Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2004, Qupperneq 17
16 MÁNUDAGUR 28. JÚNÍ2004
Sport DV
DV Sport
MÁNUDAGUR 28. JÚNÍ2004 17
• Sol Campbell hefur nú loksins
tjáð sig um markið sem hann
skoraði á síðustu mínútu leiksins
gegn Portúgölum en Urs Maier
dæmdi af. Og Campbell er æfur. „Ef
þetta hefði gerst hinum megin á
vellinum hefði markið staðið. Nú
þegar ég er búinn að horfa á mynd-
bandsupptökur af markinu er ég
enn sannfærðari um að það var
fullkomlega löglegt,“ segir Camp-
bell og bætir við að ósigurstil-
finningin sé enn til staðar og verði
það í einhvern tíma til viðbótar.
„Það versta var ekki að sjá samherja
mína brenna af spyrnum sínum í
vítakeppninni heldur að sjá þetta
mark mitt dæmt af. Leikurinn hefði
aldrei átt að fara alla leið í víta-
spyrnukeppni."
• Sven-Göran Eriksson, þjálfari
enska landsliðsins, segir að versta
minning sín frá Evrópukeppninni
sé ekki sú að falla úr keppni gegn
Portúgölum heldur að hafa misst
unninn leik niður í tap gegn Frökk-
um í fyrsta leik. „Vítaspyrnu-
keppnin var vissulega vond en það
eru þessar þrjár mínútur gegn
Frakklandi. Þær voru algjört brjál-
æði,“ segir Eriksson. Hann telur
þrjá leikmenn hafa staðið upp úr
fyrir England í keppninni. „Sol
Campbell var eins og steinn í vörn-
inni og enginn komst framhjá
honum. Hann gat líka orðið hetjan
okkar gegn Portúgal og hefði líklega
með réttu átt að vera það. Allir sáu
hvað Wayne Rooney kann fyrir sér
þrátt fyrir að vera svona ungur en
mér fannst Ashley Cole einnig eiga
frábært mót,“ segir Eriksson.
• Zinedine Zidane kveðst ekki enn
vera búinn að ákveða hvort hann
leggi landsliðsskóna á hilluna eftir
slælega frammistöðu Frakka á EM.
Zidane hafði gefið í skyn að EM yrði
hans síðasta verkefni með lands-
liðinu og þannig myndi hann fylgja
í fótspor Marcels Desailly sem er
hættur með landsliðinu. „Ég veit
ekki hvað ég geri. Ég er ennþá að
hugsa minn gang,“ segir Zidane.
„Við leikmennirnir eigum allir jafn
mikla sök á þessu slaka gengi. Þetta
landslið gæti verið komið á aldur en
ég held það samt ekki. Það gæti
verið kominn tími á mig og fleiri.
Við sjáum til hvað verður," segir
Zidane. Talið er að Zidane muni
bíða þar til nýr landsliðsþjálfari
verður ráðinn og þar hefiir nafh
Jeans Tigana verið títtnefnd, að
hluta til vegna þess að hann er í
miklum metum hjá Zidane.
Miian Baros, Tékklandi
mimMt
V
»i
:■
Markaskoraranum fagnað Pavel Nedvedstekkur í fangið á Milan Baros eftir
að sá síðarnefndi hafði bætt við öðru marki fyrir Tékka. Baros er nú markahæsti
leikmaður EM og hefur skorað fjögur mörk í fimm leikjum.
Baros gæddi
vínarM
Tékkir eru komnir í undanúrslit EM eftir að hafa slegið út Dani
með öruggum hætti, 3-0, í gærkvöldi. Það var frábær
spilamennska í síðari hálfleik sem tryggði Tékkum sigurinn og
áttu Danir sér þá ekki viðreisnarvon eftir að hafa verið sterkari
aðilinn í fyrri hálfleik. Milan Baros skoraði tvö stórkostleg mörk
eftir að Jan Koller hafði náð forystunni. Tékkar mæta Grikkjum í
undanúrslitunum.
„Fyrsta mcirkið var það
mikilvægasta því það gaf okkur byr í
seglin og braut niður Danina," sagði
Milan Baros eftir leikinn. „Þetta var
frábær leikur fyrir Tékkland. Við
erum komnir í undanúrslit og ég er
mjög ánægður. Danir spiluðu vel og
gerðu okkur erfitt fyrir en við
mörðum sigur," sagði Baros og bætti
við að liðið myndi ekki vanmeta
Grikki í næsta leik. „Þeir unnu
Frakka og spiluðu mjög vel. Það
verður allt öðruvlsi leikur en í kvöld,
en erfiður," sagði Baros.
Andlausir í fyrri hálfleik
Danir mættu mun frískari og
ákveðnari til leiks og var furðulegt
að sjá hversu andlausir Tékkarnir
voru. Hreyfanleikinn og leikgleðin
sem var svo áberandi í leik Tékka í
riðlakeppninni var á bak og burt, en
hafa ber í huga að Danir voru mjög
skipulagðir í sínum leik og greinilegt
að Morten Olsen, þjálfari liðsins, var
búinn að kortleggja leik Tékka. Pavel
Nedved var í gjörgæslu hjá Thomasi
Helveg og komst aldrei í gang og þá
er Thomas Rosicky hvorki svipur né
sjón hjá því sem hann var í
undankeppninni og langt frá sínu
besta formi. Vissulega var mikið í
húfi - sæti í undanúrslitum EM, en
þrátt fyrir það var ekki að búast við
eins varfærnislegri aðkomu að
leiknum og raun bar vitni og þá er
átt við bæði lið.
Danir voru skynsamir og eins og
þeim er tamt var mest sótt upp
kantana í gegnum þá eldfljótu
Jesper Grönkjaer og Martin Jorgen-
sen. Vörn Tékka, og þá sérstaklega
bakverðirnir, eru veikasti hlekkur
Tékka og átti liðið í mesta basli með
að stöðva fjölbreyttan sóknarleik
Dana. Claus Jensen var kominn á
miðjuna hjá Dönum og með hann
innanborðs voru Danir manni fleiri
gegn Thomas Galasek og Rosicky á
miðju Tékka. Þetta útspil Olsens
hitti beint í mark og til marks um
það voru Danir með boltann
næstum 70% af fyrri hálfleik. Þessi
sterka vörn og miðja hjá Dönum
bitnaði eðlilega eilítið á sóknar-
leiknum og áttu þeir ekki, frekar en
Tékkar, eitt almennilegt marktæki-
færi í fyrri hálfleik. Voru það mikil
vonbrigði, enda bjuggust flestir við
stórskerrimtilegum leik hjá tveimur
liðum sem hafa verið að spila hvað
bestan sóknarleik í keppninni.
Nýtt lið í síðari hálfleik
Svo virðist sem Karel Bruchner,
þjálfari Tékka, hafi lesið sínum
leikmönnum pistilinn í hálfleik, því
þeir hófu þann síðari með látum og
pressuðu Dani. Á 48. mínútu upp-
skáru þeir hornspyrnu og upp úr
henni náði Jan Koller að skora fyrsta
mark leiksins. Markið skrifast að
mestu leyti á Thomas Sörensen í
markinu því hann hikaði í
úthlaupinu og skildi nærhornið á
markinu eftir galopið. Jafngóður
skallamaður og Koller er lætur slíkt
tækifæri ekki úr greipum sér ganga
heldur plantaði boltanum beint í
samskeytin.
Markið var einmitt það sem
leikurinn þurfti og juku Danir
sóknarkraft sinn í kjölfarið. Eins og
mörg önnur lið væru vís til að gera
voru Tékkar ekki á því að leggjast í
skotgrafirnar, heldur héldu press-
unni áfram. Afleiðingin var sú að
leikurinn breyttist úr því að vera
seinfær og niðurdrepandi í frábæra
skemmtun.
Þegar rúmur stundarfjórðungur
var liðinn af seinni hálfleik var
komið að þætti Milans nokkurs
Baros. Á rúmum tveimur mínútum
skoraði Baros tvö frábær mörk, sín
fjórðu og fimmtu í keppninni og er
hann nú markahæsti leikmaður EM.
Tékkar fóru einfaldlega úr fyrsta
gírnum í fyrri hálfleik yfir í þann
fimmta í þeim síðari og að sjálf-
sögðu naut Baros góðs af því sem
fremsti maður liðsins. Mörkin voru
sem vænt kjaftshögg á Dani og dró
úr trú leikmanna á að þeir gætu
minnkað muninn. Leikmenn liðsins
gáfust þó ekki upp, en það var
einfaldlega við ofurefli að etja að
þessu sinni - Tékkar voru magnaðir
í síðari hálfleik og verða að teljast
líklegir til að fara alla leið á EM með
sömu spilamennsku. vignir@dv.is
8-liða úrslit EM í fótbolta
Kóngurinn Milan Baros er á góöri leid með að
verða leikmaður Evrópumótsins. Ileiknum gegn
Dönum í gær var hann frábær og skoraði tvö
glæsileg mörk og er Irann nú markahæsti leik-
maður EM.
jjj | jgj
- £ '^íssBbW
3-0
(0-0)
i
Tékkland 3-0 Danmörk
1- 0 Jan Koller, skalli 49.
2- 0 Milan Baros, skot 63.
3- 0 Milan Baros, skot 65.
Tolfraeðin:
Skot
Skot á mark
Varin skot markvarða
Skot innan teigs
Horn
Aukaspyrnur fengnar
Rangstöður
Gul spjöld
Rauð spjöld
Bolti innan liðs
42%
58%
MAÐUR LEIKSINS
Úrslitin ráðast í 8 liða únslitum í Portúgal'
Það varléieg 'dekknlngogóþarfthik hkíThnmns'sö1 mark]ékka'leiknum9egn Dönum.
Kollernáðiaðskora. 9 Þ h á ThomasSoren^n Imarkinu sem varð tilþessað
Saetið guiitryggt Milan Baros skorarannað m^^~^
Poborsky sendi á Pavel Nedved, hann sendi glæsilega á Baros
Karel
sem kláraði með stæl.
ir hafa lokið keppni Leikmenn Dana voru griðarlega vonsviknir i leikslok og
r. „ ® JiLcrna,, I siðari hálfleik. Tékkar voru einfaldlega numen of
<•