Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2004, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2004, Síða 4
4 MÁNUDAGUR 12. JÚLÍ2004 Fréttir DV Ragnheiður ók á rollu Sá óvenjulegi atburður varð í Dýrafirði um helgina að forvarnarfulltrúi trygg- ingafélagsins VÍS ók á rollu. Ragnheiður Davíðsdóttir, sem beitt hefur sér mjög í slysavörnum fyrir VÍS og umferðaröryggismálum al- mennt, var að flýta sér að ná í flugvél á ísafirði þegar rolla hljóp í veg fýrir bifreið hennar með þeim afleið- ingum sem fyrr greindi. Mun þetta vera í fyrsta sinn sem forvarnarfulltrúi trygg- ingafélags ekur á búfénað á landsbyggðinni. Litlar skemmdir urðu á bifreið Ragnheiðar en rollan drapst. Banaslys í Mosfellsbæ Karlmaður um tvítugt lét Kfið í bílslysi á Vest- urlandsvegi í Mosfellsbæ í fyrrinótt. Slysið varð við hringtorgið við Varmá. Virðist maðurinn hafa misst stjórn á bflnum með þeim afleiðingum að bíllinn hentist út af veginum, steyptist niður undirgöng og hafnaði á göngustíg. Maðurinn kastaðist út úr bflnum og var mjög mikið slasaður þegar að var komið. Hann var úrskurðaður látinn eftir komuna á slysadeild Landspítalans. TÚdrög slyssins eru ókunn en lögregla rann- sakar málið. Ekki er hægt að greina frá nafiii hins látna að svo stöddu. Hannesog Hárið Hannes Hólmsteinn Gissurarson hélt partí á heimili sínu eftir frumsýningu söngleiksins Hársins á föstu- dagskvöldið. Meðal gesta í samkvæmi Hannesar voru Rúnar Freyr Gíslason, leikstjóri verksins, og ftú hans. Gísli Marteinn Baldursson, sjónvarpsstjar- na og frú hans, Sigurður Kári Kristjánsson alþingis- maður og frú hans auk fleiri hsta -og skemmti- krafta úr Sjálfstæðisflokkn- um. Hátt í 20 íslendingar hafa lagt út stórfé til þess að leysa út arf í Þýskalandi. Kristinn Gunnarsson, fyrrum forstjóri og varaþingmaður, lofaði fyrir tveimur árum margföld- um hagnaði þeim sem legðu fjármagn í „risalottó“. Enginn hefur fengið krónu til baka. Áttræöur forsQóri ílækti tugi í svikamyllu Forstjóri á eftirlaunum hefur fengið fjölda þekktra íslendinga til að leggja stórfé í fjárfestingu til að leysa út arf sem hann sagði að sér hefði tæmst í Þýskalandi. Forstjórinn, sem er rúmlega átt- ræður, lofaði þeim sem lögðu fé af mörkum að þeir myndu fá allt að áttfaldan hagnað af fjárfestingunni. Nú, tveimur árum síðar bólar ekkert á peningunum og margir hafa afskrifað fjármuni sína. Forstjórinn, Kristinn Gunnarsson, er þekktur fyrir að hafa verið vara- þingmaður Alþýðuflokksins á árun- um 1953 til 1956. Hann sat um tíma á Alþingi en tók aldrei til máls. Hann sat í bæjarstjórn Hafnarfjarðar og var um skeið forseti Bæjarstjórnar. Krist- inn var þekktur innan sjávarútvegsins fyrir að hafa umboð fyrir Atlas-fiski- leitartæki á árum áður. Um tíma var hann forstjóri Bæjarútgerðar Hafnar- fjarðar. Fyrir rúmum tveimur árum hóf forstjórinn áttræði að safna pening- um á meðal útgerðarmanna undir þeim formerkjum að honum hefði tæmst arfur frá vini sínum, auðjöfri í Þýskalandi. Kristinn útskýrði íyrir mönnum að hann þyrfti að fá fyrir erfðafjárskatti áður en hann næði að leysa út arfinn. Hann lýsti því þannig að örstutt væri í að arfurinn, sem fólst í skipasmíða- stöð og fasteignum henni tengdri, losnaði og menn yrðu rfkir. Þessu til sönnunar sýndi hann pappíra um viðkomandi fasteignir. Kristinn hefur á sér gott orðspor og menn treystu honum gjaman án þess að spyrja um smáatriði. Þess vegna voru margir fúsir til þess að leggja fram fé í von um ofsagróða. Sam- kvæmt frásögn Kristins átti hann í vændum hundruð mflljóna frá þess- um vini sínum, en þurfti fyrst að greiða lögffæðikostnað. Allt að 20 manns lögðu fram fjármuni í þessu skyni og tóku sumir bankalán til að standa straum af útgjöldunum. Nú, tveimur árum eftir að Kristinn tók að safna peningum til að leysa út arfinn bólar ekkert á endurgreiðslu. DV hefúr rætt við marga þeirra sem létu glepjast en þeir vilja ekki segja sögu sína opin- berlega af skömm yfir því. „Ég fjárfesti í góðri trú enda kemur maðurinn vel fyrir. Hann sagði mér að einungis myndu líða nokkrir dagar áður en ég fengi áttfaldan hagnað. Ég hef afskrif- að peningana rnína," segir eitt fómar- lambanna sem telur að dæmi séu um að einstaklingar hafi lagt yfir fimm milljónir króna í púkkið. Á meðal fjár- festanna sem lögðu Kristni til fé gekk fj árfestingarævintýrið undir nafninu „Risalottóið" og menn göntuðust gjaman með að stutt væri í það. Þeim gamanmálum hefur nú linnt enda enginn lottóvinningur þrátt fýrir að tugir milljóna króna hafi farið um hendur Kristins. Sumir heimildar- manna telja að hann hafi náð á annað hundrað milljónum. Svikabanki á Mön Flestir þeirra em sannfærðir um að Kristinn hafi látið blekkjast af afrískri svikamyllu. Hann er sagður hafa lagt trúnað á að hann væri að gera viðskipti í gegnum banka á net- inu sem væri á eyjunni Mön í írlands- hafi. Sá banki átti að heita Express Tmst Bank og hafa veffangið express- bankonline.com. Sá banki hefur aldrei verið til og finnst hvergi í dag. Fjármálaeftirlit eyjunnar Manar gaf í tvígang út sérstaka viðvömn í fyrra þar sem fram kom að bankinn sem nefndur var sé hvergi til á skrá. „Ex- press Trust Bank" finnst hvergi í fyrir- tækjaskrá eyjunnar Manar. Þá segir fjármálaeftirlitið að sá sem er skráður forráðamaður Express Bank Tmst, Dr Fred N. Douglas, sé ekki til í þeirra skrám og enginn af þeim titlum sem hann skreyti sig, fái staðist. Sömu sögu er að segja af öðr- um skráðum forráðamanni Patrick Piers Toilet, sem er skreyttur með fögmm titlum. Þar kemur ffarn að sá sem sé skráður fyrir vefsíðunni, sé skráður í Kalifomíu. Fjármálaeftirlitið á Mön skorar á fólk að gæta ítr- ustu varúðar í samskiptum við þá sem koma fram í nafrii Express Tmst Bank. Þeir sem hafa þegar greitt peninga til þessa svika- banka em hvattir til að hafa tafar- laust sam- band við lögreglu. Lögregl- an í málið DV náði sambandi við Kristin Gunnars- son í gær til að inna hann eftir arfinum en hann brást ókvæða við. „Ég hef ekkert við þig að tala,“ sagði hann og sleit sam talinu. DV hefur heimildir fyrir því að lögreglan í Reyk- javflc hafi komist á snoðir um málið og reynt að stöðva það í vetur. Athygli efna- hagsbrotadeildar Rfldslögreglustjóra hefur einnig verið vakin á málinu og hvort menn hafi verið sviknir í við- skiptum. Heimildir DV herma að Kristinn hafi farið í fjölmargar utanlandsferðir ásamt helstu fjárfestunum en ekkert bóli á arfi þýska auðjöfurs- ins og fjöldi manns eigi um sárt að binda. Meðal þeirra em útgerðar- menn, forstjórar og bankastjórar sem trúðu Kristni. kgb@dv.is rt@dv.is Kristinn Gunnarsson Lýsti því aö hann hværi einkaerfingi auðjöfurs í Þýskalandi. Hann vantaði aðeins peninga til að areiða erfðafjárskatt og lögfræðikostnað. Margir létu glepjast og hafa uppgötvað mistökin; tveimur árum ofseint. Ættarmótið ógurlega Það byrjaði allt að fara úrskeiðis eftir forréttinn. Þá var hringt á hér- aðslækninn. Svarthöfði var á ættar- móti. Fjölskylduhátíð í sveitinni. Trikkið við að fara á ættarmót er að fara ekki þegar manns eigin ætt er með samkomur. Staðan er strax þolanlegri þegar maður er bara tengdur inn í viðkomandi familíu. „Ert þú úr Breiðdal?" spyr staðar- haldarinn á Ytri-Útnára þegar rak- etta hefur kveikt í fyrstu heyrúllunni. Þá er gott að geta sagt: „Nei ég er bara tengdur inn í ættina; ég er Svarthöfði." Forsmekkurinn var súpukekkir í & Svarthöfði skálum. Þá byrjaði ballið. Fyrsta fórnarlamb ættarmótsins var borið í salinn. Lítill snáði hafði skriðið upp á háloft og lotið í lægra haldi fyrir þyngdarlögmálininu. Lá æpandi á parketinu og tmflaði félagsvist eldri ættingjanna sem var nýhafin. Hringt var á sjúkrabíl til að hægt væri að halda spilinu áfram. Úti á túni heyrðist neyðaróp um svipað leyti og mexíkósku kótelett- urnar voru að verða tilbúnar á grill- Hvernig hefur þú það „Ég hefþað bara mjög fínt."segir Jón Jósep Snæbjörnsson söngvari. „Fyrirþað fyrsta er æðislegt veður og hljómsveitin mín, f svörtum fötum, var að spila f Njálsbúð á ekta sveitaballi og það eru tvær mjög vel heppnaðar sýningar afFame afstaðnar. Nú er ég bara að dóla mér með eiginkonu minni og vinum á Suðurlandi í rjómablfðu. Þannig að þetta er eins og bestverðurákosið." inu. Stebbi frændi hafði handleggs- brotið móður sína. Hélt að hann væri að ná í sprek í bálköstinn. „Ég hélt að þetta væri trjágrein," sagði Stebbi frændi þegar hann var spurður hvers vegna hann hefði handleggsbrotið móður sína. Hann var nýkominn af Vogi og lofaði að fara þangað aftur. Sjúkrabfllinn með strákinn var ekki farinn þannig að hægt var að koma móður Stebba með. Það þótti Svarthöfða lán í óláni lflet og honum þótti það lán í óláni að vera ekki af sömu ætt og eigin- konan. Grillið vJL gekk svo sem áta- kalaust fyrir sig. Þar til fólk fór að henda kótelettun- um ofan í heita pottinn. Þeim var grýtt til baka af miklmn krafti og brotnuðu við það nokkrar rúður í sumarhús- inu. Ein kótelettan var svo heit að hún kveikti í gardínunum og sumar- hús fjölskyldu konunnar var rjúk- andi rúst skömmu fyrir miðnætti. Þá var Svarthöfði löngu lagstur til hvflu í skátatjaldinu sínu. Það síðasta sem hann heyrði áður en hann hvarf inn í draumaheiminn var hljóðið í þyrlu Landhelgisgæslunnar sem sveimaði yfir mótstaðnum. „Er læknir um borð;" hrópaði einhver í ljósaskipt- unum. Þá sofnaði Svarthöfði. Svarthöfði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.