Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2004, Qupperneq 24

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2004, Qupperneq 24
24 MÁNUDAGUR 12. JÚLÍ2004 Fókus DV Summer Make Good er þriðja Múmplatan. Hinar Plötudómar tvær íyrri, Yesterday Was Dramatic, Today Is OK og Loksins erum við engin voru báðar frábærar. Það er margt gott á Summer Makes Good lika. Tónlistin er að- eins dýpri og alvarlegri en áður. I staðinn fyrir einfalda og melódíska raftónlist eru komnar flóknari útsetningar og meira af hefðbundnum hljóðfærum. Það eru fjöl- margir gestahljóðfæraleikar- ar og oft er verið að hlaða lögin töluvert. Summer Make Good er ekki jafn heil- steypt og fyrri plötumar, en hljóðheimur Múm er ennþá einstakur og hér em nokkur mjög flott lög. Að vísu finnst mér krútt-hvíslsöngurinn hennar Kristínar vera ofnot- aður. Múm á sér aðdáendur út um allan heim. Sveitin var í tísku, en er ekki lengur. Þessi plata ætti að falla í kramið hjá þeim sem vom ekki bara að hlusta á hana af því að það þótti kúl... Trausti Júlíusson Fleetwood Mac Rumours Deluxe Editon «fJ£ # Warner/Skífan Rumours kom upphaf- lega út árið 1977 og þótti mikill eðalgripur. Það er eitthvað fullkomið við þetta tæra og hljómfagra popp- rokk. Lög eins og Dreams, Don’t Stop og Go Your Own Way þekkja allir, en platan í heild er fyrirtak. Ekkert vont lag. Sú útgáfa sem er hér til umfjöllunar kom út í vor. Þetta er viðhafharútgáfa, tvöföld og inniheldur auk uppmnalegu plötunnar sem búið er að endurvinna hljóðið á, 18 önnur lög, pmfuupptökur og lög ffá gerð plötunnar sem ekki náðu á hana á sínum tíma. Og svo em tvær djamm- sessjónir úr hljóðverinu. Eins og tíðkast á svona út- gáfum fylgir vandaður bæk- lingur þar sem saga plöt- unnar er rakin. Þetta er mjög vel unninn pakki, flott endumýjun á flottri plötu. Trausti Júlíusson Það styttist í að bandaríski rapparinn 50 Cent komi fram fyrir okkur íslendinga í Egilshöll. 50 Cent er hluti af G-Unit krúinu, en annar meðlimur þess, Lloyd Banks, var að senda frá sér sína fyrstu plötu, The Hunger For More. Hún fór beint á topp Billboard- listans í síðustu viku. Trausti Júlíusson tékkaði á kappanum. Lloyd Banks„f<j efast um aö ég vderi aö rappa (dag ef 50 Cent væri ekki á svæðinu." Það virðist allt breytast í gull sem rapparinn 50 Cent kemur nálægt. Hann átti langmest seldu plötu ársins í Bandaríkjunum í fyrra. Fyrsta plata hljómsveitar hans, G-Unit, fór ekki jafn vel, en seldist samt í yfir tveimur milljónum eintaka. Einn af meðlim- um G-Unit var að senda frá sér sína fyrstu sólóplötu. Hún kom út hjá plötufyrirtæki 50 Cent og það var ekki að því að spyrja: Hún fór beint í fyrsta sæti bandaríska vinsældalistans. Plat- an heitir The Hunger For More og er með Lloyd Banks. Hann sagði þegar hann var spurður út í þessar góðu móttökur. „Ég bjóst nú ekkert endi- lega við þessu, en 50 Cent vissi þetta. Hann var búinn að segja mér að þetta mundi gerast." En hver er þessi Lloyd Banks? „Mamma kenndi mér allt" Lloyd Banks heitir réttu nafni Christopher Lloyd. Hann fæddist fyrir 22 árum í South Jamaica í Queens í New York. Móðir hans er frá Puerto Rico, en faðir hans er svertingi. Þau voru ung og giftust aldrei. „Þegar ég var hjá mömmufólki þá var ég alltaf svarti sauðurinn, enginn bjóst við því að það yrði neitt úr mér,“ segir Lloyd, „en þegar ég var hjá pabbafólki var ég engillinn, enda voru allir frændur mínir afbrotamenn". Pabbi Lloyds dvaldi töluverðan hluta af uppvaxtar- árum hans í fangelsi. „Mamma kenndi mér afit,“ segir Lloyd, „þegar ég var í gaggó tók hún gúrku og sýndi mér hvemig maður setur smokk á". Lloyd var feiminn í æsku og faldi það fyrst fyrir öllum þegar hann fór að rappa. Þegar hann loksins þorði að leyfa fólki að heyra í sér sló hann hinsvegar strax í gegn í hverfinu. Hann er undir áhrifum frá goðsögn- um eins og Big Daddy Kane og Slick Rick. Lloyd fór snemma að rappa inn á mixspólur. Annar strákur í hverfinu sem þótti góður var Tony Yayo (sem er líka í G-Unit). Einn daginn mætti Tony á fund Lloyds með vin sinn, rappara sem kallaði sig 50 Cent. Þeir spurðu Lloyd hvort hann vildi vera með þeim í rapphljómsveit. Lloyd sló til... Konungur mix-teipanna Þó að The Hunger For More sé fyrsta plata Lloyds Banks þá er hann ekkert að byrja í bransanum. Hann hefur lengi verið mjög vinsæll rappari á mixteipum og -diskum. Þetta em hálfopinberar útgáfur sem em seldar á götum úti, en ná ekki inn í venjuleg- ar plötubúðir. Margir rapparar í New York vekja á sér athygli í hipp hopp- klúbbum eins og Freestyle Fridays og Lyricist Lounge. Lloyd kom ekki fram þar, en hann sló í gegn á mixspólu- markaðnum. Fyrr á árinu var hann valinn besti mixteip-listamaður árs- ins 2003. Árið í fyrra var annars erfitt fyrir hann. Hann missti bæði afa sinn og föðurbróður og einn af sínum bestu vinum sem var skotinn. Lloyd var í London þegar honum bámst fréttirnar. Eminem, Snoop Dog og Nate Dogg gestir The Hunger For More er nokkuð flott plata. Hún er bæði fjölbreytt og grípandi. Hún er töluvert betri en G- Unit-platan frá því í fyrra. Flest lögin á henni em pródúsemð af lítt þekkt- um pródúserum, en Timbaland á eitt, Hi-Tek eitt og Eminem tvö. Lloyd ber plötuna að mestu uppi sjálfur, en fé- lagar hans í G-Unit, Tony Yayo og Young Buck rappa í einu lagi hvor, 50 Cent er í tveimur og Eminem, Snoop Dog og Nate Dogg koma við sögu líka. í september Það er ekki von á nýrri White Stripes- plötu á þessu ári, en í september gefa þau Jack og Meg White út fyrsta DVD-disk sveitarinnar. Á því verða öh myndböndin þeirra, tónleikar teknir upp í Blackpool og heimUdarmynd um gerð plötunnar Elephant sem flestir helstu tónlistarfjölmiðlar völdu bestu plötu ársins í fyrra. saman á ný Detroit-sveitirn ar MC5 og The Stooges em oft kaUaðar forfeður pönksins. Stooges 5' ( v c em að spUa út um aUt þessa dagana, (vom t.d. á Hróarskeldu) og nú hafa MC5 komið saman á ný líka og spUa á tónleikaferð um Evr- ópu í haust. Það em þrír upp- mnalegir meðlimir í hinni end- urstofriuðu sveit; Michael Davis, Wayne Kramer og Dennis Thompson, en Nick HeUacopter og Evan Dando koma í stað Freds Smith og Robs Tyner sem báðir dóu úr hjartaáfalli. styðja Kerry Tom Wáits, The Flaming Lips, R.E.M., /.* —David Byme, Blink 3 182, Yeah Yeah ' i ' Yeahs, Death Cab For Cutie, Fountains Of Wa- yne og Sleater-Kinney em á meðal Ustamanna sem hafa gefið lög á safríplötuna Future Soundtrack For America sem gefin er út til styrktar forseta- framboði Johns Kerry. Dave Groltl og Liz Phair vom á meðal þeirra sem komu fram til styrktar Kerry á fjáröflunarsamkomu í LA I síðustu viku. plata Hljómsveitin Cowboy Junkies frá Toronto í Kanada er skipuð systkinunum Margo, Michael og Peter Timmins og Alan Anton. Fyrir tæpum 20 árum gáfu þau út plötuna Trinify Sessions sem var tekin upp á einum degi í kirkju og sló ræki- lega í gegn. Á næstunni er von á nýrri plötu frá þeim, One Soul Now, en á henni leita þau aftur í upphafið. Einföld tónhst flutt af þeim fjómm. f é I y . (-) OutKast - Rosés Juliette rokkar Finnur sig 2. (2) Scissor Sisters - Laura 3. (4) Lloyd Banks - On Fire 4. (I) TheHives- Walk Idiot Walk 5. (7) Goldfrapp - Strict Machine 6. (6) Tiga - Pleasure From The Bass 7. (-) Block Party - Little Thoughts 8. (7) Jay-Z- 99 Problems 9. (5) The Delays - Stay Where You Are 10. (-) The Concretes - You Can't Hurry Love „Ég lifi fyrir svitann sem leikur af mér þegar ég er á sviði," segir leikkonan Juh- ette Lewis um tónlistarferilinn með hljómsveitinni Juliette & The Licks sem er á tónleikaferðalagi þessar vikurnar ásamt Bad Religion og New Found Glory. Og hún bætir við: „Mitt takmark er að gefa aht mitt, alla orkuna sem ég bý yfir og koma henni yfir til áheyrendanna." Juliette er búin að leika í kvikmyndum í 16 ár, (þ.á.m. Cape Fear, Husbands & Wifes og Natural Born Killers), en hún segir að þegar hún var yngri hafi hana alltaf langað að vera rokksöngkona. Þegar hún fór með vinkonu sinni Patty Schem- el úr Hole á tónleika með Blondie þá fékk hún hugljómun og fór að leita að með- limum í hljómsveit. Auk Juhette, sem syngur, og Patty, sem spilar á trommur, eru gítarleikarinn Todd Morse og bassa- leikarinn Paul 111 í hljómsveitinni. Fyrsta í nýju hlutverki platan þeirra Like A Bolt Of Lighming er væntanleg í október. Juhette samdi flest lögin á henni, en fékk hjálp m.a. frá Lindu Perry. Hún segist vera undir áhrifum frá Iggy & The Stooges, Blondie og Patty Smith. Hún þykir kraft- mikil söngkona („mitt á milli Iggy og Steven Tyler", sagði blaðamaður LA Times). Juhette syngur eitt lag, Hotride, á nýju Prodigy plötunni sem er væntanleg í september. Liam Howlett segir hana hafa komið á óvart og hafa gríðarlega sterka rödd... Juliette Lewis Kraft- mikilsöng- kona.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.