Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.10.1972, Blaðsíða 25
Fréttabréf VFÍ
Frá Verkfræði- og raunvísindadeild Háskóla íslands
Við deildina starfa nú eftirfarandi prófessorar, dósentar og lektorar í greinum
sem kenndar eru til verkfræðiprófs.
Prófessorar:
Björn Kristinsson, dipl. ing., rafmagnsverkfræði,
Guðmundur Björnsson, civ. ing., vélaverkfræði,
Jakob Björnsson, cand. polyt., rafmagnsverkfræði,
Leifur Ásgeirsson, dr. phil., stærðfræði,
Loftur Þorsteinsson, cand. polyt., byggingaverkfræði,
Magnús Magnússon, M.A., eðlisfræði,
Sigmundur Guðbjarnason, dr. rer. nat., efnafræði,
Trausti Einarsson, dr. phil., jarðeðlisfræði,
Þorbjörn Sigurgeirsson, mag. scient., eðlisfræði.
Dósentar:
Bragi Árnason, dipl. chem., efnafræði,
Halldór I. Elíasson, dr. rer. nat., stærðfræði,
Halldór Guðjónsson, Ph.D., stærðfræði,
Jón Ragnar Stefánsson, cand. scient., stærðfræði,
Ragnar G. Ingimarsson, Ph.D., byggingarverkfræði,
Þorkel! Helgason, Ph.D., stærðfræði,
D'rn Helgason, Ph.D., eðlisfræði.
Lektor:
Þorsteinn Vilhjálmsson, mag. scient., eðlisfræði.
Jakob Björnsson hefur nú verið skipaður orkustjóri frá 1. jan. 1973.
S.l. sumar voru auglýstar nokkrar prófessorsstöður í verkfræðigreinum við
Háskóla Islands og hefur Verkfræði- og raunvísindadeild tekið afstöðu til umsókna,
en málið hefur ekki enn verið afgreitt frá ráðuneyti. Stöður og umsóknir eru
eftirfarandi.
Vatnafræði. Einn umsækjandi, Jónas Elíasson.
Steinsteypuvirki. Þrír umsækjendur: Júlíus Sólnes, Óttar P. Halldórsson,
Þorsteinn Helgason.
Varma- og straumfræði. Tveir umsækjendur: Valdimar K. Jónsson, Þorbjörn Karlsson.
Tæknihagfræði. Einn umsækjandi: Davíð A. Gunnarsson.
Fjarskiptagreinar. Þrír umsækjendur: Hörður Frímannsson, Sæmundur Óskarsson,
Vilhjálmur Kjartansson.
Nemendafjöldi í verkfræðigreinum við Verkfræði- og raunvísindadeild
háskólans haustið 1972.
Á 1. ári Á 2. ári Á 3. ári
Byggingaverkfræði 16 12 10
Vélaverkfræði 11 1 2
Rafmagnsverkfræði 19 6 4
Eðlisverkfræði 1 3
Efnaverkfræði 9 7
Verklegar framkvæmdir
Samkvæmt upplýsingum frá Innkaupastofnun ríkisins verða á næstunni boðnar
út framkvæmdir við byggingu sjúkrahúss á Selfossi og Geðdeild við
endurhæfingarhælið á Vífilsstöðum.