Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2004, Qupperneq 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTÚBER 2004
Fréttir D V
Rifrildi endar
í aftaná-
keyrslu
Um fjögurleytið á
sunnudaginn varð aftaná-
keyrsla við Yrsufell í Breið-
holti. Aðdragandi árekst-
ursins varð með þeim hættí
að ungt par með 7 mánaða
gamalt barn var að rífast í
öðrum bílnum. í æsingnum
nauðhemlaði ökumaðurinn
og lentí þá annar bíll aftan
á honum. Að sögn lögregl-
unnar fór ökumaður þess
bfls af vettvangi þar sem
hann hræddist æsinginn í
hinum bflstjóranum.
Vaknaði við
lærastrokur
Á laugardagsmorgun
barst tilkynning til lög-
reglu um ókunnugan
mann sem kominn væri
inn á herbergi hjá konu
á hóteli í austurborginni.
Var maðurinn kominn
upp í rúm til konunnar
sem hafði vaknað við að
verið var að strjúka á
henni annað lærið. Mað-
ur hennar lá við hlið
hennar í rúminu og gaf
hún honum olnbogaskot
þannig að hann vaknaði.
Þegar eiginmaðurinn var
vaknaður hafði ókunn-
ugi maðurinn sig á brott.
Hafði þessi sami maður
reynt að elta konuna inn
á herbergi kvöldið áður
en verið vísað út. Hann
varð sér úti um master-
lykil að hótelinu og kom-
ist þannig inn í herbergi
konunnar.
Graffiti
vekur gleði
í upphafi helgarinnar
barst lögreglunni í Reykja-
vík tilkynning um ungan
mann sem væri að úða
málningu á veggi fyrirtækis
í austurborginni. Lögregla
fór á staðinn og ræddi við
„listamanninn" og fólk í
húsinu. Að sögn lögregl-
unnar var fólkið í húsinu
mjög sátt við framtak hins
unga manns og leist bara
nokkuð vel á „listaverkið"
sem hann hafði skapað. Því
var ekkert aðhafst frekar í
málinu.
Frosti Bergsson, fyrrum eigandi Opinna kerfa, er einn þeirra sem efnast hefur svo
um munar í nýju umhverfi íslensks viðskiptalífs. En hann heldur stillingu sinni
enda veit hann sem er að margur verður af aurum api.
F
„Hamingja og peningar eru tvennt ólíkt. En ég er sæll,“ segir
Frosti Bergsson, fyrrum forstjóri og einn af eigendum Opinna
kerfa sem Kögun keypti fyrir skemmstu. Fyrirtækið var þá metið
á 8,1 milljarð króna og sjálfur átti Frosti Bergsson 17 prósent.
„Það geta allir reiknað út hvað ég fékk,“ segir Frosti og það er
ekki flókið reikningsdæmi. Rétt tæpur hálfur annar milljarður
rann í vasa Frosta við kaupin og hann segir peningana alla
geymda í banka.
En það sem ég á
núna eru al-
vöru pen-
ingar.
Þetta er
ekki eitt-
hvaðá
pappírum
sem rýkur
upp og nið-
Frosti gegnir enn stjórnarfor-
mennsku í Opnum kerfum en
hyggst láta af þeim störfum um
næstu mánaðamót. Lýkur afskipt-
um Frosta þá af fyrirtækinu sem
hann hefur verið að byggja upp í 20
ár með þeim árangri sem að framan
greinir. Ekki alltaf dans á rósum og
upphaflega þurfti Frosti að selja
húsið sitt til að leggja í fyrirtækið
þannig að allt var undir. En núna
gæti hann keypt mörg hundruð hús
fyrir þetta eina sem hann þurftí að
láta fýrir tveimur áratugum.
Apar og aurar
„Það skiptir mestu að menn haldi
stillingu sinni við þessar aðstæður
og hugsi sinn gang vel. Margur
verður af aurum api og ég ætla ekki
að verða einn af þeim. Hvað ég tek
mér fyrir hendur næst ætla ég hins
vegar að halda fyrir sjálfan mig,“
segir Frosti, sem hefur verið blankur
eins og aðrir þó að hann þurfi lfldega
aldrei að verða það framar. Og í því
liggur munurinn:
„Sem strákur var ég í sveit og img-
ur vann ég við uppskipun hjá Togara-
afgreiðslunni. Svo fór ég á sjóinn.
Auðvitað var maður oft blankur í
skóla. En það sem ég á núna eru al-
vörupeningar. Þetta er ekki eitthvað á
pappfrum'sem rýkur upp og niður.“
Gott golfsett
Frostí Bergsson á alls ekki von á
því að setjast í helgan stein þrátt fyrir
hálfan annan mflljarð í bankanum.
Segir það í eðli mannsins að hafa eitt-
hvað fyrir stafrú. Hann aftekur þó
með öllu að hann hyggist kaupa
knattspymulið í útlöndum eða eitt-
hvað slíkt. Hann hafi áhuga á golfi
og laxveiðum og haldi sig við
það: „Jú, ég á ágætt
golfsett," segir hann.
í raun hefði Frosti
getað orðið miklu ríkari
ef hann hefði selt Opin
kerfi fyrr. Fyrir íjórum
árum var fyrirtækið
metið á 12 milljarða
króna og þá átti Frostí
20 prósent í því. Ef
hann hefði selt á þeim
tímapunkti ætti hann
ekki einn og hálfan
mflljarð í banka held-
ur tvo og hálfan. Og
munar um minna:
„En þá var ég bara
ekkert að hugsa um
að selja og málið
aldrei á dagskrá sem
sl£kt,“ segir hann.
Hálfleikur
Frosti Bergsson
er 55 ára gamall.
Hann ætlar að
hugsa sitt ráð áður
en hann hleypur
aftur inn á völlinn
þegar flautað verð-
ur til leiks. Staðan í
hálfleik er góð.
Frosti rfki Var
blankurískóla.
Heill sé vetri konungi vorum!
Af tilefni fjölmargra kvartana sem
Svarthöfða hefúr borist vegna veturs
konungs vill hann vekja athygli á eft-
irfarandi kostum þessarar óumflýj-
anlegu árstíðar. Vetmrinn gefur okk-
ur afsökun til að kaupa ný föt og
klæðast á annan hátt. Hver vill til
dæmis klæða sig eins og Andrés
önd, alltaf í eins fötum? Svarthöfði
fagnar vetri, því þá getur hann notað
föt sín til hins ítrasta og sveipað sig
ull og lérefti að hætti forfeðranna.
Lfklega þarf ekki að tína til annan
kost hins alltumvefjandi vetrar en að
hann drap geittmgana. Svarthöfði
varð fyrir fjölda árása í sumar þegar
þessi fljúgandi virki ástunduðu sitt
náttúrulega samsæri gegn mann-
kyninu.
Samkvæmt tölfræðirannsóknum
Svarthöfða eru þær þjóðir sem búa
við temprað eða kalt loftslag miklu
ríkari en þær sem búa við eilífðar-
sumur með skúrum á stöku stað.
Ekki skal gleyma að helfrostíð gerir
þjóðinni kleift að sitja sem fastast
við sinn keip. Hefðu veður hér ekki
verið svo válynd sem raun ber vitni,
auka eldgosa og annarra hamfara,
Hvernig hefur þú það?
„Hjá mér er stund milli stríða,“ segir Kristján Franklín Magnús leikari.„Ég var að Ijúka við
frumsýningu í Úlfhamssögu í Hafnarfirði og nú bíður önnur verk í Þjóðleikhúsinu. Þaö er
jólasýningin Öxin og jöröin. Annars stend ég í bílaviðskiptum. Er að selja gamla Suzuki Vit-
ara-druslu og ætla að kaupa mér Mercedez Bens í staðinn. Fann árgerð '88 sem eldri mað-
ur fluttiinn frá Þýskalandi og villendilega að ég eignist. Ég á von á að samningar takist."
má gera ráð fyrir því að
aðrar stærri og sterkari
þjóðir hefðu valtað yfir
okkar vanþróaða aftur-
enda. Auk þess ber að
minnast að veturinn
bjargaði Rússum frá
Napóleon, frönskum
naggi með heimsvalda-
sýki.
Veturinn hefur hert
þjóðina í gegnum nátt-
úruval. Á meðan Spán-
verjar drekka vín og sleikja sólina í
helberu framtaksleysi lifa íslending-
ar samkvæmt þeirri neyð sem
kenndi nöktum formæðrum þeirra
að spinna. Og frostbitnir forfeðumir
þróuðu með sér það vinnusiðferði
sem gerir íslendinga að besta
vinnuafli norðursins.
Svarthöfði er djúpt snortinn yfir
hinu hrímkalda en ylhýra móður-
landi sem hefur bæði fóstrað okkur
og lógað. Hvemig kemst maður
annars nær almættínu en þegar um-
hverfis mann hefur hið torræða afl
öll völd yfir lífi og limum?
Vetur konungur er jin og hann er
jang. Hann er hin tæra, alkalda kyrrð
og hið tryllta, hamslausa æði.
Velkominn vetur!
Skrifað á Las Palmas, Kanarí, 18.
október 2004.
Svartböfði