Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2005, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2005, Page 4
4 FÖSTUDAGUR 14.JANÚAR2005 Fréttir DV Fertugur maður, Páll Þórðarson, kemur fyrir dóm í dag, ákærður fyrir að hafa rof- ið nálgunarbann. Hann hefur haft í hótunum við Helga Áss Grétarsson stórmeist- ara í skák sem á í sambandi við barnsmóður hans. Páll fær enga hjálp frá geðheil- brigðiskerfinu og hefur verið í fangaklefa meira og minna í marga mánuði. Ommur ekki dagmömmur í nýrri reglugerð um dagforeldra segir að þeir megi ekki vera eldri en 67 ára þegar sótt er um leyfi frá sveitarfélagi. Gæslan verður að fara fram á heim- ili viðkomandi sem fær leyfið til fjögurra ára. Að- eins í undantekningartil- vikum er heimilt að veita leyfi til daggæslu í húsnæði sérstaklega leigðu undir starfsemina. í reglugerðinni er sérstaklega tilgreint hvaða brot á hegningarlög- um hamla leyfisveitingu. Önnur brot eru sögð metin hverju sinni. Þá er leik- svæði barnanna minnkað um hálfan fermeter á barn. Svikahrappar á Suðurnesjum Töluvert hefur borið á því upp á síðkastið að Suð- umesjamönnum hafi borist bréf þar sem þeim er til- kynnt að viðkomandi hafi unnið 18,5 milljónir evra í lóttói. Bréfin koma frá Malaga á Spáni og eru þau merkt La Primitiva Loteria Y Apuestas. Svikahrappar standa fyrir þessu í þeim tilgangi að láta fólk greiða sér peninga fyrir einhveij- um ótilgreindum kostnaði sem fylgir því að fá „stóra vinninginn" sem svo aldrei kemur. Lögreglan í Keflavík segir fulla ástæðu til að vara almenning við þessum bréfum enda dæmi um að fólk hafi látið glepjast og glatað fé í þessa hrappa. Vf.is segir frá. Heimaþjónusta snarhækkar Andrés Sig- mundsson sem situr einn í minnihluta í bæjarstjórn Vest- mannaeyja segist ekki geta sætt sig við þá hækkun á gjaldi fyrir heimaþjónustu fyrir öryrkja sem meirihlutinn hefur ákveðið. „Hækkun heimaþjónustu við öryrkja munu nema allt að 140%. Þessi hækkun er algjörlega óásættanleg og ekki í anda vinstristefnu eða félagshyggju í málefn- um bæjarins," bókaði Andrés á fundi. Meirihlut- inn segir breytinguna gerða vegna „hækkunar í starfs- mati heimaþjónustu, breyt- inga á orlofsprósentu í út- reikningi og vegna fækkun- ar gjaldflokka". Skákmeistari ofsólhir og heimtar nálgunarbann f dag verður tekið fyrir í Héraðsddmi Reykjavíkur mál Lögreglu- stjórans í Reykjavík gegn Páli Þórðarsyni. Hann er ákærður fyrir að brjóta gegn nálgunarbanni gegn fyrrum bamsmóður sinni og núverandi sambýlismanni hennar, skákmeistaranum Helga Áss Grétarssyni, með hótunum um líkamsmeiðingar. Páll á við geðræna erfiðleika að stríða en er metinn sakhæfur. Mað- ur sem þekkir til mála hans segir hann enga hjálp fá frá geðheilbrigð- iskerfinu, sem vilji ekki sjá hann. Þess vegna séu einu úrræðin að hafa mál hans í lögreglumeðferð þar sem hann er ákærður og dæmdur í rétt- arkerfinu og geymdur í gæsluvarð- haldi á Litía-Hrauni. Braut af sér daginn eftir af- plánun Páll var dæmdur í sex mánaða fangelsi þann 7. júní í sumar og lauk afplánun 22. september. Þegar hann slapp út var honum bannað, með nálgunarbanni, að elta barnsmóður sína og mann hennar, nálgast þau á almannafæri eða setja sig í samband við þau. Daginn eftír var hann hand- tekinn fyrir að brjóta gegn nálgunar- banninu. Þá var hann úrskurðaður í gæsluvarðhald fyrir að hóta Helga á götu úti en það mátti hann ekki samkvæmt nálgunarbanninu. Hann hefur verið í gæsluvarð- haldi síðan í september og um áramótín ákvað Héraðsdómur Reykjavíkur að framlengja gæslu- varðhaldið að kröfu lögreglunnar. Hæstiréttur ákvað hins vegar fyrr í vikunni að vísa málinu frá þannig að Páll var leystur úr gæsluvarðhald- inu. Hann er því ákærður nú. Páll hefur fallist á að fá geðræna hjálp en samkvæmt upplýsingum DV hefur hann komið að lokuðum dyrum hjá heilbrigðisyfirvöldum. Þess vegna hefur ekkert dugað nema kaldur fangaklefinn. Fær ekki hjálp Hann sendi lögreglumanni bréf þar sem hann lýsir sínu hugarangri. Þar kom fram í tveimur bréfum að Gl Svarthöfði hann íhugaði að ffemja alvarlegan glæp. „...í hjarta mínu ber ég svo mikla reiði í garð ákveðins manns, að ég færi létt með að fremja glæp sem ylli því að ég fengi 16 ára fang- elsisdóm ... ég hef h'f þessa manns í hendi mér, það er mikið vald, ég finn fyrir því valdi, vegna þess að ég gætí beitt því, ekki kannski, eða líklega, nei hreint og klárt, gætí beitt því". Hann skrifar síðan í öðru bréfi að dragi fólkið ekki til baka kæruna á hendur honum sé það, „akkúrat það sem ég þurfi til að geta réttlætt það fyrir sjálfum mér að byrja aftur, ég er strax byrjaður að skipu- leggja í kollinum aðgerð- ir“. Síðar í bréfinu segir hann: „... vona að hún dragi ekki til baka, mig langar að hefna, mun hefria, ekki 1 ár, ekki 10 ár, alla ævi". Aftast í bréf- inu segir hann: „Eina sem stoppar mig er undirrituð skýrsla frá ... tilbúin kl. 7:00 þann 8. des. 2004 ef ekki, Guð hjálpi fjöl- skyldu hans." kgb@dv.is Eins og margir landsmenn, hefur Svarthöfði gaman af því að skoða sig um um helgar. Hann fer stundum í bfltúra um hverfi borgarinnar, eins og margir aðrir, og skoðar húsin sem fslendingar búa í. Það eru nú hall- irnar sem sumir eiga, skal ég segja ykkur. Þetta gerir Svarthöfði stund- um, skoðar hverfi og hús og hefur gaman af. Það skemmtilegasta sem Svart- höfði veit samt um helgar, fyrir utan að gefa öndunum brauð, er að fara í Kolaportíð. Þar kennir ýmissa grasa. f Kolaportinu finnur Svarthöfði plöt- ur með Emerson Lake og Palmer og Svarthöfði Crosby Stflls Nash & Young. Svo er hægt að gera reyfarakaup í fatnaði og húsgögnum. Sófasettið kom þaðan. Ljósakrónan lflca. Og frottesloppur- inn bleiki sem Svarthöfði fer í þegar hann ætlar að slappa rækilega af. Svarthöfði getur eytt löngum tíma í að máta föt í Kolaportinu. Hann tekur sér síðan hlé og fær sér hákarl og harðfisk. Eina pulsu með öllu eftir það. Byrjar svo aftur að skoða dótíð. En nú kom það upp síðast þegar íhjarta mínu ber ég svo mikla reiði í garð ákveðins manns, að ég færi létt með að fremja glæp sem ylli því að ég fengi 16 ára fangelsisdóm... ég heflífþessa manns í hendi mér." Hvernig hefur þú það? ,Mér dettur fyrst íhug skdldbróðir minn, Stefán Hörður Grímsson, “ segir Baldur Óskarsson skdld. Pað hringdi til Stefáns maður sem langaði að tala við skáldið og sagöi: Hvernig hefur þú það? Og skáldið sagði: Ég hefþað ágætt, bara efég fæ að vera í friði fyrir þér. En ég tek fram að ég ætla ekki að svara þérsvona. Ég hefþaö nokkuð gott. Hefsofíð mestan part dags- ins. Maður hefur ekkert annað fyrir stafni i skammdeginu. “ Svarthöfði var að skoða sig um, að hann fann herbúninga í felulitun- um. Þýskir stormsveitarbúningar innan um breska kafbátahergalla. Þarna fann Svarthöfði sem sagt borðaklæddan og velmerktan bún- ing af bandarískum hermanni. Þar sem hann er stríðinn, fór Svarthöfði beint í búninginn og út. Þær horfðu á hann stelpurnar þar sem hann sprangaði um Tryggvagötuna. Hon- um leið eins og GI Joe. GI Svarthöfði, það er ekki lélegt nafri. Hann gekk þar fram og tfl baka, eins og hann væri að vakta skattinn. Hann hló inni í sér, lengi, lengi. Svo fór hann yfir á Bæjarins bestu og fékk sér aðra pulsuna þann daginn. Þessi var bara með sinnepi. Svaithöfði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.