Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2004, Síða 6
6 MÁNUDAGUR 18. OKTÓBER 2004
Fréttir DV
íslenskar
hausaveiðar
Norska ríkisút-
varpið hefur greint
frá því að íslending-
ar séu á hausaveið-
um í Noregi. Mála-
vextir eru þeir að .
Norðmenn henda
þorskhausum í sjó- ______
inn en íslendingar vinna úr
þeim verðmæti til að selja
Nígeríumönnum. Fjöldi
fyrirspurna hefur borist
rannsóknafyrirtækinu
Fiskeriforskning í Tromsö
frá íslenskum aðilum sem
vilja kaupa þorskhausa,
samkvæmt því er kemur
fram á skip.is. Vinsældir
þorskhausa í Nígeríu má
rekja til þess að margir íbú-
anna hafa ekki efni á
skreið. Þorskhausar eru þar
vinsælar skírnar- og ferm-
ingargjafir.
Hérað hefur
fengið nafn
í skoðanakönnun um
nafn á nýtt sveitarfélag á
Héraði, sem fram fór jafn-
hliða sveitarstjórnarkosn-
ingum fyrir austan á laug-
ardag var Fljótsdalshérað
það nafn sem fékk flest at-
kvæði. Kosið var um nöfnin
Egilsstaðabyggð, Fljótsdals-
hérað og Sveitarfélagið
Flérað.
Eiga lœknar að
Þiggja gjafir frá
lyfjafyrirtœkjum ?
Dagur B. Eggertsson
læknir og borgarfulltrúi
„Það er eðlilegt að læknar
stundi endurmenntun og
framhaldsnám. Isumum til-
vikum getur það verið í sam-
starfi við lyfjafyrirtæki. Gjafir
því tengdar eða boðsferðir
geta keyrt úr hófi fram. Það er
því eðlilegt að upþlýsingar um
slíkt séu opinberar eða að
minnsta kosti aðgengilegar
þeim sem að læknarstarfa
hjá."
Hann segir / Hún segir
„Nei. Læknar eiga ekki að
þiggja gjafirsem eru líklegar
til að hafa áhrifá starfið. Til
dæmis utanlandsferðir sem
eru kostaðar algjörlega af
lyfjafyrirtækjum á ráðstefnum
erlendis. Oft er þetta á gráu
svæði en þá erum við komin
yfir þessi mörk. Fræðibækur og
slíkt eru annað mál en þaö er
alltaferfitt að meta þetta."
Þuríður Backman
alþingismaður
Björn Sigurðsson, sem birtir nöfn dópsala á netinu, glímir við fjölskyldu sína, lög-
regluna, persónuvernd, dópsala og handrukkara. íbúar í blokk hans í Krummahól-
um eru óttaslegnir. Björn segist sjálfur vera afslappaður og sáttur við lífið. Listinn
sé hans líftrygging og hann muni birta fleiri nöfn ef handrukkararnir og dópsal-
arnir láti hann ekki í friði.
Fimm dagar eru síðan Björn Sigurðsson birti nafnalista yfir
þekkta handrukkara og eiturlyfjasala á netinu. Síðan þá hefur
lögreglan hótað að hefja opinbera rannsókn á málinu, Persónu-
vernd segir lög brotin, hótanir hafa borist úr undirheimunum og
fbúar í Krummahólum 6 óttast um öryggi sitt. Björn segist hvorki
óttast handrukkara né dauðann.
Eldfim umræða hefur skapast á
netinu, meðal annars á vefsíðu
Björns, um þennan einstaka gjörn-
ing hans. Margir fagna framtakinu
en sumir hafa uppi stór orð, vísa til
persónuverndar og friðhelgi einka-
lífs þeirra sem á listanum eru. Þá
segist maður sem gagnrýnir birtingu
listans ætla að komast að því hve
mikið hann fái af peningum fyrir að
gera út af við Björn.
„Ég er mjög afslappaður," segir
Björn og kveikir sér í sígarettu. Þrátt
fýrir að tveir af strákum Björns séu á
kafi í dópheiminum og hann sjálfur í
hatrammri baráttu á móti „þessum
mönnum" hefur hann aldrei komið
nálægt dópi - eina sem hann er háð-
ur, segir Björn, eru sígarettur.
„Ég reyki yfir tvo pakka á dag,“
segir hann.
Barátta föður og sonar
Á heimasíðu Björns, dopsalar.tk,
eru nöfn ýmsra manna sem eru
misþekktir úr fíkniefhaheiminum.
Sumir eru nú í fangelsi. Aðrir ganga
lausir. En ekki eru allir sammála um
gildi nafnbirtinga Björns. Einn af
þeim er Ómar Björnsson, sonur
hans í Breiðholtinu.
„Að gefnu tilefni kæri ég mig ekki
um að unnustu minni sé kennt um
að eiga sök á tilvist þessa lista frá
föður mínum og mun ég íhuga að
kæra þá sem það gera þar sem
þessir listar koma hvorki henni né
„Það er bara kominn
tími til að eitthvað sé
gert íþessum málum."
mér við á neinn hátt [...] ÞAÐ VAR
FAÐIR MINN SEM SETTI ÞESSA
LISTA INN Á ÞESSA SÍÐU EKKI ÉG
EÐA UNNUSTA MÍN,“ segir Ómar í
lista af svörum á heimasíðu föður
síns.
Gremja Ómars er kannski skiljan-
leg. Hann bætir við að hann hafi
fengið símtal að næturlagi frá ein-
hverjum sem hafi hagsmuna að
gæta varðandi listann. Honum hafi
verið hótað og íhugi að kæra ef þetta
heldur áfram.
Björn segir fjölskylduna ekki
sátta við það sem hann gerir.
Fjölskylda í dópi
„Nei, fjölskyldan í heild er á móti
þessu. Tveir synir mínir eru á kafi í
þessum heimi en ég vil taka það
skýrt fram að þeir eru ekki heimild-
armenn að þessum lista. Þeir komu
ekki nálægt honum og það er ekki
sanngjarnt að þeir líði fýrir það sem
ég er að gera,“ segir Björn.
Hann heldur áfram: „Samband
mitt við syni mína er samt ágætt. Ég
hef samt alltaf verið á móti dóp-
neyslu þeirra. Það er ekki hægt að
lýsa því hvernig það er að sjá börnin
Öryggiskerfi á stigaganginum íbúari
blokkinni eru óttasiegnir vegna lista Björns.
sín á kafi í þessum heimi. Eina sem
ég er háður er tóbak. Það nægir
mér.“
Lögreglan í Reykjavík hefur gert
athugasemdir við að nöfn tveggja
lögreglumanna eru á listanum.
Björn segir þessa menn veita
dópsölum upplýsingar.
„Ég setti nöfn tveggja
lögreglumanna inn á síðuna því ég
veit hvað þeir gera,“ segir Björn.
„Þetta eru samt bara tveir lögreglu-
menn. í heild stendur löggan sig vel
og ég hef h'tið út á hana að setja."
Varðandi Persónuvemd segir
Björn dópsöluhstann vera á erlendri
síðu svo íslensk lög ná ekki yfir hana.
Nöfnin líftrygging
En af hverju treystir Björn ekki
lögreglunni til að sinna sínu starfi.
Upplifir hann sig sem sjálfskipaðan
lögreglumann, einhvers konar Hróa
Hött?
Nei, guð minn góður," segir
Björn og hlær. „Það er bara kominn
tími til að eitthvað sé gert í þessum
málum. Þau nöfn sem ég birti er
bara h'till hluti af þessum heimi. Ég
held ennþá nöfnum toppanna á
ömggum stað. Það er mín
líftrygging.“
Óg til að sanna mál sitt segir
Krummahólar Hér býr Björn Sigurðsson,
baráttumaður gegn dópsölum.
Björn að dópsah í næstu blokk, sé nú
hættur að dfla í hverfinu. „Þessi
maður er á listanum," segir Björn.
íbúar óttaslegnir
Það fækkar í Viceroy-pakkanum.
Björn fær sér kaffi. Með miklum
sykri. Hann er nú kominn aftur í
fasta vinnu en vill ekki gefa upp hver
hún er. Segist vera að vinna við bfla
eins og hann hafi gert nær allt sitt h'f.
„Ég fór aldrei í framhaldsnám
eins og sumir,“ segir Björn. „Vann
bara mína vinnu og giftist fallegri
konu. Við skyldum svo árið 1993 en
hún heldur ennþá sambandi við
mig. Hún hefur áhyggjur af því sem
ég er að gera. Vill að ég hætti þessu."
Og það em fleiri. íbúar í stiga-
gangi Björns í Kxummahólum 6 em
óttaslegnir. Björn segir eina konu á
ganginum hafa komið í heimsókn og
spurt hvað hún ætti að gera. Hann
hafi róað hana með því að setja upp
öryggiskerfi í stigaganginum.
„Síðan ég setti upp síðuna hef ég
fengið hótanir í gegnum síma. Þetta
eru alltaf „private numbers" en
manni gmnar svo sem ýmislegt. Ég
er samt ekki óttasleginn. Þetta er
slagur sem ég er tilbúinn að taka. Ég
sé ekki eftir neinu."
simon@dv.is