Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2004, Qupperneq 15
DV Fréttir
MÁNUDAGUR 12. JÚLÍ2004 15
Dansað um
alla Norður-
Ameríku
Þessa dagana óma
trumbur, bjöllur, skelja-
sláttur og söngur um
gjörvalla Norður-Ameríku.
Afkomendur frumbyggja
álfunnar halda nú flestir
trúar- og danshátíðir «
sínar, powwow. Þar
bera þeir klæði að
hætti forfeðra
sinna og þakka
skaparanum
hringrás lífsins,
uppskeru og frjó-
semi með dansi, söng og
hljóðfæraslætti. Hátíðirnar
eru misstórar og umfangs-
miklar, sums staðar fara
þær fram í leikfimisölum
framhaldsskóla, annars
staðar safnast margar ættir
saman í menningarmið-
stöðvum þjóða sinna.
Annars væri
12. kvintillis
ídag
Þrátt fyrir tvær
miklar leiðréttingar
á tímatali okkar í
Vesturheimi síðan
Júlíus Sesar var og
hét telja menn nú
víst að kappinn hafi
fæðst 12. júlí fyrir 2104
árum. Þá var þessi
mánuður sá fimmti á árinu
og hét það bara. Þegar Ses-
ar varð allsráðandi í Róma-
veldi lét hann taka til í
tímatalinu sem eftir það
kallast júh'anska tímatalið.
Það var svo leiðrétt nær
okkur í tíma og rúmi og
heitir gregoríanska tíma-
talið. Eftir að óvildarmenn
Sesars höfðu unnið á hon-
um, var nafrii fæðingar-
mánaðar hans breytt og
fimmti mánuðurinn varð
að júlímánuði honum til
heiðurs.
Með sex
vinstri fætur
Þegar býflugur hafa
fundið fjársjóð af frjódufti
eða öðru matarkyns fljúga
þær heim í bú eftir aðstoð.
Sumar vita hvar mestar
matarbirgðir búsins eru
geymdar. Þær stíga þá dans
til að koma leiðarlýsingu
áleiðs. En það er eins með
býflugumar og
mennina, ekki
fæðast allir dans-
snillingar. Nýjar
rannsóknir sýna
að sumar býflug-
ur eru svo kloss-
aðar og lftt færar í
danslistinni að matur týnist
í búinu og ffjóduftsleið-
angrar lenda í villum. Sér-
fræðingar segja sumar bý-
flugnanna svo slæma dans-
ara að engu sé líkara en þær
hafi fæðst með sex vinstri
fætur í stað þriggja.
Páfi skilar
guðsmóður
Páfinn ætlar að skila
ómetanlegri, rúss-
neskri helgimynd frá
16. öld, Guðsmóður
frá Kazan, til rúss-
nesku réttrúnaðar-
kirkjunnar. Hún hefur
hangið í Vatíkaninu í
nokkur ár en talið er
að með því að skila Rússum
Guðsmóðurinni frá Kazan
vilji páfi bæta samskipti
rómversk-kaþólsku kirkj-
unnar og rússnesku rétt-
trúnaðarkirkjunnar.
Tæpu ári áður en forseti Haítí, Jean-Bertrand Aristide, hraktist frá völdum lýsti
hann andatrú landa sinna opinbera og viðurkennda. Sagt er að 70% íbúa Haítí séu
kaþólskir, 30% mótmælendur - en 100% íbúanna aðhyllist andatrú forfeðranna, vúdú.
Jean-Bertrand Aristide, fyrrum forseti Haítí, var ekki fyrstur
stjórnarherra að hampa vúdú-trúnni sem barst til Haítí með
svörtum þrælum. Lengi aðhylltist lágstéttarfólk vúdú mest. Á
fjórða áratug 20. aldar tóku menntamenn á Haítí að hylla vúdú
sem þjóðartrú eyjarskeggja. Einræðisherrann Duvalier studdi
trúarbrögðin til mótvægis við kaþólskuna sem hann hafði illan
bifur á. Auk þess taldi hann stuðning við vúdu tryggja sér vin-
sældir meðal alþýðunnar. En það dugði ekki til.
Dæmigerð trúarathöfn þeirra sem
aðhyllast vúdu hefst á kaþólskri bæn
við tré í miðjum húsagarði.
Síðan taka þrír menn að berja
bumbur, takturirm segir til um hvem
andanna er verið að ákalla. Söfiiuður
dansar kringum tréð, hraði bumbu-
sláttarins og dansaranna eykst jafiit og
þétt.
Prestur safnaðarins dregur upp
tákn í sandinn á jörðunni og hellir
rommi yfir þau til heiðurs öndunum.
Safiiaðarmeðlimur fellur í trans í
trylltum dansinum og kippist til en er
síðan hjálpað á fætur.
Dansinn heldur áfram en nú er
eins víst að sá sem féll í trans sé ekki
hann sjálfur heldur hafi einhver guð-
anna tekið sér bólfestu í honum. Hann
verður „hestur" andans. Slíkt er mikill
heiður og sæmd.
Anda- og fjölgyðistrú
Vúdú merkir andi og telja sumir
mannffæðingar trúarbrögðin eistu
forfeðra- og náttúmtrúarbrögð mann-
kyns. Þau minna um margt á gyðing-
dóm og kristni, en eiga sér ekki helga
texta, samkunduhús eða kirkjur, hvað
þá tignarstiga sérfróðra embættís-
manna. Skipulag prestastéttarirmar í
vúdú er lauslegt mjög, andar og goð
eru flest talin af afrískum uppruna en
hafa samsamast kaþólskum dýrling-
um gegnum tí'ðina. Guðinn Dambla er
t.d. tengdur slöngum og birtíst stund-
um í slöngulíki og er tilbeðinn bæði
sem Dambla og heilagur Patrekur.
Jámsmíðaguð frá Affíku, Ogun, er
stríðsguð í vúdú og er þar runninn
saman við heilagan Jakob, bróður Jó-
hannesar guðspjallamanns. Gamal-
mennið Legba gætir hliðsins miili
þessa heims og andaheimsins, hann
er einskonar starfsbróðir Lykla-Péturs.
Fórnir og forfeður
Sérhver andi og goð býr yfir
ákveðnum eiginleikum, sumir eru
kærleiksrikir og góðir, aðrir hættulegir
og kröfuharðir. En öll eiga þau til að
þreytast óskaplega, jafiivel örmagnast.
Þá verða mennimar að fóma
hænsnum, geitum, sauðfé eða naut-
peningi svo andamir fyllist orku á ný.
Dráp dýrsins er ekki aðalatriðið heldur
verður að færa öndunum lífsorku.
öndum ffamliðinna er fómað með
kertum og mat við krossa í kirkjugörð-
um, hlutir úr eigu þeirra geta einnig
verið fullir af vemdaröndum einstak-
linganna og ber að halda til haga.
Frjáls vilji og val ekki til
Við hér í Vesturheimi trúum á
fijálsan vilja mannsins og frelsi ein-
staklingsins. En heimssýnin á Haítí' er
gjörólík okkar, andamir ákvarða líf
hvers og eins í smáatriðum og þeir em
stöðugt nálægir. Okkar sýn ákvarðast
af efnislegum og snertanlegum raun-
veruleika, á Haítí em andamir jafn
raunverulegir og bömin, eiginkonan
og hundurinn. Og með tilbeiðslu,
dansi og fómum halda Haítíbúar
tengslum við forfeður sína, eigin sögu,
samfélagsins og alheimsins. Vúdú er
lífsstíll og er talið að um 60 milljónir
manna víðsvegar um veröldina
aðhyllist þessi trúarbrögð.
Vúdú i tiskuheimm-
um Franskur fatahönn-
uður leitaði óspart í vúdú
á sýningu í Parfs í vetur.
Vudú f myndlist
Málverkið afDeva/ier-
fjölskyldunni er troð-
fullt af táknum tengd-
um illsku einræðisher-
ranna.
Aristide og stjórn
hans mótmælt Vúdú
er líka notaðf pólitfskri
baráttu á Haítí.
Fjölþjóðleg menningar- og kvikmyndahátíð á
Vesturbakkanum stendur í mánuð
inn Rúnar sveltir sig í Ramallah
Um helgina hófst
mikil hátíð í nýreistri
menningarmið stö ð
Palestínumanna í
borginni Ramallah á
Vesturbakkanum.
Sveinn Rúnar Hauksson,
formaður félagins ísland-
Palestína, er staddur í
Ramallah en segist ekki
hafa fengið tækifæri til að
sækja hátíðina. „Ástandið
hér í borg-
Sveinn Rúnar f
Ramallah „Tími til
kominn að utanrfkis-
ráðherra Islands hug-
leiði frekari aögerðir
gegn stjórnvöldum f
Israel, “ segir formað-
ur Islands-Palestínu.
inni er ágætt
þessa stund-
ina og ákaf-
lega
ánægjulegt
að sjá þegar
mannlíf hér
er með eðli-
legum
hætti," segir Sveinn Rúnar við DV.
„Fólk er að spóka sig og versla í
bænum og böm að leik. Hér em
menn þakklátir fyrir hvern svona
dag. Sömu sögu er því miður ekki
að segja frá öðmm byggðum hér á
Vesturbakkanum, að ekki sé nú
talað um Gaza-ströndina.“
Sveinn Rúnar hefur verið á
Vesturbakkanum síðan um miðja
síðustu viku. „Ég byrjaði á að taka
þátt í hungurvöku tfl að mótmæla
væntanlegum múr á veginum milli
Jerúsalem og Ramallah. Hún fór
fram í tjaldi við upprifinn veginn,
þar vom mættir fulltrúar kirkju-
defldanna í Jerúsalem, svo og þeir
ísraelar sem ofbýður mannrétt-
indabrotín og ofsóknirnar á her-
teknu svæðunum. Við vomm þar
þegar niðurstöðmnar bámst frá
alþjóðadómstólnum í Haag og
tókum þátt í fagnaðarlátunum,“
segir hann.
Að sögn Sveins Rúnars eru þeir
ísraelar ekki margir sem mótmæla
hernáminu en þó æ fleiri sem láti
sig varða og þoli ekki framkomu
hers ísraela, yfirgang og mannrétt-
indabrot á hernumdu svæðunum.
„Af hverju erum við með stjórn-
málasamband við ríkisstjórn sem
virðir ekki alþjóðleg samkomulög
og sáttir? Tími er kominn tO að ut-
anríkissráðherra íslands hugleiði
frekari aðgerðir gegn ísraelskum
stjórnvöldum vegna ástandsins
hérna, nú duga ekki lengur kurt-
eisleg orð og diplómatísk tOmæli.
Grípa þarf til refsiaðgerða gegn
ísraelskum stjórnvöldum og Is-
lendingar gætu farið þar fremstir í
flokki, “ segir Sveinn Rúnar Hauks-
son.