Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.10.1972, Page 20

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.10.1972, Page 20
82 TIMARIT VFI 1972 varmaorka, sem áður fór inn á heita turninn með brennisteinsvetninu og gufu, sem því fylgdi frá hreinsiturn- inum, kemst nú ekki inn nema með sérstökum aðgerðum. Þessi varma- orka næst inn í kerfið með því að taka vatnsstrauminn neðarlega úr heita tuminum, hita hann með jarð- gufu fyrir utan tuminn og skila hon- um aftur inn í turninn rétt fyrir neðan í svokölluðum mettara, þar sem brennisteinsvetnið frá kalda turninum keniur inn, hitnar upp og mettast af vatnsgufu. Með notkun jarðgufu má gera ýmsar aðrar breytingar til spamað- ar á varmaorku og tækjakosti, sem ekki er farið út í hér. Hefur nú verið sótt um einkaleyfi á þessum hug- myndum, því þær hafa almennt gildi, þar sem til greina kemur að nota afgangsvarma, t.d. frá kjamorku- vemm, til þungavatnsframleiðslu. IV. Samkeppnisaðstaða lslands 1 sambandi við hugsanlegan mark- að fyrir þungavatn vegna áætlunar Kanadamanna var gerð ítarleg at- hugun á samkeppnisaðstöðu Islands til þungavatnsframleiðslu fyrir tæp- um tveim árum. Dr. Ágúst Valfells var fyrirliði í vinnuhóp um þetta verk, en Baldur Líndal, Sigurður V. Hallsson og ég aðstoðuðum með ein- staka þætti þess. Við fengum mjög ítarlegar saman- burðartölur frá ýmsum stöðum, með- al annars frá Lummus Co., sem ný- lega reisti þungavatnsverksmiðju fyrir Kanadamenn. Niðurstöður samanburðarins er sýndur í töflu 2, sem hér fylgir. Þar kemur í ljós, að við ættum að geta framleitt þungavatn um tveim doll- urum ódýrara á kg en Kanadamenn, miðað við sömu verksmiðjustærð, 400 tonn/ári. Framleiðslukostnaður er mjög háður verksmiðjustærð, eða frá $ 38,90 á kg í 400 t. verksmiðju og $ 52,70 á kg í 133 t. verksmiðju. Vandinn við þungavatnsframleiðslu er að markaðurinn er mjög háður pólitískum ákvörðunum um uppbygg- lngu kjarnorkuvera og stefnunni um ráðstöfun úraníum- og plútoníum- birgða. Þó virðist mjög líklegt að fram að þeim tíma, sem „fast breeder" kjarnofnar verða nægilega þróaðir til að komast almennt í notk- un, verði vaxandi eftirspum eftir þungavatni, og er sjálfsagt fyrir okkur að kanna þennan möguleika ef verðþróunin fyrir þungt vatn er hagstæð. —I ATS. Tengingor millí MYND 3 BREYTT FLÓÐRÁS AÐHÆFÐ JARÐHITA Tafla 2 Samanburður á samkeppnisaðstöðu í þungavatnsframleiðslu Island Kanada Liður 133 t/ár 266 t/ár 400 t/ár 400 t/ár Stofnkostnaður verksmiðju 28.8 M? 49.1 M$ 65.0 M$ 65.0 M$ Leyfisgjöld 2.0 2.0 2.0 2.0 Landjöfnun 0.2 0.3 0.5 0.5 Vatnsveita 1.1 1.6 2.0 2.0 Heildarstofnkostnaður 32.1 M$ 53.1 M$ 69.5 M$ 69.5 M$ 15% vextir og afskriftir 4.820.000 7.970.000 10.400.000 10.400.000 1% tryggingargjöld o.þ.h. 288.000 492.000 650.000 650.000 Fastur kostnaður 5.108.000 8.462.000 11.050.000 11.050.000 Starfslið 446.000 585.000 724.000 1.110.000 Viðhaldsefni 576.000 984.000 1.300.000 1.300.000 Varmaorka 360.000 720.000 1.080.000 1.770.000 Raforka (3.6 mill.) 380.000 760.000 1.140.000 1.140.000 Kfni 12.000 24.000 35.000 35.000 Ý' mislegt og stjórnun 134.000 176.000 217.000 333.000 Breytilegur kostnaður 1.908.000 3.249.000 4.496.000 5.688.000 Heildarkostnaður á ári 7.016.000 11.711.000 15.546.000 16.738.000 Framleiðslukostnaöur US$/kg D20 52.70 44.00 38.90 41.80 Hér er ekki reiknað með tollum eða sköttum.

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.