Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.02.1972, Page 21
TÍMARIT VFÍ 1972
11
Fyrstu tveir flokkarnir eru í hönd-
um samnefndra skora verkfræði- og
raunvisindadeildar, og hefur BS-nám
í véla- og skipaverkfræði ekki áhrif
á kennaraþörf þar. Kennslu í tækni-
leg-um undirstöðugreinum og verk-
fræðigreinum er skipt í eftirfarandi
flokka:
1. Sérgreinar í véla- og skipaverk-
fræði:
a. VI: Vélahluta- og burðarþols-
fræði, sjálfvirkni, stýri-
tækni.
b. V2: Rekstrar- og framleiðslu-
tækni, skipulag, stjórnun.
c. V3: Varma- og rennslisfræði,
hitun, loftræsting, kæli-
tækni.
2. Sérgreinar í skipaverkfræði.
3. Sérkennsla í vélaverkfræði fyrir
aðrar námsbrautir.
4. Aðrar verkfræðigreinar sameigin-
legar námi í byggingar- eða raf-
magnsverkfræði.
Þegar fundin er kennaraþörf í
véla- og skipaverkfræði eru einung-
is hafðir í huga greinaflokkarnir VI,
V2, V3, S og sérkennsla í vélaverk-
fræði fyrir aðrar námsbrautir, og ber
þá að hafa í huga, að síðasti greina-
flokkurinn stafar af þörfum annarra
námsbrauta en véla- og skipaverk-
fræði. Er þá ennfremur gengið út
frá kennslu- og vinnuskyldu fastra
kennara samkvæmt hugmyndum
rektors og háskólaráðs. Er kennslu-
skylda þá sem hér segir (30 kennslu-
vikur á ári fyrir utan próf):
Prófessor: 6 fyrirlestrar á viku, þ.e. 540 vinnustundir á ári
Dósent: 7 -—- - — — 630 — — —
Að meðtalinni vinnu fastra kenn-
ara við próf, stjórnun og ráðgjafa-
og rannsóknastörf verða vinnustund-
ir samtals 1832 á ári, sem er vinnu-
skylda opinberra starfsmanna sam-
kvæmt síðasta kjarasamningi.
Samkvæmt þessu hefur nefndin
dregið saman kennaraþörf og
vinnustundir við beina kennslu I véla-
og skipaverkfræðigreinum og eru
niðurstöðurnar sýndar i töflu V.
TAFLA V.
Kcnnaraþörf og vinnustundir vegna véla- og skipaverkfræðigreina.
Greinaflokkur Fastir kennarar 1 Fjöldi Vinnust. Stundakennarar Fjöldi Vinnust. Alls Vinnust.
Sérkennsla fyrir
aðrar námsbrautir 1 próf. 540 1047
VI 1 dós. 630 7 2624 2747
3794
V2 1 próf. 540
1 dós. 630 1 248 1418
V3 2 próf. 1080
1 dós. 630 5 1520 3230
S 2 próf. 1080
2 dós. 1260 2 630 2970
6 próf.
Samtals 5 dós. 6390 15 5022 11412
1 töflu VI er sýnt nánar, hvernig
nefndin gerir ráð fyrir föstum
Ifennarastöðum, sérgreinum hverrar
stöðu, upphafi kennslu í viðkomandi
sérgreinum og hvenær skipun í stöð-
una þurfi að fara fram.
Þ®r áætlanir, sem nefndin gerði
um fastar kennarastöður skv. töflu
VI hafa nú þegar farið úr skorð-
um að nokkru leyti. Þannig hefur
verið ákveðið að fresta ráðningum
í skipaverkfræðigreinar sökum
nemendafæðar. Kennsla í vélaverk-
fræðigreinum fer hins vegar fram
samkvæmt áætlun, en stöður þær,
sem nefndin gerði ráð fyrir að veitt-
ar yrðu i byrjun þessa árs hafa enn
ekki verið veittar né hafa þær ver-
ið auglýstar. Kennsla í þeim grein-
um, sem um er að ræða, hefst næsta
haust og verða þessar stöður vænt-
anlega fylltar fyrir sumarið, því að
kennsla í nýjum greinum krefst
rækilegs undirbúnings, ef vel á að
vera.
5. Æfingaaðstaða og verkþjálfun
Ef kennsla í vélaverkfræðigrein-
um á að koma að fullum notum
þarf að tryggja aðstöðu til verk-
legra æfinga. Hér er mikill vandi
á höndum því að fullkomnar æfinga-
stöðvar í hinum ýmsu greinum
kosta mikið fé, og ekki er hægt að
ætlast til þess, að Háskólinn ráðist
einn í þær framkvæmdir, sem þarf
til að koma þessari aðstöðu upp.
Undirbúningsnefndin gerir nokkra
grein fyrir þessum málum í bráða-
birgðaskýrslu sinni og gerir tillögur
um, hvernig leysa megi þetta mál.
I töflu VII er sýnt yfirlit yfir þær
kennslugreinar þar sem þörf er á
æfingaaðstöðu, hvenær kennsla í
þessum greinum hefst og hvaða
stofnanir nefndin leggur til að sam-
starf sé haft við um aðstöðu til æf-
inga. Nefndin mun þó eiga eftir að
gera frekari grein fyrir þessum mál-
um og má vænta ýtarlegri greinar-
gerðar um þau í lokaskýrslu hennar.
Tækjamiðstöð sú, sem nefnd er í
töflu VII, er fyrirhuguð stofnun, sem
rætt er um, að komið verði á fót
fyrir verk- og tækninámsskólana í
Reykjavík.
Gert er ráð fyrir sérstakri verk-
þjálfun stúdenta, er fara skal fram.
á sumrum milli kennsluára, alls 3
sumur og samtals 24 vikur eða 6
mánuðir. Verkþjálfunin skal fara
fram á viðurkenndum vinnustöðum,
þar sem unnið er að framleiðslu,
iðnaði og/eða þjónustu við atvinnu-
vegi landsmanna á sviði véla- og
skipaverkfræði. Er stúdentum ætlað
að kynnast þar af eigin raun vinnslu-
og smíðaaðferðum, starfsháttum, að-
stöðu og starfi í viðkomandi grein-
um.
Stúdentar í skipaverkfræði skulu
verja 2-3 vikum af verkþjálfunar-
tíma sínum eftir 6. misseri við módel-
prófanir skipalíkana við erlendan
tækniháskóla eftir nánara samkomu-
lagi á milli H.l. og viðkomandi skóla
(t.d. Þrándheimur, Hamborg, Wag-
eningen, Kaupmannahöfn).