Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2005, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2005, Síða 11
DV Fréttir FIMMTUDAGUR 6. JANÚAR 2005 11 Bannað að eignast börn Dómari í New York-fylki í Bandaríkjunum hefur bannað 31 árs konu að eignast fleiri börn vegna eiturlyfjanotkunar sinnar. Konan á sjö börn og sagði dómarinn að hún yrði að sýna fram á að hún gæti annast þau áður en hún eignast fleiri. Börn konunn- ar, sem eru á aldrinum átta mánaða til tólf ára, hefur verið komið fyrir í umsjá fósturheimila. Svipaðir dómar hafa verið settir konum með fíkniefna- vandamál í Bandaríkjunum og er þeir afar umdeÚdir. Skrifstofukonan segir pungarnir heilla hrútspungar, hákarl að ógleymdu brennivíninu • (í hófi að sjálf- sögðu) er eitthvað sem enginn ætti að láta fr am hjá sér fara. Fyrir þá sem þekkja er enda stemning- in á sh'kum skemmtunum hér eystra engri annarri lík. Annálar, þar sem árið er gert upp af og góðlátlegt grín gert að mönnum og málefnum liðins árs, eru nokk- urs konar áramótaskaup staða eins og heimabæjar míns, Eski- fjarðar, og sú þjóðlega íþrótt að gera nett grfn að náunganum er í hávegum höfð. Það er því óhætt að mæla með því aö sem flestir reyni slíka skemmtun, þó ekki væri nema einu sinni, og fari út á land þar sem blótin eru jafnan hápunktur skemmtana hvers árs og gefa í raun jólunum sjálfum lítið eftir. Nú þegar ég kveð lesendur DV, í bili að minnsta kosti ,og held á vit annarra verkefna, vil ég nota tækifærið og óska öllum gleðilegs þorra þetta þetta árið og vona að sem flestir njóti þeirra sem og góunnar. Þorrinn og Nú þegar áramót og jól eru að baki ætti enginn að þurfa að kvíða þess að hafa einskis að hlakka til. Þorrinn, þessi gamli mánuður karl- anna, er nefnilega tími sem óhætt er að hlakka til. Magáll, Sigríður Rósa Kristinsdóttir bíðurþess að þreyja þorrarm að þjóölegum siö. Ógeðfelldustu hliðar flóðbylgjunnar í Asíu bitna á börnum. Þau eru munaðarlaus og eru ein og ráðvillt á hamfarasvæðunum. Þau eru því tilvalin fórnarlömb skipulagðrar glæpastarfsemi þar sem börnum er rænt og þau síðan seld. Þdsumlip barna í stórhættu Bestu og verstu - smokkarnir Fyrirtæki sem er best þekkt fyrir að gefa bflum og þvottavélum ein- kunnir hefúr nú skilað inn niðurstöðum rann- sóknar á hvaða tegundir smokka séu bestar. Sjö tegundir eru sagðar aldrei eiga að bregðast. Sá smokkur sem sem þoldi mest álag er Durex Extra Sensitive Lubri- cated Latex. Hann var blásinn upp og náði að verða gífurlega stór áður en hann gaf sig. Einnig þótti hann gefa gott næmi fyrir snertingu en veita hámarksvörn. Smokkur frá Planed Parenthood rifhaði í sundur við minnsta álag. Langamma laug til um óléttu Upp hefur komist að 59 ára gömul bandarísk kona sem sagðist eiga von á tví- burum var að ljúga. Konan sem fékk mikla athygli fyrir vegna óléttunnar sannfærði fjölskyldu sína um að um að hún gengi með tví- bura. Hún á fimm börn fyrir, fjórtán barnabörn og sex langömmubörn. Konan sagði að barnið myndi fæðast um jólin. Þegar það gekk ekki eftir sagði hún fjölskyldu og fjölmiðlum að hún væri gengin ffam yfir. Þegar ekkert bam birtist kom sannleikurinn í ljós. Danirtelja alla af Dönsk yfirvöld hafa fjarlægt af netinu nöfn þeirra 62 dönsku ríkis- borgara sem er saknað eftir flóðbylgjuna á Ind- landshafi. Þeir eru nú ailir taldir af. Staðfest eru lát 7 manns. Danski rík- islögreglustjórinn segir það hafa skilað miklum upplýsingum að birta nöfri þeirra sem saknað er, en að nú þjóni það ekki lengur tilgangi. venna kynlífsþrælkunar Minnst þriðjungur þeirra 150 þúsund manna sem létust í ham- förunum í Asíu voru börn. En flóðin ollu því einnig að fjöldi barna varð munaðarlaus eða týndi foreldrum sínum. Talið er að bara í Indónesíu hafi 35 þúsund börn misst annað eða báða for- eldra sína. Börn boðin til sölu Unicef-samtökin segjast hafa fengið tilkynningar um glæpamenn sem reyna að bjóða börn sem rænt hefur verið af hamfarasvæðunum til sölu eða ættleiðingar. „Ég held að það séu ekki til vamar- lausari börn í heimin- um en þau sem em í þessum aðstæðum," Farasvæðum og varnarlaus. Fjöldi barna í Asíu er nú í mun meiri hættu en ella á að lenda í klóm misyndismanna í kjölfar flóð- anna á annan í jólum. Það eru einna helst börn í Indónesíu sem standa frammi fyrir þessari ógn en í Indónesíu leiðir fátækt og vonleysi marga foreldra inn á þær brautir að selja börn sín og er talið að neyðar- ástandið í kjölfar flóðsins muni auka á þann vanda. Vændi barna algengt Að sögn samtakanna Save the children starfa nú um 120 þúsund börn og unglingar á götum borga „Ég held að það séu ekki til varnaríausari börn í heiminum en þau sem eru í þessum aðstæðum." Indónesíu þar sem vændi barna er hvað algengast. Þau 35 þúsund böm sem hafa misst foreldra sína í Indónesíu vegna flóðanna em í hættu og er talið að margra þeirra bíði fátt annað en gatan, verði ekkert að gert. Ástandið er sérstaklega slæmt í Aceh-héraði sem fór illa út úr flóðunum. Talið er að þar séu allt að 13 þúsund munaðarlaus börn á vergangi. Börn (Indónesfu Eftir hamfarirnar eru þau til- valin fórnarlömb misindismanna. Óttast er að nú V þegar hafi fjölda barna verið rænt og þau seld. ? segir John Budd talsmaður Unicef. Hann segir að það geti vel verið ein- hverjir velviljaðir hafi tekið börnin að sér en þó er óttast að skipulögð glæpasamtök misnoti aðstæðurnar og þykist vera fjölskylduvinir eða hjálparstarfsmenn. Mikið er um kynlífsþrælkun á bömum í löndum Asíu og er óttast að neyð og vamar- leysi barnanna geri þau að auðveld- um fórnarlömbum kynlífsþræla- haldara. Budd segir að Unicef hafi heimildir fyrir því að SMS-skilaboð og netpóstur hafi verið send víðs vegar um Asíu þar sem 300 munað- arlaus börn ffá Aceh-héraði í Indónesíu em boðin til sölu. Leitað að aðstandendum Rfkisstjórn Indónesíu hefur lagt bann við að börn undir 16 ára séu flutt ffá Aceh-héraði til að sporna við mansali. Unicef starfar með yfir- völdum í Indónesíu við að setja upp barnaheimili til að aðstoða yfirgefin börn að finna fjölskyldumeðlimi sína að nýju. „Við gemm allt okkar til að koma í veg fyrir að þessi börn lendi í frekari erfiðleigum," segja taismenn Unicef. toi@dv.is Var sænska stráknum ekki rænt? Ovissa um afdrif Kristians „Því miður. Þetta er ekki dreng- urinn sem ég hjálpaði á sjúkrahúsið. Mér þykir það leitt herra Walker." Þetta sagði Stefan Kaiser, þýskur ferðamaður þegar honum var sýnd mynd af Kristian Walker, tólf ára sænskum dreng sem hefur verið saknað síðan hamfarimar urðu í Asíu. Kristian var á strönd í Taflandi þegar flóðbylgjan kom og var fluttur einn inná sjúkrahús en hvarf síðar þann sama dag. Óttast var að hon- um hefði verið rænt og var gefin út lýsing á manni sem var inni á sjúkra- húsinu með sænskan dreng. Maður- inn reyndist vera Stefan Kaiser en það kom í ljós að hann hafði flutt annan sænskan dreng á sjúkrahúsið. Næsta dag fannst móðir drengs- ins og eru mæðginin nú komin til Svíþjóðar. Lögreglan fékk sögu Kaisers staðfesta. Ekkert er því vitað um afdrif Kristians. Afi Kristians, Kristlan Walker Tólfárasænskurdrengur sem hvarfafsjúkrahúsiíTaílandi eftir flóð- bylgjuna. Óttast er að honum hafí verið rænt. Móðir drengsins og kærasti hennar eru enn ófundin. Daniel Walker, er ekki búinn að gefa upp alla von þó að eina vísbending- in um örlög Kristians hafi brugðist. Hann segir að þó að Kaiser hafi ekki verið maðurinn sem tók Kristian hafi það verið einhver annar og mik- ilvægt sé að halda áfram að leita. Nýr raunveruleikaþáttur um ættleiðingar Hver er faðirinn? Raunveruleikaþátturinn Who’s The Daddy þar sem ættleidd böm geta til um hver raunverulegur faðir þeirra er hefur fengið misjafiiar viðtökur í Bandaríkjunum. Who’s The Daddy hófst á Fox sjón- varpstöðinni í vikunni. Kona vann 100 þúsund dollara eftir að hafa borið kennsl á föður sinni úr hópi átta karl- manna. Mikil mótmæli vom vegna ■ sýningar þáttarinns. Talsmenn ættleið- ingasamtaka segja að þátturinn vekji upp viðkvæmar tilfinningar hjá bæði fólki sem er ættleitt eða hefur ættleitt og sé þar að auki siðlaus: .Ætlleiðing er mjög persónuleg og merkileg upplifun og það á ekki að snúa út úr slíkum hlutum eins og gert er í þessum þáttum,” segir formaður samtakanna. Gagnrýnendur hafa líka hakkað þáttinn í sig og sagt hann vera einstak- lega smekklausan. Framleiðendur hjá Fox veija þáttinn og segja hann vera já- FjölskyIda. Nýr raunveruleikaþdttur um ættleitt fólk sem fínnur blóðfjölskyldu sina vekurhörð viðbrögð. kvæða upplifun. í enda þáttarinns var svo þáttakandinn kynntur fyrir blóð- móður sinni og blóðforeldramir höfðu hjartnæma endurfundi. „Við höfum fengið fullt af beiðnum frá ættleiddu fólki usem vill fá að vera með í þættinum," segja talsmenn Fox sjónvarpssöðvarinnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.