Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2004, Síða 12
12 MÁNUDACUR 12. JÚLÍ2004
Fréttir DV
Tekur ekki
mark á úr-
skurði
Forsætisráðherra ísra-
els, Ariel Sharon, tekur ekki
mark á úrskurði Alþjóða
dómstólsins um að aðskiln-
aðarveggurinn á Vestur-
bakkanum sé ólöglegur.
Sharon segir úrskurðinn
einhliða og litaðan af póli-
tík. Kofi Annan, aðalritari
Sameinuðu þjóðanna,
hvetur ísraelsmenn til að
fylgja alþjóðalögum og
hlíta úrskurðinum sem
væri að sínu viti afar skýr.
ísraelsmenn væru og
ábyrgir fyrir velferð palest-
ínsku þjóðarinnar. Ur-
skurður Alþjóða dómstóls-
ins verður tekinn fyrir á
allsherjarþingi Sameinuðu
þjóðanna á næstunni.
Ákærð fyrir
kynferðisbrot
Lynndie England, sem
komst í heimsfréttirnar
þegar myndir birtust af
henni þar sem
hún niðurlægði
og tók þátt í pynt-
ingum á íröksk-
um föngum, hef-
ur nú verið ákærð
fyrir kynferðisbrot og fyrir
að hafa grófar klámmyndir
í fórum sínum. Kynferðis-
brotin kváðu ekki tengjast
meintum glæpum Eng-
lands á föngunum í Abu
Ghraib í Bagdad. Hún situr
nú í varðhaldi í Bandaríkj-
unum ásamt fjórum kolleg-
um sínum sem hafa verið
ákærðir fyrir misþyrmingar
á föngum. Einn samstarfs-
maður Englands hefur þeg-
ar verið dæmdur í ársfang-
elsi eftir að játað á sig pynt-
ingar. England á von á
barni með yfirmanni sín-
um, Charles Graner, en
hann hefur einnig verið
ákærður í pyntingarmálinu.
„Hér er mikil og góð stemn-
ing eins og alltaf. Veörið hefur
leikið við okkurog aðsóknin
verið mjög góö það sem afer
sumri/'segir Helgi Svein-
björnsson í Dýragarðinum i
Slakka í Biskupstungum.„Ég
er hættur í garðyrkjunnni og
hefbreytt gróðurhúsunum í
350 fermetra púttvöll og 250
fermetra minigolfvöll og svo
erum við með 60 fermetra
leikherberqi þar sem meðal
Landsíminn
er ■■TMnrTMI—I
hægt að spila biljarð. Nú ætl-
um við að hafa opið allt árið
og höfum opnað veitingasölu
þar sem fólk getur fengið sér
að borða og drukkið léttvín
og bjór. Því miður erum við
ekki með nein lömb I sumar
vegna riöuveiki en páfagauk-
arnir, kettlingar og hvolpar
vekja mesta aðdáun ungu
kynslóðarinnar."
Félög og atburðir á landsbyggðinni geta fengið styrk úr ríkissjóði með tilstilli
Byggðastofnunar. Seinast styrkti stofnunin eilífðarvél, fasanaeldi og gervihnatta-
sjónvarp á Raufarhöfn.
Bjartsýnisfólk á Husavík
styrkl aí Byggðastofnun
Dægurlagakeppni Kvenfélags Sauðárkróks var einn af þeim við-
burðum sem Byggðastofnun veitti beinan styrk úr ríkissjóði á
síðasta ári, en keppnin fékk 200 þúsund úr vasa stofnunarinnar.
Byggðastofnun, sem er einmitt á Sauðárkróki, veitti fjölda verk-
efna styrki á síðasta ári og nam kostnaðurinn við styrkveiting-
arnar 27 milljónum króna.
Meðal þess sem Byggðastofnun
styrkti í fyrra var Bjartsýnisfélagið
Verðandi á Húsavík og Skagfirskir
rósavettlingar í Árborg, samkvæmt
ársskýrslu stofnunarinnar fyrir 2003.
Bjartsýnisfélagið Verðandi er
ekki finnanlegt í símaskrá. Aðspurð-
ur um félagið segir Aðalsteinn Þor-
steinsson, forstjóri Byggðastofnun-
ar, segir að félagið sé eins og nafnið
gefur til kynna: „Þetta er einhver fé-
lagsskapur sem hefur verið settur á
fót til að skapa jákvæða umfjöllun
um Þingeyjarsýslur og innan þeirra.
Honum er ætlað að vekja athygli að
því sem vel er gert innan Þingeyjar-
sýslna," segir hann.
Bjartsýnisfélagið stendur meðal
annars fyrir kjöri á 12 „görpum“ í
Þingeyjarsveit, það er Þingeyingum
sem standa sig vel með einum eða
öðrum hætti á einhverju sviði. Fé-
lagið fékk 150 þúsund í rekstrar-
kostnað af starfsemi þess frá
Byggðastofnun, rétt eins og í hitteð-
fýrra. „Margt af því sem við styrkjum
nú höfum við styrkt í mörg ár,“ segir
Aðalsteinn.
„Þetta er einhver félagsskapur sem hefur verið
settur á fót að skapa jákvæða umfjöllun um
Þingeyjarsýslur og innan þeirra
Athygli vekur að Byggðastofnun
styrkir nú fjölda héraðsfréttablaða
um land allt. Vikudagur á Akureyri,
Skarpur á Húsavík, Feykir í Skaga-
firði og Bæjarpósturinn á Dalvík
fengu öll 200 þúsund krónur. Þá fóru
200 þúsund í rekstur fjölmiðlasam-
steypunnar Eyjasýnar í Vestmanna-
eyjum sem rekur sjónvarpsstöð,
fréttablað og vefmiðil.
Dalabyggð fékk 500 þúsund til að
kaupa ffamleiðslufyrirtæki, Reyk-
dælahreppur fékk 150 þúsund í
„Fluming fyrirtækis frá Reykjavík til
Þingeyjarsveitar" og 400 þúsund
fóru í sérstakt verkefni um Vestfirði
á miðöldum. Auk þess styrkti
Byggðastofnun endurhæfingu ör-
yrkja á Húsavík.
Nokkuð hefur dregið úr beinum
styrkveitingum síðustu ár. í fyrra
voru þær 44 milljónir en nú 27 millj-
ónir. Aðalsteinn segir að markvisst
sé dregið úr styrkveitingum: „Það
hefur verið tap á rekstri þessarar
stofnunar og þess vegna er h'tið svig-
rúm. Svo vilja menn líka staldra við
og íhuga hverju þetta hefur verið að
skila að styrkja svona,“ segir hann,
en tekur fram að margt merkilegt
verkefnið hljóti styrk frá stofnun-
inni.
í fyrra styrkti stofnunin fasana-
eldi á Austur-Héraði um hálfa millj-
ón og frumgerð svokallaðrar „orku-
slár“, sem er vél er framleiðir raf-
magn með þyngd-
araflinu einu
saman. Ekkert
varð af eilífð-
arvéhnni þar j
sem höfundur t
hennar, Sigurð-
ur Sigþórsson
frá Austur-Hér-
aði, lést frá
smíði hennar.
jontrausti@dv.is
1}
4L
i
________m
Aðalsteinn Þorsteinsson For-
stióri Byggðastofnunar segir ao
markvisst hafi verið dregið ur styrk-
veitingum Byggðastofnunar vegna
halla á rekstri hennar.
Örn Báröur Jónsson sóknarprestur var harðorður í prédikun sinni í gær
Jón Steinar ekki með hreina samvisku
„Enginn - ég endurtek, enginn! -
er með hreina samvisku [...] ekki
einu sinni Jón Steinar," sagði örn
Bárður Jónsson sóknarprestur í Nes-
kirkju í predikun sinni í gær.
Davíð Oddsson hefur sagt í
tengslum við fjölmiðlafrumvarpið
að enginn vandi væri að fá vitlaus
lögfræðiálit - eins og það sem Eirík-
ur Tómasson háskólaprófessor lagði
fyrir allsherjarnefhd Alþingis. Jón
Steinar Gunnlaugsson hæstaréttarl-
ögmaður tók undir orð Davíðs en
sagðist aldrei hafa sjálfur blandað
eigin skoðunun við lögfræðiálit sín.
Því er Örn Bárður ekki sammála.
„Það er einfaldlega ekki hægt,“
segir Örn. „Hans lögfræðilegu niður-
stöður eru alltaf htaðar af honum
sjálfum. Það kemur nefnilega eng-
inn að neinu máh eins og óskrifað
blað. Þú ert sjálfur með þínar for-
sendur hvort sem það eru ráðherrar,
prófessorar eða prestar eins og ég.“
í predikun sinni minntist Örn
Bárður sérstaklega á vígslubisk-
upinn, Séra Bjarna Jónsson, sem að
sögn Arnar hvatti fólk til að setja á
kjörseðilinn, D fyrir Drottinn. „Eng-
inn prestur hefur líklega verið jafii
pólitískur og Bjarni Jónsson," segir
örn Bárður í prédikuninni. „Slíkt
mundi ég aldrei gera.“
Örn Bárður segir að nýleg könn-
un Fréttablaðsins á fýlgi flokkanna
sýni að þeir séu ekki á réttri braut.
Davíð Oddsson gerði lítið úr mót-
mælum sem örn Bárður stóð meðal
annars fyrir og um tvö þúsund
manns mættu á. Sagði Davíð þessar
nokkur hundruð hræður ekki segja
honum mikið miðað við þau þrjátíu
þúsund sem skiluðu auðu í forseta-
kosningunum.
„Miðað við könnun Fréttablaðsins
sýnist mér að okkar skoðun rými bet-
ur við hjörtu fólksins,“ segir Örn
Bárður. „Nú er mál að hnni; að menn
hætti við þetta nýja frumvarp og leyfi
okkur að kjósa um hið gamla. Stjóm-
arskráin er kristaltær í þessu efni.“
simon@dv.is