Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2004, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2004, Síða 20
20 MÁNUDAGUR 12. JÚLÍ2004 Sport DV f Shaq er a leiðinni til Miami Heat ShaquiUe O’Neal vildi í burt frá Hollywood og honum hefur nú orðið að ósk sinni sam- kvæmt fréttum bandaríska fjölmiðla um helgina. í annað sinn á ferlinum skiptir þessi 216 sentimetra miðherji um heimilli milli vestur- og austurstrandarinnar. Sumarið 1996 fór hann frá Orlando Magic á Flórída til Los Angeles Lakers og sumarið 2004 fer hann aftur til baka á Flórídaskagann en nú til nágranna Orlando í Miami Heat. Það kostar hvorki fleiri né færri en þrjá leikmenn og valrétt í fyrstu umferð til að fá Shaq til Heat en Miami-menn létu samt verða af skiptunum. Shaq segir ekkert um málið en umboðs- maðurinn kjaftaði frá öllu í gær. Heitustu fréttirnar úr NBA-deildinni í körfubolta eru þær að Los Angeles Lakers hafi orðið við ósk miðherjans síns stóra og stæðilega, Shaquille O'Neal og ætli að skipta honum til Miami Heat. Shaq sjálfur brosti bara þegar hann var spurður út í málið í gær en hann gaf það út á dögunum að Miami Heat væri eitt af liðunum sem hann sætti sig við að spila fyrir en Los Angeles Lakers væri hinsvegar ekki á þeim lista. k Bless, bless Lakers Shaquille O 'Neal mun að öllum líkindum spila með liði Miami Heat í NBA- í staðinn fyrir Shaquille O’Neal fær Los Angeles Lakers þrjá leik- menn Miami Heat, þá Lamar Odom, Caron Buder og Brian Grant auk þess sem þeir fá til viðbótar einhvern af valréttum Miami Heat í fyrstu um- ferð nýliðavalsins á næstu árum. Sá valréttur gæti vissulega orðið mjög dýrmætur. Umboðsmaður O'Neal staðfestí þessar fféttir við bandaríska blaðið Washington Post en hann sagði að allir aðilar að skiptunum höfðu sam- þykkt þau og aðeins eigi eftir að stað- festa þau hjá NBA-deildinni. Samn- ingurinn getur klárast í fyrsta sinn á miðvikudaginn þegar það verður fyrst leyfilegt að semja við leikmenn í deildinni. Stórt bros frá Shaq „Ég get ekki sagt neitt um þetta mál í dag,“ sagði Shaq aðspurður um málið en bandarísku blaðamennirn- ir voru fljótir að nefna stórt bros hans sem fylgdi í kjölfarið. O'Neai hefur ekki enn hitt Pat Riley, forseta Miami Heat, en tengsl hans við Lak- ers eru öllum körfuboltaáhuga- mönnum kunn enda gerði hann LA- liðið mörgum sinnum að meisturum á níunda áratugnum. Það er ljóst að Miami-liðið er að fórna miklu til að fá Shaq til liðs við sig. Heat missir þrjá góða menn og dýrmætan valrétt auk þess sem þeir þurfa að punga út um 59 milljónum dollara til Shaq fyrir þau tvö ár sem hann á eftir af samningi sínum. Þetta gerir um 4,2 miiljarða íslenskra króna á aðeins 24 mánuðum. Það fýlgir ekki sögunni hvort Shaq fái nýjan samn- ing hjá Miami en ein af ástæðum þess að kappinn vildi ekki leika áfram fyrir lið Lakers var að þeir vildu hann ekki áfram að hans mati, það er buðu honum ekki feitan samning l£kt og Kobe. Liðið í fyrsta sæti Umboðsmaður Shaq sagði samn- ingamálin skipta engu máli í þessum skiptum. „Shaq vildi fara til félags þar sem liðið er sett í fyrsta sæti en ekki einstakir leikmenn. Ég og hann erum sannfærðir um að Pat Riiey og eigandinn Micky Arison séu búnir að búa til þá körfuboltaumgjörð sem „Shaq vildi fara til félags þar sem lið- ið er sett í fyrsta sæti. Ég og hann erum sannfærðir um að Pat Riley og eigandinn Micky Arison séu búnir að búa til þá körfu- boltaumgjörð sem Shaq vill enda feril sinn í." Shaq viil enda feril sinn í,“ sagði Perry Rogers, umboðs- maður O'Neal, í viðtali við Washington Post í gær en Shaq hefur barist um sviðsljósið við Kobe Bryant á undanfömm árum. Það má bú- ast við því að Lakers-menn hafi frekar viijað skipta Shaq til austurstrandarinnar en tii helstu andstæðinga sinna á vestur- ströndinni en fjölmörg lið vom á eftir Shaq og sagan segir að Lakers hafi fengið 18 til 19 tilboð í kappann. Shaq skoraði þó „aöeins" 21,5 stig að meðaltali með Lakers á síðasta tímabili sem er það lægsta á hans ferli en hann er með meðaltöl upp á 27,1 stig, 12,1 frákast og 2,6 varin skot á þeim tólf tímabilum sem hann hefur spilaðíNBA. Margir hafa í framhaldinu spáð deildinni næsta vetur. Bryant til að fá boltann á réttum tíma og því verður fróðlegt að sjá hvort hann nái yfirburðum sínum aftur eða hvort ferill eins besta mið- herja NBA-deildarinnar frá upphafi sé á hraðri niðurleið. Miami Heat er tilbúið að taka áhættuna og Shaq sjálfur hefur margt að sanna. ooj@dv.is a. í « ■ í að hann sé búinn að missa yfir- burði sína inn í teig, yfirburði sem gerðu Lakers-lið- ið óstöðvandi á ámn- um 2000 til 2002. öll árin varð Lakers meistari og O'Neal kosinn besti leikmaður úr- slitanna. Á tímabilinu í fyrra lækkaði meðalskor hans hinsvegar um 21%, var 27,5 tímabilið 2002 til 2003 en að- eins 21,5 í fyrra. Þegar rýnt er betur ofan í tölfræðina þá var Shaq ekki að hitta verr í fyrra, hann var að taka færri skot og tilkoma Karl Malone og Gary Payton hafði ömgglega eitt- hvað með það að gera auk þess að Kobe var ekki ailtof duglegur að láta stóra manninn fá boltann. Aftur í bílstjórasætinu Hjá Miami Heat er Shaquille aftur kominn í bílstjórasætið og þarf ekki að treysta á menn eins og Kobe Miami er að fórna miklu til að fá Shaq. Heat missir þrjá góða menn aukþesssem þeir þurfa aðpunga út um 59 milljónum doll- ara fyrir þau tvö ár sem hann á eftir af samningi sínum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.