Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2004, Qupperneq 29
DV Fókus
MÁNUDAGUR 12. JÚLÍ2004 29
Borgaði
nektar-
dansmær
fyrir að
þegja
Bryan McFadden
úr West Life borg-
aði nektardans-
mær fyrir að segja
ekki frá ástarfundi
þeirra i dómsal.
Dansmærin heldur þvf
fram að hún og Bryan hafi elskast
nóttina áður en hann gekk í það
heilaga með Kerry úr Atomic Kitten.
Nektardansmærin sagði sögu sína f
slúðurblaði og ætlaði að sanna að
hún færi með rétt mál eftir að Bryan
sakaði hana um að Ijúga. „Við erum
mjög ánægð," sagði lögfræðingur
hennar eftir að þau höfðu sæst á
upphæðina.
Leitar
uppi
ovirka
dópista
Það fyrsta sem ofurfyrir-
sætan Naomi Campbell
gerir þegar hún kemur á
nýjan stað er að leita upp
næsta stuðningshóp fyrir
óvirka eiturlyfjaneytend-
ur. Frá þessu sagði fyrir-
sætan f viðtali við London
Guardian. Auk þess sagði hún
að ónefndur breskur fatahönn-
uður væri kynþáttahatari sem
Campbell sagðist aldrei ætla að
vinna fyrir svo lengi sem hún
lifði. I viðtalinu kemur einnig
fram að Campbell sem þykir með-
al fegurstu kvenna heims hafi
aldrei verið boðin borgun fyrir kyn-
mök og að hún hafi engar áhyggjur
yfir því að fegurð hennar fölni.
Nelly hatar
Bandaríkin
Söngkonan Nelly Furtado segir
Bandarfkin á góðri leið að verða fas-
istaríki. Söngkonan hataði að búa f
landinu og flýtti sér heim til Kanada
um leið og hún gat. „Mér líkar ekki
^amerfskur Iffstfll," segir söng-
konan um leið og
, hún dásamar
Kanada. „Hérna
er málfrelsið al-
gjört og ungt
i fólk er hvatt að
j mynda sér sfnar
eigin skoðanir."
Nelly segir fjölmiðlana
hafa ráðist harkalega á
einkalff hennar sem sé eitt-
hvað sem myndi aldrei
gerast f heimalandi henn-
ar.
Ásthildur Einarsdóttir er vissulega fegrunarsérfræðingur en
hún er líka grasalæknir. Á morgun ætlar hún að kenna
áhugamönnum að tína jurtir í nágrenni Hafnarfjarðar á veg-
um Náttúrlækningafélags Reykjavíkur
Sama starfið í
fjölskyldunni frá 18. öld
Vissulega er fremur algengt að í
sumum fjölskyldum gangi störf og
embætti nánast að erfðum. En í fjöl-
skyldu Ásthildar Einarsddttur virðist
það bókstaflega reglan. Hún er dótt-
ir Ástu grasalæknis og lærði af henni.
Ásta lærði af Erlingi föður sínum Fil-
ippssyni og hann af mömmu
sinni. Svona geturÁsthiidur rak-
ið þetta langt á 18. öld og veit
að kunnáttan hefur gengið í
ættinni í enn fleiri aldir.
„Mamma var húsmóðir með
þrjú böm þegar hún tók við af
afa,“ segir Ásthildur, „þá var
gamli maðurinn á níræðisaldri.
Fram að þeim tíma var ekki ljóst
hvort nokkur myndi taka við af
honum, þetta er nefnilega ansi
mikfl vinna."
Fræðin síast inn
Ásthildur hefur ekki hugmynd
um hvenær eiginlegt nám hennar í
grasaffæðunum hófst. „Sjálfsagt
bara þegar ég var krakkagríslingur,
þetta einhvem veginn síast inn í
mann ómeðvitað. Fyrir nokkmm
árum var ég t.d. með unga dóttur
mína í grasagarðinum í Laugardal.
Var þar að kenna eilítið um grös og
grasasuðu. Fólk spurði um eitt og
annað og dóttir mín, sem varla hafði
verið að læra því ég hafði ekki verið
að kenna henni nokkum skapaðan
hlut meðvitað, hún svaraði hverri
einustu spumingu, hárrétt og
vandræðalaust. Náminu
lýkur hinsvegar aldrei,
við emm afltaf að
leita nýrra leiða
og með-
ferða við nýjum kvillum, útvortis
jafnt sem innvortis." Ásthfldur hafði
grasafróðleikinn fyrir sjálfa sig í byrj-
un, „svo fór maður að sinna vinum
og vandamönnum, það spurðist út
og áður en ég vissi var ég komin á
fullt út um allt."
Ekki leyndarmál
Ásthfldur segir fólk leita ráða hjá
sér í bylgjum frekar en stöðugt. „En
vissulega er áhugi fólks á öllu upp-
mnalegu og náttúrulega stöðugt að
aukast. Og þótt læknavísindin séu
stórkostleg og geti á köflum gert
kraftaverk, þá em það oft litlu hlut-
irnir sem fara fram hjá okkur. Tfl mín
leitar töluvert af fólki sem er að gef-
ast upp, því finnst það ekki fá nægan
eða nógu skjótan bata. Ég fer ætíð
fram á að læknar þess séu látnir vita
af mínum gerðum, grasalækning-
ar em ekki og eiga ekki að vera
leyndarmál neins."
Lækningin
„Það má nota
gjörvalla flór-
una til
lækn-
inga,
uppbyggingar og hressingar," fúll-
yrðirÁsthildur. „Sumir taka fljótt við
meðferðinni, hjá öðmm tekur hún
lengri tíma. Ég sýð ótal jurtir og
blanda þeim svo saman í ákveðnum
hlutföllum. Og hlutföllin geta verið
breytfleg á sama sjúklingi, dag frá
degi. Og það er merkfleg vitneskja og
forn að um leið og dregur úr Iflcam-
legum þjáningum, fer fólki að líða
betur andlega. Á morgun ætla ég að
kenna fólki að þekkja og tí'na jurtir í
te og krydd, mér finnst gott að safna
þessu í bréfpoka og eiga á vísum stað
sér tfl hressingar og jafnvel heilsu-
bótar," segir Ásthfldur Einarsdóttir
grasalæknir. Enn
er allt á huldu
um fulltrúa
næstu
kyn-
slóðar í
grasa-
lækn-
ingum.
Asthildur Einarsdóttir
] grasalæknir Veitekki
hvenær grasanámið hófst,
ífjöiskyidunni siast fræöiri
inn ómeðvitað i æsku.
___Sc*í*0*
Ekkert hippití hopp
Ég hef nú séð flestar myndir þeirra
Coen-bræðra (á eftir að sjá Intolera-
ble Cruelty) og hef fundist bara ein
þeirra vera vond en það vom hin
ómannúðlegu leiðindi The Man Who
Wasn't There. Restin hefur verið hin
hressilegasta og hafa mér fundist þeir
bestir þegar þeir fara út í slapstick-
húmorinn eins og í Raising Arizona,
The Hudsucker Proxy og Oh Brother
Where Art Thou? Þannig að mér
fannst það gleðiefni að þeir fóm þá
leið með The Ladykillers, endurgerð á
klassískri gamanmynd með Sir Alec
Guinnes og Peter Sellers í aðalhlut-
verkum, en ég hef því miður ekki séð
frummyndina þannig að ég get ekki
borið þær saman. En það ætti ekki að
koma að sök.
Tom Hanks leikur prófessor Dorr
sem leiðir hóp manna sem leigja her-
bergi af gamalli ekkju tfl þess að nota
kjallara hennar til að grafa göng í
nærliggjandi spilavíti og ræna þaðan
ágóða dagsins. Dorr hefur sérvalið
hvem meðlim, kínverska gangasér-
ffæðinginn „Hershöfðingjann",
tæknisérfræðinginn Garth, kraftajöt-
uninn Lump og innanhúsmanninn
The Ladykilers
The Ladykillers er sýnd í Há
skólabíói. Leikstjórar:
Joel og Ethan Coen. Að- ’
alhlutverk: Tom Hanks, ,
Irma P. Hall, J.K. Simm-
ons, Marlon Wayans.
Omar for 1 bio
Gawain sem vinnur í spilavítinu. En
hlutimir ganga ekki alveg eins og ætl-
að var og brátt gera þeir plön um að
ganga frá þeirri gömlu.
Mikið þarf Hanks að fara að leika í
fleiri grínmyndum. Hann sannar hér
að hann hefúr engu gleymt síðan
hann lék í meistaraverkinu The
Bachelor Party og fer hreinlega á
kostum sem hinn hámenntaði
snobbhundur Dorr en Irma P. Hall á
hinsvegar þessa mynd algjörlega. Það
er alveg ótrúlegt hvað þessi gamla
kona getur verið fyndin bara með því
að hrista hausinn og dæsa smá. Mfldl
snilld og mikið grín þar á ferð.
J.K. Simmons er frábær að vanda
og Tzi Ma er helvíti góður sem Hers-
höfðinginn og segir varla orð í mynd-
inni. Sá eini sem ég var ekki alveg
sáttur við var Ryan Hurst sem Lump,
ekki alveg sannfærandi og eiginlega
of heimskur til að maður kaupi það.
Myndin er nokkuð hressileg út í
gegn. Hún er ekki eins myndrænt ýkt
eins og Oh Brother... eða Hudsucker
Proxy heldur em það frekar persón-
umar sem fara svohtið yfir um. Kom
mér það nokkuð á óvart hversu róleg-
ir þeir vom með myndavélina.
Handritið er ágætt, frekar einfalt
og endirinn var svolítið teygður en
ekkert sem fór í taugarnar á manni.
Ég mæli algjörlega með henni. Bravó.
Omar öm Hauksson
Stjörnuspá
Árni Samúelsson, eigandi Sambíóanna,
er 62 ára í dag. „Maðurinn
' stendur frammi fyrir
ákvörðun sem hann ætti
ekki að draga á lang-
inn. Honum er ráð-
lagt að leysa sjálf-
an sig úránauð
hins þekkta og
ganga óhikað inn
í hið óþekkta,"
segir í stjörnuspá
hans.
Árni Samúelsson
VV Vatnsberinn ao.jan.-is.febr.)
vY -----------------------------------------
Leyfðu þér að upplifa án þess
að vera treg/ur gagnvart þeim sem þú
elskar og virðir. Komdu hugsunum þín-
um og tilfinningum frá þér á skýran
hátt vikuna framundan.
H
Fiskarnir(?9. febr.-20. mars)
Þú ert minnt/ur á að lang-
rækni ætti ekki að eiga huga þinn um
þessar mundir. Hættu að vera háð/ur
árangri og þú getur eignast allt sem þú
þráir en það sama á við um fyrrnefnda
Íangrækni. Ekki láta slíka líðan eyða
tíma þínum eða þrótti.
MWm(21.mrs-19.aprll)
Sumarið sýnir þig sannan vin
félaga þinna þar sem hreinskilni,
sjálfskönnun og virk hlustun á vel við.
Þú virðist velja öfgar í verkefni sem
tengist þér hér og átt það jafnvel til að
varpa allri gætni hér og gerir einhvers-
konar uppreisn.
T
Ö
NaUtÍð (20. apríl-20. maí)
Ekki búast við að fólkið hér í
kringum þig sé fullkomið eða viti
ósjálfrátt hvað þú þráir því þú ert fær
um að heilla hvern sem verður á vegi
þínum og ættir ekki að leyfa tilfinning-
um eins og hroka, hégómleika eða
óréttlæti að hafa áhrif á þig á nokkurn
hátt vikuna framundan.
I Tvíburarnirp?. mal-2ljúni)
*-*■ Leyfðu þér að vera einlæg/ur,
áhyggjulaus og kær gagnvart þeim sem
þú unnir. Þér hefur verð gefinn sá eigin-
Íeiki að vera þolinmóð/ur og ættir þú
að nýta þann hæfileika næstu daga.
Krabbinnp2jún/-j2jii//)__________
Ekki nota reiðina sem valda-
tæki og hættu að flýja eigin tilfinningar
og sjá, orka þín margfaldast og innra
jafnvægi þitt eflist til muna. Atburðir
sumars einkennast af umburðalyndi og
ánægju hjá stjörnu krabbans.
Ljónið/a .júlí-22. ágúst)
Ekki sóa kröftum þinum í leit
að völdum. Ef þú kýst að vera ónæm/ur
fýrir gagnrýni náungans og óttast ekki
ögranir ert þú fær um að nota mátt ást-
arinnar í þágu vaxtar og allsnægta.
Meyjan ql ágúst-22. sept.)
Hættu að þóknast öðrum. Þú
ættir að læra að ákveða þig og standa
fast á þínu um þessar mundir sér í lagi.
O VogÍn (23.sept.-23.okt.)
Þú ættir að læra að meta þig
að verðleikum og ekki hika við að þróa
með þér meira sjálfsálit í framtíðinni. Þú
ert eigingjörn/eigingjarn gagnvart elsk-
huga þínum og þér virðist þykja það
miður en ættireingöngu að nýta þenn-
an eiginleika jákvætt þegar ástin umlyk-
ur þig (júl(.
Sporðdrekinn (24.okt.-21.n0v.)
Gættu þess vel sem þér er trú-
að fyrir og ræktaðu vináttu þína við vini
þína. Að sama skapi er stjarna sporð-
dreka minnt á að láta hverflynda félaga
ekki gera sig vansæla af einhverjum
ástæðum.
Bogmaðurinn(22ni)r.-27.<te.j
Lífsorka bogmanns birtist
mjög mikil hér en þú virðist eiga það til
að dreifa eigin kröftum í að setja hlutina
í samhengi og grafast stöðugt fyrir um
staðreyndir mála. Þú ert fær um að gera
kraftaverk með þinni óhemjulegu orku.
/
Steingeitin (22.des.-19.jan.)
^ Stjarna steingeitar virðist forð-
ast aðstæður sem kunna að reynast
óþægilegar hérna af einhverjum ástæð-
um því þú birtist hér ákaflega við-
kvæm/ur og sárnar oftar en ekki af
minnsta tilefni.
SPÁMAÐUR.IS