Akranes - 01.04.1954, Page 21

Akranes - 01.04.1954, Page 21
5- Ástríður, átti Jón sýslumann Magnús- son eldra. 6. Guðríður, átti sira Jón Guðmundsson í Hitardal. 7- Halldóra, f. k. Ölafs lögréttumanns Hannessonar að Sauðafelli. 8. Guðrún, átti Magnús lögmann Björns- son að Munkaþverá. Enn er sagt, að hann hafi átt laundóttur, Guðríði, en fyrri maður hennar á að hafa verið Gísli Grímsson. Gísli lögmaður var auðmaður mikill og fjáraflamaður, en ekki að sama skapi út- sjónarsamur um að gæta fengins fjár. Er 'honum jafnvel brugðið um ágirnd og rangsleitni í tekjuöflun. 1 heimildum er þó sagt um hann. að hann hafi verið „föð- urbetrungur að mjúkleik og mildi“. Gísli lögmaður Þórðarson andaðist 1619 og hafði verið heilsuveill síðari hluta ævinnar. I valdatíð GísJa lögmanns var hér full- trúi konungs Herluf Daa. Virtist fyrst í stað fara vel á með honum og lögmanni en kólnaði fljótlega, voru og væringar með Daa og fleiri höfðingjum hér, svo sem eins og Oddi biskupi. A) Steindór Gíslason, lögmanns átti Guðrúnu, dóttur sira Einars á Staðastað, Marteinssonar biskups. Hvin var þá ekkja Jóns lögmanns. Sonur þeirra var Jón á Knör fæddur 1609, varð lögréttumaður og dó á Leirá „af munnbita“ 1672 eins og stendur í Smæv. II. 96. Þar stendur enn- fremur: „Jón erfði eftir foreldra sína: Knör, Laugarbrekku, öxnakeldu og Kirkjufell, má þar af sjá að ekki hefur Steindór öllu góssinu burt brjálað eða eytt“. En það mun hafa verið sagt, að hann hafi verið óreglu- samur og svallgefinn. Kona Jóns var Sólveig dóttir síra Guð- mundar Einarssonar á Staðastað, þeirra böm: a. Halldóra, átti síra Jón Guðmundsson á Staðarhrauni. Þeirra börn: Síra Helgi á Staðarhrauni og Þæfusteini, faðir síra Jóns á Hvanneyri. Um Jón Helgason þennan segir ennfremur svo i Smæv. „Síra Jón Helgason var síðast prestur til Hofs og Miklabæjar og dó í Mýra- koti á Höfðaströnd úr ófeiti — hor í móðuharðindunum í júní 1784 84 ára gamall. Hann var fróður maður í mörgu einkum tungumálum og ættfræði. I prestaæfum meistara Hálfdáns er margt eftir honum tekið um ættir o.ifl. Hann átti Halldóru (d. 1741) Runólfsdóttur Halldórssonar prentara Ásmundssonar, og var son þeirra Helgi, varð djákn á Reynistað og dó í april 1751, nokkru áður en hann átti að vígjast til prests að Tjöm á Vatnsnesi. Kona hans var Sesselja Sveinsdóttir og áttu þau böm. Ennfremur átti sr. Jón Guðmundsson og Halldóra þessi börn: Síra Guðmund á Helgafelli, hann var tvikvæntur og átti mörg börn. Hann drukknaði í heimreið frá Bjarnarhafn- arkirkju 8. marz 1716. Elín, átti síra Tonfa í Saurbæ Hann- esson, hann drukknaði í Leirá 8. febrú- ar 1728 á heimleið frá embættisgjörð á Melum 58 ára gamall. Sira Torfa og Elínar verður nánar getið í sambandi við Saurbæ, en af þeim er komið margt fólk, sem bjó og býr enn á svæðinu fyrir utan Skarðsheiði og verður getið við marga bæi. Valgerður, f. 1663, átti Stein biskup Jónsson á Hólum. Þeirra börn voru: a. Jón mjög vel gáfaður, en lagðist í óreglu í Kaupmannahöfn. Hann átti afkomendur. b Guðmundur skólameistari á Hólum, drukknaði á Skagafirði 9. maíi 1723, nýkvæntur Margréti Einarsdóttur, elíkju Benedikts sýslumanns Bechs, þau bl. c. Sigfús, drukknaði með Guðmundi bróður sínum og síra Þorkeli Þor- steinssyni í Fagranesi. d. Jórunn, átti fyrr Hannes Lárusson Scheving sýslumann. Þeirra börn: Lárus klausturhaldari, Þórunn, átti Jón klausturhaldara á Reynistað, og áttu þau mörg böm. e. Helga, átti Jón eldra Pálsson Vídalin, er úti varð á Hjaltadalsheiði 1726., B) Páll Gíslason á Hvanneyri varð land- þingisskrifari 1635 en sleppti því embætti 1669 eða 70, „var maður einarður, skyn- samur og vel á sig kominn. 1630 brann hjá honum gjörsamlega Hvanneyrarbær með búshlutum, en menn sakaði ekki. Hann hafði fyrr átt Þóru Jónsdóttur, var hún þá dáin og börn þeirra, en Páll kvænt- ist aftur Ingibjörgu dóttur Bjarna Sigurðs- sonar á Stokkseyri". Veturinn eftir voru þau á Vatnsenda í Skorradal hjá Birni Gislasyni. Börn Páls og Ingibjargar voru: a. Sigurður Pálsson, talinn lögsagnari í Dalasýslu, en mun vafasamt. Kona hans var Þórunn Hjaltadóttir i Teigi, Páls- sonar. Börn þeirra Hjalti, að Brekku á Hvalfjarðarströnd, síra Gísli að Kvenna- brekku, Bjarni og Þuríður, er átti Jón Jónsson að Stóra-Ási. b. Pétur Pálsson sýslumaður. Lærði í Hóla- skóla, varð lögsagnari í Strandasýslu 1680, fékk sýsluna sama ár, sleppti 'henni 1687. Þótti atkvæðalítill og átti erfiðan fjárhag. Hann er á lífi 1709. Bjó í Broddanesi, Víðivöllum og Kirkju- bóli í Steingiímsfirði. Kona hans: Sess- elja Guðmundsdóttir í Deildartungu og Heynesi, Árnasonar. Af bömum þeirra, sem upp komust, var Einar, sem átti heima í Steingrímsfirði. Launsonur Pét- urs Pálssonar, með Guðriinu Árnadótt- ur á Álftanesi Halldórssonar Marteins- sonar biskups. ekkju Hannesar Árna- sonar í Norðtungu var Bjami. c. Ingibjörg, átti Erling Eyjólfsson lögréttu- mann í Blönduholti i Kjós. Eyjólfur Is- leifsson, faðir hans, var sonarson Eyj- ólfs Halldórssonar frá Saurbæ, sýslu- manns Rangárþings. Þeirra synir vom: síra Jón á Ólafsvöllum, virðast tveir þeir fyrrnefndu hafa dáið úr bólmmi sama árið. C) Ástríður Gisladóttir, átti Jón Magn- ússon sýslumann, Jónssonar prúða i Ögri. Þau giftu sig á Innra-Hólmi 1598. Hann lærði vel utan lands og innan, enda vel gefinn. Hann var orðinn sýslumaður í Dalasýslu 1594 og hélt þvi embætti til æfiloka. Hann var talinn fyrir fulltrúum landsins, er utan fóru 1619 og fyrr hefur verið getið. Hann bjó á Ingjaldshóli, einn- ig i Haga á Barðaströnd. Þeirra börn: Magnús sýslumaður í Haga og Miðhlið, Eggert, lögréttumaður á ökrum í Blöndu- hlíð, Guðmundur, lögréttumaður í Hvammi á Barðaströnd, Sigurður í Rauðs- dal. Gisli sýslumaður í Reykjarfirði, Ingi- björg, átti fyrst Gunnar Aragrímsson, prests lærða, Jónssonar, síðar Jón Skál- holtsráðsmann Halldórsson, síðast Þorleif lögmann Kortsson. Halldóra, átti síra Jón Jónsson i Holti í önundarfirði, Jórunn. átti Hannes Eggertsson í Snóksdal, Stein- unn, f. k. Jóns Marteinssonar og loks Þórð stúdent. D) Guðríður Gísladóttir, (f. 1577, dó 1620, átti síra Jón Guðmundsson i Hítar- dal, er f. var 1558, d. 7. febrúar 1634. For- eldrar sira Jóns voru: Guðmundur lög- réttumaður Jónsson að Hvoli i Saurbæ og kona hans Þórunn Sigurðardóttir, rebba í Búðardal Oddssonar. Hann lærði hér innan lands, einnig i Kaupmanna'höfn og Brimum. Var rektor í Skálholti 1584—8 og mun hafa farið utan í von um biskups- embætti, því að sumir vildu fá hann fyrir biskup. Vígðist 1590 að Hítardal og hélt til æfiloka, en varð prófastur í Þverár- þingi vestan Hvitár 1591—1625, er hann sagði af sér. „Hann var talinn með lærð- ustu mönnum á landinu á sinni tíð, rögg- samlegur og mikilsvirtur, en talinn af óvin- um sinum nokkuð kverihollur, og þvi var það, að hann 15. ágúst 1595 sór aif fúsum vilja tylftareið fyrir holdleg samræði við Oddnýju hálfsystur sina, er bam hafði átt vesur i Dölum“. Til er einhver kveðskap- ur eftir hann. Börn þeirra: (Isl. æv.). Guðmundur stúdent, síra Þórður í Hítar- dal, átti Helgu, dóttur Áma lögmanns Oddssonar á Leirá. (Þeirra börn Þorsteinn á Skarði, Guðriður, kona Jóns biskups Vigfússonar (bauka-Jóns) og Jón). Enn voru böm Guðríðar og síra Jóns Gisli sútd- Framhald á síðu 69. AKRANES 57

x

Akranes

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.