Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2004, Blaðsíða 3
DV Fyrst og fremst
MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVMEBER 2004 3
Pitsur snæddar í hvíld írá eldhafinu
Úti bíður eldhafið Marteinn og fé-
lagar snæða pitsu I stuttri h vlld frá
baráttunni við eldinn sem logar fyrir
utan gluggann á kaffístofu Hringrásar.
Marteinn er annar frá hægri.
„Já, menn verða náttúrlega að næra sig í þessu eins og
öðru,“ segir Marteinn Geirsson, slökkviliðsmaður í Reykjavík,
um skyndimyndina sem að þessu sinni er tekin á vettvangi við
athafnasvæði Hringrásar þar sem einn stærsti bruni í minnum
Marteins varð í fyrrakvöld.
Skyndimyndin
Sjálfur er Marteinn eldri
en tvævetra í slökkviliðsstörf-
unum. Hefur slökkt elda í að
verða þrjátíu ár. „Þetta er einn sá svæsnasti til þessa, held ég að
ég geti fullyrt," segir Marteinn sem var heima í Breiðholtinu
þegar DV náði af honum tali. Hann var á vakt alla nóttina sem
eldurinn logaði en fór ásamt sinni vakt heim klukkan 8 um
morguninn.
„Þessi bruni núna var nú þannig að þarna var ekki fólk í
bráðri hættu, enda ekki um íbúðarhús að ræða, þótt auðvitað
hafi það vakið ugg hversu mikinn reyk lagði yfir nærliggjandi
íbúðarhús, sem lögregla og björgunarsveitir gerðu vel í að rýma
og gera ráðstafanir með," segir slökkviliðsmaðurinn.
Starf Marteins, og annarra slökkviliðsmanna, felst enda ekki
eingöngu í starfi slökkviliðsmannsins, að slökkva elda.
„Okkar starf felst líka að miklu leyti í akstri sjúkrabflanna,"
segir Marteinn. „Auðvitað eigum við oft í samskiptum við fólk
sem á erfitt, fólk sem búið er að missa ástvini, heimili eða per-
sónulega muni sem aldrei verða bættir. Starfið er samt mjög
gefandi og góðu stundirnar fleiri en þær slæmu, að minnsta
kosti man maður betur eftir þeim,“ segir Marteinn sem margir
þekkja eflaust betur í bláhvítum knattspyrnubúningi Framliðs-
ins sem hann lék með á árum áður við góðan orðstír. Marteinn
kveður. Bráðum byrjar næsta vakt og eldurinn við Klettagarða
logar enn.
Spurning dagsins
Áttu þér eftirlætissjónvarpsþátt?
Sirrý er falleg og fræðandi
„Ég fíla Fólk með Sirrý. Það er skemmtilegur
og fræðandi sjónvarpsþáttur. Mér finnst
Sirrý líka falleg kona. Ætla pottþétt að
horfa á þáttinn í kvöld. Þá verður fjallað um
daður. Annars er CSI líka í miklu uppáhaldi
hjá mér. Fólk er drepið í honum og svo eru
hlutirnir rannsakaðir á ítarlegan hátt. Söku-
dólgurinn finnst alltaf íiokin."
Guðmundur Helgi
„Ég hefmjög gaman afSpaug-
stofunni. Þeir
hitta venjulega
beint í mark.
Þeir gagnrýna
venjuiega þau
mál sem skipta
máli. Ég fylgist
líka alltafmeð
fréttum og horfi á útsendingar
frá þinginu."
Guðrún ísleifsdóttir
„Queer eye for the straight guy
á Skjá einum
finnst mér
fyndnir og
ógeðslegir.
Maður fær að
sjá homma í
þessum þátt-
um. Er ekkert
sérstaklega mikið fyrirhomma
en finnst þættirnirfínir."
Jóhann Páll Jóhannsson
„Ég hefmestan áhuga á saka-
málaþáttum.
Fylgist alltaf
með CSI. Ég
held ég horfi
mest á Skjá
einn. Horfi líka
aðeins á Popp-
tívi."
Auður Ösp Magnúsdóttir
„Ég horfi alltafá The Block á
Stöð 2. Mér finnst gaman að
horfa á fólk ríf-
ast. Svo horfi
ég oft á 70
mínútur á
Popptíví og
Fólk með Sirrý
á Skjá einum.
Sé hann því
miður ekki í kvöld, er að flytja
niðurí kjallara."
Katrín Þórðardóttir
Samkeppni sjónvarpsstöðvanna er gríðarleg um þessar mundir.
Norðuljós dreifa stafrænum afruglara þar sem möguleiki er á að
ná margfalt fleiri sjónvarpsstöðvum en áður. Skjár einn og Síminn
eru að hefja dreifingu sjónvarpsstöðva sinna í gegnum ADSL-
kerfi Símans.
Skæðustu
jarðskjálftarnir
Tekinn hefur veríð saman listi
yfir tíu mannskæðustu jarðskjálfta
sögunnar og eins og hér má sjá er
mannfalhð óskaplegt af völdum
náttúruhamfaranna.
Staður Stund Áætlaður fjöldi látinna
1. Mið-Austurlönd 20. maí 1202 1.100.000
2. Shensi, Kína 2.feb. 1556 820.000
3. Kalkútta, Indlandi ll.okt. 1737 300.000
4. Antíokkía, Sýrlandi 20. maí 526 250.000
5. Tang-Shan, Kína 28. júlí 1976 242.419
6. Nan-Shan, Kína 22. maí 1927 200.000
7. Yeddo, Japan 30. des. 1703 190.000
8. Kansu, Kína 16. des. 1920 180.000
9. Messína, Italíu 28. des. 1908 160.000
10. Tókýó/Yókóhama, Japan l.sept. 1923 142.807
Hamingju-
samar fjölskyldur
eru aliar eins, sér-
hver óhamingju-
söm fjölskylda er
þaö á sirm hátt.
-LevTolstoy 182B-1910.
Það er staðreynd...
...að orðið pókemon
varð tilúrpocket
monster eða
vasakrímsli.
„Ein besta og nærgöngulasta bók
sem skrifuð hefur verið um
rokkstjörnu"
— Los Angeles Times
„Ævisagan sem óhrifamesti rokkari
sinnar kynslóðar ótti alltaf skilið
að fó"
— Chicago Sun-Times
„Ef til vill getur andi Cobains
loksins hvílst í friði"
— Miami Herald
„Afbragð annarra
og ó skilið verðugan sess í
poppmenningarsöfnum"
— Booklist
E.IN ALBESTA ævisaga sem skrifuð
HEFUR VERIÐ, SEGJA GAGNRÝNENDUR
„Hrífandi en stundum skelfilegur lestur"
segir Seattle Post-lntelligencer
Aðrir taka í sama streng:
„Stekkur beint
í efsta sætiðu
— Montreal Gazette
„Stórkostleg gjöf handa þeim
sem unna list Kurts Cobains"
— Seattle Weekly
--vmhi Auður Jónsdóttir rithöfundur sem nú sendir fró sér bók- IPv'r-
9 ina um Kjallarafólkið hefur ekki langt að sækja hæfíleik- JÍLj
| ana til skrifta. Afi hennar er Halldór Laxness sem skrifaði
I mestogbestá íslensku á siðustu öld. Móðir Auðar er
1 Sigriður, dóttir Halldórs, en faðirJón Gunnar Ottósson,
Wi^^-^^K^försijóri Náttúrufræðistofnunar. Móöursystir Auðar er því
1 Guðný Halldórsdóttir kvikmyndagerðarkona sem gert
hefur Stellumyndirnar að órjúfanlegum hluta islenskra
L samtímamenningar.
„Dýpsta bókin um myrkustu föllnu stjörnu poppsins"
— Amazon.com
„í lok bókarinnar gróf ég andlitið í höndum mér og grét"
— Globe and Mail
BÓKAÚTGÁFAN HÓLAR