Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2005, Page 16
16 FÖSTUDAGUR 14. JANÚAR 2005
Sport DV
„Þórey Edda er alltafað
bæta sig og má vænta
góðs árangurs frá henni
á árinu. Hún hefur nú
náð að aðlagast og er
komin inn í hlutina úti í
Þýskalandi þar sem hún
hefur verið við æfingar
undanfarið ár. Efhún
sleppur við meiðsli,
gæti hún náð langt á
þessu keppnistímabili."
Árið 2005 verður stórt ár í heimi frjálsíþrótta
sýni ríkir í herbúðum þeirra fyrir átökin í ái
átti frábært ár, tvíbætti íslands- og Norðurlai
Þegar árið 2004 er gert upp er árangur Þóreyjar Eddu Elísdóttur
á Ólympíuleikunum í Aþenu það sem stendur upp úr. DV Sport
ræddi við Egil Eiðsson, framkvæmdastjóra Frjálsíþróttaráðs
íslands, og bað hann að spá í spilin fyrir næsta ár.
Þegar við spurðum Egil hvað
hefði að hans mati borið hæst á
liðnu ári í írjálsíþróttunum, sagði
hann það tvímannalaust góðan ár-
angur Þóreyjar Eddu í stangarstökki
á Olympíuleikunum í Aþenu í sum-
ar.
„Þórey hafnaði í fimmta sæti á
leikunum og því liggur beinast við
að velja hana þegar rætt er um þá
sem sköruðu fram úr á árinu. Einnig
náði Ásdís Hjálmsdóttir frábærum
árangri í spjótkastinu með því að ná
6. sæti á heimsmeistaramóti ung-
linga, 19 ára ogyngri."
Ef þetta er undanskilið var árið
2004 ekki stórt ár fyrir íslenska af-
reksfólkið og segir Egill það öllum
vonbrigði að ekki skyldi ganga betur.
„Jú, það er ekki laust við að allir
hefðu viljað koma fleiri frjálsíþrótta-
mönnum á t.d. ólympíuleikana. ís-
land hefur yfirleitt verið með nokkra
fulltrúa úr frjálsíþróttunum, en í
fyrra voru þeir aðeins tveir. Það voru
gerðar miklar væntingar til afreks-
fólksins okkar, en því miður tóku
meiðsli þungan toll af liðinu," sagði
Egill.
Nokkrir af þeim íþróttamönnum
sem hafa gert hvað besta hluti und-
anfarið hafa átt við löng og erfið
meiðsli að stríða, sem gerðu það að
verkum að þeim var ekki fært að
„Það voru gerðar
miklar væntingar til
afreksfólksins okkar,
en því miður tóku
meiðsli þungan toll
afliðinu."
taka þátt í stórmótum á árinu.
„Magnús Aron Hallgrímsson,
kringlukastari úr Breiðabliki, var til
að mynda meiddur allan fyrri hluta
síðasta árs. Vala Flosadóttir var
meidd allan síðari hluta ársins og
svo hefur Einar Karl Hjartarson úr ÍR
verið að berjast við þrálát meiðsli
síðustu tvö ár,“ sagði Egill. Eins og
flestir vita hafa sömu vandræðin elt
tugþrautarkappann Jón Amar
Magnússon, en oft er engu lfkara en
að hann sé undir meiðslaálögum
þegar kemur að stórmótum.
Stórt ár framundan
Árið 2005 verður stórt ár í frjáls-
um íþróttum og fjöldi móta verður í
meira lagi. Við fengum Egil til að fara
yfir þau helstu með okkur.
„Það sem er efst á baugi í augna-
blikinu er EM innanhúss í Madríd
4.-6. mars og er fólkið okkar að
keppast við að ná lágmörkum inn á
það í mótum í febrúar. HM í
Helsinki verður svo mjög öflugt mót,
en þar verða lágmörkin mjög stíf og
raunar svipuð og inn á ólympíu-
leika. Það er þó okkar von að fleiri
keppendur nái lágmörkunum á
þetta mót en á ólympíuleikunum.
Ásdís Hjálmsdóttir er tU dæmis mjög
nálægt því að ná inn þar og Silja Úlf-
arsdóttir gæti komið til greina þar í
400 metra grindahlaupi." Smá-
þjóðaleikarnir verða haldnir í And-
orra í maí og júní, þar sem reiknað er
með að um 20 keppendur keppi fyr-
ir íslands hönd í frjálsum íþróttum.
„Á Smáþjóðaleikunum erum við líka
að reyna að keyra það í gegn að
stangarstökk kvenna verði gert að
keppnisgrein og höfum við verið að
undirbúa beiðni þess efnis. Síðan er
Evrópubikarkeppni landsliða í
Stangarstökkvarinn Vala Flosadóttir sátt viq
Stefnir ótrauð á toppinn
Vala Flosadóttir, stangar-
stökkv'ari og bronsverðlaunahafi
frá ólympíuleikunum í Sydney árið
2000, hefur eins og unnusti henn-
ar, Magnús Aron Hallgrímsson, átt
við þrálát'meiðsli að striða undan-
farin ár. Hún er nú við æfingar í
Árósum í Danmörku undir leið-
sögn Vésteins Hafsteinssonar sem
þjálfar þar danska frjálsíþróttafólk-
ið og er það von manna að hún nái
sér á strik aftur eftir nokkur mögur
ár. Vala kveðst hæstánægð með
veru sina í Árósum og stefnir
ótrauð á að verða aftur á meðal
hinna bestu. Hún segir að á síð-
ustu þremur árum hafi hún verið
langt frá sínu besta því meiðsli hafi
aftrað því að hún hafi getað æft
almennilega og komið sér í gott
form. Þegar hún æfði í Svíþjóð var
áhersian mikið lögð á tækniæfing-
ar og Vala telur að það hafi komið
niður á hraða sínum og styrk og
því skemmt nokkuð fyrir sér. í
Árósum er áherslan hins
vegar lögð á að koma
líkamlegu þátrimum
aftur í lag og hefur
hún unnið að því í
samráði við Lars
Nielsen, yfirmann
frjálsíþróttamála í
Danmörku. Vala