Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2004, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2004, Qupperneq 10
10 FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ2004 Fréttir DV Kostir & Gallar Einar Bárðarson athafna- maður er hugmyndaríkur og uppfinningasamur eins og sést á mörgum velheppnuð- um verkefnum sem hann hef- ur stýrt. Hann er orðheppinn og þykir skemmtilegur I góðra vina hópi. Einar Bárðarson athafna- maður á það til að þykja svolítið ágengur á köflum. Hann er óþarflega ýtinn þegar hann vill fá sínu fram. Hann á það líka til að fara stundum fram úr sjálf- um sér. „Einar er óhemjuduglegur og rosalegur hugkvæmur. Honum hættir til að fara fram úr sjálfum sér og ekki verra að einhver sé ná- lægur til að kippa i spottann. Hann er mjög skemmtilegur I góðra vina hópi og afskaplega traustur vinur. Sigurður Bogi Sævarsson blaöamaður „Einar hefur allt frá barnæsku verið hug- myndarlkur, djarfur og óhræddur. Þetta hefur hann sýnt og sannað með verkum sínum. Hann Selfyssingur góður." Kjartan Björnsson, rakari á Selfossi. „Einar er uppfinninga- samur og góðhjartaður. Hann vill allt fyrir vini slna gera. Einar er orð- heppinn og með allra skemmtilegustu mönnum sem ég hef starfað með." Einar Ágúst Viðisson, söngvarl iSkita- móral. Einar Bárðarson er fæddur og uppalinn á Selfossi. Hann er þekktur athafnamaður og hefur sem kunnugt er haldið fjölda tónleika og útihátíða auk þess aö semja mörg afvinsælustu dægurlögum síðustu ára. Nú um stundir þeysist Einar um landið með stúlknasveitina Nylon og ætlar að láta þær slá l gegn. Einar er í báða ættliði kominn af Síöuprestum. Maitsland-vitni mættu ekki Mál gegn tvíburunum Rúnar Ben Maitsland og Davíð Ben Maitsland og Þjóðverjanum Claus Friehe fýrir Héraðsdómi Reykja- víkur hefur verið frestað fram á haust. Ástæðan er að vitni, sem koma áttu ffá Þýskalandi til að veita upp- lýsingar um meint fíkni- efnasmygl, létu ekki sjá sig þegar taka átti málið fýrir í gær. Um er að ræða meint tengsl tvíburanna við stór- an smyglhring, sem Davíð Ben harðneitar aðild að, en Rúnar Ben situr nú inni fýr- ir fíkniefnabrot. Davíð hef- ur sagt að hann sé aðeins ákærður vegna þess að hann sé tvfburabróðir Rún- ars, en málið þykir mjög sérstakt þar sem lögreglan hefur ekki lagt hald á þau efni sem mennirnir eru sakaðir um að smygla. Forsetakosnincrar 2004 Þá er komið að þriðja frambjóðandanum í forsetakosning- unum 2004 og er það Ólafur Ragnar Grímsson sjálfur. Erfitt var að ná í forsetann en blaðamaður og ljósmyndari DV ákváðu að fara út og leita að honum í staðinn. Sú leit skilaði ýmsu og kom meðal annars í ljós að brotist var inn í kirkjuna á Bessastöðum tvisvar í sömu vikunni. Garðyrkjustjóri forsetans vonast eftir launa- hækkun og segir Ólaf fara í morgungöngu á hverjum morgni. Túristar Mikið er um ferðir fólks I kring- um forsetasetrið. Þessir útlendingar voru llklega líka að leita afforsetanum. Heimili Ólafs Hér býr Ólafur Ragnar en ekkert bólaði áhonum né Dorrit viö bakstur í eldhúsinu. 13.50 - Troðfull geymsla af drasli fyrri forseta Hörður segir Ólaf Ragnar aldrei hafa komið út með bjór handa sér þegar heitt sé í veðri en hann bendi honum gjarnan á bletti sem slá megi betur. Lítið virðist vera um partí- stand á Bessastöðum og veit hann ekki hvort kjallarinn sé fullur af áfengi. „Það er hinsvegar geymsla hérna troðfull af drasli frá tíð fyrri forseta," segir Hörður og brosir. En nú þarf Hörður að halda áfram að vinna og kveður okkur um leið og hann hverfur fyrir hornið á forsetasetrinu. Við göngum stutta stund um svæðið og það verða að teljast von- brigði að sjá ekki Dorrit í eldhús- glugganum að baka og enginn virð- ist vera heima þennan daginn. 14.00 - Leitinni lokið Ekki gat Hörður garðyrkjustjóri aðstoðað okkur við leitina og því ekki annað hægt að gera en halda heim á leið eftir misheppnaða leit. Þegar við göngum í átt að bflnum hafa bæst við túristar sem taka myndir af kirkjunni en voga sér ekki nálægt forsetasetrinu. Enginn Ólaf- ur virðist vera á svæðinu og því engu líkara en að forseti vor sé týndur.Veit einhver hvar hann er? breki@dv.is 13.14 - Skrifstofa for- seta íslands á Sóleyjar- götu 1 Það var kyrrt og hljótt á Sóleyjar- götunni þegar leitin að Ólafi hófst. Risavaxin tré og fuglasöngur biðu okkar og þreytuleg kona skimaði eft- ir húsnúmeri í kringum skrifstofu forsetans. Tveir menn frá Landssím- anum voru að leggja símalínur á horni götunnar og ungar stelpur með hvíta hjálma aðstoðuðu við verkið. Aðspurðar sögðu stelpurnar að ekkert hefði sést til forsetans um morguninn en það skipti þær litlu máli því að þeirra sögn er hann eini hæfl frambjóðandinn og fær því þeirra atkvæði. Verkamaður sem leit út eins og teiknimyndapersóna með bláan hjálm brosti og sagði „hvað eigum við að kjósa, Ástþór?" og við- staddir hlógu að hnyttni bláhjálms- ins. Dyrnar á Sóleyjargötu 1 opnuð- ust örfáum sekúndum eftir að við þrýstum á hnappinn og blár dregill lá að borði ritarans sem var ung stelpa með fallegt bros. „Hann hefur ekkert verið hérna í morgun en ég held að þið verðið að panta tíma ef þið ætlið að hitta hann, ætli hann sé ekki bara upp á Bessastöðum." Fljótíega var okkur vísað upp og þar tók á móti okkur örnólfur Thorsson, aðstoðarmaður forsetans. Hann sagði okkur að forsetinn hefði ekki tök á að hitta okkur í dag en vildi ekki segja okkur hvar hann væri nið- ur kominn. í dyragættinni mættum við ljós- myndara forsetans sem virtíst vera í góðu skapi en ekki vitum við hvort var að leita að forsetanum eins og við. 13.31 - Keyrt að forseta- setrinu á Bessastöðum Þegar við keyrðum út Sóleyjargötuna varð á vegi okkar smáfugl og heyrð- ist mér hann hvísla: „Herra Ólafur er á Bessastöðum, farið þangað.“ Við keyrðum í átt að Bessastöðum og þegar við nálguðumst forsetasetrið og vonuðumst eftir að hitta forset- ann ómaði í útvarpstækinu „Should I stay, or should I go“ með hljóm- sveitinni Clash. Ólafur Ragnar hefur lfldega sungið þetta lag fyrir Dorrit þegar hann velti því fyrir sér hvort hann ætti að vera forseti þriðja kjör- tímabilið í röð. Það var örlítið rok á Bessastöðum og allt morandi í kríum í hrauninu kringum setrið. Túristar komu keyr- andi á bflaleigubfl og hliðið að hús- unum var lokað. íslenska fánanum með skjaldamerkinu var flaggað og grasið var nýslegið. Simalínur lagðar Verið varað leggja sfmalinur fyrir utan skrif- stofu forsetans en þetta fólk hafði ekkert séð ÓiafRagnar koma um morguninn. Garðyrkjustjórinn Hörður Kristjánsson sagði forsetann hafa brugðið sér afbæ fyrir klukkustund eða svo. 13.42 - Garðyrkjustjóri forsetans tekinn tali Ástæðuna fyrir nýslegnu grasinu fengum við fljótíega að vita þegar við hittum Hörð Kristjánsson, garð- yrkjustjóra forsetans, sem sagðist vera nýbúinn að slá blettinn en var önnum kafinn við ósigrandi arfann. Hörður sagðist kunna ágætíega við það að vera sinn eigin herra og er búinn að vera í þessu starfi í fjögur ár: „Ég ræð mér nú alveg sjálfur og það er fr'nt að vera einn með sjálfum sér hlustandi á útvarpið og slá grasið.“ Hörður segist hlusta mest á Radíó Reykjavik og Skonrokk en þó komi það fyrir að kristilega út- varpsstöðiri Lindin vérði fyrir valinu. Þegar við spurðum hann hvort for- setínn væri heima sagði hann að við hefðum rétt misst af honum en hafði ekki hugmynd um hvar hann væri. „Ég hitti nú forsetann stundum og þá aðallega á morgnana þegar hann er hérna í morgungöngu. Hann er nokkuð morgunhress og gengur yfirleitt hérna um svæðið þegar ég er nýmættur í vinnuna,“ segir Hörður sem því miður verður í kórferð í Eistíandi legar krónprinsinn mætir um næstu helgi. Hörður segir staðarhaldarann Karl búa á svæðinu sem og kokkinn og kann vel við það að geta farið inn í eld- hús og fengið sér að borða úr ísskápnum. „Það er mikið af túrist- um sem koma hingað en þeir þora ekki jafri nálægt húsinu og íslendingarnir sem ég hef þurft að reka í burtu af eldhúsgluggan- um." Hörður segir Ástþór Magnússon hafa mætt um daginn og ætíað að fara inn en hefði verið vísað í burtu. Eftir heimsókn Ástþórs var sett upp skilti með áletruninni „lokað" svo friðarpostulinn myndi ekki mæta aftur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.