Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2004, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2004, Qupperneq 12
J2 MÁNUDAGUR 26. JÚLÍ2004 Fréttir DV Unglingar þjálfaðir sem þjófar Rússneska lögreglan lok- aði sumarbúðum í landinu eftir að upp komst að þar væru unglingar þjálfaðir sem þjófar. Krakkamir fengu innsýn í undirheim- ana og leiðsögn hvernig þeir ættu að haga sér þegar þeir væru handteknir. Lögreglan handtók yfir 30 unglinga og tvo „þjálfara" auk þess sem þeir lögðu hald á handskrif- aða bæklinga með leiðbein- ingum um ránsferðir. 20 ára fang- elsi fyrir heimsku Kona sem áreitt hefur stjömuparið Catherine Zetu-Jones og Michael Douglas gæti átt 20 ára fangelsisdóm yfir höfði sér. Lögfræðingur hinn- ar 32 ára Dawnete Knight segir skjólstæð- ing sinn kærulausa og hennar eina sekt sé að vera yfir sig hrifin af Douglas. „Hún getur ekki farið í 20 ára fangelsi fyrir að vera heimsk," sagði lögffæðing- urinn í réttarsalnum. Of stór brjóstí tölvuleiknum Leikkonan Kirsten Dunst segist hafa rekið augun í brjóst þegar hún var beðin um að samþykkja tölvuleik sem gerður var eftir kvikmyndinni Spider-Man 2. Dunst, sem leikur Mary-Jane í mynd- inni, segir hina teiknuðu Mary-Jane alltof brjósta- stóra. „Mér líkaði við flest það sem ég sá í leiknum en ég skipaði þeim að minnka brjóstin og passa upp á að þau sæjust ekJd nakin," sagði leikkonan. Jóhannes G. Bjarnason bæjarfulltrúi á Akureyri og þjálfari KA. „Það er helst frá mér að frétta að ég var að byrja aö þjálfa handboltaliðið mitt f vikunni svo við erum komnirá fullan snúning. Ég erennþá í hátföar- skapiyfír að fjölmiölafrum- varpsumræðunni sé lokiö í bili svo þjóðin geti farið að hugsa um önnur mál. Ég get ekki Landsíminn sé f verslunarmannafíling. Við í handboltanum verðum meö gæslu á dansleikjum hér um helgina og það er engin rosa- leg eftirvænting og spenna gagnvart þvl. Ég vona aö þetta takist vel til héri bænum. Þessi hátíð hefur verið dálítið um- deild og það er mér mikilvægt að hún takist vel." Páll Valsson, útgáfustjóri Máls og menningar, og Sigurður Svavarsson, útgáfustjóri Eddu, þverneita því að hafa verið beittir þrýstingi til að gefa ekki út bók Ómars Ragnarssonar um Kárahnjúkavirkjun. Edda láti ekki hræða sig frá að gefa út bæk- ur um hálendið og sé nýbúin að gefa út bók Guðmundar Páls Ólafssonar um nátt- úruna norðan Vatnajökuls. „Það er rétt að Ómar Ragnarsson lagði inn drög að handriti bókar sinnar hjá Eddu útgáfu, rétt eins og fjöldi annarra höfunda. Hon- um var vel tekið og handritið vandlega skoðað og af fullri alvöru," segir Páll Valsson, útgáfustjóri Máls og menningar, sem er eitt af forlögum Eddu. Handrit Ómars var að bók hans um rökin með og á móti Kárahnjúkavirkjun sem hann er nýbúinn að gefa út. Páll segir að útgáfustjórar Eddu hafi komist að þeirri niðurstöðu að lokum að gefa ekki út bók Ómars, „og til þess lágu einvörðungu fagleg rök,“ segir hann. „Enginn samning- ur hafði verið gerður við Ómar né vilyrði af neinu tagi, þótt menn hafi skoðað handrit hans af opnum huga, og engin vinnsla var hafin inn- anhúss hjá forlaginu við það að búa til bók úr handrit- inu." Hann segir að allt tal um að búið hafi verið að ákveða að gefa bók- ina út, sé alrangt. Hann segir það sem haft er eftir Jóhanni Páli Valdimarssyni, hjá JPV út- gáfu í DV fyrir helgi um að „fyrri útgefandi" hafi horfið frá útgáfu sé út í hött. „Ekkert for- laga Eddu hefur heldur nokkru sinni gefið út bók eftir Ómar Ragnarsson." Enginn hrökk úr skaftinu Páll Valsson og Sigurður Svavars- son, útgáfustjóri Eddu, vísa alfarið á bug staðhæfingum um að Edda hafi kippt að sér höndum við að gefa út bók Ómars af ótta við valdamikil öfl í samfélaginu sem hafi hagsmuna að gæta vegna Kárahnjúkavirkjunar. „Þegar gefið er í skyn að forlög Eddu „gangi úr skaftinu vegna utanað- komandi þrýstings" er rétt að minna á að einn helsti höfundur Máls og menningar, eins dótturforlaga Eddu, er Guðmundur Páll Ólafsson, náttúrufræðingur og rithöfundur og helsti baráttumaður fyrir al- mennri náttúruvernd á ís- landi," segja útgáfustjórarnir. Þeir taka fram að fyrir ári hafi Mál og menning gefið t út bók hans, Um víð- erni Snæfells, „sem er ^ óður til landsins sem v hverfur vegna Kárahnjúka- virkjunar, náttúrufræðileg 'k og menningarleg úttekt á þessu svæði með stórfeng- legum myndum." Bók Guðmundar Páls ítarlegri en Ómars „Við teljum að bók Guðmundar Páls sé bæði ítarlegri og fyllri grein- argerð fyrir náttúru svæðisins en bók Ómars Ragnarssonar," segir í bréfi frá Sigurði og Páli. Þeir taka ennfremur ffarn að Mál og menning hafi nýlega gefið út sérstakt kort um þetta svæði. „Útgefandi Ómars talar um að hann hafi litið á það sem „borgaralega skyldu sína" að gefa bókina út. Sé það hugtak notað áfram þá má segja að við höfum uppfyllt þá „skyldu" fyrir ári síðan með útgáfu bókar Guð- mundar Páls Ólafs- sonar," segja út- gáfustjórarnir. Páll Valsson Segir eingöngu fagleg rök fyrir því að hafna útgáfu á bók Ómars Ragnars- sonar Ómar Ragnarsson Lenti í hremmingum við aö gefa út bók um Kárahnjúka. 200 risaskip sokkið á 20 árum Risaöldur ógna Evrópska geimstofnunin varð vör við tíu risaöldur á þriggja vikna tímabili í rannsókn sem stofnunin gerði á yfirborði sjávar. Sumar öld- .urnar sem stofnunin kom auga á úr tveimur gervitunglum voru yfir 30 metrar á hæð. Seinustu tvo áratugi hafa yfir 200 risaskip, sum yfir 200 metra löng, sokkið og samkvæmt frásögnum sjónarvotta var mörgum skipum sökkt af háum öldum sem risu upp úr lygnum sjónum. í mörg ár hafa þessar frásagnir verið álitnar hindurvitni og haffræðingar hafa hingað til hengt sig í hermilíkönum sem sýna að risaöldur eins og þær sem eiga að hafa sökkt skipunum yrðu ekki til nema einu sinni á þús- und árum. „Tvö stór skip sökkva að meðaltali í hverri viku en sjóslysin eru aldrei rannsökuð í sama mæli og til dæmis flugslys. Orsakirnar eruyf- irleitt bara sagðar vera slæmt veð- ur," segir Wolfgang Rosenthal sem stórum skipum Risaalda Skellurávita. rannsakað hefur fyrirbærið. „Við vit- um af nokkrum ástæðum sem liggja að baki því að slíkar öldur rísi upp úr hafinu en við vitum ekki allar." Monica Lewinsky fitnar og fitnar og er nú 110 kíló Lewinsky blæs út eins og loftbelgur Monica Lewinsky, fyrrum ástkona Bills Clinton, verður seint sökuð um að vera grannvaxin kona. Hún hefur áður átt í vandræðum með holdarfar sitt en nú fitnar hún og fitnar og er víst orðin 110 kíló þessa dagana. Bandarískir fjölmiðlar greina frá því að hún hafi hægt og ró- lega étið sig upp í þessa þyngd á undanfömum mánuðum. Þunglyndi er kennt um. Þetta em ekki góðar , fréttir fyrir Jenny Craig- * megrunarkúrinn en Lewinsky er sérstakur talsmaður hans. „Hún t1 hefur bætt við sig óhuggulegum fjölda af I i kílóum. Hún hefur það ekki gott. Það er erfitt fyrir hana að finna vinnu og nýlega seldi hún persónulega muni á útimarkaði í New York. Hún hefur verið undir miklu álagi í framhaldi af útkomu bókar Bills Clinton," segir Michael Whitcomb hjá New York Daily News. Astarlíf Monicu Lewinsky er einnig þyrnum stráð. Hún hefur áður sagt að enginn vilji vera með konu sem er helst þekkt fyrir að hafa farið í bólið með forseta landsins. Monica Lewinsky Monica verður seint talin íhópi grannvaxinna en hún hefur nú blásið upp 1110 kíló.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.