Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2004, Blaðsíða 17
7 6 FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ2004
Fréttir DV
• Sænski markahrókurinn Henrik
Larsson er hógvær maður að
eðlisfari og telur að hollenski
framherjinn Ruud van Nistelrooy
verði besti sóknarmaðurinn á
vellinum þegar Svíþjóð og Holland
mætast í átta liða úrslitum
Evrópumótsins á morgun. Larsson
hefur skorað þrjú mörk í þremur
leikjum og Larsson sagðist geta lýst
van Nistelrooy, sem hefur skorað
fjögur mörk í þremur leikjum, í
þremur orðum: „Hann er frábær,"
sagði Larsson. Hann getur skorað
úr erflðum stöðum og það er mjög
erfitt fyrir varnarmenn að fyglja
honum. Hann er sterkur og fljótur
og hefur allt sem frábær framherji
þarf að hafa.“ Larsson sagði að það
væri ekki hægt að bera þá félaga
saman. „Hann er miklu betri en
ég,“ sagði Larsson.
• Tékkneski snillingurinn Pavel
Nedved er ekki bara óvenju góður
knattspyrnumaður heldur er hann
líka með óvenjulega hnéskel.
Nedved meiddist lítillega á hné í
leiknum gegn Hollandi en það háir
honum ekkert í dag. Petr Krejci,
læknir tékkneska liðsins, segir að
Nedved sé eini maðurinn sem hann
þekkir sem er með þrískipta
hnéskel. „Hnéskel flestra er aðeins
gerð úr einu beini. Eitt prósent af
fólki er með tvö bein en Nedved er
með þrjú - hann er sá eini sem ég
þekki,“ sagði Krejci og bætti við að
uppbygging hnésins á honum gerði
það að verkum að hann hlypi eins
og hann gerir auk þess sem þetta
hjálpaði honum við að ná valdi
boltanum í erfiðum stöðum.
• Hinn gamalkunni sóknarmaður
Búlgara, Hristo Stoitchkov, telur
Frakka vera langlíklegast til að sigra
EM. Stoitchkov, sem leiddi Búlgara
í undanúrslit HM árið 1994, segir
Frakka hafa „"reynslu og gæðin sem
þarf til að fara alla leið" þrátt fyrir
að flestir geti verið sammála um að
liðið hafi verið nokkuð frá sínu
besta það sem af er móti. „Nú þegar
sterkar þjóðir eins og Ítalía, Spánn
og Þýskaland eru dottnar út tel ég
Frakka eiga mjög góða möguleika.
Kjarni liðsins hefur verið að spila
saman síðustu sex ár og það getur á
eftir að vega stórt," segir Stoitchkov
sem þó spáir síður en svo auðveld-
um sigri gegn Grikkjum í kvöld.
„Frakkar munu fá að svitna".
Portúgalar lögöu Englendinga í dramatískum fyrsta leik 8-liða
úrslita EM. Það var Ricardo, markvörður Portúgala sem var
hetja kvöldsins, en hann varði spyrnu Dariusar Vassells og
skoraði síðan úr síðustu spyrnunni.
Það var boðið upp á frabæra skemmtun í fyrsta leik 8-liða
úrslitanna í gær þegar Portúgalar lögðu Englendinga, 8-7, eftir
vítaspyrnukeppni Dramatíkin var ótrúleg og hefði það verið
óskandi að bæði þessi lið hefðu komist áfram. Það var
markvörðurinn Ricardo sem reyndist hetja leiksins, þegar hann,
hanskalaus líkt og Gordon Banks forðum daga, varði spyrnu
Dariusar Vassells og skoraði síðan sjálfur úr síðustu spyrnunni.
Englendingar sitja því eftir með sárt ennið.
Englendingar fengu óskabyrjun
þegar Michael Owen skoraði strax á
3. mínútu leiksins, og var það mark
sérlega glæsilegt. David James tók
langa markspyrnu sem rataði fyrir
fætur Owen við vítateig Portúgala.
Owen snéri baki í markið í mjög
erflðri stöðu, en eldsnöggt náði
hann að snúa sér við og skjóta
utanfótar með ristinni. Markið kom
eins og þruma úr heiðskýru lofti og
var Richardo í marki heimamanna
engan veginn viðbúinn skoti.
Markið færðu Englendingum
mikið sjálfstraust og virkuðu þeir
gríðarlega öruggir í öllum sínum
aðgerðum. Portúgalar voru meira
með boltann en komust lítt áleiðis
gegn sterkri vörn Englendinga, þar
sem Sol Campbell lék eins og sá sem
valdið hefði.
Englendingar urðu fyrir áfalli á
27. mínútu þegar Wayne Rooney
varð að fara af velli eftir að hafa
fengið högg á ristina. Var hann strax
fluttur á sjúkrahús og eru taldar
góðar líkur á að Rooney sé
ristarbrotinn. Þótt að margir hefðu
haldið annað kom áfallið við það að
missa Rooney ekki niður á leik
Englendinga, og má rekja hluta af
þeirri ástæðu til þess að Micheal
Owen var að spila sinn langbesta
leik í keppninni og var mjög
hreyfaniegur í framh'nu enska
liðsins.
Síðari hálfleikur þróaðist á sama
hátt og sá fýrri. Portúgalar voru
miklu meira með boltann og létu
hann ganga vel út á velli, en síðan
var eins og hlupið væri á vegg;
varnarmúr enska liðsins var slíkur.
Eina ógnin af einhverju viti voru að
koma úr langskotum, en þegar þau
hittu á ramman var David James
ekki í vandræðum með að hand-
sama knöttinn.
Þegar leið á jókst pressan, og tók
Sven-Göran Eriksson þá furðulegu
ákvörðun að taka Paul Scholes og
Steven Gerrard af leikvelli. Við það
riðlaðist leikur Englendinga á
miðjunni nokkuð og Portúgalar fóru
að sækja meira upp kantana.
Á 83. mínútu dró síðan til tíðinda.
Skömmu áður hafði Luis Fehpe
Scolari tekið Luis Figo af leikvehi, við
litlar vinsældir fyrirliðans. Sá sem
leysti hann af, Helder Postiga, átti
eftir að reynast betri en enginn því
það var hann sem jafnaði metin
með fallegum skaha eftir sendingu
Simoa Sabrosa, sem einnig hafði
komið inn á sem varamaður
skömmu áður.
Þegar bæði lið virtust vera búin
að sætta sig við að halda í
framlengingu náðu Englendingar
sókn sem endaði með því að Sol
CampbeU, sem var frábær í leiknum,
skallaði í mark Portúgala, en
dómarinn Urs Maier flautaði markið
af. Mjög umdefldur dómur en í
endursýningu sást að John Terry var
brotlegur og hélt Richardo í markinu
niðri.
Það er skemmst ffá því að segja
að framlengingin var eign Portúgala
tU að byrja með en smám saman
komust Englendingar aftur inn í
leikinn. GreinUeg þreytumerki sáust
á báðum liðum og gerði það leikinn
opnari og skemmtUegri. Portúgalar
náðu undirtökunum á nýjan leUc og
björguðu Englendingar meðal
annars á U'nu í upphafi síðari
hálfleiks framlenginnar. En aðeins
mínútu seinna tók Rui Costa tU
sinna ráða. Hann fékk knöttinn á
vaUarhelmingi Englendinga, rakfl
hann nokkur skref áfram og lét svo
vaða á markið. Costa smellhitti
hann og söng knötturinn í netinu.
Nú var að duga eða drepast fyrir
Englendinga. Geðshræringin, bæði
inni á velhnum sem og í
áhorfendastúkunum var engu lík, og
fáir sem bjuggust við því að ensku
leikmennirnir myndu ná að jafna sig
eftir slfkt rothögg. En þeir voru á
öðru máU, og eftir hornspyrnu sjö
mínútum fyrir lok framlengingar
barst boltinn tíl Frank Lampard við
markteig. Engum Portúgala datt í
hug að fara í miðjumanninn og áttí
hann ekki í erfiðleikum með að snúa
sér við og skjóta í markið.
Vítaspyrnukeppnin var
æsispennandi en Ricardo bjargaði
deginum fyrir heimamenn.
Brenndi af vfti David Beckham átti slakan leik og kórónaði hann með þviað brenna afvlti
Marki fagnað Englendingar fagna marki Michaels Owen.
DV Fréttir
FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ2004 17
Vítaspyrnukeppni
Costa
Ronaldo
Maniche
C®11® W
Postiga
Wa§§®DD 1
Ricardo
Postiga með skalla Boltinn Inetinu án þess að DavidJames komi nokkrum vörnum við.
Úrslitin ráönst í 8 liða úrslitum í Portúgal
po,w„ John ,™T*TT\2ZT°['°'