Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2004, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2004, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 25. JÚNl2004 Fréttir DV Hæstiréttur í sumarfrí Hæstaréttardómarar hófu sumarfrí sitt um síð- ustu helgi. Reiknað er með að næstu reglulegu dómar verði ekki felldir í Hæsta- rétti fyrr en þegar vika er liðin af septembermán- uði. Á hinn bóginn má búast við að í sumar þurfi Hæstiréttur að leysa jöfn- um höndum úr málum á borð við kærða gæslu- varðhaldsúrskurði. Sjálfir koma Hæstarréttardómam- ir m'u ekki saman í réttinum fyrr en um miðjan ágúst. Barist gegn farandsölu Verð á húsum hækkaði um rúmlega 13 prósent á einu ári. Kjartan Hallgeirsson hjá Eignamiðlun segir að tölur um hækkanir ekki gefa alveg rétta mynd af fast- eignaverðinu. Yfirverð á húsbréfum spili þar talsvert inn í. Óvíst er hvaða áhrif breytingar á fasteignalánum frá íbúðalánasjóði munu hafa. Fasteignir ruku upp á yiirverði húsbréfa Atvinnumálanefnd ísa- fjarðarbæjar hefur uppi hugmyndir um að beita sér gegn farandsölumönnum sem koma í bæjarfélagið og selja gamlan lager fyrir lít- ið. Bæjarins besta hefur eft- ir Rúnari Óla Karlssyni, at- vinnu- og ferðamálafulltrúa bæjarins, að verslunarrek- endur á ísafirði væm óá- nægðir með farandsölu- mennina, sem bjóða oft varning sinn í félagsheimil- inu í Hnífsdal. Vissulega geti verið um að ræða kjarabót fyrir íbúa á svæð- inu, en í haust skal láta reyna á hvort verslanir í heimabyggð geti ekki tekið við af farandsölumönnum. Irakar skipta um stýrikerfi Hópur íraka berst nú fyr- ir því að í írak verði stýri- kerfið Linux notað á tölvur í stað Microsoft. Linux er dreift og lagfært ókeypis og þykir írökunum það henta betur ástandinu í landinu að nota slíkt stýrikerfi. Breska ríkisútvarpið, BBC, fjallar um umskiptin í tölvumálum í írak í kjölfar innrásar Bandaríkjamanna. Þar kem- ur fram að stórfyrirtæki eins og Microsoft reyni að veita írökum not af stýrikerfum sínum, en um takmarkaðan tíma. Þegar tíminn rennur út verða þeir að byija að borga stórfyrirtækjunum, og það vilja írakar ekki. „Almennt er allt i góöu lagi. Þaö er þokkalegt ástand," seg- ir Valdimar Bragason, bæjar- stjóri í Landsíminn Hann kannast þó viö aö kjúklinga- slátrunin I bænum sé aö hætta.„Síðasta slátrunin hefur fariö fram. Fólk er að komast í vinnu sem varþarna fyrir. Það er ekki mikiö atvinnuleysi hérna/'segir bæjarstjórinn í Dalvik, sem varáleið til Varmahllöar í gær. Kópavogur Mikið hefur verið byggt íhinum vinsæla Kópavogi undan- DÆMI UM HÆKKUN ÁTVEGGJA OG FJÖGURRA HERBERGJA ÍBÚÐUM í FJÖLBÝLISHÚSI í REYKJAVÍK Á MILLI ÁRA: Fasteignir á höfuðborgarsvæð- inu hafa hækkað um 13,4% á síð- ustu 12 mánuðum. Mest hefur hækkunin orðið á síðustu þremur mánuðum, eða um 6,5%. Þessar upplýsingar má lesa á vef Fasteignamats ríkisins sem reiknar verð fasteigna reglulega út eftir kaupsamningum. A vefnum kemur fram að vísitala fasteignaverðs íbúðahúsnæðis á höfuðborgar- svæðinu var 194,4 stig í apríl 2004. Miðað er við 100 stig í janúar 1994. Hækkun í yfirverði húsbréfa Kjartan Hallgeirsson hjá fast- eignasölunni Eignamiðlun segir að þessar tölur segi ekki til um raun- verulegar hækkanir. Þær eru að stórum hluta fólgnar í yfirverði sem hefur orsakað þessa hækkun. „Það hefur verið yfirverð á hús- bréfum að undanförnu og seljend- ur hafa verið að fá meira út úr sölu en oft áður,“ segir Kjartan. Hann neitar því ekki að mikil sala hafi verið allt síðasta ár og kannski meiri en menn hafi búist við. „Fyrsta júlí tekur nýja kerfið við og þá verður ekki neitt til sem heitir yfirverð lengur," segir hann. Nýgróin hverfi dýrari Nýja kerfið hjá Ibúðalánasjóði felst í því að ekki verður lengur greitt með húsbréfum heldur bein- hörðum peningum. Kjartan segir að ekki sé enn ljóst hvort vextir lækki eða verði svipaðir. Það komi til með að hafa áhrif. Ef vextir lækki megi búast við aukinni sölu en standi þeir í stað verði salan að öll- um líkindum svipuð. Kjartan segir að lítill munur sé á eftirspurn á milli sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. „Ákveðin hverfi eru dýrari en önnur, hvort sem er í Reyicjavík, Hafnarfirði eða Kópavogi en það eru ný hverfi sem ekki eru lengur í byggingu. Orðin gróin en íbúðir samt enn tiltölu- lega nýjar," segir hann. Gengistryggð bankalán aukast Ef eitthvað er þá hefur verið meiri eftirspurn eftir sérbýlum. Kjartan segir að ástæðan sé eink- um sú að þau hafi staðið í stað í verði. Þá er hægari sala í dýrari eignum. Inntur eftir hvort menn sæki meira eftir lánum í bönkunum svarar Kjartan að ekki sé óalgengt ., | n|j | „Fyrsta júlí tekurnýja kerfið við og þá verð- ur ekki neitt til sem heitir yfirverð lengur." rann ar. trtirspurn eftirnýjum Ibúð um i byggðum hverfum er mest. Stærð: 76 fermetra tveggja herbergja, byggingarár 1995. Mal 2003 Verð 10,6 milljónir. Verð á hvern fermetra 142.500 kr. Maí 2004 11,5 milljónir. Verð á hvern fermetra 160.700 kr. Stærð 113 fermetra fjögurra herbergja, byggingarár 1995. Mal 2003 Verð 13,8 milljónir, verð á hvern fermetra 123.200 kr. Maí 2004 Verð 14,7 milljónir, verð á hvern fermetra 131.600 kr. að tekin séu húsbréf og til viðbótar bankalán: „Það hefur heldur aukist að menn taki gengistryggð lán. Þau fóru hægt af stað en menn eru að átta sig á kostum þeirra í þeim til- fellum sem þau henta," segir Kjart- an Hallgeirsson. bergijot@dv.is Kennarar húðskamma stjórnvöld Helmingur umsækjenda fékk synjun Kennarasamband íslands átelur stjórnvöld fyr- ir að veita allt of htlum fjármunum til þeirra stofnana sem annast kennara- menntun í landinu. „Kennara- Furðu lostinn formaður Eiríkur Jónsson formaður Ki: Fjárveitingar tii kennara- menntunar skornar við nögl. sambandið lýsir yfir sérstökum áhyggjum vegna fjárhagsstöðu Kennaraháskóla íslands sem getur einungis veitt helmingi umsækj- enda skólavist næsta haust vegna fjárskorts," segir í yfirlýsingu KÍ. Að óbreyttu þarf Kennaraháskóli íslands að synja tæplega eitt þúsund umsækjendum um nám við skólann á næsta skólaári. Alls sóttu 1.834 um að hefja nám við skólann á næsta skólaári, en aðeins 903 fá skólavist. 1.500 umsóknir bárust um nám í grunndeild og af þeim fá einungis 685 inngöngu, eða um 45% umsæk- enda. 334 sóttu um nám í fram- haldsdeild, en aðeins 218, eða 65% umsækjenda, hefur verið boðið að hefja nám. Nemendur KHÍ eru nú um 2.400 og hafa aldrei verið fleiri. KÍ lýsir yfir furðu sinni á því að íslendingar, sem eru í hópi ríkustu þjóða heims, skeri við nögl fjárveitingar til kennara- menntunar. KÍ bendir á að enn skortir verulega á að alhr þeir sem starfa við kennslu í skólum landsins hafi til þess fuha menntun og tilskil- in réttindi. Kf skorar á menntamálaráðherra „að beita sér fyrir auknum fjárveit- ingum th kennaramenntunar og stuðla þannig að því að aukinn áhugi ungs fólks á kennaranámi verði tU þess að tryggja nægUegt framboð á vel menntuðu fólki tU að sinna því mikUvæga starfi sem kennsla í skólum landsins er.“ Ólöglegur hnífur Lögreglan í Vestmannaeyjum veitti því athygli í vikunni að ung- lingsdrengur var að leika sér með svokahaðan „Butterfly" hm'f og var að sýna öðrum unglingum hnífinn. Þar sem hnífar af þessu tagi eru ekki leyfðir hér á landi voru höfð afskipti af drengnum og hmfurinn tekinn af honum. VUl lögregla brýna fýrir foreldrum að leyfa ekki ungum krökkum að bera hnífa á sér og þá sér í lagi hnífa sem eru ólöglegir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.