Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2004, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2004, Page 18
V 18 MÁNUDAGUR 28. JÚNÍ2004 Sport DV * Hollendingar hafa loksins náð að losa sig við vítaspyrnudrauginn sem fylgt hefur liðinu á stórmótum síðustu ára. Liðið sigraði Svía í vítaspyrnukeppni 5-4 og var það Arien Robben sem skoraði sigurmarkið eftir að Edwin van der Saar hafði varið frá Olaf Mellberg, fyrirliða Svía. Hollendingar komust á laugardaginn í undanúrslit Evrópukeppninnar eftir að hafa sigrað Svía í vítaspyrnu 5-4. Leikurinn var æsispennandi og hefði sigurinn getað fallið hvorum megin sem var í hefðbundnum leiktíma og framlengingu. f vítaspyrnukeppninni kom það í hlut fyrirliðans Olafs Mellbergs að vera skúrkur Svía, en hann lét Edwin van der Sar verja frá sér fyrstu spyrnuna í bráðabana. Arien Robben skoraði örugglega úr næstu spyrnu og tryggði Hollendingum sæti í undanúrslitum. Álögum Hollendinga í vítaspyrnukeppni hefur þar með verið létt, en liðið hefur fallið úr leik eftir vítaspyrnukeppni á síðustu fjórum stórmótum sínum Þetta var sögulegur sigur fyrir Hollendinga því loksins náöi liðið að losna undan álögunum sem hafa verið á því í vítaspyrnukeppnum síðasta áratug, en alls fjórum sinnum hafði hollenska liðið fallið úr keppni á stórmóti eftir að hafa beðið lægri hlut í vítaspyrnukeppni. Var ekkert stressaður „Þetta var stærsta stund lífs míns," sagði Robben í samtali við fjölmiðla eftir leikinn. „Þetta er rosa- lega stór keppni en ég var samt ekkert svo stressaður, frekar viss um að skora ef eitthvað var. Ég hugsaði með mér að ég myndi skora," sagði Robben og bætti við að það væri mikill léttir að vítaspyrnudraugur Hollendinga væri á bak og burt. „Loksins náum við að vinna á vítaspyrnum. Við börðumst allt til enda og vorum jákvæðir. Mér fannst við eiga sigurinn skilinn. Edwin (van der Saar) fær allt mitt hrós því hann varði góða spyrnu Mellbergs á meistaralegan hátt," sagði Robben, sem hræðist ekki Portúgala, sem Hollendingar mæta í undanúrslit- unum. „Af hverju ættum við að gera það. Við höfum verið vaxandi í keppninni og erum með bullandi sjálfstraust". Ótrúleg tilfinning Þjálfari Hollendinga, Dick Advo- caat, var einnig í sigurvímu. „Víta- spyrnukeppni er bara eins og lottó, og loksins unnum við. Það er mikill léttir og heppnin var með okkur. Andrúmsloftið í hópnum er stór- kostlegt, og aUir eru tilbúnir að fórna sér fyrir hvern annan," sagði Advocaat. Ruud van Nistelrooy, sem átti mjög góðan leik fyrir HoUendinga og skoraði úr fyrstu spyrnu liðsins í vítaspyrnukeppninni, tók í sama streng. „Þetta tók ótrúlega á taug- arnar. Ég vissi að ég myndi taka fyrstu spyrnuna og ég var ákveðinn í því að byrja á marki. Það myndi veita liðinu sjálfstraust tU að klára dæmið. Það tókst og sú tilfinning að vera kominn í undanúrslit EM er ótrúleg. Þjálfarar Svía, Lars Lagerback og Tommy Soderberg, voru mjög von- sviknir í leikslok, en gátu borið höfuðuð hátt. „Liðið stóð sig mjög vel, bæði í vörn og sókn. Við héldum einbeitingu aUan leikinn og lékum tU sigurs," sagði Soderberg. „Á síðasta heimsmeistaramóti töpuðum við á guUmarki en nú í vítaspyrnukeppni, svo að það er ljóst að við erum að bæta okkur," sagði Lagerback. Miðjumenn sænska liðsins, Freddie Ljungberg og Kim KaU- ström, gátu ekki leynt vonbrigðum sínum. „Þetta er mjög sárt. Það er ekki mikið hægt að segja," sagði Ljungberg. KaUström sagði það hræðUegt að hafa tapað á vítum. „Við fengum færin til að vinna en náðum ekki að nýta þau. Mér finnst við ekki eiga skUið að fara út úr keppninni. Mér líður hræðUega," sagði KaUström. Bæði lið fengu opin færi Leikurinn byrjaði mjög rólega og einkenndist fyrri hálfleikurinn af mikiUi taugaspennu hjá báðum liðum. Fjörið jókst hinsvegar eftir því sem leið á, og var síðasti hálftími hin besta skemmtun. Ekkert mark leit þó dagsins ljós og því varð að framlengja. I framlengingunni sáust greinUeg þreytumerki á leik- mönnum beggja Uða og var það aðeins tU að gera leikinn opnari og skemmtilegri. HoUendingar sóttu meira og freistuðu þess að skora, enda ekki hrifnir af því að fara í víta- spyrnukeppni með hliðsjón af mar- tröðum síðustu ára í slíkri keppni. Svíar voru einnig hættulegir og átm bæði Freddie Ljungberg og Henrik Larsson skot sem höfnuðu í tréverki HoUendinga. Sigurinn hefði getað faUið hvorum megin sem var en þegar yfir lauk var enn markalaust og því varð að grípa tU vítaspyrnu- keppni, og eins og áður segir var heppnin hUðhoU HoUendingum í þetta skiptið. vignir@dv.is 8-liða úrslit EM í fótbolta Svíþjóð (4) 0-0 (5) Hollland Tölfræðin: 16 Skot 23 7 Skot á mark 9 9 Varin skot markvarða 5 7 Skot innan teigs 12 5 Horn 10 28 Aukaspyrnur fengnar 32 5 Rangstöður 3 2 Gul spjöld 3 0 Rauð spjöld 0 40% Bolti innan liðs 60% MAÐUR LEIKSINS Ruud van Nistelrooy, Hollandi Strfðsdans stiginn Hollendingarfögnuðu ógurlega eftir aðpeir höfðu tryggt sér sæti í undanúrslitum EM. Hér stekkur Johnny Heitinga upp á bak þeirra Arien Robbin, þess sem skoraði sigurmarkið, Ruud van Nistelrroy og Roy Makaay Undirbúningur karlalandsliðsins í körfubolta fyrir Evrópukeppnina hófst um helgina Siqurinn gefur strákunum sjálfstraust LEIKIRNIR GEGN BELGUM 1. leikur Ísland-Belgfa 78-88 Fráköstln: 33-31 Tapaðir boltar: 26-19 Flest stig: Arnar Freyr Jónsson 13 Flest fráköst: Sigurður Þorvalds. 6 Flestar stoðsendingar: Arnar Freyr Jónsson, Páll Axel Vilbergsson, Páll Kristinsson, allir 3. 2. leikur Island-Belgfa 74-78 Fráköstin: 45-31 Tapaöir boltar: 30-23 Fleststlg: Helgi már Magnússon 16 Flest ffáköst: Hlynur Bærings. 10 Flestar stoösendingar: Hlynur Bæringsson 7. 3. leikur Ísland-Belgía 77-76 Fráköstin: 44-40 Tapaðlr boltar: 20-16 Flest stig: Hlynur Bæringsson 23 Flest fráköst: Hlynur Bæringsson 14 Flestar stoðsendingar: Magnús Þór Gunnarsson, Fannar Ólafsson, 4 íslenska karlalandsliðið í körfubolta vann einn af þrem- ur vináttulandsleikjum sínum gegn Belgum um helgina. Það var fyrirliðinn Pálf Axel Vil- bergsson sem tryggði sigurinn í síð- asta leiknum sem fram fór í Stykkis- hólmi með þriggja stiga körfú um leið og leiktíminn rann út. íslensku strákarnir fögnuðu sigri en eiga mik- ið verk fyrir höndum að vera tilbún- ir fyrir alvöruna í haust. Sigurinn gefur þó strákunum sjálfstraust fyrir framhaldið. Breyttur leikstíll Það voru jákvæðir hluti í leik liðs- ins. íslenska landsliðið sýndi betri spifamennsku með hverjum leik, aUt frá því að spila mjög Ula í fýrri hálf- leik á fyrsta leiknum í að spila tU sig- urs í seinni háifleik á þriðja feiknum. Belgíska liðið telfdi ekki fram sínu sterkasta fiði frekar en það íslenska þó að fleiri lykUmenn hafi vantað hjá Belgunum. Belgía er hinsvegar Á- þjóð og ísland hafði ekki unnið þjóðina í 17 ár þannig að sigurinn í síðasta leiknum var mjög mikUvæg- ur fýrir framhaldið ekki síst þar sem íslenska liðið var svo nálægt sigri í öðrum leiknum. Þetta voru fýrstu alvöru lands- leikirnir undir stjórn Sigurðar Ingi- mundarsonar og hann er að breyta mikið leikstfi landsliðsins frá þeim leik sem liðið spUaði undir stjórn fýrirrennara hans, Friðriks Inga Rúnarssonar. Liðið spUar nú harðan og grimman varnaleik og beitir pressuvörn og reynir að halda hrað- anum uppi í sókninni. Vörnin var lengstum góð í öUum leikjunum þremur en sóknarleikurinn var mis- tækur og misjafti. Leikstjórn liðsins var ekki nægUega góð oghittni skytt- anna var ekki upp á það besta þó að síðasti leikurinn hafi verið mun skárri hjá þeim en þeir tveir fyrstu. Vítanýting íslenska liðsins var mjög slök, það er ekki nóg með að ís- lenska liðið klUckaði á tæknivítum þá nýttust aðeins 58,6% vítanna í þess- um þremur leikjum og aUs fóru 36 víti forgörðum eða 12 að meðaltali í leUc. Mikið verk fyrir höndum Hlynur Bæringsson var maður helgarinnar, hann leiddi íslenska liðið í stigum, fráköstum og stoð- sendingum í þessum þremur leikj- um og nýtti 60% þriggja stiga skota sinna. Það er ekki nóg með að hann smitaði út frá sér með ótrúlegum karakter og miklum sigurvUja þá var hann að leiða sóknarleUc íslenska liðsins. Það er ljóst á þessum leikjum að Sigurður Ingimundarson á mikið verk fyrir höndum að bæta leik liðs- ins fýrir leUcina í Evrópukeppninni í haust en að sama skapi sýndi liðið framfarir og ef þeir halda áfram að bæta sig í þeim vináttulandsleikjum sem verða spUaðir fram að alvöru leikjunum er engin ástæða tU að vera svartsýnn. Sigurður er að búa til nýtt hð sem nýjar áherslur og þess vegna eru þessir fjölmörgu vináttu- landsleikir sumarsins guUs ígUdi. ooj@dv.is V

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.