Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2005, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2005, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 6. JANÚAR 2005 Fréttir DV Hermann Gunnarsson er einn affáum sem getur komið manni til að hlæja einungis með því að hlæja sjálfur. Hann þykir góður vinur og vill öllum vel. Hæfileikar hans á íþrótta- sviðinu þóttu það miklir að hann þurfti að velja og hafna á sínum tíma. Hann á það til að vilja öllum vel og vill halda öllum góðum sem stundum hefur komið honum illa. Einn hans helsti galli er þó líklega baráttan við brennivínið sem hefur háð honum líkt og öllum þeim sem heyja þá baráttu. „Það fyrsta sem mérdett- ur I hug erhvað Hemmi er góð manneskja sem vill öllum vel og það hefur skinið í gegn I hans per- sónu alls staðar þar sem hann hefur verið, t.d I fjölmiðlum. Sjónvarpið er mjög óvæginn mið- ill og þar ertu svolítið berskjald- aður og þess vegna hefur Hemmi komið vel út þar. Kannski er hans helsti galli einnig hans helsti kostur vegna þess að hann vill þóknast öllum og vera góður við alla og það gengur ekki alltaf Vala Matt. þáttastjórnandi. „Það eru forréttindi að hafa fengið að umgang- astsvo góöan vin vina sinna, hjálpsaman og skemmtilegan mann. Út- geislun hans er slík að fágæt er i sjónvarpi og á samkomum. Þrátt fyrir einstaka hjálpsemi getur hann verið mjög sjálfhverfur og barátta hans við Bakkus hefur reynst honum erfiö eins og mörg- um öðrum afbragðsmanninum." Omar Ragnarsson vinur. Hann er ótrúlegur karakt- er, hjartahlýr með afbrigð- um og tilfinninganæmur en jafnframt er alltafmikil fart á honum og I kring- um hann er athafnaskýið sem hann lifir I. Ég get þó sagt að ég er ríkari I mannlegum samskipt- um eftir að hafa kynnst honum og hann er einn minna vina sem hafa fengið mig til þess að brosa oghlæja." Þorgeir Astvaldsson samstarfsmaöur. Hermann Gunnarsson var einn fremsti knatt- spyrnumaöur landsins á sjöunda áratugnum. Hann spilaöi með Val á blómaskeiöi félagsins og var landsliösmaöur.AÖ knattspyrnuferlin- um loknum tók hann til starfa sem Iþrótta- fréttamaöur hjá Sjónvarpinu.A nlunda ára- tugnum fór hann aö stjórna slnum eigin þætti.A tali hjá Hemma Gunn, sem er llklega vinsælasti sjónvarpsþáttur á Islandi. Fjármál Ár- borgar í steik Minnihluti sjálfstæðis- manna í bæjarstjórn Ar- borgar segir meirihlutann reyna að blekkja íbúa bæj- arins með fjárhagsáætlun fyrir árið 2005. Þrátt fyrir að skatttekjur vaxi jafnt og þétt hafi engum böndum verið komið á reksturinn. Dæmi um vanáætlun sé 70 milljóna króna framlag í gerfigrasvöll. Fyllilega sé ljóst að sú upphæð dugi engan veginn til að ljúka verkinu og því verði að auka framlagið. Þannig •sé „...reynt að slá ryki í augu íbúanna og leyna fyrir þeim raun- kostnaðinum". Elma Dögg Frostadóttir lá fjórtán ára grafin í tæpan sólarhring undir snjóflóðinu í Súðavík árið 1995 áður en henni var bjargað. Á siðustu dögum hafa snjóflóð fallið í versta veðri sem komið hefur á Vestfjörðum frá snjóflóðaárinu 1995. Elma er nú 24 ára og býr enn í Súðavík. Hún segir veðurofsann vekja slæmar minningar. „Alltaf þegar ég heypi svona í veöriaa fæ ég hrall" „Síðan snjóflóðið féll hef ég verið hrædd við veðrið,“ segir Elma Dögg Frostadóttir á Súðavík. Elma er 24 ára og grófst undir í snjóflóðinu á Súðavík árið 1995. Björgunarsveitarmenn fundu Elmu einum 15 tímum eftir að flóðið féll - illa haldna af kulda og vosbúð. „Alltaf þegar ég heyri svona í veðrinu fæ ég hroll. Ég hef verið frekar veðurhrædd eftir það sem gerðist. Það fer í mig að heyra vind- inn berja á gluggunum,“ segir Elma Dögg sem vinnur í frystihúsinu á Súðavík. Síðasta vaktin var á gaml- ársdag og síðan tók við tveggja vikna frí. Sárar minningar „Ég er fegin að hafa verið í fríi þessa daga,“ segir Elma. „Frystihús- ið er í gamla bænum. Á hættusvæð- inu, beint fyrir neðan þar sem flóðið féll. Það er ágætt að fá að vera bara heima." Elma útskýrir hvernig Súðavík hefur breyst frá árinu 1995. Nýr bær hefur risið á eyrinni - f nokkurri fjar- lægð frá svæðinu sem snjóflóðið lagði í eyði. Bærinn er nú öruggur fyrir flóðum og því hafa engin hús verið rýmd í ofsaveðrinu síðustu daga. En þrátt fýrir öryggið segir Elma að minningar um dimma vetr- armánuði fyrir níu árum vakni nú þegar snjónum kyngir niður. „Ég hef ekki sofið vel síðustu daga,“ bætir Elma Dögg við. „Snjór- inn nær alveg upp að gluggum og ég fæ stundum innilokunarkennd. Sem betur fer hefur maðurinn minn ver- ið heima. Hann hefur hugsað um mig.“ Slæmur vetur Önnur kona í Súðavík sem lenti í flóðinu árið 1995 erLilja Óskarsdótt- ir. Flóðið lenti á húsi hennar á Nes- vegi 3 en Lilja og fjölskylda komust út af sjálfsdáðum. Lilja segir veðrið síðustu daga langt frá því að vera jafn slæmt og þá. „Þetta er samt fyrsta slæma veðr- ið hérna á Vestfjörðum síðan flóðið féll. Það hefur enginn vetur verið hérna síðustu ár. Nú snjóar og „Ég hefverið frekar veðurhrædd eftir það sem gerðist. Það fer í mig að heyra vindinn berja á gluggunum." vindurinn blæs en ég er viss um að það fer alveg að koma sól," segir hún. Á Flateyri býr Guðjón Guð- mundsson húsasmíðameistari sem missti ættingja og húsið sitt þegar flóðið féll á bæinn. Hann tekur und- ir orð Lilju og segir þetta fyrsta slæma veturinn frá 1995. „Það er búið að fenna mikið hérna en maður hefur séð það verra," útskýrir Guðmundur. „Við höfum líka svo góða varnargarða að maður hefur ekki miklar áhyggjur." Flúði heimilið Svanhildur Þórðardóttir sem býr í nágrenni ísafjarðar hefur þó haft áhyggjur síðustu daga. Fjölskylda hennar þurfti að yfirgefa heimili sitt á Seljalandi þar sem húsið stendur á hættusvæði. Hún hefur verið lokuð Elma var 15 ára þegar flóðið féll í Súða- vfk Lá grafin undir flóðinu í hartnær sólar- hring. Fjölskylda Elmu Missirinn var mikill eftir flóðið á I Súðavik og björgun Elmu þótti kraftaverki líkust. I Elma Dögg Frostadóttir, eitt af fórnarlömb- I um snjóflóðsins á Súðavfk 199S Hefur ekki sof- | iö vel i veðurofsanum slðustu daga. Ofsaveður á Vestfjörðum Myndin er tekin á Isafirði þar sem blindbylur hefur geisaö sið- ustu daga. inni síðustu daga en þegar DV hafði samband við hana í gær gat hún loks haldið til vinnu. „Þetta er búið að vera mjög vont veður. Við höfum búið hérna í þrett- án ár og vorum hérna þegar fyrsta snjóflóðið féll. Veðrið síðustu daga er með því versta sem gerst hefur síðan þá. Vegir lokaðir, hús rýmd og svo féll auðvitað snjóflóð í Hm'fs- dal,“ segir Svanhildur. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni í gær er búist við að veðrið haldist svipað til sunnudags en versni svo aftur á mánudags- eftirmiðdegi. Vaktmaður á snjóflóðavakt segir að miðað við spána ættu engin snjóflóð að falla næstu daga. simon@dv.is Bólar ekkert á niðurstöðu ákæruvalds Átök og ólga vegna ráðningar til Rarik Niðurstöðu sýslumanns beðið í Bíldudalsmáli „Málið er hér á okkar borði og bíður þess að ákvörðun verði tekin um framhaldið," sagði Þórólfur Halldórsson, sýslumaður á Patreksfirði, spurður um gang mála í rannsókn á dauðaslysi sem varð á Bíldudal í júlí síðastliðnum. Fimmtán ára stúlka lést þá eftir að bíll, sem talið er að hafi verið ekið talsvert yfir hámarkshraða, ók á Frá slysstað Hérlét 15 ára stúlka llfið þegar ekið var á hana, á ofsahraöa að taliö er. Niðurstöðu um hvort kært verður fyrir manndráp afgáieysi eða ekki er beðiö. hana. Málið var rannsakað og sérfræðingar meðal annars kallaðir til svo hægt væri að varpa ffekara ljósi á hvort ökumaður bílsins, sem sam- kvæmt heimildum DV er á tvítugsaldri, hafi ekið af gáleysi og á of miklum hraða. Að sögn Þórólfs er enn ekki ljóst hvort eða hvenær ákæra verður gefin út vegna málsins en tals- verður tími er liðinn síðan lögregla lauk rannsókn þess, í lok jútí. Líklegt verð- ur þó að telja að öku- manns biíreiðarinnar bíði ákæra vegna manndráps af gáleysi. Slysið vakti mikla sorg og reiði á Bíldudal en 15 ára stúlka lést í slysinu. Reiðin var ekki síst vegna þess að fé- lagasamtök höfðu margoft krafið Vega- gerðina um að hraðahindrun yrði sett á þann stað þar sem slysið varð því hraðakstur er jafnan mikill á þeim kafla. heigi@dv.is Forstjórafrú Alcoa í óauglýst starf „Hún var áður starfsmaður Landsvirkjunar sem við vor- um í samningum um orku- kaup við. Starfið var ekki aug- lýst, við nældum okkur bara í hana," segir Tryggvi Þór Har- aldsson, forstjóri Rarik. __________ ,T>etta er ekkert tengt því Tryggvi Þór að Ólöf Nordal er eiginkona Haraldsson For- Tómasar Más Sigurðsonar, stjóri RARIK segir sem er forstjóri Alcoa á ís- ekkert athugavert landi, og það er ekkert til í við ráðningu eig- því að við séum að gera þetta ink°nu forstjóra til að fá Tómas til að flytja til Alœa' Egilsstaða. Ég hafði fyrst samband við Ólöfu í ágúst þegar ég frétti að hún væri hætt hjá Landsvirkjun. Hún fær engin sérfríðindi en í raun veit ég ekki neitt, ég sendi hana bara til starfsmannastjórans, ég veit ekki neitt, hún er bara ráðin eins og hver annar maður," segir Tryggvi. „Það er ekkert til í því, Ólöf er ráðin til starfa hjá okkur og mun taka þátt í sölustarfsem- inni vegna nýrra raforkulaga sem voru að taka gildi. Þetta tengist alls ekkert því að reyna að fá Tómas Má hingað til Egilsstaða, það er alveg ffá- leitt. Hún verður bara ráðin til okkar sem almennur starfs- maður. Hún mun ekld fá nein fríðindi og mér skilst að þau muni bæði búa hér á Egilsstöðum," sagði Sveinn Þórarinsson, stjórnarformað- urRarik. Ólöf Nordal vildi ekkert tjá sig um málið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.