Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2004, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2004, Blaðsíða 3
DV Fyrst og fremst ÞRIÐJUDAGUR 79. OKTÓBER 2004 3 Arnrún Ósk Eysteins- dóttir og Halldór Snaer Bjarnason Hér vilja Arn- rún og Halldór gera gat í stofugólfið svo hægtsé að ganga beint úr lbúðinni ofan! vinnuhergi sem þau eiga í kjallaranum i sam- eignarhúsinu I Stórholti 28. Mega ekki opna niður úr stofunni Spurning dagsins Hefurðu neytt kannabisefna? „Ekkiminn lífsstíll" „Nei, það hefég aldrei gert, enda samræmist það ekki mínum Iffsstíl. kannabisreykingar eru óheilbrigðar og þess vegna er ég til dæmis alfariö ámóti því að slík efni verði lögleidd." Hulda Lárusdóttir „Nei. Og aldrei haft áhugaá þeim heldur. Ég hefveriðí Amsterdam og séð hvernig það virkar þegarsvona efni eru lögleg og líst ekki á að það verðigert hér." Björn ísberg Björnsson verslunarmaður. „Nei, ég hef aldrei notað þau. Læt vínið bara duga enda er það bara alveg nóg fyrir mig, get ég sagt þér." Arnar Eyþórsson sölumaður. „Þeir segja að þetta muni rýra gæði og verðgildi íbúðarinn- ar. Halló! Það myndi ekki gera neitt annað en að auka verðmæt- ið og notagildið að stækka íbúðina um eitt herbergi," segir Arn- rún Ósk Eysteinsdóttir. Byggingafullltrúinn í Reykjavík neitar henni og sambýlismanninum Haildóri Snæ Bjarnasyni um leyfi tii að láta gera stigaop úr stofu íbúðar sinnar ofan í herbergi sem þar er fyrir neðan. Amrún og Halldór keyptu íbúð á fyrstu hæð í Stórholti. Með íbúðinni fylgir meðal annars geymsla í kjailara, beint undir stofugólfinu. „Þeir segja að það verði að fylgja geymsla íbúðinni en það em tvær aðrar geymslur sem fylgja henni auk sameiginlegrar geymslu," bætir Amrún við um ástæður synjunar byggingafulltrúa. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem byggingafulltrúi neitar þeim Arnrúnu og Halldóri um leyfi fyrir opnuninni niður. í sumar var óskinni hafnað með tilliti til brunavarna. „Ég hringdi í forvamarfulltrúa í slökkviliðinu. Hann sagði að við gætum bara múrað upp í hurðina niðri. Það vildi ég nú ekki, taldi það nú bara loka flóttaleiðum. Hann sagði þá að við gætum smellt inn 30 mínútna eldvarnarhurð. Og þar með var það mál leyst," segir Arnrún. Eftir að vera búin að kippa brunavörnunum í liðinn sóttu Arnrún og Halldór aftur um að fá að opna á milli hæðanna. Fyrr í þessum mánuði kom synjunin með áðurnefndum rökum. „Þá fundu þeir sér nýjar ástæður. Þeir sögðu að við væmm að taka hálfa stofuna undir þetta. Það er alls ekki rétt. Auk þess höfum við fundið aðra lausn sem gerir ráð fyrir beinum stiga í stað hringstiga eins og umsóknin kvað á um. Sá stigi myndi taka sáralítið af stofugólfinu. Og ég spurði nú bara líka á móti: Hvað kemur það ykkur við? Það sést ekki utan á hús- inu hvað við erum að gera þar inni. Svona afgreiðsla býður upp á að fólk sækir einfaldlega ekki um leyfi," segir Arnrún. Hefur hið opinbera bannað þér að umgangast eignir þínar eins og þú vilt? Hafðu þá samband við ritstjórn DV í síma 550 5000 eða með í gegnum netfangið ritstjorn@dv.is. „Aldrei nokkurn tímann og langar heldur ekki til þess, ef ég yrði spurð eða mérstæði það til boða. Mér finnst það bara síður en svo heillandi líka." Sædís Jónsdóttir nemi. „Nei, aldrei. Er alveg á móti þessu helvíti sem kanna- bisefnin eru get ég sagt þér. Sé ekkert heillandi við þau." Davíð Guðmundsson verslunarstjóri. Kannabisreykingar hafa jafnt og þétt aukist á síðustu árum og þeim fjölgað í sama hlutfalli sem leita sér meðferðar vegna ofneyslu þeirra.Á ári hverju eru tugir kílóa af efnunum gerð upptæk en talið er að framleiðsla og ræktun á efninu hafi aukist stórlega frá því sem var. Rómantík allra tíma Bandarískir kvikmyndajöfrar hafa tekið saman lista yfir 100 rómantísk- ustu myndir allra tíma þar vestra. Hér er listinn yfir tíu rómantískustu mynd- imar, að þeirra mati. €> Æt m Kvikmynd 1. Casablanca, 1942 2. Gone With the Wlnd, 1939 3. West Slde Story, 1961 4. Roman Hollday, 1953 5. An Affalr to Remember, 1957 6. The Way We Were, 1973 7. Doctor Zhlvago, 1965 & It's a Wonderful Life, 1946 9. Love Story, 1970 10. Clty Llghts 1931 Leikstjóri Mkhael Curtlz Vlctor Fleming Jerome Robblns & Robert Wlse William Wyler Leo McCarey Sidney Pollack Davld Lean FrankCapra Arthur Hiller Charles Chaplln Aðalhlutverk Humphrey Bogart og Ingrld Bergman ClarkGableog Vivian Lelgh Natalle Wood og Richard Beymer Gregory Peckog Audrey Hepbum Cary Grant og Deborah Kerr Barbra Stelsand og Robert Redford Omar Sharlf og Julie Christie James Stewart og DonnaReed All MacGraw og Ryan O'Neal Charles Chaplln og Virglnia Cherrlll „MINN- Tngar NÆRA IMYNDUN- ARARAFL- IÐ.“ -AMYTAN 1952- Það er staðreynd... ..að í Róm em fleiri villikettir á hvern ferkíló- metra en í nokk- urri annarri borg í heiminum. Þau eru systkini Framkvæmdastjórinn mjfáðuneytisstjórínn ' Sigrún Árnadóttir, framkvæmdastjóri Rauffa krossins, og Guömundur Árnason, ráðuneytisstjóri! menntamála- ráðuneytinu, eru systkini. Þau eru börn Árna Halldórsson- ar, fyrrverandi útgeröarmanns og skipstjóra frá Eskifirði, og konu hans Ragnhildar Kristjánsdóttur, fyrrverandi fjár- málastjóra, frá Höfn I Hornafirði. Á meðan Sigrún hefur gegnt stnu starfi undanfarinn áratug eða rúmlega það var Guðmundur ráðinn í sitt starf! fyrra. Hann var áður skrifstofustjóri í forsætisráðneytinu. Guðmundur Ágúst Ásgeir Baldur Þorsteinn Margrét S. Magnússon Einarsson Jónsson Þórhallsson Þorgeirsson Björnsdóttir Ahrif Evrópusamrunans á smærrí ríki Evrópu Alþjóðamálastofnun HÍ og Samtök iðnaðarins boða til málstofu um áhrif Evrópu- samrunans á smærri ríki Evrópu miðvikudaginn 20. október í Norræna húsinu frá kl. 8:30 til 10:00. Málstofan byggist á nýútkominni skýrslu Richard T. Griffiths og Guðmundar Magnússonar "Small States and European Economic Integration - Comparative Studies" sem Smáríkjasetur Alþjóðastofnunar Háskóla íslands gaf nýverið út. í skýrslunni er fjallað um áhrif EES og ESB aðildará smærri ríki Evrópu. Ágúst Einarsson, prófessor við Viðskipta- og hagfræðideild HÍ flytur framsöguerindið „Staða smáríkja í breyttum heimi." í panelumræðum fjallar Guðmundur Magnússon, prófessor við Viðskipta- og hagfræðideild HÍ, um helstu niðurstöður skýrslunnar. Ásgeir Jónsson, lektor við Viðskipta- og hagfræðideild HÍ, Baldur Þórhallsson, dósent við Stjórnmálaskor Félags- vísindadeildar HÍ og Þorsteinn Þorgeirsson, hagfræðingur SI, fjalla einnig um efni skýrsl- unnar. Eftir panelumræður verður spurningum úr sal svarað. Fundarstjóri verður Margrét S. Björnsdóttir forstöðumaður, Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála, HÍ. Aðgangur er ókeypis og fundurinn opinn öllum á meðan húsrúm leyfir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.