Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2005, Blaðsíða 16
16 FIMMTUDAGUR 6. JANÚAR 2005
Fréttir DV
Nektarmyndir á iPod-inn
Playboy-tímaritið býður nú áhugasömum
að hlaða niður Ijósmyndum afnöktum fyr-
irsætum á Apple iPod-ana sína. Ákveðið
var að bjóöa þjónustuna á vefsíðu fyrir-
tækisins, playboy.com, og voru undirtekt-
irnarsvo góðarað forsvarsmenn tima-
ritsins hafa ákveðið að á næstu vikum
verði boðið upp á fleiri myndir affá-
klæddum konum og að tæknin verði
þróuð svoað eigendur annarra iPod-a
geti einnig sóttsér augnakonfekt.
Þjónustan hefurfengið nafniö iBod
og verða þar í boði bæði myndir af
fáklæddum og nöktum fyrirsætum.
• í Fjarðar-
kaupum kost-
ar tæpt klló af
Cheeriosi á
tilboði 495 kr í
stað 539 kr. og
pakki sem
inniheldur
375 gr. af Axa
musli kostar 179 kr. Kíló af Skólaosti
kostar þar 798 kr. en kostaði áður
998 kr. og sama magn af bönunum
kostar 99 kr. Always duo dömubindi
kosta nú 489 kr. í stað 598 kr.
• íverslunun
Lyfju í Lágmúla
og Smáratorgi
er boðið upp á
20% afslátt af
öllum vítamín-
um, fæðubótar-
efhum og bætiefnum til 8. janúar
eða meðan birgðir endast. Og fyrir
þá sem ætla sér að taka sig taki á
nýju ári er boðið upp á 25% afslátt
af blóðfitumæhngum en panta
verður tíma í síma verslananna.
• Heilsubrauð kostar nú 249 kr. í
verslunum Hagkaupa en kostaði
áður 299 kr. og bréf af Tyson
kalkúnabringuáleggi kostar 599 kr.
Kíló af ungnautahakki er á 699 kr. í
stað 1.149 kr. og kílóverðið á fersk-
um Holtakjúklingi er 487 kr. í stað
695 kr. Kjöt-
borðs laxa-
fiðrildi með
kryddsmjöri
og aspas
kosta 999
kr.
MP3-spilurum
Tólftu ráöstefnunni um rannsóknir í líf- og heilbrigðisvísindum við HÍ lauk í
Öskju í gær. Ríflega hundrað rannsóknir voru kynntar á veggspjöldum og á annað
hundrað erindi flutt. Guðrún Kristjánsdóttir prófessor í barnahjúkrun kynnti
niðurstöður landskönnunar um tengsl líkamsstærðar skólabarna við sjálfsmynd,
depurð og líkamlega heilsu.
S Börnin okknr nð nenninst
minnislyklar
eru vinsæl vara enda arftaki tölvu-
disklinganna gömlu og góðu. Þeir
taka margfalt meira magn og
brúkast stundum einnig sem MP3-
spilarar. DV framkvæmdi verðkönn-
um i nokkrum verslunum á 256
megabæta einföldum minnislyklum
annars vegar og sams konar lyklum
sem einnig má nota sem MP3-spil-
ara hins vegar. Þetta eru hentug og
fyrirferðalítil tæki sem má jafnvel
geyma á lyklakyppu.
256 MB USB minniskubbur
Nýherji: 3.890 kr.
EJS: 4.023 kr.
Tæknival: 4.490 kr.
Tölvulistinn: 4.990 kr.
Heimilistæki: 4.900 kr.
Ormsson: 4.990 kr.
BT: 4.999 kr.
Svar: 5.900 kr.
Start: 6.990 kr.
Elko: 6.995 kr.
256 MB USB minnislykill +
MP3 spilari:
BT: 9.999 kr.
Heimilistæki: 10.990 kr.
Tölvulistinn: 11.900 kr.
Start: 12.900 kr.
EJS: 13.410 kr.
Nýherji: 16.900 kr.
Ormsson: 21.900 kr.
„Undanfarið hefur mikið verið
rætt um aukna þyngd barna hér á
landi,“ segir Guðrún Kristjánsdóttir.
„í raun blöskraði mér nokkuð þessi
mikla umræða um ofþyngd barna,
fannst hún nokkuð misvísandi. Við
náðum ákveðnum toppi í þyngd
barna fyrir áratug, þau hafa ekki
þyngst meira og vonandi þýðir það
að við erum vöknuð til meðvitundar
um vandann. En í umræðunni und-
anfarið hafa börnin fengið á sig
vandamálastimpil, of þung börn
skynja sig sem þjóðfélagsvandamál,
vinir þeirra lfka, vandamenn og
félagar."
Samevrópsk gögn
Tæplega 4000 íslensk skólaböm í
9. og 10. bekk tóku þátt í þessari
landskönnun og var þyngd þeirra
flokkuð í mikla undirþyngd, undir-
þyngd, kjörþyngd, ofþyngd og ofur-
þyngd. Við matið á sjálsmynd, dep-
urð og líkamlegri heilsu var stuðst
við þekkta erlenda kvarða. „Þessi
gögn em í raun samevrópsk," heldur
Guðrún áfram. „Sambærilegar
mælingar eru gerðar reglulega í
mörgum löndum og við ákváðum að
nýta þessi gögn og hyggjumst halda
áfram og fylgjast með hvort breyt-
ingar verða á mynstrinu í framtíð-
inni.“ Niðurstöður rannsóknarinnar
hér em svipaðar og í útlöndum. „Of
þung börn reynast hafa marktækt
lakari sjálfsmynd, þau em daprari
og hafa neikvæðari heilbrigðisupp-
lifun en önnur börn. En sjálfmetin
líkamleg heilsa þeirra var ekki mark-
tækt lakari en annarra bama.
Þyngdin tengist þannig andlegum
þáttum heilsunnar, svo sem sjálfs-
mynd og geðslagi, hvað svo sem síð-
ar verður. Við teljum fulla ástæðu til
að taka offitu skólabarna alvarlega,
hún tengist sjálfsmynd þeirra og
geðslagi á neikvæðan hátt og það
getur verið andlega mótandi til
framtíðar.“
Þunglynd börn á Vesturlönd-
um
Guðrún leggur áherslu á að
orsakatengsbn liggja í báðar áttir.
„Þunglyndi bama á Vesturlöndum
er að aukast og því fylgir minni
hreyfing og aukin þyngd. Sam-
kvæmt helstu kenningum um þetta
aukna þunglyndi barna hér á Vest-
urlöndum verða þau fyrir mun
meira áreiti en áður hefur þekkst,
breytingar em örari og óvissan um
framtíðina ekki síður mikil. Þau hafa
úr ótrúlega mörgu að velja og standa
frammi fyrir stórum ákvörðunum
yngri en áður. Sjálfsábyrgð
þeirra er meiri en áður hefur tíðkast
en stuðningur ekki endilega samfara
henni. Aðrir benda á almennt af-
skiptaleysi og rofin fjölskyldutengsl.
Meðferðin er í því fólgin að kenna
þeim að takast á við væntingar um
sjálf sig og framtíðina og hún hefur
skilað töluverðum árangri. Eiríkur
Örn Arnarson sálfræðiprófessor er
einmitt með rannsókn í gangi þar
sem hann prófar slíka meðferð og
hún virðist vera að skila árangri,"
segir Guðrún Kristjánsdóttir, pró-
fessor í bamahjúkmn við HÍ.
Langar í rafknúna
Yamaha-flygilinn aftur
„Ég átti einu siniú ofboðslega
fallegan Yamaha-rafmagnsflygú,"
segir Bjarki Sveinbjörnsson tón- J
listarfræðingur og þáttagerðar-
maður. „Flygilhnn var meðal j
annars notaður um borð í Sm~-
Akraborginni á sumardaginn
fyrsta. Ilann var úti á dekki og jEH
að á 7
hann fyrir þakkláta farþega. |
Á endanum seldi ég flygúinn
eftir að hafa fengið mörg tú- j
boð frá áhugasömum lújóð- 1
færaleikurum. Seldi hann upp-
tökustúdíói í Færeyjum. Ég sé
alltaf eftir Yamaha-rafmagnsflygl-
inum, enda átti hann stórt
pláss í hjarta mínu og
ég vúdi gjarnan
eignast hann
aftur."
Hljómflutningstæki og
sími í skíðagræjunum
Fjarskiptafyrirtækið Motorola
og bandaríski útivistarfatafram-
leiðandinn Burton of Burlington
hafa túkynnt að á árinu komi á
markað útivistarfatnaður með
innbyggðum farsíma og hljóm-
flutningstækjum. Síminn og
græjurnar verða í skíðajökkum,
hjálmum og húfum og telja yfir-
menn fyrirtækjanna að útbúnað-
urinn verði afar vinsæll hjá fólki á
tvítugs- og þrítugsaldri eða snjó-
brettakynslóðinni. Ekki er enn
ljóst hvað fatnaðurinn á að kosta
en ódýrustu skíðaúlpur Burtons
kosta frá 12.500 krónum upp í 50
þúsund. ____________________________
Snjóbrettakappi Bráttgetur
hann spjallað við ömmu / slmann
á leið niður Bláfjöll.