Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2005, Page 19
DV Sport
FIMMTUDAGUR 6. JANÚAR 2005 19
y
Auðun aftur
heim
Varnarmaðurinn Auðunn
Helgason skrifaði í gær undir
þriggja ára samning við
Islandsmeistara FH, en
Auðunn
hefur leikið erlendis síðan síðla
árs 1997. Auðunn er uppalinn
FH-ingur og sagði Guðmundur
Árni Stefánsson, formaður
knattspymudeildar FH, á
blaðamannafundi í gær að einn af
týndu sonum félagsins væri
kominn heim. „Það er alltaf
gaman að fá týnda syni heim. Við
bindum miklar vonir við Auðun
og teljum að hann muni koma til
með styrkja okkur í baráttu
komandi tímabila. Við höfum titil
að verja og það er ekki spuming
að við ætlum okkur að gera það,“
sagði GuðmundurÁmi. Auðunn,
sem lék með FH og Leiftri áður en
hann fór út þar sem hann spilaði
með Viking í Noregi, Lokeren í
Belgíu og nú síðast Landskrona í
Svíþjóð, var einnig með tilboð frá
sænska hðinu en ákvað frekar að
koma heim í Hafnarfjörðinn.
„Það var mjög spennandi að
halda áfram úti í Svíþjóð enda
stóð mér til boða að vera fyrirliði
liðsins á komandi tímabili. Ég
ákvað hins vegar að koma heim
enda em spennandi hlutir
framundan í Hafnarfirði. Það er
gífurlegur metnaður í félaginu og
ekki spuming að það verður
skemmtilegt að taka þátt í þessu
ævintýri. Það hefur átt sér stað
mikil S SHHlpS'* ' -*■»
upp- ^
bygging
hjá FH á
undan-
fömum F. uii
árum og
hún
skilaði
sér í 'itli
síðasta »BBgMWp8py»
tíma- pyr-'
bih.
við
ætium ESHHiy"
ol:kur 9rsp«
Sfðan
að halda áffam
á sömu braut," sagði Auðun sem
er þriðji leikmaðurinn sem
gengur í raðir íslandsmeistaranna
í vetur, en áður höfðu Ólafur Páh
Snorrason og Daninn Dennis
Siim skrifað undir hjá
Hafnarfjarðarliðinu.
Alonso frá í
þrjá mánuði
Spænski miðjumaðurinn Xabi
Alonso verður frá í þrjá mánuði
vegna ökklabrots sem hann hlaut
í leik gegn Chelsea á dögunum.
Upphaflega var tahð að Alonso
yrði aðeins frá í sex vikur en í gær
kom í ljós að hvíldin verður þrír
mánuðir. Þessar fréttir eru inikið
áfah fýrir Liverpool enda hefur
Alonso verið lykilmaður í miðju-
spih Liverpooí í veriur en hann
kom th félagsins í sumar frá Real
Sociedad fyrir rúmar tíu mihjónir
punda. Hann sest á
þétt setinn sjúkra-
bekk félagsins, en á
SjjUA honum em nú þegar
& þeir MUan Baros,
Djibril Cisse,
* Ilarry Kewell
V ogVladimir
'tsetq , Smicer.
Þau bestu Þrír stigahæstu keppendur mótsins
sjást hérá verðlaunapalli á milli þeirra Sveins
Áka Lúðvikssonar formanns ÍF, og Ellerts B.
Schram forseta iSl. Fyrir miðju er Guðrún Liljn
Sigurðardóttir og við hlið hennar eru þær Lára
Steinarsdóttir og Hulda Hrönn Agnarsdóttir.
DV-myndir Pjetur
*
Það var mikið um dýrðir á hinu árlega nýárssundmóti fatlaðra barna og unglinga
sem fram fór síðastliðinn sunnudag í hinni glænýju og stórglæsilegu 50 metra
innanhúslaug í Laugardalnum. Það var Guðrún Lilja Sigurðardóttir úr ÍFR sem
vann „besta afrek mótsins” að þessu sinni.
■*
Afrek mótsins er reiknað útf rá sérstökum stiga- og
forgjafaútreikningi. Titilinn hlaut Guðrún Lilja fyrir sigur sinn í
50 metra skriðsundi þar sem hún synti á 35,20 sekúndum. Fyrir
það hlaut hún heil 528 stig. Þetta var í þriðja sinn sem Guðrún
Lilja vinnur mesta afrekið á nýársmótinu og þar með vann hún
sér hinn glæsilega bikar sem fylgir til eignar.
einnig úr Firði, en hún hlaut 408 stig
fyrir að synda 50 metra skriðsund á
40,02 sekúndum.
Metþátttaka
Þetta var í 21. skiptið sem
nýárssundmótið fer fram. Rétt áður
en mótið hófst vígði Steinunn Valdís
Óskarsdóttir borgarstjóri innanhús-
laugina glæshegu. Þess má geta að á
meðal þeirra sundmanna sem tóku
fyrstu sundtökin í lauginni í thefhi
vígslu hennar voru íþróttamenn
ársins í röðum fatlaðra, þau Kristín
Rós Hákonardóttír og Gunnar Öm
Ólafsson. Nýársmótið í ár er eitt það
fjölmennasta sem haldið hefur verið
og vom um 80 þátttakendur skráðir
til leiks og komu þeir frá fimm
félögum.
í öðm sæti varð Lára Steinars-
dóttir úr Firði, en hún hlaut 484 stig
fyrir að synda 50 metra bringusund á
48,84 sekúndum. í þriðja sæti var
síðan Hulda Hrönn Agnarsdóttir,
3 milljónir Rúmfatalagerinn ereinn stærsti
styrktaraðili iþróttasambands fatiaðra.
Þess má geta að á nýárssund-
mótinu var endumýjaður samstarfs-
samningur íþróttasambands fat-
laðra við Rúmfatalagerinn. Samið
var th fjögurra ára, eða fram að
ólympíuleikunum í Peking 2008, og
mun Rúmfatalagerinn á þeim tíma
styrkja sambandið um hehar tólf
mhljónir króna. í mótslok afhenti
Magnús Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri Rúmfatalagersins, ölium
keppendum viðurkenningarskjal
fyrir þátttöku sína á mótinu.
Stórkostlegt mannvirki Ljóst er að hin nýja og stórglæsilega 50 metra innisundlaug i
Laugardalnum mun koma til meö að stórbæta aðstööu sundmanna á Islandi
Helguson les
markverði
hs.pistitinn.
Viltu ræða þe
frekar? Heiðar
hér Oliver Kahn,
þýska landsliðsi,
Heiðar Helguson hefur ekkert heyrt frá Charlton Athletic
Einbeiti mér að því að spila vel
Dalvflcingurinn Heiðar Helgu-
son hefur skorað grimmt fyrir
Watford sfðustu vikur og frammi-
staða hans hefur ekki farið fram hjá
liðum í ensku úrvalsdehdinni. Nú
þegar hefur Heiðar verið orðaður
við Charlton og margir telja lfldegt
að hann verði seldur f mánuðinum.
„Ég hef heyrt af þessum áhuga en
sjálfur hef ég ekkert heyrt frá
félögunum," sagði Heiðar við DV
Sport í gær, en hann hefur einnig
verið orðaður við West Ham United.
„Ég neita því ekki að mig dreymir
að sjálfsögðu um að leika í úrvals-
dehdinni á nýjan leik. Allir leikmenn
með metnað vhja leika í efstu dehd.
Annars læt ég þessar sögusagnir
ekkert trufla mig heldur einbeití ég
mér bara að því að spha vel fyrir
Watford. Ég verð að halda mínu
striki og hver veit hvað gerist í
kjölfarið."
Loksins heill
Meiðsli hafa sett strik í
reikninginn hjá Heiðari síðustu ár
og hann hefur ekki getað beitt sér af
fullum krafti ansi lengi.
„Það eru komin tvö ár
síðan ég lék síðast 100%
hehl. Nú er ég loksins
orðinn hehl á nýjan leik
og fyrir vikið nýt ég
þess meira að leika.
Þótt gengi liðsins hafi
ekki alveg verið nógu
gott þá höfum við
sphað ágætlega og ég
hef fengið nokkuð af
færum sem mér hefur
gengið vel að nýta," sagði
Heiðar Helguson.
henry@dv.is