Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2004, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2004, Side 6
6 MÁNUDAGUR 12.JÚLÍ2004 Fréttir DV Stúlka hjólar fyrir bíl Ekið var á stúlku á hjóli á Hofsvallagötunni á laug- ardaginn. Stúlkan snerist í loftinu og lenti um þrjá metra frá bílnum. Hjólið endaði hinum megin við götuna. Kona á þrítugsaldri steig út úr bílnum og hélt utan um litlu stúlkuna á miðri götunni. Vegfarend- um var brugðið og vinkona stúlkunnar grét. Tveir lög- reglubílar lokuðu götunni á meðan sjúkraflutninga- menn breiddu teppi yfir stúlkuna sem var í losti en með meðvitund. Hún kvartaði undan eymslum í hálsi og baki og baðst af- sökunar á að hafa hjólað of hratt. Fjölnir sigraði á Landsmóti Skákdeild Fjölnis sigraði á skákmótinu á Landsmóti U.M.F.Í. og náði sínum fyrsta titli aðeins sex vikum eftir stofnun. Tómas Björnsson náði 8 >/2 vinningi úr níu skákum. Ró- bert Harðarson hlaut 71 /2 vinning af 9 og Bjarni Hjartarson og Ingvar Ásbjörns- son, 13 ára nemi úr Rimaskóla, voru með 4 sigra í 7 skákum. Hrafn Jökuls- son tefldi fjórar skákir á föstudeginum, sigraði þrisvar og gerði eitt jafnt- tefli. Efstir á mótinu voru Fjölnismenn með 27 vinn- inga af 36 mögulegum. (HSK) Skarphéðinn var í öðru sæti með 25 vinninga. Njóta nýbúar sannmœlis á Islandi? Georg Lárusson forstjóri Útlendingastofnunar Það hljóp heldur betur á snærið hjá trúbadornum Bjarna Tryggva þar sem hann var að spila á Dubliner í Hafnarstræti á fimmtudagskvöldið. Þar gekk inn hópur rússneskra auðkýfinga sem hreifst svo mjög af tónlistarflutningi Bjarna að honum var kippt upp í einkaþotu þeirra og flogið með hann á tónlistarhátíð á írlandi. Þar er hann enn. Rússneskir auðkýtingar keyptu íslenskan trúbador i Hafnarstræti Hann þurfti að klípa sig í handlegginn. Trúbadorinn Bjarni Tryggva var að spila á írsku kránni Dubliner í Hafnarstræti þeg- ar ijórir rússneskir auðmenn gengu þar inn. Höfðu verið í viku- ferð um landið og langaði til að heyra lifandi tónlist í Reykjavík. Dubliner varð fyrir valinu og þar sat Bjarni Tryggva á kolli sínum með gítar og söng. Úti á flugvelli beið einkaþota nýríku Rússana. Það skipti engum togum að Rúss- arnir urðu svo hrifnir af söng og spili Bjarna Tryggva að þeir tóku hann með sér í einkaþotuna þegar þeir héldu cif landi brott seinna um kvöldið: „Hvað kostar þú? Hvað viltu mikið?" hrópuðu þeir yfir bargólfið til Bjarna sem svaraði með tvö þús- und dollurum. Þar með voru við- skiptin gerð. Þetta var á fimmtudag- inn. Það var syrpa með þekktustu lög- um Pink Floyd í flutningi Bjarna Tryggva sem gerði útslagið. Sérstak- lega þegar „Wish You Were Here“ hljómaði um krána í Hafnarstræti. Þá ærðust Rússamir í fögnuði og vildu hreinlega slá eign sinni á ísl- enska trúbadorinn, menntaða neta- gerðarmanninn að austan. Nýríku Rússamir flugu með ísl- enska trúbadorinn til Dublin þar sem þeir ætluðu á Oxygen-tónlistar- hátíðina þar sem U2 og Bono vom aðalnúmerin. Ekki svo að skilja að rússnesku auðmennirnir æduðu að koma Bjarna Tryggva þar á svið. Þeir vildu bara hafa hann með til að leika fyrir sig í þotunni og svo í veislum sem þeir ráðgerðu að halda á tónlist- arhátíðinni. Rússarnir vom fjórir saman á ferð og með þeim eiginkona eins þeirra. Heimsóknin á Dubliner var loka- hnykkurinn í sjö daga ferð um ís- land. Leiðsögumennirnir sem fylgdu þeim em enn að ná sér eftir ferðina en aldrei fyrr hefur sést annars eins viðbúnaður og flottheit í jafn stuttu ferðalagi hér á landi. Rússamir fóm til Vestmannaeyja og út í Bjarnarey. Þeir fóm á Vatnajökul og gistu í tjald- búðum sem þar var slegið upp með salemum og sturtum Þá fóm þeir í Skagafjörðinn, í flúðasiglingu og á hestbak, og svo var flogið á Búðir á Snæfellsnesi þar sem snæddur var hádegisverður. Um kvöldið var það svo Dubliner og þar hófst lífsævintýri trúbadorsins Bjarna Tryggva. Rússarnir sem hér um ræðir em ekki af þeirri gömlu gerð sem drekk- ur flösku af vodka á dag og lætur slag standa. Að sögn þeirra sem til sáu vom Rússarnir mjög vel á sig komn- ir, stunduðu ísklifur á Vatnajökli og kunnu góð skil á flestum íþrótta- greinum. Þeir vildu eingöngu snæða hollan mat og þá helst af lífrænum toga. Áfengi umgengust þeir sem listform. Nýríku Rússarnir eru hluti af stómm hópi milljarðamæringa í Moskvu en hvergi í heiminum munu jafn margir miUjarðamæringar vera búsettir og einmitt þar. Um það var einmitt fjaUað í rússnesku útgáfunni af fjármálatímaritinu Forbes en rit- stjóri blaðsins var sem kunnugt er myrtur fýrir utan ritstjórnarskrifstof- ur blaðsins á föstudaginn. Þotan sem Rússarnir komu í hingað tU lands og lenti á ReykjavíkurflugveUi mun vera sú stærsta og glæsUegasta sem þar hefur lent; í raun fljúgandi höU með öUum þægindum. Bjarni Tryggva hafði samband við kunningja sína hér heima á ís- landi síðdegis í gær og var í skýjun- um. Sagðist aldrei hafa lent í öðru eins og var að búa sig undir veislu kvöldsins þar sem hann átti að vera aðaltromp rússnesku auðkýfing- anna í VlP-partíi Oxygen-tónlistar- hátíðarinnar. Bjarni Tryggva hefur víða farið með tónlist sína og kom fyrst fram í kjölfar Bubba Morthens. Að mati tónlistarfræðinga hafði Bubbi betur með góðum melódíum en Bjarni Tryggva var ekki með síðri texta og þarf þá töluvert tíl. Bjarni Tryggva hefur á undaförnum árum verið tU sjós og var nýbúinn að taka gítarinn úr skápnum á ný þegar nýríku Rúss- arnir komu honum í opna skjöldu á kránni í Hafnar- stræti á fimmtu- dagskvöldið. BjarmTryggva trúbador Vissiekki hvaöan á sig stóð veðrið þegar rúss- nesku auðmennirnir gengu inn á krána og vildu fá hann með til Irlands. Vatnajökull Þar slógu Rússarnir upp tjaldþorpi með sturt- um og salernum. Dubliner i Hafnar- stræti Á dauða sínum átti Bjarni Tryggva von en ekki þvi að rússneskir auð- kýfingar kæmu þar inn og byðu honum gull og græna skóga. Skagafjörður Flúðasigling og útreiðar. Vatnajökull Heil tjaldborg reist með salernum og steypiböðum. o Snæfells- nes Hádeg- isverður á Búðum. Til Dublin Með Bjarna Tryggva og gitarinn hans um borð. Reykjavfk Hér lenti glæsilegasta einkaþota sem sést hefur á Reykja- víkurflugvelli og héðan fór hún viku siðar. Heimsóknin f Dubliner var hrein tilviljun. Vestmannaeyjar Rússarnirfóru út i Bjarnarey og reyndu meðsér í Iþróttum og lífsleikni. Já, að flestu leyti að mínu mati, en þó þyrftum við að standa okkur beturí íslensku- kennslu til handa þeim. Hann segir / Hún segir Nei, það finnst mér alls ekki. Mér fmnst ennþá bera mikið á fáfræði um þeirra hagi. Nýbú- ar eru fólk sem hafa öll slna sögu og slna menningu sem Islendingar eru alls ekki nógu opnirfyrir. Valgerður Matthíasdóttir arkitekt Fingralangur faðir Skeljagrandabræða staðinn að verki í Hagkaupum Flóttabíll Sívars bilaði á ögurstundu Sívar Sturla Bragason, faðir Skeljagrandabræðranna, sem eru margdæmdir og landsþekktir of- beldismenn og þjófar, var staðinn að verki í yfir utan verslun Hag- kaupa í Skeifunni á laugardag. Sívar hafði gerst fingralangur í versluninni og fyllt þar plastpoka af aUs kyns DVD-diskum og geisla- diskum. Hann lét það ekki aftra sér þótt þjófabjöllur hringdu þegar hann yfirgaf verslunina með nokkra starfsmenn á hælunum út á bílaplan. Þar beið hans að sögn flóttabill. Vinkona Sívars var við stýrið. Samkvæmt heimildum DV stóð bíllinn á sér og komst parið því hvorki lönd né strönd. Lögreglan í Reykjavík kom skömmu síðar á staðinn og voru Sívar og konan handtekin. Þýfið var tekið af þeim en í pokanum voru DVD-diskar og geisladiskar að verðmæti um 50 þúsund króna. Sívari og konunni var sleppt að lokinni yfirheyrslu og telst málið upplýst. Sívar á baki langan saka- feril, hefur oftsinnis hlotið dóma fyrir líkamsárásir, þjófnaði, hótan- ir, fjársvik, rán, skjalafals og fíkni- efnabrot. Síðast var hann dæmdur árið 2002 fyrir að stela videóspól- um á myndbandaleigu og áfengis- pela í ríldnu. Hagkaup í Skeifunni Flóttabíll Slvars Sturlu Bragasonar fékkst ekki I gang þegar Slvar stökk út úr Hagkaupum undir glymj- andi þjófavarnarflautum með plastpoka fullan afþýfi og hugðist forða sér með lags- konu sinni sem sat undir stýri og beið þess albúin aö aka á vit frelsins með fenginn illa. Skeljagrandabróðir Stefán Logi Slvarsson er fastagestur I Héraðsdómi Reykjavíkur vegna lík- amsrárása og þjófnaða. Faðir Stefáns er einnig liðtækur glæpamaður og dæmdursem slíkur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.