Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2004, Blaðsíða 23
J3V Helgarblað
LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 2004 23
Gjörningaklúbburinn kallar sig á ensku The lcelandic Love Corporation. Þar eru þrjár og hafa um ára-
bil unnið saman að myndlist, hittust fyrst í Myndlistar og Handíða skólanum og hafa síðan farið víða og
sýnt í nafni klúbbsins. Á fimmtudag opnuðu þær nýja sýningu í gallerí i8 á Klapparstígnum. Það voru
nýjustu verk þeirra á boðstólum, viðförull gerningur á teipi, ljósmyndir, teikningar og stór ný verk.
Starfar þú við almannaþjónustu og viltauka þekkingu þína og hæfni?
Sumarið fór í stórsókn á evrópu-
markaði. Þær stöllur sóttur heim
frægustu og erfiðustu listamessu álf-
unnar í Basel og fengu þar sinn eig-
in bás undir þeirri deild messunnar
sem kallast Statements. Þangað er
valinn hópur listamanna og voru
þær stöllur einar af sautján mynd-
listarmönnum sem þar fengu inni.
Þykir það nokkur heiður, en lista-
kaupstefnan í Basel er virtasta kaup-
steftia myndlistanna í heiminum.
Stærsta og nýstárlegasta verkið á
sýningunni í i8 er veggverk unnið úr
lakkrís: „Það eru ýmsar týpur af
lakkrís, reimar, rúllur, rör og fylltur
lakkrís, allt saman frá Appolló-lakk-
rís,“ segir Eirún Sigurðardóttir sem
er þriðjungur af klúbbnum. Vinkon-
ur hennar eru þær Jóm' Jónsdóttir og
Sigrún Hrólfsdóttir. „Verkið er vísun
í Stjörnunótt eftir Van Gogh. Við vit-
um ekki alveg hvað það heitir, en
Stúlkurnar að
starfi á síðasta
ári Frá sýningu
klúbbsins I New
York I vetur.
það kemur í ljós.“ Þá er á sýningunni
hamur gerður úr gömlum sokka-
buxum og fylgir honum heklaður
höttur. Við spyrjum hvort að hann
sé fyrir smávaxnar konur eða há-
vaxna karla. „Það er one size fíts all“,
svara Eirún að bragði. „Við erum
alltaf að hverfa til hannyrða, sem
áður voru stundaðar af öllum kon-
um, en nú er hætt, því miður."
í glugganum á i8 verður til sýnis
myndband af gerningi sem þaær
hafa ferðast með síðastu misseri. Þá
munu þær sýna ýmislegt annað
smálegt. Þá er til sýnis amerískur
örn í þeirra útgáfu
Þessar ungu konur hafa verið á
fartinu síðustu misseri og geta ekki
slakað á: þeirra bíða sýningarstörf í
erlendum stór-
borgum. Fyrst er
gerningahátíð í
Stokkhólmi með
leikhúsi í bland,
þá er meiri gern-
ingar í Sankti Pét-
ursborg og loks
verkefni um tré
fyrir jól í Búda-
pest. Það verður
því nóg að gera. „Stöðugur þeyting-
ur," segir Eirún. Sýningin opnaði á
fimmtudagskvöld og verður opin frá
11 til 17 á miðvikudögum til föstu-
dags, laugardaga frá 13.
:• Starfsmennt
Fræðslusetrið Starfsmennt er samvinnuvettvangur
fjármálaráðuneytisins og ýmissa stéttarfélaga ríkisstarfsmanna
um starfsþróun, endur- og símenntun. í þessum málaflokkum
þjónustar Starfsmennt bæði starfsmannahópa og einstakar
stofnanir. Eftirfarandi verkefni og námskeið verða meðal annars í
boði á haustönn 2004:
Starfsnám stuðningsfulltrúa, grurín- og
framhaldsnám
Nám fyrir starfandi stuðningsfulltrúa. Umsjón með
náminu hefur Framvegis - miðstöð um símermtun og
Símenntunarmiðstöðvar víða um land.
Rekspölur I og Rekspölur II
Almennt starfsnám. Umsjón með náminu hefur
Fræðsluver GG.
Framrás 1, Framrás 2 og Framrás 3
Einkum ætlað fólki í skrifstofustörfum og tengdum
störfum í almannaþjónustu. Umsjón með náminu er í
höndum Endurmenntunar HÍ, Símenntunarmiðstöðvar
Eyjafjarðar, Fræðslunets Austurlands,
Fræðslumiðstöðvar Þingeyinga, o.fl.
Vandað til verka
Nám fyrir stjórnendur, verkstjóra og leiðbeinendur á
vernduðum vinnustöðum. Samstarfsaðili er Samtök um
vinnu og verkþjálfun. Umsjón er í höndum
Starfsmenntar.
Járnsíða
Nám og þjálfun fyrir starfsmenn
sýslumannsembættanna. Verkefnið er í undirbúningi.
Nánar kynnt síðar.
Félagsliðanám
Nám fyrir starfandi stuðningsfulltrúa. Samstarfs- og
umsjónaraðili er Borgarholtsskóli.
Nám fyrir hjúkrunar- og móttökuritara
Nám fyrir starfandi hjúkrunar- og móttökuritara.
Samstarfs- og umsjónaraðili er Fjölbrautaskólinn við
Ármúla.
Nám fyrir umsjónarmenn fasteigna
Nám fyrir starfandi umsjónarmenn fasteigna.
Samstarfs- og umsjónaraðili er Iðntæknistofnun.
Ráðgjafi að láni
Greining og áætlanagerð á sviði starsþróunarmála sem
unnin eru með ákveðnum hópi stofnana.
Skýrt og skorinort - starfsmannasamtöl og
notkun þeirra
Námskeið fyrir starfsmenn stofnana sem tekið hafa þátt
í verkefni Starfsmenntar Ráðgjafi að láni. Umsjón með
námskeiðunum hefur Þekkingarmiðlun ehf.
Allar frekari upplýsingar er að fá hjá Fræðslusetrinu Starfsmennt,
Grettisgötu 89, 105 Reykjavík. Símanúmer: 525-8395.
Netfang: smennt@smennt.is. Heimasíða: www.smennt.is.
Stéttarfélag í
almannaþjónustu
/fi»)
Starfsmannafélag
Reykjavíkurborgar
i Kjölur
Fjármálaráduneytið
Félag opinberra starfsmanna á Vestfjörðum, Félag opinberra starfsmanna á Austurlandi, Starfsmanna-
félag Dala- oq Snæfellssýslu, Starfsmannafélag Húsavíkur, Starfsmannafélag Fjarðabyggðar, Starfs-
mannafélag Olafsfjarðar, Starfsmannafélag Seltjarnarness, Starfsmannafélag Skagafjarðar, Félag
opinberra starfsmanna á Suðurlandi, Starfsmannafélag Akraness, Starfsmannafélag Hafnarbarðar,
Starfsmannafélag Kópavogs, Starfsmannafélag Vestmannaeyja og Starfsmannafélag Garðabæjar