vilja, eiga þess kost að lesa
hana í Landnámabók. Af Ásólfi munu og
ættir komnar.
Strax kemur hér eyða í eignarmenn og
ábúendur á Innra-Hólmi. Um hvort eða
hverjir ættmenn Bresasona hafi búið hér
eftir þetta vita menn ekki um sinn. Eins
og áður er sagt, er dætra Þormóðs fyrst
og fremst getið í heimildum. Þær giftast
í burtu mektarmönnum, sem vitað er deili
á og koma við sögu. Síðar koma þó afkom-
endur Þormóðs að Hólmi, eins og brátt
verður vikið að.
Af Landnántu virðist mega ráða, að
Ketill Bresason hafi átt son þann, er Bresi
hét, „faðir Þorgests, föður Stara að Hólmi“.
Nú hefði virzt eðlilegra að Stari þessi,
afkomandi Ketils hefði búið að Ytra-Hólmi,
eða í landnámi Ketils, þótt ekkert sé því
að vísu til fyrirstöðu, eða óeðlilegt við, að
hann hafi búið á höfuðbóli svo náins skyld-
mennis, sérstaklega með hliðsjón af því,
sem áður er sagt um dætur Þormóðs og
gjaforð þeirra. Þar sem Stari er nú að-
eins kenndur við Hólm, gat þetta því verið
nokkuð vafasamt.
Afkomendur Þormóðs landnámsmanns
á Innra-Hólmi verða miklir höfðingjar vun
Borgarfjörð, goðorðsmenn og miklir fyrir
sér. Geirlaug Þormóðsdóttir var t. d. móð-
ir Tungu-Odds, sem var mikill höfðingi
Borgfirðinga um marga tugi ára og lifir
líklega fram undr 990. Utaf Grími há-
leyska og Svanlaugu Þormóðsdóttur eru
Reykhyltingar komnir, sem þar verða
prestar hver fram af öðrum og miklir höfð-
ingjar, má þar til nefna hvorki meiri né
minni menn en Snorra Sturluson og þá
Sturlunga.
Um 950, eða fyrir það, virðist sem fyrr-
nefndur Stari búi á Innra-Hólmi. Eftir
því sem Landnáma segir, hefur hann átti
son, er Knöttur hét, faðir „Ásdísar, er átti
Klængur Snæbjamarson, sonar Hafnar-
Orms“. Um Stara þennan verður lítið
annað vitað en hér fer á eftir.
„Ulfur hét sonur Gríms háleyska og
Svanlaugar. Hann nam land milli Hvítár
og suðurjökla og bjó í Geitlandi. Sonur
hans var Hrólfur hinn auðgi, „faðir Hall-
dóru, er átti Gizurr hvíti, þeira dóttir Vil-
borg, er átti Hjalti Skeggjason“. Einn af
sonrnn Hrólfs var Illugi hinn rauði. Hann
bjó fyrst í Hraunsási. „Hann átti þá Sig-
ríði, dóttur Þórarins ens illa, systur Múls
Bölvterks; þann bústað gaf Illugi Bölverki,
enn Illugi fór þá at búa á Hofstöðum í
Reykjadal, því at Geitlendingar áttu at
halda uppi hofi því at helmingi við Tungu-
Odd. Síðast bjó Illugi at Hólmi iðra á
Akranesi, þvi at hann keypti við Hólm-
Starra bæði löndum ok konum ok fé öllu;
þá fékk Illugi Jórunnar, dóttur Þormóðs
Þjóstasonar af Álftanesi, enn Sigríðr
hengdi sig í hofínu, þvi at hún vildi eigi
manna kaupit“.
Af því, sem liér var sagt sést, að þeir
frændur, Illugi og Starri hafa verzlað með
konur og jarðir. I þessu sambandi er þess
ekki getið, hvernig kona Starra hafi unað
mannaskiptunum, en Sigríður kona 111-
uga kunni því illa að láta selja sig sem
hvern annan fénað og stytti sér þvi aldur
í sjálfu hofinu á Hofsstöðum í Hálsasveit.
Ekki er hægt um vik að geta sér til
um aldur Illuga, eða hvenær hann muni
fæddur. Heldur ekki, hversu lengi hann
hefur búið í Hraunsási og á Hofstöðum.
Ekki er heldur hægt að sjá, hve lengi hann
hefur búið á Hólmi með Jórunni Þormóðs-
dóttur, Þjóstasonar af Álftanesi, ef þau
hafa þá ekki skilið, eða hann misst hana
fljótlega. Hitt greina heimildir í Harðar-
sögu, að hann hafi 959 fengið Þuríðar
Grímkelssonar, goða Bjamarsonar, að ölf-
usvatni, og fyrstu konu hans Rannveigu
Þórbjarnardóttur úr Amarholti. Þuríður
virðist þá hafa verið 32 ára gömul. Af
þessu er ljóst, að Illugi hefur þá verið
kominn að Innra-Hólmi, og ef til vill ver-
ið búinn að búa þar nokkur ár a. m. k.
Líklega er haxm á lifi fram undir 990,
svo að hann hefur lengi búið á þessu fræga
höfuðbóli forföður síns.
Dóttir Uluga á Hólmi, Þuríður, var mið-
kona Snorra goða að Helgafelli, þeirra
dætur Sigríður, svo og Auður, er átti Víga-
Barða Guðmundsson, og síðar Sigurð Þór-
arinsson, hunds i Bjarkey. (sjá Isl. æv.).
Það er sagt, að Snorri goði hafi unnað
mjög þessari dóttur sinni, enda hafi hún
verið skörungur mikill.
Vafalaust má telja að Halldór, sonur
Illuga hafi búið á Innra-Hólmi eftir föð-
ur sinn. Hann kemur við sögu Ásólfs, sem
í draumi hótaði að sprengja augun úr
hausi hans, nema hann keypti bein sín
aftur slíku verði, er hann hefði selt munk-
um Hróðólfs úr Bæ, en svo segir sagan:
„Halldór keypti bein Ásólfs, ok lét gera
at tréskrín ok setja yfir altari. Halldór
sendi Illuga son sinn utan eftir kirkju-
viði, .... o. s. frv.“. Það má telja vist, að
Halldór Ulugason, hafi látið gera kirkju
að Innra-Hólmi, hvort sem fyrr hefur ver-
ið reist þar kirkja — bænahús — eða ekki.
Sennilega hefur Illugi þessi Halldórsson
einnig búið á Hólmi eftir föður sinn og
ef til vill fleiri afkomendur Illuga rauða,
þótt sagan hafi þar engin kennileiti átt til
að átta sig eftir.
Nú verðm enn allt móðu hulið um
stund, að því er snertir ábúendur á Hólmi.
Um 1250 virðist þó búa þar maður að
nafni Árni Borgnýjarson. Þessa manns er
einu sinni getið í Sturlungu, og er talinn
vera frá Hólmi, og er hér sennilega átt
við Innra-Hólm, því að þar stendur Hólm-
ur við Hvalfjörð. Ef fylgst er með atburða-
rás sögunnar, virðist sem Árni búi þama
um 1250. I Sturlungu (útg. Sig. Kr. 1913)
III. 210 stendur svo: „Um haustit eptir
AKRANES
55