Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2005, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2005, Blaðsíða 18
Sport DV * 18 FIMMTUDACUR 6. JANÚAR 2005 Garcia ófundlnn Leit Handknattleikssambands fslands að Jaliesky Garcia Padron hefur engan árangur borið. Garcia fór til Kúbu á milli jóla og nýárs til að vera viðstaddur jarðarför föður síns sem féll óvænt ffá yfir hátíðarnar. Valsmaðurinn Vilhjálmur Halldórsson var kallaður inn í hópinn í stað Garcia og hann getur farið að bóka II farseðil til Túnis fari svo að WJ Garcia láti Ú ekki í sér * 'é Æ'*' heyra _ W fljótlega, hvorki hefur heyrst né spurst til hans síðan um jólin. HSf hefur heldur ekki náð í forráðamenn félags Garcia, Göppingen, en vitað var að þeir vildu að Garcia hvíldi sig í einhvem tíma enda hefur hann verið lítillega meiddur síðustu vikur. Peilegrino f ariim til Liverpool Liverpool gekk í gær firá samningi við spænska vamar- manninn Mauricio Pellegrini en hann var með lausan samning hjá Valencia. Rafael Benitez, stjóri Liverpool, þekkir vel til Pellegrino enda var hann þjálfari Valencia í fyrra. Pellegrino er 33 ára gamall og gerði sex mánaða samning við enska félagið. Hann hafði verið í herbúðum Valencia frá 1999 en þar áður var hann hjá Barcelona. „Hann flaug í gegnum læknis- skoðun og er klár í slaginn. Hann getur ekki beðið eftir að spila fyrir Liverpool," sagði umboðsmaður PeOegrino. Afall fyrir Man. Utd Einn aUra heitasti leikmaðurinn í enska boltanum þessa dagana, Ryan Giggs, tognaði Ula aftan á læri í leiknum gegn Tottenham og mun hugsan- lega ekkert spUa með Man. Utd næstu sex vikumar. „Þetta em ekki meiðsU sem jafiia sig á stuttum tíma. Það er klárt mál," sagði hundsvekktur stjóri United, Sir Alex Ferguson. „Það er aUtaf slæmt að lenda í svona meiðslum og fjarvera hans úr leiknum varð okkur dýrkeypt. Það munaði miklu um að missa hann svona snemma af veUi." Rauðnefur gamU gat þó glaðst yfir stiginu sem United SjA fékkíleiknum enda var Totten- ham rænt augljósu ^ i-\: marki undir lok 1 leiksins. Mikil umræða skapaðist á Englandi i gær um hvort ekki væri kominn timi til að nýta sér sjónvarpsupptökutækni í umdeildustu atvikunum. Umræðan spratt upp eftir að augljóst mark sem Pedro Mendez skoraði á lokamínútunum í leik Manchester United og Tottenham í fyrradag var ekki dæmt gilt. Dómarar sögðu boltann ekki hafa farið inn fyrir línuna en myndir sýna greinilega að boltinn var heilan metra fyrir innan marklínuna. ruuu ui mdigilegt „Viðbrögð mín eftir að ég skaut voru að fagna. Boltinn var inni. Þetta var mjög laglegt mark þótt ég segi sjálfur frá og boltinn fór greinilega inn fyrir línuna. í sannleika sagt hef ég aldrei orðið vitni að eins greinilegu marki án þess að það hafi verið dæmt gilt,“ sagði markaskorarinn Petro Mendes, eftir leikinn gegn Man.Utd. í fyrradag. Dómari leiksins, Mark Clatten- burg, var sennilega umtalaðasti maður íþróttáhugamanna í Bret- landi gær. Menn telja það með hreinum ólíkindum að hann hafi ekki séð boltann fara inn fyrir marklínuna eftir skot Mendes af um 50 metra færi. Ábyrgð og skyldur h'nuvarða var einnig tíðrædd í gær því upptökur sýndu að boltinn fór hátt í einn metra inn fyrir marklín- una og segir Martin Jol, stjóri Tottenham, að fyrst hnuverðir gætu gert jafn svakalega afdrifarík mistök og í fyrradag væri engin ástæða til annars en að nota sjónvarpsupptök- ur þegar umdeild atvik kæmu upp. Get ekki annað en hlegið „Við vorum rændir sigrinum. Það er ekki flóknara en svo. Dómarar í dag eru með fjarskiptatæki í eyranu svo að ég skil ekki af hverju það er ekki hægt að stoppa leikinn í eina mínútu til að skoða atvikið. Við erum ekki að tala um að boltinn hafi verið nokkra sentímetra fyrir innan - hann var metra fyrir innan," sagði Jol eftir leikinn, gjörsamlega miður sín. Mendes sjálfur var þó ekki að svekkja sig of mikið og kaus að horfa frekar á björtu hliðar málsins. „Það er ekki hægt annað en að hlæja að þessu svona eftir á. Þetta var mjög gott mark og mun það vafalaust hfa í minningu minni þrátt fyrir að það hafi ekki staðið. Það er ekki á hverjum degi sem maður skorar frá miðju," sagði Mendes. Álex Ferguson, framkvæmda- stjóri Man.Utd, hafði samúð með Mendes lél ndí var Mendes lét skoUö Carro« náöi kominn langtÞmyndinni voru KT S^UmarannMark Clattenburg eftir leikinn._- leikmönnum Tottenham og tók undir orð Jol. „Ég held að þetta atvik undirstriki nauðsyn þess að hafa að minnsta kosti þann möguleika að nota sjónvarpsupptökur," sagði Ferguson. „Ég hafði áhyggjur af því á sínum tíma að það gæti tekið heila eilífð að skoða þessar upptökur. En nýlega las ég blaðagrein þar sem stungið var upp á því að ef dórnari gæti ekki teldð ákvörðun eftir að hafa horft á myndbandið í 30 sek- úndur, þá myndi leikurinn halda áfram óbreyttur. Það er jafn langur ú'mi og það tekur að framkvæma horn- eða aukaspyrnu svo að það væri ekki verið að eyða of miklum tíma," sagði Ferguson jafnframt. Hefði tekið þrjár sekúndur Meira að segja Arsene Wenger, stjóri Arsenal, sá ástæðu til þess að blanda sér inn í umræðuna í gær. „Þegar ahur heimurinn sér, að dóm- ara leiksins undanskildum, að það hafi orðið mark þá er ljóst að eitt- hvað mikið er að. Það er alveg ljóst að sjónvarpsupptökur þurfa að verða hluú af leiknum. Og þetta atvik á Old Trafford er frábært dæmi um að það hefði tekið dómarann þrjár sekúndur að dæma mark eftir að hafa séð endursýningu." vignir@dv.is Enska knattspyrnusambandið sendir frá sér yfirlýsingu vegna „marks“ Tottenham Vill ekki notast við sjónvarpsupptökur Enska knattspyrnusambandið sendi í gær frá sér yfirlýsingu þess efnis að sambandið myndi grand- skoða allar hugmyndir sem fælu í sér einhver konar marklínutækni, nema hvað að þær megi ekki fela í sér sjónvarpsupptökur. Knatt- spyrnusambandið leggur mikla áherslu á að endursýning á atvikum fyrir dómara kæmi einfaldlega ekki til greina. „Sambandið er reiðubúið að skoða aha mögulega tækni sem gæú komið í veg fyrir að lögleg mörk séu dæmd ógild. Hins vegar má sú tækni ekki trufla gang leiksins," segir í yfirlýsingunni. Einnig kemur fram að sambandið telur það klárlega vera Slapp meö skrekkinn Roy Carroll glotti viö tönn eftir leik Man. Utd og Tottenham Hotspur. truflun ef leikur yrði stöðvaður úl að dómari fengi að skoða endursýningu. „Lykilatriðið felst í því að dómarinn fái skilaboð um leið og slíkt atvik á sér stað svo hann geú tekið ákvörðun í sömu andrá," segir í yfirlýsingunni og er þar hugsanlega verið að ýja að einhvers konar titringsbúnaði sem dórnari myndi hafa á sér, sem síðan væri tengdur við nema festan á markstöngunum. Ljóst þykir að mál þessi verði tekin til nákvæmrar athugunar til að koma í veg fyrir að atvik eins og í gær komi ekki fyrir á nýjan leik, en þess má geta að það hefur þegar fengið viðumefnið „versti dómur sögunnar." vignir@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.