Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2005, Page 3

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2005, Page 3
DV Helgarblað LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2005 3 j Stefán Máni Er með eld- Ifimabókf smfðum. Hann j hefur sent nokkrum aðil- Iurn innan útgáfugeirans kafla úr bókinni og hefur sá kafli valdið nokkrum usla meðal viðtakenda sem með viðbrögðum sfnum skrifa sig óafvitandi inn I bókina. Verið velkomin Reynið þjónustuna Verslið við fagmenn »Jr/ c/t/ti rtty //fJ ftifi .si/ntmn Kata í Skemmuvegi 16 (Blá gata) • 200 Kópavogur • Sími 587 1350 tvennu lagi Þau leiðu mistök urðu við vinnslu blaðsins í gær að það gleymdist að geta þess að við- tal við þing- konuna Katrínu Júlí- usdóttir birt- ist í tvennu lagi. Viðtalið er á blaðsíðu 26-27 en framhaldið er áblaðsíðuál. Er beðist velvirðingar á óþægindum sem kunna að skapast af þessu. TOYOTA viðgerðaraðili Rithöfundurinn Stefán Máni sendi nokkrum útvöldum í út- gáfubransanum kafla úr bók sinni sem hann er nú aö skrifa. Bókin, sem ber vinnutitilinn „Túristinn“, fjallar um bóka- heiminn og höfundana. Það sem viðtakendur ekki vissu var að með viðbrögðum sínum tóku þeir þátt i gerð bókarinnar. Lesendur munu tengja persónur bókarinnar við ýmsa þekkta höfunda - oft með fremur óvirðulegum hætti. Djöfullegt ráðabrugg Stefáns Mána Útgáfu- bransinn skelkaður „Það er alls ekki útilokað. Þau viðbrögð sem ég hef fengið hingað til hafa mörg hver ratað í bókina bæði beint og óbeint. Þetta eru miklar póstmódernískar pælingar og ég er opinn fyrir allri umræðu," segir Stefán Máni rithöfundur. Grunsemdir vakna Hann vinnur nú hörðum hönd- um að sinni næstu bók og stefnir að því að ljúka henni fyrir sumarið. Vmnutitillinn er „Túristi" og þar fjallar Stefán Máni um útgáfugeir- ann, um útgefendur og höfunda. Og óhætt er að segja að Stefán Máni láti virðuleg efnistök lönd og leið. Hann brá á það ráð að senda nokkrum að- ilum innan útgáfubransans brot úr bókinni og bað jafnframt um við- brögð. Þetta er ekki stór heimur og menn spurðu sig: Hvers vegna er hann að senda mér þetta? Er hann ekki með útgefanda? Menn hafa nú verið að lesa kaflann sem er alllang- ur og fljótlega fóru að renna á menn tvær grímur. Þeir fóru að gruna Stef- án Mána um græsku og komust að því að kannski væri höfundurinn ekki allur þar sem hann er séður. Vöknuðu grunsemdir um að þeir sjálfir væru hugsanlega skotspónn höfundarins og viðbrögð þeirra við þessari sérkennilegu ósk. Nú hefur Stefán Máni staðfest það við DV sem hefur heimildir fyrir því að útgefandi Stefáns Mána hjá Máli og menningu hafi fengið kaflann sem og Bjarts- klíkan, Þröstur Helgason hjá Mogg- anum og JPV-menn. Stefán Máni segir aðspurður að nokkrir útvaldir, um hálfur tugur, hafi fengið kaflann til yfirlestrar og góður meirihluti hafi brugðist við. Þeim viðbrögðum hefur rithöfundurinn nú gert sér matúr. Gömlu fákarnir munu stappa niður fótum En má þá skilja þetta sem svo að þú sért ekkimeð útgefanda að þess- ari tilteknu bók? „Jahh, ég er bara að leyfa mönn- um að fylgjast með. Þetta er bók sem ég er ekkert búinn að selja. Maður er frjáls maður í frjálsu landi. Ég gaf síðast út hjá Máli og menningu. En það er bara samn- ingur sem er um eina bók í einu. Ég er ekki samningsbundinn til lengri tíma. Þessi bók er svolítið eldfim og ég vil bara hafa vaðið fyrir neðan mig. Ef minn forleggjari treystir sér ekki í þetta þá er ég með aðra í bið- stöðu. Ekkert meira á bak við það, engin dramatík eða uppgjör. Ég geri ráð fyrir þeim möguleika að gömlu fákarnir á forlaginu eigi eftir að stappa niður fótum. En það er ekk- ert sem ég hef fyrir mér í. Mér þætti miður ef þeir treysta sér ekki til að gefa bókina út. En maður er að reyna að vega þetta og meta. Þetta er bara bisness. Ekkert persónulegt frekar en bókin verður." Hulda R. og Andri S. Ekki persónuleg bók, segir Stef- án Máni. DV hefur hins vegar fyrir því heimildir að í kaflanum sem hann sendi sé talað miður virðu- lega um Andra Snæ sem heitir Andri S. í bókinni líkt og Einar Már er Einar M. Kristján Bjarki yfir- plöggari og þróunarstjóri Eddu útgáfu er ekki mjög virðulegur í áðurnefndum bókarkafla og þá er þarna persóna sem heitir Hulda R. Breiðfjörð. Sú kallar ekki allt ömmu sína. Stefán Máni segir það rétt upp að vissu marki að tekið sé hraust- lega á kollegunum en þetta sé ekki á persónulegum nótum þó. Stefán Máni gefur lítið fyrir að mönnum hafi ofboðið. „Ætli það endi ekki með því að þeir verði sárastir sem ekki fá að fljóta með. En ég tel þetta nú allt innan velsæmismarka." jakob@dv.is iftUV Fulltnafn: Þóra Sigurðardóttir. Fæðingardagur og án 2. júnf 1976. Maki: Enginn. Böm: Kötturinn Lufsi. Bifreið: VW Golf 2000. Starft Umsjónarmaður Stundarinnar Okkar. Laun: Duga. Áhugamál: Vinir mínir, fjölskylda, lesa, synda og dansa. Hvað hefur þú fengið margar réttar tölur f lottóinu? Tvær. En ég á fullt af lottómiðum sem ég á eftir að tékka á, gæti í raun verið forrík. Hvað finnst þér skemmtilegast afi gera? Að fara til útlanda. Hvað finnst þér leiðinlegast að gera? Að þrífa. Uppáhaldsmatur: Indverskur matur. Uppáhaldsdrykkun Diet appelsfn. Hvaða fþróttamaður finnst þérstanda ffemsturfdag?RoyKeane. Uppáhaldstfmarit: Maire Claire. Hver er fallegasti maður sem þú hefur séð? Aragorn, ekki Viggó, heldur persónan. Og Vin Diesel. Ertu hlynnt eða andvfg rfkisstjóminni? Hlutlaus. Hvaða persónu langar þig mest að hitta? Tilvonandi eiginmann minn. Uppáhaldsleikari: Kevin Spacey. Uppáhaldsleikkona: Nicole Kidman. Uppáhaldssöngvari: Jói G. í Stundinni okkar. Uppáhaldsstjómmálamaður: Katrín Júlíusdóttir. Uppáhaldsteiknimyndapersóna: Kobbi kló. Uppáhaldssjónvarpsefhi: Stundin okkar. Ertu hlynnt eða andvfg veru vamar- Þóra í Stundinni okkar liðsins hér á landi? Andvíg. Hver útvarpsrásanna finnst þér best? Rás 2. Uppáhaldsútvarpsmaður: Óli, Freysi og Guðni. Get ekki gert upp á milli. Stöð 2, Sjónvarpið eða Skjár einn? Sjón- varpið. Uppáhaldssjónvarpsmaðun Jói G. Uppáhaldsskemmtistaður: Erfitt að gera upp á milli. Uppáhaldsfélag f fþróttum: Manchester United. Stefnirðu að einhverju sérstöku f framtfð- innl: Heimsyfirráðum eða dauða. Hvað ætlar þú að gera f sumarfrfinu? Eg er að spá í að fara, jafnvel ein, alveg rosa- lega langt í burtu. Og fartölvan kemur með. Bifreiðaverkstæði Kópavogs fyrirtæki sem hefur upp á er þjónustu- að bjóða: 1. Almennar bílaviðgerðir Starfsmenn fyrirtækisins eru bifvélavirkjameistarar og vanir viðgerðum á öltum algengustu fólksbílum og jeppum. 2. Mótorstillingar Við erum meó réttu tækin (t.d. stillitölvu o.m.fl.). 4. Smurþjónusta Vió veitum einnig alla smurþjónustu. 3. Reglubundið viðhald Við bjóðum upp á skoðanir þ.e. á 10 þús. km fresti förum við rækilega yfir bílinn (undirvagn, stýrisgang, vél o.s.frv.).

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.