Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2005, Síða 13
DV Fréttir
FÖSTUDAGUR 14.JANÚAR2005 13
Þingeyingur
ársins
Héraðsfréttablað-
ið Skarpur á Húsavík
stóð fyrir kjöri á
Þingeyingi ársins.
Sigurvegarinn hefur
að vísu búið fyrir
sunnan um nokkurt
skeið, en það er Birgitta
Haukdal, söngkona írafárs.
„Vá, en frábært og þvílíkur
heiður!" sagði Birgitta í
samtali við Skarp eftir að
henni voru kynntar niður-
stöðurnar. Þá sagðist hún
vera stolt af því að vera
Þingeyingur og að hún
hugsaði sig alltaf sem sann-
an Húsvíking, þó hún hafi
búið í burtu í langan tíma.
Alls fengu rúmlega 40 ein-
staklingar atkvæði í kjörinu.
Borgi fyrir
hundana
Eigendur óskráðra
hunda á Blönduósi fá nú
hvatningu frá
bæjaryfirvöld-
um um að skrá
hundana áður
en gripið verði
til aðgerða.
Leyfisgjald vegna hunda-
halds er 12.500 krónur sé
greitt fyrir 1. febrúar en
17.000 krónur eftir það.
Innifalinn er kostnaður við
hreinsun og ábyrgðartrygg-
ingu. Fyrir hunda á bújörð-
um þarf aðeins að greiða
kostnað við hreinsun.
Minnt er á að gjald fyrir
lausa hunda sem eru hand-
samaðir af bæjarstarfs-
mönnum sé 6.500 krónur í
fyrsta skipti, 12.500 krónur
í annað skipti en 17.000
krónur í þriðja skiptið.
Fjölskyldan frá Sri Lanka Hefur búið
héríáttaár og er ánægð með hve vel
söfnun Rauða krossins hefurgengið.
Fjölskylda frá Sri Lanka sem býr hér á
landi vill þakka íslendingum fyrir fram-
lög til söfnunar Rauða krossins.
„Fólkið hér ersvo indælt
og sérstaklega hjálplegt"
Fjölskylda frá Sri Lanka sem hef-
ur búið hér á landi í átta ár vill
koma á framfæri þökkum til allra
sem lögðu sitt af mörkum í söfnun
Rauða krossins vegna hamfaranna í
Asíu.
Nayana Kanthi Mahagoda
Gedara bjó á Sri Lanka og á ættingja
og vini þar. Hún segist hafa verið
slegin þegar fréttirnar af hamförun-
um bárust. „Ég varð afar hrædd, það
var erfitt að horfa upp á myndirnar í
fréttunum, vita til þess að fólk missti
heimili sín og sjá vesalings börnin
sem áttu erfitt." Gedara var að von-
um hrædd um afdrif fólksins síns í
heimalandinu en var létt þegar hún
frétti frá mágkonu sinni að allir væru
heilir á húfi.
Gedara býr ásamt manni sínum
og bami, bróður og systur, í Hafnar-
firðinum. Eiginmaður hennar og
bróðir vinna í S£ld og fiski og
systurnar vinna á Hrafiiistu. Gedara
segir að það hafi verið ánægjulegt að
heyra af því hve vel söfnunin gekk.
Hún er ánægð með framlag ríkis-
stjórnarinnar sem og Sfldar og fisks
sem styrktu söfnunina. Henni finnst
mikilvægt að koma börnunum fyrst
til hjálpar og sjá til þess að þau sæki
skólann.
Gedara er ólétt og á von á sér inn-
an tveggja mánaða. Hún segir að
það aftri henni frá ferðalögum til
heimalandsins, allavega í bili. „Mig
langar að heimsækja Sri Lanka en
það verður að bíða í einhvern tíma.“
Fjölskyldan öll er mjög ánægð með
veru sína á íslandi og segir að það sé
gott að búa hér. „Fólkið hér er svo
indælt og sérstaklega hjálplegt,"
segir Gedara. „Það er helst kuldinn
sem er erfiður," segir hún hlæjandi.
Nýlega féll dómur í borgardómi Kaupmannahafnar yfir hinni
32 ára gömlu Anni Fönsby.
Danskt módel dæmt
tyrlr vændlsstarfsemi
í ljds hefur komið að Anni Fönsby, 32 ára fyrirsæta, var rekstrar-
aðili umfangsmikillar vændisstarfsemi í Kaupmannahöfii og
Óðinsvéum. Hún var dæmd fyrir skemmstu í árs fangelsi.
Anni á feril að baki sem Opnu-
stúlka í Playboy árið 1997 en á þeim
tíma reyndi hún að koma sér á fram-
færi í Hollywood. Anni fékk eins árs
skilorðsbundið fangelsi og var
dæmd til að greiða rétt yfir tvær
milljónir dkr. í sekt en það er sú
upphæð sem ákæruvaldið taldi að
hún hefði hagnast um á vændinu.
Anni mun hafa haft um tuttugu
lúxus-mellur í þjónustu sinni, ann-
ars vegar í hóruhúsi við Skt. Kjelds
Plads í Kaupmannahöfn og hins
vegar við Albanigade í Óðinsvéum.
Vændisstarfsemin stóð yfir á
tímabilinu 1. aprfl 1998 og til 19.
aprfl 2004 er lögreglan lokaði báðum
hóruhúsunum.
Playboy-fyrirsæta
Anni hélt utan til Hollywood um
miðjan síðasta áratug til að reyna
fyrir sér sem fyrirsæta og leikari.
Hún fékk fljótt tilboð frá Playboy um
að verða opnustúlka þess í einu
tölublaðanna. Hins vegar varð leik-
listarferillinn endasleppur enda fékk
hún ekki tilboð um önnur hlutverk
en í harðsoðnum klámmyndum.
Hún gafst því upp á Hollywood og
stofnaði hóruhúsið við Skt. Kjelds
Plads er hún kom heim aftur á árinu
1998.
A-hópurinn
Hóruhús Anni gengu undir nafn-
inu „a-gruppen“ eða A-hópurinn og
voru markaðssett sem leiðandi á
sínu sviði í háklassavændi. Fram
kom í réttinum að Anni vann ötul-
lega að því að halda þessu orðspori.
Hún sldpulagði starfsemina með
föstum vöktum, föstum verðum og
ströngum húsreglum. Til dæmis
máttu stúlkurnar hennar ekki vinna
hjá öðrum melludólgum eða
mömmum og þær máttu ekki vinna
meir en tvær vaktir í hverri viku svo
þær litu ætíð vel út og ferskar er þær
mættu í vinnuna.
Sagðist vinna sjálf
Anni hefur haldið því stíft fram
við réttarhöldin að hún hafi sjálf
unnið sem vændiskona á tveimur
fyrrgreindum hóruhúsum og að
húsin hafi verið samvinna hennar
og stúlknanna sem veittu þjónustu
sína þar. Hún hafi hins vegar staðið
í stússinu við daglegan rekstur, það
er kaup á smokkum, starfsmanna-
viðtöl, auglýsingar o.sv.fr. af því
hinar stúlkurnar nenntu því eldci.
Dómurinn tók þetta ekki til greina
og því var hún dæmd sem mellu-
mamma en ekki bara ein af vændis-
konunum.
... að vera laminn?
„Aðaltilfinningin er auðvitað
hræðsla. Maður verður bara skít-
hræddur og veit ekki hvað er að
gerast. Það fylgir lflca oft hrikaleg-
ur sársauki þegar það er sparkað í
mann og maður
er kýldur.
Manni líður
auðvitað ekki
vel að vera
laminn, það er
alveg auðgefið.
Ótti er líka
yfirgnæfandi
tilfinning og
maður fær bara
hnút í magann.
Þetta er svona
tilfinning eins
þegar maður
þarf að æla en
maður þarf það
samt ekki. Ég
get ekki setið
eða legið og
þess vegna hef
ég eiginlega
ekkert sofið
eftir árásina út
af bakverkjum
og bara verkjum um allan lík-
amann. Ég er búinn að dæla í
mig bólgu- og verkjastillandi lyfj-
um en þau virka lítið.
Bara einhver misskilningur
Við vorum í partíi á laugar-
dagskvöldið. Þetta var bara ein-
hver misskilningur. í þessu partíi
var sem sagt kærasta eins stráks-
ins. Ég á víst að hafa hringt í
mömmu hennar og sagt að
stelpan væri dópisti. Daginn eft-
ir, eða á sunnudagseftirmiðdeg-
inum, hittum við vin okkar og
hann dró okkur út í sjoppu. Þeg-
ar við komum þangað voru þrír
strákar þar. Um leið og við kom-
um, þá labbar einn strákurinn
upp að mér og spyr: Hver er
Kristó? Kristófer er sem sagt vin-
ur minn sem var lflca laminn. Ég
benti honum á að Kristó stæði
við hliðina á mér.
Varði andlitið en þá var
sparkað í líkamann
Um leið og ég sagði það
stukku þeir allir þrír á hann og
kýldu hann, þá datt hann niður
og þá byrjuðu
þeir að sparka í
hausinn og Iflc-
amann á hon-
um. Kristófer
náði að verja
andlitið en þeir
létu bara
spörkin dynja á
hnakkanum á
honum f stað-
inn. Það var
lflca einhver
stelpa með
þeim sem öskr-
aði: Hélstu að
við myndum
ekki frétta
þetta? Þeir voru
þrír og allir að
berja einn strák
sem lá á jörð-
inni og allt út af
einhverju kjaft-
æði.
Vegfarendur stoppuðu
Eg fraus fyrst því mér brá svo
þegar þeir stukku á hann. Síðan
reyndi ég að ýta þeim burtu en
um leið og ég ýtti einum og ædaði
að ýta næsta þá var hinn kominn
og ég var kýldur og þá datt ég í
jörðina. Þá byrjuðu þeir að
sparka í bakið á mér og ég gat
ekkert gert til að hjálpa vini mín-
um. Það voru vegfarendur sem
stoppuðu þetta. Það var maður
að labba framhjá sem stoppaði
barsmíðarnar og ég þakka guði
fyrir það, annars hefðu þeir
örugglega drepið Kristófer. Það
tekur mann smá tíma að ná sér
eftir svona mál. Þetta er náttúru-
lega eitthvað sem enginn vill
lenda í og enginn á að þurfa að
lenda í neinu slflcu. Ég hef ákveð-
ið að kæra ekki í þetta skipti en ef
eitthvað svona gertist aftur þá
hika ég ekki.“
rtan Þór Þórisson nemi lenti í því á sunnudaginnaðveralaminnásamt
Um leið og ég sagði
það, þá stukku þeir
allir þrír á hann og
kýldu hann, þá datt
hann niður og þá
byrjuðu þeir að
sparka í hausinn og
líkamann á honum.
Þeir voru þrír og
allir að berja einn
strák sem lá á jörð-
inni og allt út af
einhverju kjaftæði.