Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.10.1972, Blaðsíða 16
78
TlMARIT VFI 1972
PERLUSTEINN
mmmmmmmmmmmm^mmmmm^mmmmmmmmmmmmm
frauð ekki ósvipað frauðgleri. Armen-
ar hafa hafið tilraunaframleiðslu slíks
frauðs. Rúmþyngdin er ca. 0.6/m3
og þrýstiþolið 40-50 kg/cm2. Þau
tæki er við höfum haft yfir að ráða
eru ófullkomin og hefur okkur því
aðeins tekizt að búa til frauð að
rúmþyngd 0.8/cm3, en teljum þetta
svið vel þess virði að því sé gaumur
gefinn.
Athuguð hefur verið lítillega húð-
un á vikri til þess að loka honum,
en notkun vikurs I steypu erlendis
hefur farið minnkandi vegna sam-
keppni við önnur lokaðri efni eins
og þaninn leir. Þama er einnig verk-
efni sem vinna þarf.
Perlusteinn hefur einkum verið at-
hugaður með tilliti til notkunar 1
plötur. Þaninn perlusteinn hefur
þann eiginleika að auðvelt er að
breyta lögun hans með pressun.
Gerðar hafa verið nokkrar tilraunir
með þaninn perlustein með nokkrum
plastbindiefnum svo sem polyester.
Tilraunir þessar virðast sýna að auð-
velt ætti að vera að forma ýmis
konar plötur og prófíla úr þöndum
perlusteini með plastbindiefnum.
Armenar hafa einnig hafið til-
raunaframleiðslu á plötum og fleiru
t.d. trefjum úr perlusteini og væri
það tvímælalaust ómaksins vert fyr-
ir okkur að huga að slíkri fram-
leiðslu.
Nokkrar tilraunir hafa verið gerð-
ar til þess að búa til plötur og fleira
með því að sjóða saman í hitaskáp
perlustein og kalk og vikur og kalk.
I Bretlandi er framleidd einangrun
o.fl. úr calcium silicati er hugsan-
lega væri unnt að búa til hér úr
vikri og perlusteini bundnu með
kalki. Ástæða er eflaust fyrir okk-
ur að athuga þennan möguleika.
Þá má benda á framleiðslu Rússa
og Tékka á vörum úr bræddu basalti,
en hér er gnótt af slíku hráefni.
Að lokum er rétt að nefna að séu
nýtingarmöguleikar þessara efna í
samræmi við þær hugmyndir sem við
höfum gert okkur, virðast líkur fyrir
því að margir tæknimenn á ýmsum
sviðum gætu í framtiðinni fengið
tækifæri til þróunar þeirra mögu-
leika sem hér hefur verið minnzt á.