Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2005, Síða 32
I—* S t t j i
!j Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn. Fyrir hvert fréttaskot sem
birtist, eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta
fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar
^nafnleyndar er gætt.
ZJZJ
DfjWU
SKAFTAHLÍÐ24,10SREYKJAVÍK [STOFNAÐ 1910] SÍMISSOSOOO
• Skáldkonan
i * Didda er að eigin
sögn ekki að flytjast
búferlum tii Kúbu
eins og margir hafa
haldið heldur setur
hún stefhuna á
Jamaíka. Didda ætl-
ar þó ekki að byggja sér einbýlis-
hús á ströndinni þar heldur fer
hún í öðrum erindagjörðum.
Ástæðan fyrir förinni er nefni-
lega sú að hún á dreng með
manni frá Jamaíku og mun
strákurinn heimsækja föðurfólk
sitt sem býr þar í landi. Skáld-
konan geðþekka hefur ekki
ákveðið hvenær haldið verður til
Jamarku og ætlar að dvelja þar
eins lengi og hún þarf. Það er
# aldrei að vita nema skáldið
flengist á ströndinni í fantagóð-
um reggíryþma og með rasta-
fléttur í sólinni...
Hafa þeir kannski
vaxið frá þjóðinni?
Tvein Glúmar í samajiorpinu
Mýjum Glúmi fagnað a Reyðarfirði
Reyðarfjörður er 700 manna bæj-
arfélag á Austfjörðum sem getið hef-
ur af sér margan góðan manninn.
Þar er að flnna fólk með hin ýmsu
nöfn og býr þar meðal annars einn
Bóas, ein Ellen og einn Guttormur.
Glúmur er hins vegar ekki ýkja
algengt nafn á Reyðarfirði. Þó eru
tveir Glúmar í bænum - sem er mjög
hátt prósentuhlutfall miðað við svo
sjaldgæft nafn.
„Við erum eitthvað á milli fimm
og tíu sem heitum þessu nafni en
það búa ekki allir á landinu," segir
Glúmur Kjartansson, sem býr að
Mánagötu 2.
Nýlega flutti Glúmur BaJdvinsson
á Reyðarfjörð þar sem hann starfar
nú sem upplýsingafulltrúi Bechtel,
verktakafyrirtækisins sem hefur
umsjón með byggingu Álversins á
Reyðarfirði.
Glúmur er eins og margir vita
sonur Jóns Baldvins Hannibalssonar
og Bryndísar Schram og er lfklega
Glúmur Baldvinsson Er nýráðinn kynning-
arfulltrúi Bechtel og býrnúá Reyðarfirði.
þekktasti Glúmurinn á landinu.
Glúmur Kjartansson - sem
reyndar heitir Kjartan Glúmur Kjart-
ansson - segist alltaf hafa verið sátt-
ur við þetta fallega nafn. En er hann
nefndur í höfuðið á einhverjum? „Já
og nei. Ég er sko frá Glúmsstað þar
sem landnámsmaður með þetta
nafn bjó og ég er kannski nefndur í
höfuðið á honum," svarar hann.
Landnámsmaðurinn var þó ekki
mikill víkingur og varð víst undir
skriðu sem féll á bæinn að sögn
Glúms.
Kjartan Glúmur, sem er ís-
lenskufræðingur, er að taka
kennsluréttindi við Háskólann á
Akureyri og kennir í grunnskólan-
um. Hann fagnar komu hins nýja
Glúms í þorpið:
„Ég þekki Glúm Baldvins nú ekki
neitt, hef bara séð hann í sjónvarp-
inu og kannast við hann þaðan,"
segir okkar maður sem ekki
hefur ákveðið hvort hann
haldi uppi heiðri
nafnsins ef hann sjálfur eignast
lítinn króga.
Kjartan Glúmur ætlar að nota
nýja árið aðallega í
að ná af sér
Machintosh-
inu og halda
áfram að
vera í góðu
skapi.
Kjartan Glúmur Segirnokkuð sérstakt
að tveir Glúmar búi fsama þorpinu.
Þingmenn fljótir að þroskast
lililk-
„Mér líður bara ákaflega vel,"
segir Helgi Bernódusson, nýráðinn
skrifstofustjóri Alþingis.
„Ég er búinn að vinna hérna á
Alþingi í ein 22 ár. Svo maður hef-
ur farið víða um húsið. Það er
gleðileg og spennandi vinna að
starfa með Álþingismönnum -
þetta er sérstakur heimur og
öðruvísi en margir hugsa sér,“
segir Helgi. „Manni kemur
líka alltaf skemmtilega á óvart
hvað menn þroskast fljótt í
þessu starfi. Sérstaklega ungu
þingmennirnir sem eru
mjög lærdómsfús-
ir.“
Helgi seg
ir að þrátt
fyrir uppá-
komur eins
og stóra
dúkamálið,
þar sem þingmenn minnihlutans
gerðu uppreisn, sé starfið nokkuð
friðsælt.
„Þetta dúkamál var ekki einu
sinni stormur í vatnsglasi. Það var
meira eins og gárur í fingur-
björg. Algjört „non-issue","
segir Helgi og hlær. Hann
segir starf skrifstofustjóra
snúast um að hlutirnir
gangi rétt og eðlilega fyrir
ji sig. „Alþingi er ekki bara
menn að halda ræður í
pontu," segir Helgi. „Það sem
fer fram í þingsalnum er bara
gluggi í stóru húsi."
Helgi Bernódus-
son skrifstofu-
stjóri Hefurstarfað
á Alþingi í 22 ár.
Sjö þúsund
heimsóttu Steingrím
Frá því að grein birtist í DV um
vefsíðu um Steingrím Njálsson hafa
um sjö þúsund manns skoðað
hana. Um fimm hundruð manns
höfðu kíkt inn á síðuna áður en
greinin var birt.
Búið er að loka gestabók síðunn-
ar en inni á henni voru Steingrími
ekki vandaðar kveðjurnar og voru
þar óhuggulegar lýsingar á hvað
fólk hygðist gera ef það sæi hann.
Einnig höfðu nokkrir netsíðu-
gestir hópað sig saman og hugðust
fara heim til hans en heimilisfang
Steingríms er gefið upp á vefsíð-
unni.
Ekki er enn vitað hver stóð fyrir
síðunni né hver lokaði henni.
Steingrímur Njálsson Margirhafa heim-
sótt vefslðu um Steingrim.
i