Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2004, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ2004
Fyrst og fremst DV
Útgáfufélag:
Frétt ehf.
Útgefandi:
Gunnar Smári Egilsson
Rltstjórar.
Illugi Jökulsson
MikaelTorfason
Fréttastjóran
ReynirTraustason
Kristján Guy Burgess
DV: Skaftahlíð 24, Rvík, sími: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 515 7599 - Ritstjórn:
550 5020 - Fréttaskot: 550 5090
Rltstjóm: ritstjorn@dv.is - Auglýsing-
an auglysingar@dv.is. - Dreiflng:
dreifing@dv.is
Setning og umbrot: Frétt ehf.
Prentvlnnsla: ísafoldarprentsmiðja
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni
blaðsins í stafrænu formi og í gagna-
bönkum án endurgjalds.
Hvað veist þú um
Wayne ?
Rooney •
1. Hvenær fæddist Rooney?
2. í hvaða borg og hvaða
hverfi þess fæddist hann?
3. Með hvaða liði leikur
hann nú?
4. Hann var um tíma yngsti
maðurinn sem skorað hafði
mark í ensku úrvalsdeild-
inni. Hver sló það met?
5. Gegn hvaða liði skoraði
hann fr ægt sigurmark í
október 2002?
Svör neðst á síðunni
Kosningabaráttan
hafin
Guardian
í leiðara breska blaðsins
The Guardian er fjallað um
kosningabaráttuna á Bret-
landi sem virðist þegar
vera hafin þdtt meira en ár
sé í næstu kosningar. For-
menn flokkanna eru þegar
famir að skjóta hver á
annan og talsmáti þeirra
hefur að einhverju leyti
breyst sem gerist venjulega
ekki fyrr en rétt fyrir kosn-
ingar. Þeir Tony Blair og
Michael Howard hafa báð-
ir haldið miklar ræður um
heilbrigðiskerfið oghvað
þar megi betur fara. Leið-
arahöfundur segist ekki
heyra mikinn mun á mál-
flutningi þeirra hvað það
varðar en býst samt sem
áður við að þau tvö mál
sem mest verði deilt um í
kosningabaráttunni verði
einmitt heilbrigðismálin
auk menntamála. Býst
hann við að fyrst og fremst
verði deilt um útfærslur á
því sviði en ekki aðferða-
fræði.
Eftir kúnstarinn-
ar reglum
„Orðin eiga uppruna sinn í
latnesku kjörorði lækna-
skólans I Salerno á Italíu
„leges artis" -„reglur hand-
verksins", en með latnleska]
orðinu„ars",„artis" er átt
við reglur læknislistarinnar,
þótt„ars" merki eiginlega
fag, iðn eða
starfsgrein. Skól-
inn f Salerno var
stofnaðurum UOOogsetti
hann mjög strangar reglur
um störflækna sem skyldu
starfa eftir„reglum læknis-
listarinnar". Síðan tóku
ýmsar aðrar starfsgreinar
upp orðinjeges artis"."
Tryggvi Gíslason, Orð I
tímatöluð, 1999.
Málið
Svörviöspumingum:
1.24. október 1985 - Z Everton, Croxteth
- B. Everton - 4. James Milner, Leeds - 5.
Arsenal
Sálgreindur forseti
Íustin Frank er sálfræðingur, prófessor í
sálgreiningu við George Washington há-
skólann íWashington og höfúndur nýút-
ninnar bókar um George W. Bush Banda-
ríkjaforseta: „Bush á bekknum, hugmynda-
heimur forsetans." f stuttu máÚ telur Frank
í bókinni, að Bandaríkjaforseti sé geðveikur.
f bókinni notar Frank sömu aðferðir og
CIA, bandaríska leyniþjónustan notar til að
sálgreina leiðtoga erlendra ríkja. Greining-
arnar hófust við Iok síðasta heimsstríðs með
athugunum á Hitler. Slíkar greiningar á
leiðtogum fsraels og Egyptalands voru þátt-
ur í Camp David samkomulaginu 1978.
Að mati prófessorsins er drykkjusýki
Bush forseta lykillinn að geðveiki hans.
Hann var drykkfelldur fram á miðjan aldur
og hætti ekki að drekka með aðferðum svo-
kallaðs tólf spora kerfis, sem notað er hjá
stofnunum á borð við SÁÁ og AA, heldur
snerist hann skyndilega til kristinnar ofsa-
trúar.
Frank segir Bandaríkjaforseta vera
drykkjusjúkling, sem ekki hafi fengið eðli-
lega meðferð. Hann segir hann vænisjúkan
stórmennskubrjálæðing, haldinn kvala-
losta. Sem unglingur hafi hann leikið sér að
því að sprengja froska. Og sjö ára gamall
hafi hann ekki getað sýnt sorg við lát systur
sinnar.
Frank kennir uppeldi móðurinnar um
þetta. Fjölskylduvinir telji hana vekja ótta í
umhverfi sínu og hún hafi aldrei náð neinu
sambandi við soninn. Síðan varð hann
drykkjusjúklingur og skaddaðist andlega við
það. Hegðunarmynztur hans sé svipað og
annarra slíkra, en hinir eru bara eldci forset-
ar.
í bókinni og viðtölum í tengslum við út-
komu hennar hefur Frank rakið ýmsa hegð-
un forsetans. Þar á meðal er gleði hans yfir
aftökum sakamanna, tilhneiging hans til að
lyfta sér yfir lög og rétt, sýndarmennska
hans, svo sem þegar hann stóð í flugmanna-
búningi og lýsti yfir lokum fraksstríðsins.
Aðstoðarmenn Bush hafa nafhlaust sagt
frá miklum geðsveiflum Bush, þegar hann
vitnar eina mínútu upp úr biblíunni og
tvinnar saman ókvæðisorðum næstu mínút-
una. Frank telur Bush rugla saman guði,
Bandarflcjunum og sjálfum sér. Hann sé
ófær um að stjóma landi og þjóð og eigi að
hætta sem forseti.
Sálfræðiprófessorinn bendir á ýmsa
starfsbræður, sem styðji skoðun hans, svo
sem James Grotstein prófessor við Kaliforn-
íuháskóla í Los Angeies og Irvin Yalom pró-
fessor við Stanford háskóla. Hann ver að-
ferðir sínar með því að bera þær saman við
aðferðimar, sem leyniþjónustan notar sjálf.
Samkvæmt bók Franks er forsetinn mað-
ur, sem forðast sorg og vfloir sér undan
ábyrgð. Hann sé eins og átta ára gamalt
bam að leika Superman og trúi því, að hann
hafi sigrað í stríði.
Jónas Kristjánsson
3
<D
m
Fyrst og fremst
þar sem hann segist ætla að hefja
virðingu forsetaembættisins til
hæstu hæða. Þetta er maðurinn
sem segir óþolandi að grín sé gert
að forsetanum og forsetaembætt-
inu, eins og hann vilji banna fólki
að gantast með það sem því sýnist.
Fíflaskip
MATTHlAS VIÐAR
SÆMUNDSSON dós-
ent í íslenskum bók-
menntum hefði orðið
fimmtugur á dögun-
um en hann lést fyrr á árinu eins og
kunnugt er. Vinirhans gáfu afþvt til-
efni út bókina Engil tímans þar sem
margir höfundar birtu ýmisleg skrif
um menningarleg efni, honum til
heiðurs og minningar. Jafnframt var í
fyrrakvöld efnt til siglingar svonefns
Fiflaskips um sundin við Reykjavík en
á siglingunni varísenn haldið upp á
útkomu bókarinnar og Matthíasar
minnst. Sagnir herma að fíflaskip
hafi verið fley sem geðsjúku fólki var
safnað um borð og það sent á sjó svo
fólkið væri ekki fyrir öðrum. Fíflaskiþ
hafa orðið mörgum listamönnum að
yrkisefni - ýmsir þekkja lag hljóm-
sveitarinnar The Doors með þessu
nafni en hér má sjá fræga mynd Hl-
erónýmosar Bosch afFíflaskipi.
En úrþví að honum tókst ekki að klára ógeðs-
drykkinn, þurftu þeir að rassskeiia hann. For-
setaframbjóðandinn virðulegi beygði sig fram
og Jói og Auddi slógu hann á afturendann.
MEGUM VIÐ EIGfl V0N A ÞVf ef svo
ólíklega vill til að Baldur verði for-
seti, að hann verði reglulegur gest-
ur í 70 mínútum eða var þetta bara
kosningatrikk? Heldur hann að
enginn muni gera grín að honum?
ÞAÐ ERU F0RSETAK0SNINGAR á
morgun ef það hefur farið framhjá
einhverjum. Það hefur sjálfsagt gert
það enda mest spennandi við þær
er hversu margir komi til með að
skila auðu. Sitjandi forseti ætlar að
bjóða sig fram áfram og í framboði
á móti honum eru tveir menn sem
ekki hefur tekist að sannfæra marga
um að þeir eigi erindi á Bessastaði.
FÚLK HEFUR A SÍÐUSTU DÖGUM
fengið - hvort sem því hefur líkað
betur eða verr - að kynnast fram-
bjóðendunum Baldri og Ástþóri.
Ástþór Magnússon æðir um sem
hinn herskái friðarpostuli og telur
sig vera bjargvætt þjóðarinnar og
jafnvel heimsbyggðarinnar allrar.
Fáir taka mark á því. Flestir eru
þreyttir á Ástþóri.
SPÚTNfKKINN f ÞESSARI K0SNINGA-
barAttu hefur verið hinn þéttvaxni
loftskeytamaður, flugumferðar-
stjóri, frumkvöðull og fasteigna-
kaupmaður, Baldur Ágústsson.
Hann segir að hugmyndin um for-
setaframboð hafi kviknað í þröng-
um hópi fólks, honum finnst hann
eiga fullt erindi í forsetaembættið
og trúir því einlæglega að hann geti
unnið á morgun, þrátt fyrir lítið
fylgi í könnunum. Baldur er á móti
því hvernig Ólafur Ragnar hefur far-
ið með embættið og vill endur-
heimta virðingu þess frá dögum
Kristjáns Eldjárns og Vigdísar. „Af
virðingu við land og þjóð,“ segir
Baldur.
"ÞÚ ERT ALVEG EINS 0G JÓLASVEINN-
INN," sögðu Auddi og Jói á Popp
Tíví. Baldur leggur nefnilega ýmis-
legt á sig til að endurheimta virð-
ingu embættisins, til dæmis mætti
hann í fyrrakvöld í stúdíó hjá Popp
Tíví og drakk ógeðsdrykk. Það var
blanda af Worcestersósu, mjólk,
arómati, lýsi og sítrónusafa. Baidur
fékk sér tvo sopa og stóð sig vel að
mati þáttarstjórnenda sem réðu alls
ekki við þennan drykk. Jói og Auddi
göntuðust við frambjóðandann og
hann kastaði fram vísu. Hann taiaði
um forsetaembættið og fíkniefna-
vandann. En úr því að honum tókst
ekki að klára ógeðsdrykkinn, þurftu
þeir að rassskella hann. Forseta-
frambjóðandinn virðulegi beygði
sig fram og Jói og Auddi slógu hann
á afturendann.
FRAMBJÓÐANDINN SAT ( SETTINU
eins og höfðingi í fráhnepptri
skyrtu. Áður hafði hann verið í
dauflegu viðtali í Sjónvarpinu
klæddur í sparifötin. Þegar Baldur
var búinn að drekka ógeðsdrykkinn
var skorað á hann að borða smjör.
Hann fékk sér ríflega af smjörva,
heila matskeið. Þegar hann var bú-
inn, spurði hann hvort hann mætti
fá meira, setti ögn á skeiðina og hélt
áfram. Jói og Auddi veltust um af
hlátri.
NÚ Mfl EKKI MISSKILJA 0KKUR og
halda að við séum á móti því að fólk
taki þátt í spaugi og glensi. Við
erum í raun mjög ánægðir með að
Baldur hafi mætt í 70 mínútur. Okk-
ur þykir það bara dálítið kúnstugt í
ljósi auglýsinga frambjóðandans